Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
„BÁKNIÐ burt“ var
slagorð hægrimanna
fyrir um tveimur ára-
tugum. Nú skyldi
slátra ríkisfyrirtækjum
og einkavæða allt sem
hönd á festi í almanna-
eigu, það yrði svo miklu
hagstæðara.
Á síðustu árum hefur
„einkavinavæðingin“
sannarlega náð sér á strik. Í raun er
búið að gefa örfáum fjölskyldum lífs-
björgina í sjónum, bankana og sím-
ann og allt er þar nú til muna dýrara
fyrir almenning. Orkuveiturnar eiga
að hafa það eina hlutverk að selja al-
menningi orku, heitt og kalt vatn eins
ódýrt og unnt er. Þau
eiga nú í vök að verjast
gegn gróðafíklum.
Ekkert má í almanna-
eigu vera sem þjónar
hagsmunum heildar-
innar án þess að í það sé
seilst af þeim sem
hugsa allt í eigin hags-
munum.
Sá sem fór fyrir bar-
áttunni „Báknið burt“ á
sínum tíma hefur lengst
af verið hátt launaður,
vel tryggður forstjóri í
hægu sæti Landsvirkjunar en er í al-
mannaeigu enn (hinn 1. janúar 2007
yfirtók íslenska ríkið eignarhlut
Reykjavíkur og Akureyrar. Lands-
virkjun á því fyrst og síðast að gæta
hagsmuna almennings og ráða ráð-
um sínum með fulltrúum fólksins í
stjórn). Landsvirkjun er sameign-
arfélag í eigu ríkisins og ber að þjóna
almenningi.
Samskipti við Landsvirkjun eru
erfið fyrir einyrkja. Ég veit af angist
og kvíða þeirra sem nú eiga í vök að
verjast með jarðir sínar gagnvart ris-
anum, Landsvirkjun svífst einskis til
að fá vilja sínum framgengt. Fólk ber
sorgir sínar ekki á torg en það mun
aftur á móti berjast fyrir lífi sínu og
tilverurétti til hinsta manns – ekkert
minna!
Almannahagsmunir?
Mér er fyrirmunað að sjá þá al-
mannahagsmuni sem felast í að grafa
í sundur, rífa, tæta og velta öllu um
koll í blómlegum sveitum í byggð,
steypa risastór uppistöðulón í túnj-
aðri bæja og sökkva heilum sveit-
arfélögum undir vatn til að virkja
landsvæði sem sum hver hafa verið í
sátt við umhverfi sitt frá landnámi,
friðsæl og falleg í blómlegri byggð
sem skilar bæði andlegum og verald-
legum verðmætum til þjóðfélagsins.
Þau verðmæti eru óbætanleg ef eyði-
lögð verða.
Gætum okkar, gleymum okkur
ekki í græðgihugsun Landsvirkjunar
og annarra þvílíkra. Virkjunarsinnar
mega ekki fá frið til að vinna myrkra-
verk sín við Þjórsá í skjóli andvara-
leysis. Svo er nú gróðinn af virkj-
unum þessum síður en svo í hendi –
það er langt í frá.
Ég fagna aukinni vitund, umræðu
og andófi gegn virkjun neðri hluta
Þjórsár sem meðal annars birtist í
fjölgun þeirra sem taka upp vörnina
með heimamönnum. Ég fagna öllum
stuðningi frá stjórnmálafólki en ég
leita þó á vit ríkisstjórnarinnar og bið
um liðsinni hennar við að stöðva
þessa ósvinnu – stöðva það óbæt-
anlega tjón sem af þessari gjörð hlyt-
ist fyrir alla þjóðina.
Að berjast fyrir lífi sínu við Þjórsá
Elín G. Ólafsdóttir
skrifar um virkjun
Þjórsár
» Augljós er angistþeirra sem róa líf-
róður gegn Lands-
virkjun, sem einskis
svífst. Fólk mun berjast
til hinsta manns verið
þið viss – ekkert minna!
Elín G. Ólafsdóttir
Höfundur er fyrrv. kennari og borg-
arfulltrúi Kvennalistans í borg-
arstjórn.
Um er að ræða 2.500 fm skrifstofuhúsnæði með skrifstofu-
húsgögnum.
Húsnæðið skiptist í 140 vinnustöðvar, 9 fundarherbergi,
fullbúið mötuneyti, skjalageymslur og fl.
Hægt er að skipta húsnæðinu í tvær til þrjár einingar.
Afhending er í mars 2008.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson,
löggiltur fasteignasali, í síma 824 9093.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Stórhöfði - Fullbúið skrifstofuhúsnæði til leigu
Skipasund 51 – Reykjavík
OPIÐ HÚS Í DAG
Sunnudag 4. nóv 2007 kl. 16 - 16.30
Falleg 3ja til 4ra herbergja risíbúð.
Verulega spennandi eign. Gengið inn garð meginn.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898 1177
Glæsileg 118 fm íbúð á frábærum
stað við Strandveg í Garðabæ. Bíla-
stæði í bílageymslu. Óhindrað
sjávarútsýni. Um er að ræða lyftu-
hús. Eignin skiptist m.a. í rúmgott
hol, stofu, borðstofu og 2-3 her-
bergi. Þvottahús í íbúð. Íbúðin er öll
hin vandaðasta með fallegum gólf-
efnum, stórum gluggum og vönd-
uðum innréttingum. Íbúðin er laus
nú þegar. Verð 43,5 millj. (6784)
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG.
Hafið samband við Magneu Sverrisd. fasteignasala í síma 861 8511.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Strandvegur – laus strax – til sýnis í dag
M
bl
9
31
86
9
Til sölu glæsileg tveggja herbergja kjallaraíbúð,
Snorrabraut 36, frábær staðsetning v/miðbæinn,
nýjar skolpleiðslur, nýjir ofnar, ný gólfefni, nýjar innréttingar,
nýjar hurðir og fl. Íbúðin er ósamþykkt.
Verð 18,9 millj. - veðbandalaus.
Tek jafnvel bíl sem innborgun.
Jón Egilsson Hdl. sími 568 3737/896 3677.
Til sölu glæsileg
2ja herbergja kjallaraíbúð