Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 12
að OR tæki þátt í stofnun þess, en viðræður stóðu líka yfir við Lands- bankann. Það var búið að ákveða að við færum inn í GGE, en síðan gerði eitthvað það að verkum að ekkert varð úr því. Það var búið að ræða við mig um það af hálfu forstjóra OR og stjórnarformanns og ég vissi af mál- inu.“ Því er haldið fram að viðræðurnar hafi komist í uppnám af því að Guð- laugur Þór lenti um þetta leyti á sjúkrahúsi. „Þá gerðist eitthvað,“ segir Björn Ingi. „Fyrir því geta ver- ið fullkomlega eðlilegar ástæður. Svo var þetta áfram til skoðunar eða þar til kastaðist í kekki á milli félaganna út af einkavæðingunni á Hitaveitu Suðurnesja.“ Alvaran af hálfu OR var svo mikil að Ásgeir Margeirsson, þáverandi aðstoðarforstjóri OR, fór með glæru- kynningu á spítalann til Guðlaugs Þórs á milli jóla og nýárs, þar sem hann beitti sér fyrir því að OR yrði stofnaðili. En Guðlaugi Þór fannst flýtirinn of mikill. „Það næsta sem ég veit er að þeir stela Ásgeiri,“ segir hann þungur á brún. Skýringin sem gefin er á flýtinum er sú að stofnaðilar GGE hafi fengið veður af því að Landsbankinn vissi af fyrirætlununum og hygðist verða fyrri til að setja á fót orkuteymi. Glitnir hafði fjárfest mikið í upp- byggingu orkuteymis, sem var ein af þremur helstu uppbyggingar- áherslum bankans, og gat ekki hætt á að missa frumkvæðið í þessum efn- um. Bjarni var þegar þetta gerðist forstjóri Glitnis, en átti eftir að koma aftur við sögu á viðburðaríku ári í orkuútrásinni. GGE tilkynnir síðan 5. febrúar að höfuðstöðvar verði í Reykjanesbæ, sem kaupir 2,5% í fyrirtækinu á um 175 milljónir. Ásgeir Margeirsson forstjóri Geysis segir af því tilefni að fyrirtækið geti vonandi tengst þeirri sérfræðiþekkingu sem fyrir er á svæðinu, aðallega hjá Hitaveitu Suð- urnesja. Og Hannes Smárason segir FL Group vera tilbúið að fjárfesta mikið í þessum geira á næstu árum og nefnir 50 til 80 milljarða í eigin fé. REI á teikniborðinu Leikinn er ákveðinn varnarleikur 25. janúar þegar stjórn OR sam- þykkir að tillögu stjórnarformanns- ins, Guðlaugs Þórs, að eignarhluti OR í Enex verði settur í sérstakt hlutafélag, eignarhaldsfélag, sem OR eigi ásamt Landsvirkjun, Nýsköp- unarsjóði og Íslenskum orkurann- sóknum. Þá hafði GGE verið að styrkja stöðu sína í Enex. „Þetta var til þess að halda meirihluta í Enex, þannig að við yrðum ekki étnir,“ seg- ir Guðlaugur Þór. GGE var orðinn stærsti einstaki hluthafinn í Enex með 27% hlut, OR og Landsvirkjun voru með 24% og Jarðboranir 16%. „OR hefði orðið áhrifalaus ef GGE hefði keypt hlut Landsvirkjunar,“ segir Guðlaugur Þór. Einnig er ákveðið að fá skýrslu frá yfirstjórn félagsins um hvernig best sé að standa að útrásarverk- efnum í framtíðinni. Samkvæmt því er á stjórnarfundi 7. mars lögð fram tillaga forstjóra og aðstoðarforstjóra OR um að OR stofni Reykjavík Energy Invest (REI) um útrásarstarfsemi félagsins. Ákveðið er að OR leggi í félagið eign- ir upp á tæpa 2,6 milljarða í Enex hf., Enex Kína ehf. og öðrum þeim verk- efnum sem OR stendur að á erlendri grund. Í tillögunni, sem Guðmundur Þór- oddsson forstjóri OR skrifar undir, segir: „Til félagsins leggi OR auk þess hlutafé, allt að 2 milljörðum króna, sem notað verði til þátttöku í félögum og verkefnum með öðrum aðilum sem stunda útflutning á ís- lenskri tækniþekkingu og fjárfest- ingar í vistvænum orkutækifærum á erlendri grund.