Morgunblaðið - 23.08.2007, Page 31

Morgunblaðið - 23.08.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 31 Séra Sigurður Haukur var óþreyt- andi að hvetja samstarfsfólk sitt til dáða við byggingu Langholtskirkju, en fjárhagserfiðleikar voru miklir við þá stóru framkvæmd og oft virt- ust öll sund lokuð. En í þessu sem öðru hafði hann traust og öflugt fólk sér við hlið sem sameiginlega lyfti því grettistaki að ljúka byggingu kirkjunnar en hún var vígð í sept- ember 1984. Séra Sigurður Haukur studdi af krafti vaxandi kórastarf við Langholtskirkju og stóð þétt við hlið organistans og annarra sem hafa unnið að því merka starfi undan- farna áratugi. Kennimaðurinn séra Sigurður Haukur vakti fljótt eftirtekt fyrir beinskeyttar ræður sínar og kröft- ugan flutning. Umfang þjónustu hans jókst mjög hratt eftir að hann kom í Langholtskirkju enda voru það ekki aðeins sóknarbörnin sem til hans leituðu á stundum gleði sem sorgar heldur sótti til hans fólk víða að. Eiginkona séra Sigurðar Hauks, frú Kristín Gunnlaugsdóttir, stóð þétt við hlið manns síns í hans um- fangsmiklu og krefjandi þjónustu. Af virðingu og með innilegu þakk- læti fyrir mikla og fórnfúsa þjónustu í áratugi kveður Langholtssöfnuður séra Sigurð Hauk Guðjónsson að leiðarlokum og biður Drottin Guð að helga minningu hans og varðveita hann hjá sér um eilífð. Söfnuðurinn sendi frú Kristínu Gunnlaugsdóttur, börnum þeirra hjóna og fjölskyldu innilegar samúð- arkveðjur. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur Langholtsprestakalls. Ég skil ekki enn hvernig hann þorði að láta líf sitt í mínar hend- ur … Fyrir tuttugu árum gekk ég á fund séra Sigurðar Hauks, sem ég uppgötvaði síðar að ávallt var kall- aður Haukur, og spurði hvort ég mætti skrá æviminningar hans. Svona var maður kaldur í þá daga … Hann var um sextugt, ann- álaður fyrir kjarnyrtar stólræður og beittan penna, lífsreyndur guðsmað- ur og fyrrverandi forseti Sálarrann- sóknarfélags Íslands. En ég bara rúmlega þrítug, með tveggja ára reynslu í blaðamennsku og hafði aldrei skrifað bók. Auðvitað hefði hann sjálfur farið létt með að festa endurminningar sínar á blað, án þess að ég kæmi þar við sögu. Haukur sýndi mér hins vegar það mikla traust að svara bón minni játandi – og vikum saman átt- um við morgunfundi á skrifstofu hans í Langholtskirkju. Ég mætti með segulband og spurningalista og hann með alla sína miklu reynslu, bæði úr einkalífi og starfi. Og þótt það hljóti að hafa verið honum mik- ilvægt að samstarf okkar skilaði skammlausri bók lét hann mig aldrei finna að hann vantreysti mér. Þvert á móti. Hann leyfði mér algjörlega að ráða ferðinni. Svaraði öllum spurningum mínum – tæpitungu- laust, eins og hans var von og vísa – og gerði nánast engar athugasemdir þegar hann fékk handritið til yfir- lestrar. Hann amaðist ekki einu sinni við titlinum, Guð almáttugur hjálpi þér, sem ég hafði óttast að honum þætti einum of flippaður. Eftir að vinnslu bókarinnar lauk vorum við Haukur aðeins í jólakorta- sambandi. Þrátt fyrir það hélt hann áfram að vera áhrifavaldur í lífi mínu. Því kynnin af honum breyttu mér. Ný vídd bættist við – og fyrir það er ég honum eilíflega þakklát. Hin hreina og beina afstaða Hauks til trúarinnar var eins og ferskur andblær og blés lífi í glæður minnar gömlu og góðu barnatrúar. Og óhagganleg fullvissa hans um fram- haldslíf kveikti hjá mér löngun til að öðlast svipaða sálarró og spíritism- inn veitti honum. Þetta er veganestið sem ég fékk frá honum og það hefur auðgað tilveru mína síðastliðna tvo áratugi. Nú er Haukur farinn yfir á annað tilverusvið og hefur hitt fyrir alla þá sem farnir voru á undan. En sann- færing um að hann sé á góðum stað breytir því ekki að söknuður ríkir í brjósti þeirra sem þótti vænt um hann. Ég sendi Kristínu, börnum Hauks og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Jónína Leósdóttir. