Morgunblaðið - 23.08.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
HÚSFYLLIR var á fundi lögregl-
unnar í Reykjavík, borgaryfirvalda
og veitinga- og skemmtistaðaeig-
enda í miðbænum. Rætt var um
menninguna í miðborginni og hvaða
leiðir væru færar til þess að sporna
við óæskilegum fylgifiskum skemmt-
analífsins. „Við vitum það öll að í
miðborginni er fjölbreytt mannlíf,
blómleg starfsemi og fjöldi íbúa.
Þangað koma menn á öllum tímum
sólarhringsins til þess að sækja af-
þreyingu, þjónustu og skemmtan.
Það sem blasir við okkur núna í kjöl-
far lengingar opnunartíma skemmti-
staða í miðborginni er sú staðreynd
að þar eru hagsmunir að rekast á.
Kúnnar ykkar sem eru á ferðinni
klukkan, sex, sjö eða átta á morgn-
ana eru á staðnum þegar fólk kemur
í bæinn til þess að gefa öndunum á
Tjörninni og fara í búðir,“ sagði Stef-
án Eiríksson, lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins, í upphafi fundar.
Stefán sagði að það væri kominn
tími til þess að endurskoða af-
greiðslutíma skemmtistaða í mið-
borginni og færa þá staði sem talið
er eðlilegt að opnir séu lengur eitt-
hvað annað, í því skyni að fækka
árekstrum við íbúa miðborgarinnar
og aðra sem þangað koma. Nefndi
Stefán í því samhengi að takmarka
afgreiðslutíma skemmtistaða í mið-
borginni, dreifa honum yfir langt
tímabil milli eitt og fjögur og beina
næturklúbbastarfsemi eitthvað ann-
að.
Skuldbindi sig til samvinnu
Hugmyndir lögreglustjóra um að-
gerðir gegn ofneyslu áfengis voru
sennilega helsta nýmæli fundarins.
„Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé
ástæða til þess að koma fyrir aðstöðu
í miðborginni þar sem lögregla,
skemmtistaðaeigendur og aðrir geti
farið með einstaklinga sem eru
áfengisdauðir. Þar geti þeir sofið úr
sér, notið aðstoðar hjúkrunarfræð-
ings ef svo ber undir og einhver frá
félagsþjónustunni getur náð í að-
standanda sem er með ráði og
rænu,“ sagði Stefán. Ótrúlega mikill
tími lögreglu færi í það að sækja of-
urölvi fólk fyrir utan skemmtistaðina
í miðbænum, aka því upp á lögreglu-
stöðina á Hverfisgötu og færa það
fyrir varðstjóra sem síðan reynir að
hafa samband við aðstandendur eða
leysa málið á annan hátt.
Stefán viðraði að lokum hugmynd
sína að samvinnuverkefni skemmti-
staða, lögregluyfirvalda og borgar-
yfirvalda. „Við getum skuldbundið
okkur sameiginlega með því að
segja: Lögreglan, borgaryfirvöld og
eigendur tiltekinna veitingastaða
eru sammála um að þeir eru á móti
ofbeldi, eiturlyfjum og ofneyslu
áfengis.“ Síðan verði skilgreint hvað
felist í skuldbindingunni af hálfu
hvers og eins.
