Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 301. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SUNNUDAGUR
SYNDIR
CLAPTONS
ÓFAGRAR LÝS-
INGAR Í ÆVISÖGU
BÓK >> 30
AF LÍKAMA
OG SÁL
HEIÐURSLISTAMAÐ-
UR Í BORDEAUX
LISTDANS >>44
FRÉTTASKÝRING
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
SKRIFAÐ var undir annað eintak af 20 ára
einkaréttarsamningi milli Reykjavík Energy
Invest (REI) og Geysir Green Energy en sam-
þykkt hafði verið í stjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur (OR).
Heimildum ber ekki saman um ástæður
fyrir því. Fullyrt er að lögfræðingar FL
Group og OR hafi átt viðræður eftir að stjórn-
arfundi OR lauk, en aðrar heimildir herma að
um mistök hafi verið að ræða, lögfræðingar
FL Group, Geysir Green Energy og OR hafi
komið að samningnum á síðustu stigum. „Það
voru of margar útgáfur í gangi.“
Samningurinn tók breytingum í tveimur at-
riðum. Í báðum tilfellum gengur það eintak
sem skrifað var undir skemmra. En mat lög-
fræðinga gagnaðilans er að það eintak sem
stjórn OR samþykkti gildi og tekið er undir það
sjónarmið innan OR, en það er lögfræðilegt
álitaefni.
Í eintakinu sem samþykkt var á stjórnar-
fundinum var forgangsréttur REI (first right
of refusal) á öllum viðskiptatækifærum OR
„varðandi möguleika á hagnýtingu jarðhita til
orkuvinnslu“ utan Íslands 180 dagar. Það þýðir
að REI hefur hálft ár til að svara því hvort það
hyggst ganga til samninga áður en þeim er vís-
að aftur til OR.
Í íslenskri þýðingu á samningnum er hins-
vegar talað um 60 daga. Þannig er það líka í
samningnum sem skrifað var undir og á
frægu minnisblaði sem borið var undir borg-
arstjóra af stjórnarformanni REI og stjórn-
arformanni OR.
Annað atriði breyttist frá stjórnarfundi fram
að undirskrift. Í samningi sem samþykktur var
af stjórn OR voru ákvæði um að OR mætti ekki
eiga erlend dótturfélög sem væru í samkeppni
við REI. En þau voru ekki í samningnum sem
skrifað var undir og hvorki á minnisblaðinu né í
íslenskri þýðingu af samningnum.
Viðskipti, útrás, pólitík, svik og faðmlag
Tveggja mánaða forgangs-
réttur REI varð að hálfu ári
Fréttaskýring | 10
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
HÚN vissi að það þýddi ekkert að bíða við
símann, tækifærin kæmu ekki þannig,
heldur ákvað hún að búa sér til vettvang,
fékk fólk til liðs við sig og þau stofnuðu
Óperu Skagafjarðar.
Í sumar sýndi Ópera Skagafjarðar La
Traviata og í vor verður það Rigólettó.
Sópransöngkonan Alexandra Cherny-
shova er komin til Hofsóss alla leið frá
Kænugarði, þar sem hún var fastráðin við
óperu. Þegar leið hennar lá til Spánar hitti
hún draumaprinsinn; Íslendinginn Jón
Hilmarsson, sem hún giftist og flutti með
til Íslands, en hann er skólastjóri á Hofs-
ósi.
Fámennið og ljósadýrðin komu henni
fyrst á óvart, en nú eru fámennið og
rólegheitin henni dýrmæt. Ekki að hún
liggi lengi í rólegheitunum, því hún er
alltaf að; hún hefur haldið eina 30 ein-
söngstónleika, sungið með karlakórnum
Heimi, gefið út geislaplötu og kennt við
tónlistarskóla.
Og fleira blundar í henni: „Mig vantar
svo lengri sólarhring.“|28
Sópransöngkona frá Kænugarði býr og syngur á Hofsósi
Ljósmynd/Björn Björnsson
Dugleg Alexandra Chernyshova er með mörg járn í eldinum, m.a. tónleika, kennslu, geislaplötu og óperu.
Úkraínsk
rödd hljómar
í Skagafirði„Græn“ iðnbylting
á næstu grösum?
Hækkandi verð á hráefnum, land-
búnaðarvörum og orkugjöfum er
þegar farið að vekja ótta um skort í
framtíðinni. Ef rétt er að málum
staðið blasa þó við gríðarleg tæki-
færi til velmegunar og félagslegs
réttlætis.
Miklar vonir eru bundnar við stofn-
frumurannsóknir og einræktun í
þágu læknavísindanna, en um leið
er deilt um siðferðileg og pólitísk
álitamál. Á Íslandi er bannað að
nýta fósturvísa til rannsókna.
Stofnfrumur
og einræktun
VIKUSPEGILL
Leikhúsin í landinu
Leikhús er ávísun á
góða kvöldstund >> 72
Nýttu þér þetta
TILBOÐ
og stofnaðu rei
kning á spron.is15%
vaxtaauki!
A
RG
U
S
/
07
-0
82
7