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, vinur minn, mentor og vígsluvottur, og einn áhrifamesti kennimaður síð- ari hluta 20. aldarinnar hér á landi, er fallinn frá. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar ég ungur maður var nýbyrjaður í guðfræðinámi og bjó í Álfheimum nærri Langholtskirkju. Hluti af námi mínu við guðfræði- deildina átti að tengjast starfi við kirkju undir leiðsögn prests. Mér datt því í hug að banka upp á hjá sr. Sigurði til að forvitnast um hvort hann myndi vilja hafa mig innan- borðs í Langholtskirkju í barnastarf- inu einn vetur. Þá þekkti ég sr. Sig- urð Hauk ekkert nema af afspurn, vissi að sjálfsögðu að hann var þekktur maður með staðfastar skoð- anir og umdeildur í kirkjunni. En ég lét slag standa. Og skemmst er frá því að segja að sr. Sigurður Haukur tók mér opnum örmum og opnaði kirkjuna sína upp á gátt fyrir mér. Það sama gerði Jón Stefánsson kant- or kirkjunnar og reyndar allt starfs- fólk Langholtskirkju. Þetta var árið 1983. Árið eina varð að átta og urðu þetta einhver bestu ár sem ég hef upplifað í kirkjustarfi um ævina. Starfsandinn í kirkjunni var frábær og vináttan mikil. Sr. Sigurður Haukur var ákaflega frjór og gef- andi maður og átti án efa stóran hlut í þeim góða anda sem ríkti í Lang- holtskirkju. Ekkert þótti honum betra en þegar einhver úr kirkju- starfinu stóð sig vel og hlaut lof fyrir. Og alltaf vildi hann láta þakka öðrum en sjálfum sér. Sem dæmi um starfsaðferðir hans studdi hann við allar hugmyndir unga guðfræðinemans í barna-, fermingar- og æskulýðsstarfi, því nýstárlegri því betra þótti honum. Og ekki var ég búinn að vera lengi við kirkjuna þegar ég var drifinn í predikunarstólinn. Sjálfur hafði sr. Sigurður Haukur á sínum starfsferli farið ótroðnar slóðir með miklum árangri. Hann var í forystu fyrir Sálarrannsóknar- félag Íslands um tíma og mikill vinur Einars miðils frá Einarsstöðum. Hann hafði líka forystu um popp- messur á árunum kringum 1970 og langar biðraðir voru fyrir framan skrifstofu hans á viðtalstímum enda vinsæll og farsæll prestur. Við sr. Sigurður Haukur vorum alls ekki alltaf á sama máli í guð- fræðinni, en það var bara betra fannst honum. Hann var alltaf tilbú- inn að ræða málin við unga manninn, hlusta á mín rök og taka þau alvar- lega. Og við áttum margar frábærar stundir saman spjallandi um eilífð- armálin. Síðar tók hann mig með sér í kistulagningar og jarðarfarir og kenndi mér margt sem ég hef búið að alla tíð síðan. Samstarfi okkar lauk veturinn 1989-1990 er ég leysti sr. Sigurð Hauk af í veikindaleyfi hans. Magdalena Jórunn Búadóttir Vígðist ég þá til prestsþjónustu og var séra Sigurður Haukur einn af vígsluvottum mínum.En vinátta okk- ar hefur varað alla tíð síðan, hann hefur hringt í strákinn með hvatn- ingarorð og áminningar og ábend- ingar og er ég honum ákaflega þakk- látur fyrir það. Og þó að nú sé runnin upp kveðjustund veit ég að við mun- um finnast á ný undir eilífri