Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 39 Kröfufjármögnun Skilvirk leið til að fjármagna vöxt fyrirtækisins Viðskiptakröfur eru stærsta eign margra fyrirtækja. Með Kröfufjármögnun Landsbankans gefst fyrirtækjum kostur á lántöku gegn veði í viðskiptakröfum með einfaldari hætti en áður. Ávinningurinn er margþættur. Auðveldara er að fjármagna vöxt fyrirtækisins þar sem rekstrarfé eykst í hlutfalli við aukna sölu. Með bættu fjárstreymi er m.a. hægt að greiða birgjum fyrr og ná fram hagstæðari innkaupum. Hafðu samband við fyrirtækjasérfræðing í næsta útibúi eða Þjónustuborð fyrirtækja í síma 410 9191ÍSLE N S K A S IA .I S L B I 39 73 0 11 /0 7 HAFURBJARNARSTAÐIR VIÐ GARÐSKAGAVITA REYKJANESI Einstök nýupptekin glæsivilla. Húsið er ca 190 fm og 300 fm atvinnuhús- næði ásamt hektara landi. Húsið hefur verið tekið í gegn frá a-ö, allt nýtt þ.m.t. rafmagn og pípulagnir, glæsilegt hnotu parket er á gólfum frá Agli Árnasyni og flísar á sólstofu og baðherbergjum. Halogenljós eru í öllu hús- inu með ljósdeyfurum út um allt, einnig næturljós á göngum. Tvö baðhergi eru í húsinu og bæði flísalögð hátt og lágt, nýjar baðherbergisinnréttingar í þeim báðum og er í neðra baðhergi einnig þvotta- og þurrkara innrétting, nuddbað er í neðra herbergi og gufusturta í því efra. 2 svefnherbergi eru í húsinu í dag en má hæglega breyta því í 4-5 svefnherbergi. Heitur pottur af flottustu gerð er á svölum, óborganlegt útsýni er frá svölunum í átt að sjó og blasir einnig Snæfellsjökull við, golfvöllur er í göngufæri frá húsinu 9 holu völlur sem á að fara að breyta í 18 holu völl, mikið fuglalíf er á staðn- um og vinsælt af fuglaskoðurum. Nýji hluti hússins er stofa, ca 40 fm með innbyggðu 50" sjónvarpi. Eldhús er nýtt og með eyju fyrir miðju, Gorenja pinini eldhústæki af flottustu gerð og span helluborð, Hiti er í gólfum í öllu húsinu nema eldhúsi þar eru danfoss ofnar. Svefnherbergi eru stór í hús- inu og er eitt á sitthvorri hæð, sólpallur er við aðalinngang húsins ásamt litlum trésvölum. Húsið er allt hið vandaðasta. Á lóðinni er gamall burst- abær sem þarfnast uppgerðar og einnig púði fyrir 80 fm bílskúr. Atvinnuhúsnæði ca 300 fm, skiptist þannig: Gott rúmlega 110 fm rými með mikilli lofthæð, einn stór salur, gólf nýsteypt með stórri hárri bílskúrs hurð með rafmagnsopnum, innangegnt þaðan upp á ca 45 fm rými sem búið er að parketleggja (plast) möguleiki að hafa þar skrifstofu eða útbúa íbúð. Flott útsýni á hæðinni, sérhannað hundahús. Gestamóttaka fyrir dýra- vini með leðursófasetti og lítilli skrifstofuaðstöðu, þaðan beint inn í sérút- búið hundahús, hér er hægt að vera með hundaræktun eða hundahótel. Þessi eign er skammt frá Helguvík, þar sem stóriðja verður byggð upp í nánustu framtíð og mun stórhækka eignina í verði. Góð fjárfesting til framtíðar. Sjá fleiri myndir undir Fyrirtaeki.is, sjá þjónustufyrirtæki og þar Hafurbjarnarstaðir. Uppl. Fyrirtækjasalan Suðurveri s. 896-1810 ömmu minnar, Guðrúnar Runólfs- dóttur, sem fædd var hinn 26. nóv- ember 1860 í Krýsuvík og dó í Vestmannaeyjum hinn 20. október 1949. Hún var þá einbúi og bjó á Brekastíg 35 sumarið 1943, en síð- ari heimsóknin var til föðursystur minnar Sigurveigar Sveinsdóttur (1887-1972) í Strembu. Afi minn Sveinn Jónsson (1862- 1947) og amma mín skildu árið 1898 og flutti afi þá til Reykjavík- ur, en amma bjó áfram í Eyjum með fimm börn, það yngsta 40 vikna (Sigurður). Ársmeðlag með hverju barni var þá kr. 50.