Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 36
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELWW AG.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Óvitar! Aukasýningar í sölu núna!
Kortasala í fullum gangi!
Fim 11/10 kl. 20 AUKASÝN UPPSELT
Fös 12/10 kl. 20 12.kortas. UPPSELT
Lau 13/10 kl. 16 AUKASÝN UPPSELT
Lau 13/10 kl. 20 almenn sýn. UPPSELT
Fim 18/10 kl. 20 AUKASÝN í sölu núna!
Fös 19/10 kl. 20 13.kortas. UPPSELT
Lau 20/10 kl. 20 14.kortas. UPPSELT
Sun 21/10 kl. 20 AUKASÝN örfá sæti laus
Fim 25/10 kl. 20 AUKASÝN í sölu núna
Fös 26/10 kl. 20 UPPSELT
Lau 27/10 kl. 20 UPPSELT
Sun 4/11 kl. 14 UPPSELT
Sun 4/11 kl. 18 AUKASÝN örfá sæti laus
Sun 11/11 kl. 14 UPPSELT
Fim 15/11 kl. 20 AUKASÝN Í sölu núna!
Lau 17/11 kl. 14 AUKASÝN Í sölu núna!
Sala hafin á sýningar í nóvember!
Íslenski dansflokkurinn
Sun 14/10 kl. 20 Ath! aðeins ein sýning!
Ökutímar! Frums. 2. nóv. Forsala hafin!
! "
#
$$$
%
! "# !$
% & ' $
&' (
) *"
+ ,-. / 0
1 2
3 "+
4
0 1
"+
4
5 1 2
/ "+
4
„Það er flott fyrir Ís-
land að fá að hafa
hana,“ sagði ein en önnur
var að frjósa úr kulda… 41
»
reykjavíkreykjavík
„VIÐ fengum hana í prufur og þá
kom í ljós að hún var akkúrat það sem
við vorum að leita að. Þannig að við
erum mjög spennt að fara að vinna
með henni,“ segir Þór Freysson,
pródúsent hjá Stöð 2, en fegurð-
ardrottningin Unnur Birna Vil-
hjálmsdóttir hefur verið ráðin kynnir
í þáttunum Bandið hans Bubba.
„Hennar hlutverk er svipað hlutverki
bæði Simma og Jóa og Höllu Vil-
hjálms. Hún kom mjög vel út úr þess-
um prufum enda gullfalleg, en um leið
alveg vaðandi „talent“. Hún á bara að
vera í sjónvarpi, þessi manneskja.“
Í Bandinu hans Bubba er leitað að
hæfileikaríku tónlistarfólki, en fyrstu
áheyrnarprufur fara fram í Bolung-
arvík annað kvöld.
Úrslitaþættirnir verða svo í beinni
útsendingu eftir áramót.
Unnur Birna kynnir Bubba
Morgunblaðið/Kristinn
Ekki bara falleg Unnur Birna Vilhjálmsdóttir fegurðardrottning.
Enn eru mörg-
um í fersku minni
Tom Waits heiðr-
unartónleikarnir
sem haldnir voru í
Óperunni í þarsíð-
asta mánuði.
Þóttu tónleikarnir takast með besta
móti og fjöldi áskorana barst um að
tónleikarnir yrðu haldnir aftur. Nú
þykir líklegt að leikurinn verði end-
urtekinn í byrjun næsta mánaðar
með sömu listamönnum sem fram
komu í Óperunni. Skipulagning er
enn á frumstigi en líklegt er að
skipt verði um tónleikastað. Við
fylgjumst spennt með.
Tom Waits heiðraður
öðru sinni á Íslandi
Svo virðist sem algjört Lata-
bæjaræði sé skollið á í Suður-
Ameríku. Sportacus, Glanni glæpur
og aðrir íbúar Latabæjar prýða
risastór auglýsingaskilti í borgum
álfunnar og aðalbarnaefni spænsku
stöðvanna er Lazy Town eins og
þátturinn heitir þar. Áður hefur
verið greint frá því að leikrit byggt
á Latabæ hafi verið sett upp í Arg-
entínu en stutt mun vera í aðra upp-
setningu á ævintýrum Sportacusar
og félaga í Mexíkó.