upprisu- sól hins hæsta. Ég bið algóðan Guð að blessa Kristínu Gunnlaugsdóttur og fjöl- skyldu þeirra hjóna og votta þeim dýpstu samúð mína. Þórhallur Heimisson. Þegar ungur prestur kemur í stað hins aldna verður mikil breyting í söfnuðinum. Þegar sá ungi er auk- inheldur afkastamikill og orðhepp- inn og fellur vel að því umhverfi sem hann er settur til að þjóna, er hlustað þegar hann talar og tekið vel eftir. Svo vildi til að séra Sigurður Haukur, þá prestur á Hálsi í Fnjóskadal, þjónaði Laufáspresta- kalli um hálfs árs skeið veturinn og vorið þegar ég skyldi ganga til spurninga. Hann mælti fyrir um fermingarkver sem við skyldum læra heima um veturinn og um vorið kom hann akandi frá Hálsi nokkrum sinnum á græna jeppanum sínum og hlýddi okkur yfir. Þar sem ég talaði mest af okkur tólf fermingarsystk- inunum áttum við mörg samtöl þetta vorið. Hann var góður kennari og nærfærinn leiðtogi. Hann hlýddi ekki yfir með hefðbundnum hætti heldur laðaði fram þá þekkingu sem við höfðum aflað okkur í fræðunum. Hann talaði við okkur eins og vinur og jafningi. Jafnvel litlir kallar urðu nokkuð stórir í návist hans, og sá sem þetta ritar fékk drjúgt vega- nesti til þeirra starfa sem hann vissi ekki þá að biðu hans. Ég var alltaf fermingarsonur hans. Hafi honum mislíkað það sem ég sagði eða gerði nefndi hann það aldrei. Frá honum fékk ég aldrei nema uppörvun og stuðning. Leiðir okkar lágu saman að nýju þegar ég varð félagi í Kirkjukór Langholtskirkju og við hjónin bæði um sex ára skeið. Við þann tíma allan eru bundnar margar dýrmætar minningar, ekki aðeins frá kórstarf- inu. Sigurður Haukur leitaði stuðn- ings og velferðar kórsins alla tíð, vakinn og sofinn. Hann var ekki bara sannur Haukur í horni, heldur einnig vörður og verndari kórsins. Þau Kristín og hann héldu utan um okk- ur af einstakri elskusemi og um- hyggju. En eftirminnilegastur er hann í predikunarstólnum. Þar var aldrei nein lognmolla. Það sem hann sagði var það sem á honum brann. Og það brann í raun og veru. Á meitlaðri kjarnyrtri íslensku flutti hann mál sitt fram af myndugleik þess sem kann að beita orðsins brandi. Mörg- um þótti hann oft og tíðum ganga allt of langt. Líkast til hlaut líka svo að geta farið, því hann var fyrst og fremst heiðarlegur og einlægur og opinskár að auki. Hann unni kirkju sinni og þjóð og vildi veg beggja sem mestan. Þegar honum fannst við vera svifasein og draga lappirnar í nauðsynjamálum innan kirkju sem utan þá duldist engum sem til hans heyrði hver skoðun hans var. Þær urðu margar stundirnar sem ástæða var til að eyða í Langholts- kirkju umfram hið venjulega kór- starf. Þær strjáluðust eftir að kór- tímanum linnti en lauk þó aldrei. Það var afar lærdómsríkt að fylgjast með prestinum í fjölbreyttu starfi hans. Það var góður skóli sem aldrei verð- ur fullþakkað fyrir. Við hjónin kveðjum góðan vin og leiðtoga og biðjum Guð að blessa Kristínu og fjölskylduna. Margrét og Kristján Valur. Vinur minn, Haukur, er allur. Það var veturinn, sem ég hirti hrossin hans pabba, 1964, að í hest- húsið til mín kom maður, spurull í meira lagi, er tók þannig til orða: „Meðan ég var fyrir norðan.“ Ég spurði hann hvar fyrir norðan og hann svaraði sem svo: „Meðan ég var á Hálsi.“ Ég vildi vita meira, hvaða Hálsi. „Á Hálsi í Fnjóskadal.“ Ég hafði heyrt talað um prests- kosningu í sókninni minni, og að prestur, sem hefði verið á Hálsi, hefði verið kosinn, svo að ég spurði: „Varstu þar hjá prestinum?