Morgunblaðið - 09.10.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 31
Atvinnuauglýsingar
ⓦ Blaðbera
vantar í
Innri- og Ytri
Njarðvík
Upplýsingar gefur
Ólöf í síma
899 5630
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Hluthafafundur
Boðað er til hluthafafundar í Fasteignafélaginu
Stoðum hf. sem verður haldinn miðvikudaginn
17. október 2007 kl. 10:00 í starfsstöð félagsins,
Kringlunni 4-12, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar um breytingu á nafni
félagsins og breytingu sem af því leiðir á
samþykktum þess.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillagan liggur frammi til sýnis fyrir hluthafa í
starfsstöð félagsins í Kringlunni 4-12, í
Reykjavík.
Stjórn Fasteignafélagsins
Stoða hf.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Hólabraut 18, 01-0101, og bílskúr, Akureyri (222-5938), þingl. eig. Níels
Kristinsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur og nágr,
föstudaginn 12. október 2007 kl. 10:00.
Setberg, Svalbarðsstrandarhreppur (216-0359), þingl. eig. AUTO ehf,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 12. október
2007 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
8. október 2007.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Kaupvangstorg 1, 1. hæð, fastanr. 213-1924, Skagafirði, þingl. eig.
Júllinn ehf, gerðarbeiðendur Kaupþing banki hf og Sparisjóður Siglu-
fjarðar, þriðjudaginn 16. október 2007 kl. 10:00.
Giljar, landnr. 146165, Skagafirði, ehl. gþ. ( 50% ), þingl. eig. Anna Lísa
Wium Douieb, gerðarbeiðandi Síminn hf, þriðjudaginn 16. október
2007 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
8. október 2007.
Tilboð/Útboð
Mat á umhverfisáhrifum:
Efnistaka af hafsbotni
í Hvalfirði
Björgun ehf. kynnir drög að tillögu að
matsáætlun
Hafið er mat á umhverfisáhrifum vegna efnis-
töku af hafsbotni í Hvalfirði. Efnistakan felst í
útvíkkun á núverandi námum Björgunar sem
hafa verið nýttar undanfarna áratugi.
Björgun ehf. er framkvæmdaraðili verksins
en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VGK-
Hönnun hf. og Jarðfræðistofu Kjartans Thors
ehf.
Á vefsíðu VGK-Hönnunar, www.vgkhonnun.is
eru nú til kynningar drög að tillögu að
matsáætlun framkvæmdarinnar og stendur
kynningin til þriðjudagsins 23. október 2007.
Öllum er frjálst að leggja fram athugasemdir
og ábendingar og skulu þær berast fyrir 26.
október til VGK-Hönnunar hf, Grensásvegi 1,
108 Reykjavík eða á netföngin:
rb@vgkhonnun.is og kthors@centrum.is .
Auglýsing
um samþykkt á breytingartillögu við
aðalskipulag Hveragerðis 2005 - 2017
,,Svæðið austan Varmár”
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur samþykkt
tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvera-
gerðis 2005-2017 ,,Svæðið austan Varmár”.
Tillagan var auglýst og lá frammi til kynningar
á bæjarskrifstofum Hveragerðisbæjar frá 26.
apríl til 25. maí 2007. Athugasemdafrestur rann
út 8. júní 2007 og bárust 7 athugasemdir.
Bæjarstjórn hefur afgreitt athugasemdirnar og
sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn
sína. Til að koma til móts við framkomnar
athugasemdir þá hefur bæjarstjórn Hvera-
gerðisbæjar samþykkt eftirfarandi breytingar á
auglýstri tillögu:
Tenging við Suðurlandsveg færð til austurs
um 210 metra.
Reiðstígur færður meðfram Varmá og í
undirgöng undir Suðurlandsveg.
Legu tengivegar að Ölfusborgum breytt.
Afmörkun landnotkunarsvæða aðlöguð til
samræmis við breytta legu tengivega.
