Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 47
OPIÐ HÚS – ERLUÁS 2 – HF.
Opið hús laugardag og sunnudag frá kl 15-16,
helgina 3.-4. nóvember.
Glæsileg 104,4 fm, 4ja herbergja endaíbúð. Rúmgóð stofa
með gólfsíðum gluggum og glæsilegu útsýni. Vandaðar
innréttingar.
Eign á frábærum stað sem
vert er að skoða
Sölumaður Stefán Bjarni
s. 694 4388.
Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | www.holl.is | holl@holl.is
Björn Daníelsson löggiltur fasteignasali.
Hver á Norðurpólinn?
Málstofa um réttarstöðu Norður-Íshafsins
Þjóðmenningarhúsinu
föstudaginn 9. nóvember kl. 11-14.
Dagskrá:
11.00 Ávarp Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra.
11.15 Ron Macnab, meðlimur Norðurskautsnefndar
Kanada:
The Central Arctic Ocean
- Shrinking Ice and Expanding Jurisdiction.
11.45 Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar:
Fiskveiðar á norðurslóð við breyttar aðstæður.
12.15 Veitingar í boði Hafréttarstofnunar Íslands.
13.00 Douglas Brubaker, Fridtjof Nansen-stofnuninni:
The Northern Sea Routes - Legal Considerations.
13.30 Pallborðsumræður og fyrirspurnir.
Þátttakandi ásamt frummælendum: Trausti Valsson,
prófessor í skipulagsfræði við Háskóla Íslands.
14.00 Slit.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í
utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Skipalón Sóleyjarrimi
Glæsilegar
fullbúnar íbúðir
Hafnarfjörður, Hvaleyrarholt
Skipalón 16-26, 2ja til 4ra herbergja. Fyrir 50 ára og eldri.
Skipalón 25-27, 3ja, 4ra og 5 herbergja í almennri sölu.
Reykjavík, Grafarvogur
Sóleyjarrimi 19-21, 3ja og 4ra herbergja. Fyrir 50 ára og eldri.
Sóleyjarrimi 23, 4ra herbergja íbúðir í almennri sölu.
www.motas.is
Sími 533 4040 | www.kjoreign.isSími 565 5522 | www.fasteignastofan.is
Allar nánari upplýsingar um
eignirnar á www.motas.is
> Traustur byggingaraðili
> Yfir 20 ára reynsla
> Gerðu samanburð
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
T
39
32
5
09
/0
7
Mótás, Stangarhyl 5, sími 567 0765
Jón Hólm Stefánsson
Lögg. fasteigna-, fyr-
irtækja- og skipasali
www.gljufurfasteign.is
Til sölu falleg landspilda nærri Þjórsá
Til sölu um 10 ha land-
spilda í Flóahreppi, rétt
vestan Þjórsár. Landið er
gróið og afgirt. Falleg
sýn til fjalla og út yfir ósa
Þjórsár. Landið liggur að
vegi. Kalt vatn og
rafmagn.
Óskað er tilboða.
Í MEIRA en hálfa öld hafa menn
rætt um flóttann úr sveitunum, hvort
unnt sé að draga úr honum og snúa
honum við með ein-
hverju móti. Samt vek-
ur það eftirtekt í hvert
sinn sem einhver flyst
frá Reykjavíkursvæð-
inu á landsbyggðina.
Oft ráða atvinnu- eða
menntunarmöguleikar
búsetunni, en stundum
skipta aðrir þættir
miklu máli.
Rangæingar hafa
margir fylgt straumn-
um, en héraðið hefur
upp á fjölmargt að
bjóða. Fegurð fjalla-
drottningarinnar Heklu er óumdeild
og kaldbrýnn Eyjafjallajökull er mik-
ilfenglegur. Eins er gróðursældin í
Landeyjunum ósvikin og víðernið á
Rangárvöllunum sömuleiðis. Margir
róma líka fegurð Fljótshlíðarinnar og
vorblíðuna undir Eyjafjöllum.
Rangæingum er gjarnt að vitna til
Njálu þegar þarf að sannfæra við-
mælanda um ágæti héraðsins, eða
minnast Odda og Breiðabólstaðar og
þess mannlífs sem þar blómstraði. Í
Odda sátu Sæmundur fróði og Jón
Loftsson og prestarnir Steingrímur
Jónsson, síðar biskup, og skáldmær-
ingurinn Matthías Jochumsson.