“ Fram kemur í greinargerð með til- lögunni að hlutafé verði greitt inn til félagsins „á næstu misserum eftir því sem starfsemin og verkefni þróast.“ Asinn er ekki meiri en svo. Guð- laugur Þór leggur á áherslu á að til- gangurinn með stofnun REI hafi fyrst og fremst verið að draga úr áhættu OR af útrásarstarfseminni, sem hafi orðið æ umfangsmeiri, með því að hafa hana í sjálfstæðu hluta- félagi þar sem ábyrgð er takmörkuð og eigendur OR því ekki í ábyrgð fyr- ir félagið. Það sjónarmið kemur raunar fram í greinargerðinni. En fleira býr undir, enda segir í greinargerðinni: „Þá er hugsanlegt að taka samstarfsaðila beint inn í fé- lagið.“ Og fram kemur að mikill áhugi sé meðal íslenskra aðila á fjár- festingum í vistvænni orku erlendis, t.d. Geysir Green Energy hf., Atorka hf. og Enex hf. „Tvö fyrstnefndu fé- lögin hafa óskað eftir samstarfi við OR um útrás.“ Samstarf við einkaaðila Hjörleifur B. Kvaran forstjóri Orkuveitunnar segir að gert hafi ver- ið ráð fyrir því alla tíð að fá til félags- ins með einhverjum hætti öfluga fjárfesta og rætt um að til framtíðar myndi Orkuveitan eiga 40% í félag- inu. Viðræður áttu sér stað milli Guð- laugs Þórs og Hjörleifs og Sigurjóns Árnasonar, forstjóra Landsbankans, og Atorku, um að standa saman í út- rásarfyrirtæki. „Það var ekkert nýtt að REI væri hugsað fyrir einka- aðila,“ segir Hjörleifur. Þessar hugmyndir virðast hins- vegar fyrst og fremst hafa strandað á Guðlaugi Þór, sem vildi ekki að rasað yrði um ráð fram. „Hannesi Smára- syni fannst ekkert gaman að tala við mig,“ segir hann íbygginn. „Ég vildi fara varlega með opinbert fyrirtæki og starfa með öllum.“ Ef til vill hefur spilað inn í að hann var upptekinn í baráttu fyrir þingkosningar í maí. Og þá vilja menn ekki rugga bátnum. Í tíð Guðlaugs Þórs voru öll mál samþykkt samhljóða í stjórn „nema í álversslagnum“. En ljóst er að óánægja kraumaði í hópi borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins með að upplýsingar skiluðu sér ekki þangað, t.d. af stofnun REI, enda má segja að hann hafi kannski haft sinn eigin pólitíska metnað. Sjálfur undir- strikar hann að hann hafi viljað að þekking og orðspor OR nýttist í út- rásarverkefnum og aðkoma félagsins yrði á þeim grunni. Og án þess að það kæmi fram í störfum hans innan OR, þá herma heimildir að fyrir honum hafi vakað með hlutafélagavæðingu REI að auðveldara yrði að einka- væða það síðar. REI kemur í heiminn Það var farið að þykkna upp þegar ný stjórn stillti sér upp til mynda- töku á svölum Orkuveituhússins 8. júní sl. Haukur Leósson tók við af Guðlaugi Þór sem stjórnarformaður og í fyrsta sinn frá stofnun OR árið 1999 tók borgarstjóri sæti í stjórn, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Aðrir í stjórn fyrir hönd Reykjavíkur voru borgarfulltrúarnir Dagur B. Egg- ertsson og Svandís