Greinargerð og umhverfismatsskýrsla
lagfærð til samræmis við samþykktir skipu-
lags- og byggingarnefndar dags. 03/07/2007,
17/07/2007 og 03/09/2007, bæjarráðs dags.
05/07/2007 og 19/07/2007, bæjarstjórnar
dags. 06/09/2007 og ábendingar Skipulag-
stofnunar dags. 03/08/2007.
Greinargerð færð af aðalskipulagsuppdrætti í
fylgihefti með aðalskipulagsuppdrætti.
Í heftinu eru einnig umhverfismatsskýrsla og
önnur fylgiskjöl.
Tillagan með ofangreindum breytingum hefur
verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu
til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu
hennar. Þeir sem óska nánari upplýsinga um
tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta
snúið sér til skipulagsfulltrúa Hveragerðis-
bæjar.
Bæjarstjórinn í Hveragerði.
Félagslíf
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Símon Bacon
og Guðríður Hannesdóttir
kristalsheilari auk annarra,
starfa hjá félaginu og bjóða
félagsmönnum og öðrum upp á
einkatíma. Upplýsingar um
félagið, starfsemi þess, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13-18.
auk þess oft á kvöldin og um
helgar.
SRFR
I.O.O.F. Rb.1 1571098 - 9.*
HAMAR 6007100919 I
FJÖLNIR 6007100919 I
EDDA 6007100919 III
Fréttir í
tölvupósti
FRÉTTIR
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 7.10. mættu
28 pör til leiks í Breiðfirð-
ingabúð. Spilaður var eins
kvölds tvímenningur. Ba-
rómeter. Stjórnandi Ómar
Olgeirsson. Röð efstu para
var eftirfarandi:
Unnar A. Guðmss. –
Gróa Guðnad. 461
Halldór Þorvaldss. –
Magnús Sverriss. 433
Marteinn Marteinss. –
Kári Jónsson 431
Ingibjörg Halldórsd. –
Sigríður Pálsd. 426
Vigdís Sigurjónsd. –
Skúli Sigurðss. 423.
Friðrik Jónss. –
Jóhannes Guðmannss. 421
Næsta sunnudag hefst
þriggja kvölda tvímennings-
keppni.
Spilað er í Breiðfirðinga-
búð, Faxafeni 14 á sunnudög-
um kl. 19.
Deildakeppnin
fyrri umferð
Fyrri umferð deildakeppn-
innar verður spiluð 13. og 14.
október nk.
Spiluð verða 56 spil á laug-
ardag og 42 spil á sunnudag.
Spilað verður í tveimur deild-
um og er önnur deild öllum
opin.
Í báðum deildum eru veitt-
ir verðlaunagripir fyrir þrjú
efstu sætin. Þá er veittur veg-
legur ferðastyrkur á mót er-
lendis fyrir sigurvegara
fyrstu deildar.
Átta spilarar mega spila í
hverju liði og er veittur ferða-
styrkur fyrir sveitir utan af
landi.
Spilarar eru hvattir til að
fjölmenna í þessa skemmti-
legu keppni. Skráning er á
vef BSÍ, Bridge.is, eða í síma
587-9360.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
FRUMKVÖÐLAKEPPNI ís-
lenskra háskólanema verður
hleypt af stokkunum í fyrsta
sinn þann 10. október næst-
komandi í tilefni heimsóknar
Kenneth P. Morse fram-
kvæmdastjóra frum-
kvöðlaseturs MIT háskóla til
Íslands. Við sama tækifæri
mun Innovit, nýsköpunar- og
frumkvöðlasetur, skrifa und-
ir samstarfs- og styrkt-
arsamninga við Samtök iðn-
aðarins, Landsbanka Íslands,
Nýsköpunarsjóð atvinnulífs-
ins, Háskóla Íslands, Háskól-
ann í Reykjavík og Háskól-
ann á Bifröst.
Keppnin verður formlega
sett kl. 14 á Hilton Reykjavik
Nordica.