“ Ekki man ég hverju Haukur svar- aði, en ég varð ærið skömmustuleg- ur á svipinn. Þetta voru fyrstu kynni mín af manninum, sem í dag er borinn til moldar, en þetta var bara byrjunin. Við áttum eftir að kenna saman við Vogaskóla og þá fékk ég að heyra hjá nemendum hans, að hann væri fyrsta flokks móðurmálskennari og listaskrifari var hann á einkunnablöð nemenda. Hann fermdi og skírði fyrir okkur hjónakorn og síðan er hann afhald- inn af öllum börnunum mínum. Ég fór að sækja kirkjuna mína, trúlaus maðurinn, en hann kveikti í mér löngun til að trúa með fagurri ræðumennsku, sem hann varð fræg- ur af, enda spratt hún af vissu. Ég man eftir biðröðinni við félags- heimilið á páskadagsmorgun, hún minnti mig á raðirnar á stríðsárun- um, þegar frést hafði um vörusend- ingar. Og kirkjan var alltaf full. En ég man líka fleira. Ég man eft- ir flutningnum í Fellsmúlann á bú- slóðinni okkar, eftir að langþráð sala var í höfn á húsinu í Eikjuvogi, og aftur á Langholtsveg, þegar ég var búinn að fá í bakið. Það voru hraust- leg átök við burð, m.a. á ísskáp, sem Haukur tók einn í fangið. Mér fannst það ótrúlegir kraftar í jafngrönnum manni og hann hefur alltaf verið. Og ég man og ég man, gamall maðurinn, því að meiri eða betri vini en þau hjónin bæði höfum við Anna aldrei eignast. Elsku Stína, orð eru fátækleg, en hugurinn er þeim mun stærri. Við biðjum Guð að blessa þig og afkom- endur ykkar hjóna alla, að hann veiti ykkur styrk í sorginni. Þórður Sigurðsson. Haukurinn er floginn. Það hlýtur að vera gott að geta svifið um frjáls, laus við þrautir og ýmiss konar hamlanir, sérstaklega fyrir mann sem vissi að hverju dró og ekki þurfti að kvíða framtíðar- landinu. Vissan um áframhaldandi líf var honum í blóð borin. Haukurinn er lýsandi fyrir per- sónuleika vinar okkar, sr. Sigurðar Hauks, fv. sóknarprests í Langholts- kirkju, sem lést hinn 13. ágúst sl. Haukurinn er hvass, djarfur og til- komumikill. Hann á sér vini sem andstæðinga. Haukur var einmitt þeirrar gerðar. Penninn var hvass, orðin hans gátu rist djúpt en þau skildu jafnan eitthvað eftir og komu stundum við opna kviku en líknuðu líka og glæddu vonir og efldu bar- áttuþor fyrir hinu góða í tilverunni. Stundum fannst okkur hann ganga of langt og út fyrir það sem sumir þoldu, sérstaklega sumir sófaprelát- ar. Oftast gerði hann þetta viljandi en e.t.v. tróð hann óvart aðeins of mörgum höglum í sum skotin. Sum- um fannst stundum að hann væri uppi á röngum tíma en nú er okkur ljóst að hann var uppi á réttum tíma en lognhattarnir langt á eftir sam- tímanum. Nægir að nefna popp- messur hans, það, fyrstur presta, að bjóða AA-samtökunum inn í kirkj- una með aðstöðu sína, stuðning við spíritismann og djarfa hugsun hans þegar kom að breyttum tónlistar- flutningi við kirkjuna á áttunda ára- tugnum. Þessi afstaða kostaði hann mörg hnýfilyrði en þau beygðu hann ekki af þeirri leið sem hann hafði markað sér. Haukur var sannur for- ystumaður, glaður, einbeittur, um- fram allt heiðarlegur og lét alla finna að þeir væru mikils virði og þess vegna fylkti hann liði. Haukur átti sterka trú og öll hans barátta var köllun. Hann hafði sterka köllun til þess að boða trú, bætt siðgæði og vináttu manna með- al. Hann átti og marga vini og undir hans verndarvæng var gott að hvíla, hlusta á fallegt mál, vel orðað og skipað í setningar þannig að heilar málsgreinar urðu að listaverki. Þeir