Svavarsdóttir. Þremur dögum síðar, 11. júní, er REI stofnað formlega. Björn Ársæll Pétursson verður stjórnarformaður og aðrir í stjórn Haukur Leósson og Björn Ingi Hrafnsson. Það er áber- andi að enginn borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins situr í stjórn og kem- ur á daginn að upplýsingar berast illa til hópsins. Haukur, náinn vinur og samstarfsmaður Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar, virðist fyrst og fremst vera í sambandi við hann. Og Vil- hjálmur heldur spilunum að sér. Að sögn kunnugra er það hans stíll, auk þess sem hann hafði í nógu að snúast sem borgarstjóri, veitti t.d. tvö þús- und manns viðtal á 500 dögum. Og Björn Ingi leit ekki á það sem sitt hlutverk að upplýsa borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins, þó að hann sæti með þeim meirihlutafundi tvisv- ar í viku. Framan af ganga hlutirnir mun hægar hjá REI en GGE. Og hraðinn er kannski er skýrasta dæmið um ólík vinnubrögð og áherslur op- inberra fyrirtækja og einkafyr- irtækja. „Ákvörðun var tekin í janúar um setja ramma um útrásar- verkefnin, í mars var ákveðið að stofna REI og félagið var stofnað í júní. Búin var til lýsing á starfsem- inni frá júní til ágúst. Það var ekki mikið búið að gerast,“ segir Bjarni Ármannsson og brosir. „Ég gat því spurt mig um mánaðamótin ágúst – september: Hvað er ég að borga yf- irverð fyrir?“ Hugmyndir að samningi Skriður kemst þó á starfsemina í tíð Björns Ársæls og felst það eink- um í grunnvinnu að stefnumörkun fyrirtækisins. Settur er í gang verk- efnahópur sem hann situr í ásamt starfsmönnum OR, þeim Eiríki Hjálmarssyni, Þorleifi Einarssyni, Vilhjálmi Skúlasyni og Guðmundi F. Sigurjónssyni. Þrír síðastnefndu eru núna í yfirstjórn REI. Þeirri vinnu lauk með því að hóp- urinn lagði fram minnisblöð á stjórn- arfundi REI 23. ágúst sl., annars vegar hugmyndir að samningi milli REI og OR, sem talinn var nauðsyn- legur til að laða að fjárfesta, og hins vegar aðgerðaplani, þar sem stefnt var að því að hækka virði félagsins með því að þróa verkefni sem væru í pípunum. Í hugmyndum að samningnum fólst að REI hefði aðgang að vöru- merki, þekkingu og þjónustu OR. Þó að ekki væri talað um einkarétt- arsamning, þá kom fram að OR bæri að vísa öllum viðskiptatækifærum ut- an Íslands til REI. Fram kemur að áhættan fyrir OR felist í því að slíkur samningur setji félaginu skorður ut- an landsteinanna og það „missi stjórn“ á REI, þar sem það ráði að- eins 40% hlut. Til þess að bæta það upp er talað um að REI greiði 5% veltugjald og ef greiðslur nái ekki til- teknu lágmarki öðlist OR aftur rétt til að vinna að verkefnum utan Ís- lands. Í aðgerðaplaninu er talað um að fá ekki inn fjárfesta fyrr en að þremur mánuðum liðnum, þ.e. í fyrsta lagi seint í nóvember. Það er rökstutt með því að fjölmörg verkefni séu í pípunum sem verðmæti felist í, en til þess að hægt sé að rökstyðja það í verðmati, þá þurfi að innsigla þau með samningum, gera arðsemismat og fleira. Reiknað er með töluverðum ávinningi af þessari vinnu. Björn Ársæll leggur til á stjórn- arfundinum að ekki verði rætt við fjárfesta fyrr