Frumkvöðlakeppni Innovit
fyrir íslenska háskólanem-
endur verður nú haldin í
fyrsta sinn í vetur, en um ár-
lega keppni verður að ræða.
Keppnin er haldin að fyr-
irmynd samskonar keppni
sem haldin er árlega af MIT
háskóla, MIT $100K Ent-
repreneurship Competition.
Frumkvöðlakeppni MIT
hefur verið haldin í um tvo
áratugi og hefur markað
upphafið að fjölmörgum
þekkingarfyrirtækjum vest-
anhafs. Samanlagt markaðs-
virði fyrirtækjanna sem orð-
ið hafa til vegna keppninnar
hefur hæst numið um 20
milljörðum bandaríkjadoll-
ara eða yfir 1200 milljörðum
íslenskra króna, segir í til-
kynningu.
Frumkvöðlakeppni
háskólanema
HÁDEGISFYRIRLESTUR verður miðvikudaginn 10. október
kl. 12.15 í Odda, stofu 101. Magnús Árni Skúlason framkvæmda-
stjóri Reykjavík Economics ehf. flytur erindið „Umbreyting-
arnar á íslenskum íbúðamarkaði: staða, horfur og þróun“.
Magnús var dósent og forstöðumaður Rannsóknarseturs í
húsnæðismálum við Háskólann á Bifröst fram í janúar á þessu
ári.
Í erindinu mun Magnús fjalla um formgerð íslenska húsnæð-
islánakerfisins og ástæður breytinga á kerfinu, innkomu fjár-
málastofnana á markaðinn og afleiðingar þess. Einnig mun
Magnús fjalla um ástæður hækkandi fasteignaverðs heima og
erlendis. Þróun lánamarkaðar og mögulega þróun íslenska
íbúðalánakerfisins.
Fyrirlesturinn er að hluta til byggður á erindi sem Magnús
hélt hjá European Morgage Federation í vor, segir m.a. í frétta-
tilkynningu. Allir velkomnir.
Ræðir stöðuna
á íbúðamarkaði
NÝ TÆKNI – sama sagan –
kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum er yfirskrift ráð-
stefnu á vegum Barnaheilla –
Save the Children á Íslandi
sem haldin verður í Norræna
húsinu þann 11. október kl. 9–
17.
Í fréttatilkynningu segir að
meirihluti íslenskra barna
noti Netið daglega til fróð-
leiks og skemmtunar. En
hversu berskjölduð eru börn
fyrir áreiti og ofbeldi á Net-
inu? Og hver er þáttur nýrrar
tækni í kynferðislegu ofbeldi
gegn börnum? Hvar stendur
íslenskt samfélag í þessum
málum í alþjóðlegu samhengi,
hver er ábyrgð okkar og
hvaða stefnu eigum við að
taka til að vernda börn okkar?
Á ráðstefnunni verða þessi
mál rædd og skoðuð út frá
mörgum hliðum og þar gefst
tækifæri til að taka þátt í
stefnumótandi umræðum um
málefni sem hafa verið tölu-
vert í umræðunni undanfarna
mánuði. Fyrirlesarar verða
innlendir og erlendir og hafa
þeir allir mikla sérþekkingu á
þessu sviði. Meðal fyrirlesara
verða dr Ethel Quayle sál-
fræðingur og kennari við Há-
skólann á Cork á Írlandi og
framkvæmdastjóri COPINE
(Combating Paedophile In-
formation Networks in Eur-
ope) og Terry Jones rann-
sóknarlögreglumann hjá
CEOP (Child Exploitation and
Online Protection) í Bret-
landi. Bæði hafa þau langa
reynslu af rannsóknum og
vinnu hvað varðar kynferð-
islegt ofbeldi gegn börnum.
Ráðstefnan er ætluð öllum
þeim sem vinna að og áhuga
hafa á málefnum barna. Ráð-
stefnugjald er 5.000 kr.
Skráning og nánari upplýs-
ingar er að finna á
www.barnaheill.is.
Ráðstefna Barnaheilla