sem áttu sæti undir hans stóra og umlykjandi verndarvæng bjuggu í öryggi og umhyggju. Þau urðu þrjátíu og sjö árin sem við áttum saman. Þar féll aldrei skugga á, aldrei hnjóðs- eða styggð- aryrði, heldur hrós og stundum fór hann langt fram úr sér þegar tilfinn- ingarnar gripu hann og hann jós okkur samstarfsmenn sína slíku lofi að ekki var undir því staðið. Haukur var mikil tilfinningavera sem ekkert mátti aumt sjá. Hann elskaði íslenska náttúru, íslenska tungu, íslenska hestinn, Stínu, börn- in, banabörnin og okkur öll sem með honum störfuðu. Haukur og Stína er eitthvað sem á bara saman, þannig var það og verður. Ljóst er að stund- um hefur hún setið á honum þegar Haukurinn fór á flug og hvessti klærnar. Það var yndislegt að sjá þau saman, þau einfaldlega áttu saman og ég veit að með þeim var af- ar sterkt samband alla tíð. Haukurinn er floginn. Því fylgir óhjákvæmilega söknuður og sorg en það er líka full ástæða til að gleðjast yfir langri, farsælli og árangursríkri ævi góðs vinar. Nú um stund er vík milli vina. Fjölskylda mín þakkar áratuga tryggð og vináttu og sendir öllum að- standendum samúðarkveðjur. Gunnlaugur og Auður. Okkar kæri vinur Haukur er lát- inn. Hann hefur verið hluti af lífi okkar svo lengi að okkur fannst að hann yrði með okkur að eilífu. Haukur og Kristín kona hans urðu vinir okkar og sú vinátta var og er dýrmæt og ómetanleg . Þau urðu hluti af lífsgöngu okkar í gleði og sorg. Þess vegna eru engin orð sem geta á þessari stundu tjáð þakklæti okkar og fjölskyldu okkar fyrir þá dýrmætu gjöf að fá að eignast slíkan vin. Haukur var og verður einstakur. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orðið sem best lýsir þér. (Teri Fernandez) Elsku Kristín og fjölskylda. Guð vaki yfir ykkur og gefi ykkur styrk. Árný, Stefán, Þórunn Elva, Jón, Ragný Þóra, Jóhannes Kári og fjölskyldur. Ungur kynntist ég Hauki náið. Leiðir okkar lágu víða saman. Undir hans forystu leiddi ég æskulýðsstarf í Langholtssöfnuði um nokkurra ára skeið ásamt Vig- fúsi Þór, núverandi sóknarpresti í Grafarvogi. Æskulýðsstarfið í Lang- holti var fjöldahreyfing. Þar braut Haukur blað. Við Haukur kenndum saman um árabil í hverfisskólanum okkar, gagnfræðadeild Vogaskóla. En sterkasti snertiflöturinn var e.t.v. hestaáhuginn - ósvikin ást Hauks á þessari merkilegu skepnu var sterk og smitandi. Við stýrðum t.d. saman afmælisriti Fáks er Fákur fagnaði 50 ára afmæli sínu. Það var mér mik- ill skóli. Haukur var afburða penni, skrifaði af meiri list en nokkur annar og atorkan var meiri en orð fá lýst. Næmi hans og skynjun á hestinn og hestamennsku var undraverð og veitti honum mikla gleði og sálarró. Fleira get ég nefnt. Ómetanlegur var stuðningur Hauks og félaga hans í Bræðrafélagi kirkjunnar okkar í Saltvík við uppbyggingu þar fyrir fjörutíu árum. Fyrir allt þetta og margt fleira vil ég þakka af alhug. Vináttu hans mat ég mikils og naut hennar oft. Hugheilar samúðar- kveðjur til fjölskyldu hans og ást- vina. Far þú í friði, kæri vinur, Kristján Guðmundsson. ✝ Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN JÓHANNSSON frá Skjaldfönn, andaðist föstudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, föstu- daginn 24. ágúst kl. 13.00. Kristján Gaukur Kristjánsson, Maliwan Phumipraman, Pathipan Kristjánsson, Malín Agla Kristjánsdóttir, Kristján Örn Kristjánsson, Drengur Arnar Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.