-, þannig að samtals átti amma að lifa af 250 krónum yfir árið. En hún kom börnum sínum öllum til manns og ól auk þess upp dótturson sinn, Baldur Johnsen (1910-2006), son Sigurveigar Sveinsdóttur og Sig- fúsar Johnsen (1886-1974), bæj- arfógeta í Vestmannaeyjum. Bald- ur lauk læknanámi og var m.a. héraðslæknir í Vestmannaeyjum árin 1951-1960. Amma mín var orð- in 82 ára sumarið 1943. Elli kerling farin að setja svip sinn á hana, hár- ið grátt og þunnt, en kjarkurinn óbilaður og er ég hafði þegið veit- ingar hjá henni bað hún mig fyrir skilaboð til föður míns: „Segðu honum pabba þínum, að þótt ég sé orðin algert skar, þá muni mig ekki um að heyja fyrir tveim kúm í sum- ar.“ Einnig tók hún fram, að þótt Sveinn afi hefði styrkt föður minn til náms við Købmandsskolen í Kaupmannahöfn, þá væri hún þess fullviss, að faðir minn væri fyrir löngu búinn að endurgreiða þann styrk. V. Hinn 29. janúar 2006 reit ég grein í Mbl.: „Saga hússins Lukku í Vestmannaeyjum“. Var það í sam- bandi við framhaldsmyndaþáttinn „Ørnen“, sem Danir framleiddu fyrir sjónvarp, og var æskuheimili aðalsöguhetjunnar valið Stremba, sem við bræður kölluðum, en Sig- urveig nefndi „Lukku“ af því að hún varð svo hamingjusöm, þegar hún flutti í þetta hús, sem faðir minn hafði reist yfir hana, þegar hún kom vegalaus frá Skálum á Langanesi, þar sem eiginmaður hennar Björn Sæmundsson Brimar (1898-1979) hafði hlaupist á brott frá henni og fimm börnum þeirra (þau skildu 1930). Það var á fögr- um sumardegi að ég þáði boð Veigu frænku um að koma í hádeg- ismat í Strembu. Þar töfraði hún fram hina ágætustu hænsnamáltíð og sannaði fyrir mér, að mikið hafði hún lært í eldhúsinu á Hotel Kongen av Danmark og síðar sem aðalkokkur á Hótel Íslandi í Reykjavík. VI. Þetta voru skylduheimsóknirnar til ömmu og Sigurveigar, en á eitt heimili kom ég oftast á þessum sjö vikum, en það var til frænku minn- ar Petrónellu Ársælsdóttur (1921- 2006) og manns hennar Kristjáns Björnssonar slippstjóra á Helga- fellsbraut 1. Þau áttu þá tvær dæt- ur, Laufeyju fædda 11. nóvember 1939 og Birnu Kristínu fædda 6. febrúar 1942. Þótt þær systur væru þá ungar að árum urðu þær strax miklar vinkonur mínar og hafa verið það síðan. Kristján fór með mig á trillu hringinn í kringum Heimaey og átti að renna fyrir fisk í leiðinni, en aflinn varð aðeins einn þorskur, því færið festist í botni og slitnaði. Ella frænka bjó samt til eina dásemdarmáltíð úr þorskinum um kvöldið, enda afbragðskokkur. Hún var skírð Petrónella, en ávallt kölluð Ella. Nú lauk þessari fyrstu heimsókn minni til Vestmannaeyja en þær urðu margar á næstu áratugum og tengdist ég Fögrubrekkufólkinu miklu nánar en systkini mín, þau Sveinn Kjartan, Haraldur og Berg- ljót. Mér hefur ávallt síðan þótt vænt um Vestmannaeyjar og frændfólk mitt þar og vona ég að það hafi komið fram í Vest- mannaeyjabréfi, er ég reit í Mbl. 17. júní 1995. Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.