en í fyrsta lagi í desem- ber og rökstyður það með því að fé- lagið sé ekki tilbúið undir aðkomu fjárfesta, en þá eru aðeins tveir mán- uðir liðnir frá stofnun þess. Þá kem- ur, að sögn heimildarmanns, fram hjá Birni Inga Hrafnssyni að hann sé þegar byrjaður að ræða við fjárfesta. Þeir aðilar sem sýndu áhuga á að koma inn í REI á þessum tíma voru meðal annars Kaupþing, Landsbank- inn og Century Aluminium. Tillaga Björns Ársæls er því felld og á sama fundi segir hann sig úr stjórn REI, enda á förum til Hong Kong sem starfsmaður Landsbankans. Loks er samþykkt á stjórnarfund- inum að unnin verði drög að samn- ingi milli OR og REI byggð á þeim hugmyndum sem lagðar hafi verið fram, „þó með „first right of refusal“ í stað einkaréttar REI á hugverkum og þjónustu OR.“ Bjarna boðið til leiks „Síðla í ágúst“ hringir Haukur Leósson í Bjarna Ármannsson, en þeir höfðu hist í fyrsta og eina skipti í Kína þegar hitaveita var tekin í notk- un í Xian Yang í byrjun desember ár- ið áður. Hann biður Bjarna um að hitta sig og borgarstjóra og hittast þeir á skrifstofu Vilhjálms í Ráðhús- inu. Á leið þaðan mæta þeir einum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem sendir SMS-skilaboð til vina sinna í bankageiranum: „Hvað er Bjarni Ármannsson að gera með Hauki Leóssyni í Ráðhúsinu?“ Eng- inn gat upplýst borgarfulltrúann um það og frétti hann fyrst af því í fjöl- miðlum, eins og aðrir borgarfulltrúar og ráðamenn flokksins sem talað var við. Enn er það til marks um sam- bandsleysi innan raða sjálfstæð- ismanna. Á fundinum er Bjarna boðið að gerast stjórnarformaður, farið er yfir ráðagerðir um að stórefla REI og greint frá áhuga einkaaðila á að koma inn í það. Bjarni hugsar sig um í nokkra daga, ræðir m.a. við Hjörleif B. Kvaran og Guðmund Þóroddsson, og kveðst síðan hafa áhuga á að leiða stjórn félagsins og koma að því sem fjárfestir. Enda farinn að beina kröftum sínum að eigin fjárfest- ingum eftir að hann hætti störfum hjá Glitni í apríllok. „Ég hafði engan áhuga á því að verða launamaður.“ Á stjórnarfundi 11. september var Bjarni kjörinn stjórnarformaður REI og var það hugsað til þriggja ára. Ástæðan er sögð sú að litið hafi verið svo á innan OR að ekki væri hægt að tryggja honum stjórnarfor- mennsku nema fram að næstu kosn- ingum. Hann er í 50 til 60% starfi hjá REI og fær greiddar fyrir það 750 þúsund krónur á mánuði. OR jók hlut sinn í félaginu um 2,6 milljarða á genginu 1 og Bjarni lagði fram viðbótarhlutafé upp á 500 Efst Orrustan um íslensku orkuútrásina hefur ekki síður farið fram í sal borgarstjórnar en á erlendri grundu. Í miðju Hvað sem líður deilum um faðmlag og handsal gáfu Björn Ingi og Dagur sér tíma til handsals á borg- arstjórnarfundum. Neðst Bekkirnir voru þétt setnir á aukafundi borg- arstjórnar um málefni OR og REI og ýmislegt kraumaði í pottunum.  Þegar ég kom til baka var mikil harka hlaupin í fundinn,“ segir hann. „Umræðan var í raun farin að snúast um miklu meira en samruna, mun frekar upplýsingagjöf borgarstjóra gagnvart sínu fólki, risarækjur og fleira.“ » 12 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.