Latibær slær
í gegn í S-Ameríku
Á Tónlist.is er nú að finna sér-
staka undirsíðu tileinkaða Iceland
Airwaves hátiðíðinni. Á síðunni er
að finna umfjöllun um listamenn
hátíðarinnar og sértilboð á tónlist
þeirra. Einnig verður sérstök út-
varpsstöð sem spilar tónlist þeirra
sem troða upp á Airwaves. Þá er
þar einnig að finna áskriftarleik
þar sem heppnum notendum gefst
kostur á að vinna miða á tónleika
hátíðarinnar.
Airwaves á Tónlist.is
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„OKKUR fannst vanta svona blað á
Íslandi, enda hafa margir talað um
að þeir vilji sjá blað um íslenska
myndlist,“ segir Karlotta Blöndal
sem ritstýrir Sjónauka, nýju tímariti
um myndlist, ásamt Önnu Júlíu Frið-
björnsdóttur. Fyrsta blaðið kom út á
laugardaginn, en það mun koma út
tvisvar á ári.
„Núna er rétti tíminn fyrir svona
blað því það er svo mikil gróska í
myndlist á Íslandi, og af svo mörgu
að taka,“ segir Karlotta, og bætir
við að stefnt sé að því að hafa ákveðið
þema í hverju blaði. „Við viljum ein-
beita okkur að ákveðnum efnistökum
í staðinn fyrir að fjalla bara um allt
vítt og breitt. Þetta á að vera blað
sem fer ofan í kjölinn á hlutum og við
viljum gera þetta af alvöru, en samt á
aðgengilegan hátt. Ef þú veist ekki
mikið um myndlist áttu samt að geta
lesið blaðið og orðið einhverju nær,“
segir hún, en þemað í fyrsta blaðinu
er „stofnun“. „Bæði af því að við vor-
um að stofna blaðið en svo líka af því
að það er svo mikið að gerast í list-
stofnunum á Íslandi, það eru svo
miklar hræringar.“
Þá segir Karlotta að eitthvað
verði um gagnrýni í Sjónauka.
„Það verða einhverjar greinar í
blaðinu sem eru bein gagnrýni á
sýningar eða stofnanir á Íslandi.
En það sem við getum ekki gert er
að vera með gagnrýni um sýningar
sem standa yfir í stuttan tíma því
blaðið kemur út á sex mánaða
fresti. Þannig að við getum ekki
verið með þannig umfjallanir eins
og Mogginn.“
Allt efni þýtt á ensku
Loks velja ritstjórarnir sér-
stakan listamann blaðsins. „Hann
fær að búa til listaverk sérstaklega
fyrir þennan miðil sem blaðið er,
og verkið fylgir blaðinu í takmörk-
uðu upplagi,“ segir Karlotta, en
það eru Libia Castro og Ólafur
Ólafsson sem ríða á vaðið.
Á síðustu síðunum er svo nánast
allt efni blaðsins þýtt yfir á ensku.
„Það er takmark okkar, að allt efni
blaðsins birtist líka á ensku. Þetta er
bæði fyrir útlendinga á Íslandi en
svo verður blaðið líka selt í Skandin-
avíu og Þýskalandi,“ segir Karlotta,
og bætir við að vissulega sé mikil
vinna á bak við svona blað, en und-
irbúningur hefur staðið yfir í tæpt
ár. Allir sem hafa unnið við blaðið,
þar á meðal ritstjórarnir, hafa unnið
ókeypis. „En við vonum að allir fái
borgað næst,“ segir Karlotta.
Sjónauki fæst í flestum bókabúð-
um og kostar 1.990 krónur, en 1.500
í áskrift. Karlotta segist bjartsýn á
framhaldið, enda hafi blaðið fengið
góðar viðtökur. „Það er einmitt það
sem gerir þetta mögulegt, hvað allir
eru ánægðir með þetta.“
Alvöru myndlist fyrir alla
Morgunblaðið/Frikki
Ritstjórar Anna Júlia og Karlotta með Sjónauka. „Þetta á að vera blað sem fer ofan í kjölinn á hlutum og við viljum gera þetta af alvöru.“
www.sjonauki.is