Afgreiðslutíma ekki breytt
Lögregla skuldbindi sig til að
standa fyrir öflugri og sýnilegri lög-
gæslu, borgaryfirvöld til að skjóta
skjólshúsi yfir ofurölvi einstaklinga
og skemmtistaðaeigendur til að til-
kynna lögbrot til lögreglu, halda
þrifalegu í kringum skemmtistaði og
sjá til þess að áfengi sé ekki borið út
af skemmtistöðum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arstjóri tók það skýrt fram í ræðu
sinni að hann hefði engar tillögur um
breytingar á afgreiðslutíma
skemmtistaða, en í dag skal stöðum
lokað klukkan hálfsex. „Mér finnst
eðlilegt að þetta sé rætt, en eitt er
víst að breytingar verða ekki gerðar
nema í nánu samráði við rekstrar-
aðila, það þykir mér alveg einsýnt.“
Samstarfið mikilvægt
Vilhjálmur kvað samstarf borgar-
yfirvalda og lögreglu hafa verið mjög
gott. „Ég er þeirrar skoðunar að
sýnileikinn hafi gríðarlega mikið að
segja í störfum lögreglu og borgar-
yfirvöld eru reiðubúin til að leggja til
mannafla í þetta eftirlit, ekki bara á
nóttunni heldur líka að degi til,“
sagði Vilhjálmur og bætti við að
borgaryfirvöld væru tilbúin til þess
að kaupa fleiri eftirlitsmyndavélar,
átta talsins, og koma þeim fyrir á
Laugaveginum. Hins vegar ætti eftir
að útfæra það nánar hvernig staðið
yrði að rekstri myndavélanna, en
hann væri mjög kostnaðarsamur.
Vilhjálmur sagði að samstarfið við
hagsmunaaðila hefði hins vegar
hingað til ekki verið nægilega mikið,
en með sameiginlegu átaki þessara
aðila væri mögulegt að ráða bót á
mörgu sem betur má fara í miðbæn-
um. „Þessi fundur er því mjög góður
og verður vonandi ekki sá síðasti.
Lögregla og borg þurfa að vera með
eina öfluga samráðsnefnd um þessi
mál og sú nefnd þarf að eiga gott
samstarf við rekstraraðila. Þannig
náum við árangri saman og ég bind
því vonir við að þessi fundur muni
marka það samstarf sem er svo mik-
ilvægt í þessu sambandi,“ sagði Vil-
hjálmur að lokum.
Kominn tími til þess að
endurskoða afgreiðslutíma
Morgunblaðið/Júlíus
Lagt við hlustir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, viðraði hugmyndir sínar um betri miðbæj-
armenningu. Mikill fjöldi veitingamanna sótti fundinn og kvaddi sér hljóðs og kom aðsóknin Stefáni á óvart.
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
borgarstjóri, segir að borgarbúar
vilji geta gengið um göturnar í
hjarta borg-
arinnar óáreittir
virka daga og
að næturlagi og
afskipti hans af
málum áfeng-
isútsölunnar í
Austurstræti
markist af því
og engu öðru.
Síðan geti þeir
sem þannig séu
innrættir reynt að snúa út úr því,
en í Morgunblaðinu í gær var frá
því sagt að hætt væri að selja
kældan bjór í áfengisútsölunni,
en ekki væri hægt að hætta selja
bjór í stykkjatali þar sem það
væri brot á jafnræðisreglu að
mati ÁTVR.
„Ég vil bara að venjulegur
Reykvíkingur og þeir sem heim-
sækja borgina, erlendir og inn-
lendir, geti gengið um í hjarta
borgarinnar án þess að verða fyr-
ir áreiti,“ sagði Vilhjálmur enn-
fremur.
Hann sagði að rangt væri að
hann hefðu á einhverju stigi
málsins óskað eftir því að áfeng-
isútsölunni í Austurstræti yrði
lokað. Hann hefði einungis sett
fram tilmæli um að hætt yrði að
selja bjór í stykkjatali vegna fjöl-
margra ábendinga og umkvart-
ana frá fólki sem legði leið sína
um Austurstrætið eða væri með
atvinnurekstur á svæðinu og
hefði ekki frið fyrir kvabbi frá
ógæfufólki.
Vilhjálmur benti jafnframt á að
borgin væri að leita að úrræðum
og kaupa húsnæði fyrir fólk sem
ekki ætti annars staðar höfði sínu
að að halla og það væri ein-
kennilegt ef ekki mætti reyna að
stemma stigu við ónæði af ofan-
greindu tagi. Í ljósi niðurstöðu
ÁTVR hefði það hins vegar verið
rætt við lögregluyfirvöld að þau
ykju sýnilega löggæslu á þessu
svæði.