Á Breiðabólstað sátu Jón Ög-
mundsson, fyrsti biskup á Hólum, og
Ögmundur Pálsson, síðasti kaþólski
biskupinn í Skálholti.
Ekki þarf að einblína á glæsta for-
tíð, því margt er vel gert í nútíðinni.
Á veturnóttum horfa ýmsir til liðins
sumars, sem var um margt óvenju-
legt. Vorið og fyrri hluti sumars var
nær samfelld þurrkatíð. Margir fögn-
uðu veðurblíðunni, en þeir sem starfa
að gróðri höfðu áhyggjur af fram-
vindu hans. Þurrkarnir voru erfiðir
fyrir ungplöntur, en haustrigning-
arnar hafa bætt vorþurrkana upp.
Þrátt fyrir vætuna hefur haustið ver-
ið óvenjufagurt og
haustlitir náttúrunnar
sjaldan ljómað skærar
en nú.
Mannlífið hefur einn-
ig verið litríkt og hver
viðburðurinn rekið ann-
an.
Á haustdögum 2006
gekkst Fræðslunet
Suðurlands fyrir nám-
skeiði um sögu Rang-
árþings. Það var ein-
staklega vel sótt og
fyrirlesarar bæði víkk-
uðu sjóndeildarhring
þátttakenda og blésu þeim héraðsást
í brjóst. Hápunktur námskeiðisins
var samt erindi heimamanna, Mar-
grétar Ísleifsdóttur og Matthíasar
Péturssonar, um þéttbýlismyndun í
héraðinu, atvinnurekstur á svæðinu
og líf fyrstu íbúa í þéttbýli.
Nýr sveitarstjóri, Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir, tók við starfi í Rang-
árþingi eystra fyrir liðlega ári síðan.
Jafnframt tók til starfa ný og öflug
menningarnefnd.
Síðan hefur hver listviðburðurinn
rekið annan. Framkvæmdin hefur
hvílt á menningarnefndinni, sem
Katrín Óskarsdóttir stýrir.
Tónninn var gefinn með opnun á
málverkasýningu í Gallerý Ormi,
sýningarsal Sögusetursins á Hvols-
velli. Þar voru til sýnis Fundnir fjár-
sjóðir, málverk Ólafs Túbals, sem
komu í leitirnar í gamla bænum í
Múlakoti, þar sem var fyrst rekin
menningartengd ferðaþjónusta á Ís-
landi.
Síðan hefur hver listviðburðurinn
rekið annan. Það hafa verið mál-
verkasýningar, ljósmyndasýningar
og sýning á verkum Nínu Sæmunds-
son, eins frægasta höggmyndasmiðs
landsins, sem var fædd og uppalin í
Fljótshlíðinni. Tónlistarviðburðir
hafa verið fjölmargir, svo sem minn-
ingardagskrá um Sigríði Sigurð-
ardóttur og Friðrik Guðna Þórleifs-
son, sem voru fastknýtt
Tónlistarskóla Rangárþings. Margir
þekktustu tónlistarmenn þjóðarinnar
hafa heimsótt Hvolsvöll. Jónas Ingi-
mundarson lék á haustdögum og eins
Sigrún og Selma. Enn er von á Jónasi
og þá verður Sigrún Hjálmtýsdóttir
með í för. Eins hafa verið listamenn
lengra að komnir svo sem frá Rúss-
landi um Skagafjörð. Nú stendur yfir
sýning helguð börnunum í okkur öll-
um, sýning á myndum í Barna-Njálu.
Menningarnefndin minntist þess
mjög veglega að 200 ár eru liðin frá
fæðingu Tómasar Sæmundssonar,
Fjölnismannsins og prófastsins á
Breiðabólstað. Ekki má heldur
gleyma Töðugjöldunum á Hellu eða
Kjötsúpuhátíðinni á Hvolsvelli og
loks má telja héraðsvökuna á vet-
urnóttum með 5 daga samfelldri dag-
skrá.
Af því sem hér hefur verið upptalið
má sjá að mannlíf í Rangárþingi
stendur í miklum blóma og sam-
kennd íbúa er mikil. Íbúar svæðisins
þurfa því ekki að flytja burt vegna fá-
sinnis.
Mannlíf í Rangárþingi
Sigríður Hjartar segir frá
ýmsum menningarviðburðum í
Rangárþingi
»… mannlíf í Rang-árþingi stendur í
miklum blóma og sam-
kennd íbúa er mikil.
Sigríður Hjartar
Höfundur er skógarbóndi í Fljótshlíð.