Borgarbúar
vilja geta
verið óáreittir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
ÞYRLA Landhelgisgæslu Íslands
og björgunarsveitir voru kallaðar út
að Köldukvísl við Svarthöfða eftir
hádegið í gær vegna tveggja ungra
kvenna sem höfðu fest bíl sinn í
ánni. Konurnar sluppu ómeiddar en
voru að vonum nokkuð skelkaðar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Hvolsvelli komu ferða-
félagar kvennanna þeim til bjargar,
en þær höfðu farið upp á þak bif-
reiðarinnar eftir að hún festist í
vatnsmikilli ánni. Þyrla Gæslunnar
var við leit í Skaftafelli þegar kallið
barst en um 20 mínútna flug er frá
Skaftafelli að Köldukvísl. Þyrlan
var svo gott sem komin á vettvang
þegar aðstoð hennar var afturköll-
uð.
Hjálparsveitin Dalbjörg, Flug-
björgunarsveitin á Hellu og björg-
unarsveitin Dagrenning voru einnig
kallaðar út en aðstoð þeirra var
einnig afþökkuð.
Sátu fastar á
þaki bifreiðar
AÐ loknum aðfaraorðum lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins og borgarstjóra hófust fjörugar umræður
og fjölmargir skemmtistaðaeigendur hófu upp raust
sína.
Mjög skiptar skoðanir voru um ágæti reyk-
ingabannsins. Rekstraraðilar Kaffibarsins og Barsins
lögðu mikla áherslu á að frá banninu yrði horfið þar
sem bannið væri nú, með lækkandi sólu og kólnandi
veðurfari, farið að reyna á þolrif reykingafólks og
aukins pirrings gætti í röðum þess. Aðrir sögðu
bannið hina mestu guðsgjöf og viðskiptavinir væru í
langflestum tilvikum hæstánægðir með að vera lausir
við reykinn, jafnvel þótt aukinnar svitalyktar og tá-
fýlu gætti á skemmtistöðum bæjarins.
Rekstraraðili Glaumbars og Hverfisbarsins kvað
það heillavænlegast að leyfa viðskiptavinum staðanna
að taka áfengi með sér út af stöðunum, að því til-
skildu að allt áfengi yrði fyrst sett í plastglös. Með
þessu móti væri spornað gegn því að viðskiptavin-
irnir læddust út með flöskur og glös og því dregið úr
hættu á slysum og óþægindum sem fylgja gler-
brotum.
Skiptar skoðanir fundargesta
TJÖRVI Freyr
Freysson fæddist í
Reykjavík 22. mars
2005. Hann lést í
Reykjavík 21. ágúst
síðastliðinn.
Tjörvi er sonur Elfu
Hrannar Valdimars-
dóttur kennara og
Freys Friðrikssonar,
yfirmanns hjá Agli,
þjónustuverkstæði
BYKO.
Bróðir Tjörva er
Valdimar Freyr
Freysson fæddur 16.
október árið 2003.
Tjörvi greindist með krabbamein
sem kallast taugakímsæxli 1. sept-
ember árið 2006, þá aðeins 17 mán-
aða gamall.
Í kjölfar greiningarinnar tók við
mikil og ströng lyfjameðferð á
Barnaspítala Hrings-
ins. Eftir hana fór
hann utan til Svíþjóð-
ar í mikla aðgerð, há-
skammtameðferð,
fékk hreinan merg og
þriggja vikna geisla-
meðferð. Eftir að
heim var komið í
mars 2007 tók við vít-
amínmeðferð.
Í byrjun sumars
kom í ljós að krabba-
meinið var komið aft-
ur í Tjörva og fljót-
lega eftir það tók við
hörð lyfjameðferð. Við endurkomu
krabbameinsins í þessu tilviki er
engin lækning enn fundin og því
var ljóst í hvað stefndi.
Útför Tjörva verður gerð frá Ár-
bæjarkirkju miðvikudaginn 29.
ágúst næstkomandi kl. 15.
Andlát
Tjörvi Freyr
Freysson