Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 33
ið entist í tíu ár, þau áttu ekki börn
saman, en Clapton eignaðist á þessu
tímabili börn með tveimur, öðrum
konum; dótturina Ruth 1985 og son-
inn Conor 1986, sem lést í hörmu-
legu slysi tæplega fimm ára.
Hliðarspor í Ítalíu
Dauði Conors varð Clapton gríð-
arlegt áfall eins og hann lýsir í bók-
inni sem og sambandi sínu við móð-
ur hans, þokkadísina Lori del Santo,
sápuóperuleikkonu, sem hann
kynntist á tónleikaferðalagi um Ítal-
íu 1985. Eftir ferðina sneri hann þó
aftur til Pattie, en ekki liðu nema
nokkrir dagar þar til hann tilkynnti
að hann ætlaði að yfirgefa hana.
Hann kærði sig kollóttan um tilfinn-
ingar annarra og afleiðingar gerða
sinna, sem hann taldi sjálfum sér
trú um að ætti rætur að rekja til
miðaldrakreppu. Maðurinn var fer-
tugur.
Hann fluttist inn til del Santo í
Mílanó og þau komu sér saman um
að reyna að eignast barn. Honum
varð samt ekki um sel þegar hann
eitt sinn var að snuðra heimavið og
fann myndir af tilgerðarlega bros-
andi sambýliskonu sinni með ýms-
um frægum körlum. Raunar var
honum kunnugt um að hún hefði, sjö
árum áður, verið vinkona Adnans
Khashoggis, forríks alþjóðavopna-
sala, sem þekktur var fyrir óhóf og
villt líferni.
Parið fluttist engu að síður til
London þar sem þau bjuggu saman í
tvær eða þrjár vikur. Þá tilkynnti
Clapton að hann hygðist fara aftur
til eiginkonu sinnar. „Ekki góðar
fréttir,“ sagði del Santo, „af því ég
er ólétt.“ Clapton var örvinglaður,
knúði dyra hjá Pattie, sem þá bjó í
Hurtwood með öðrum manni og
vildi ekkert með eiginmann sinn
hafa. Eftir misheppnað sjálfsvíg
náði hann með einhverjum hætti að
telja Pattie á að taka aftur upp þráð-
inn. Del Santo var farin til Mílanó,
en sannleikurinn varð ekki umflú-
inn, barn var í vændum. Pattie var
djúpt særð og sambúðin varð að
hálfgerðri martröð, sem endaði með
að Clapton henti henni út. „Það var
ljótt og grimmilegt af mér og eftir
nokkra daga dauðsá ég eftir því,“
segir hann.
Conor
Clapton sætti sig smám saman við
væntanlegt föðurhlutverk og heim-
sótti barnsmóður sína á síðustu
mánuðum meðgöngunnar í Mílanó.
Þegar leið að fæðingu leigði hann
hús fyrir hana í Chelsea og varð
himinlifandi og stoltur í senn þegar
þeim fæddist sonur 21. ágúst 1986.
Þar sem Clapton virðist hvergi
fegra sinn hlut á lífsins leið, jafnvel
þvert á móti, er ekki hægt annað en
trúa því að ást hans á Conor hafi
verið jafn fölskvalaus eins og hann
lýsir í bókinni. Hann heimsótti þau
mæðginin oftsinnis í Mílanó þar sem
þau bjuggu og gaf sig allan að
drengnum. Sama var uppi á ten-
ingnum í New York eftir að del
Santo fluttist þangað ásamt kærasta
sínum og Conor. Reiðarslagið kom
rétt áður en Clapton kom að háhýs-
inu þar sem þau bjuggu á 53. hæð til
að sækja son sinn. Drengurinn hafði
fallið út um glugga og látist sam-
stundis.
Slysið varð með þeim hætti að
húsvörður hafði eitt augnablik litið
af glugga í stofunni til að vara del
Santo við að hann væri opinn, en
hann náði frá gólfi til lofts og opn-
aðist í heilu lagi. Í sömu andrá hljóp
Conor, sem var í feluleik með barn-
fóstru sinni, hreinlega út um
gluggann.
Eitt af þekktari lögum Claptons
er Tears in Heaven, sem hann
samdi í minningu Conors. Sorgin
var yfirþyrmandi og hann við-
urkennir að stundum hafi hann
misst trúna, sem hann öðlaðist eftir
seinni áfengismeðferðina. Hann seg-
ir að skilyrðislaus ást og skilningur
vina sinna og félaga í AA og tólf
spora kerfið hafi hjálpað sér að
komast yfir mestu sorgina. „Ef ég
get komist í gegnum þetta og verið
edrú, geta það allir,“ segir hann á
einum stað í bókinni og gerði sér þá
grein fyrir að edrúmennskan væri
besta leiðin til að heiðra minningu
sonar síns.
Uppfrá þessu lá leið Clapton að
flestu leyti uppávið. Hann kvæntist
sér mun yngri konu, Melia McE-
nery, 1. janúar 2002 og á með henni
þrjár dætur, fæddar 2001 til 2005.
Fjölskyldan á hús á Englandi, í
Frakklandi, Columbus og Antigua
og ekki væsir um hana fjárhagslega,
t.d. mun hann hafa fengið 3,5 millj-
ónir punda, eða tæpan hálfan millj-
arð íslenskra króna fyrir ævisöguna.
Eftir að hún kom út hefur Clap-
ton komið víða fram í útvarpi og
sjónvarpi, m.a. hjá Larry King, þar
sem hann bauð af sér einkar góðan
þokka og svaraði öllum spurningum
vífilengjulaust. Líkast til hefur hann
með framkomu sinni sannfært
marga um að öl sé ekki innri maður,
öfugt við hið fornkveðna.
vjon@mbl.is
Reuters
Cream Hljómsveitin Cream kom saman 2005, 37 árum eftir að hún leystist upp . F.v. Jack Bruce með
bassa, Ginger Baker á trommum og Eric Clapton með gítarinn.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 33
Ferðaskrifstofa
Á besta stað í Kitzbhühel - gegnt Hahnenkamm
skíðakláfnum. Hótelið er allt nýlega endurnýjað
og aðstaða til fyrirmyndar. Arinstofa, heilsurækt
og einstaklega falleg herbergi. 5 mín. gangur í
bæinn.
Verðdæmi: 119.900,-Verðdæmi: 108.874,-
Nýlegt fyrsta flokks og vel staðsett hótel
sem var opnað í desember 2005. Hinn finnski
hótelstjóri Kari hugsar vel um gesti sína og
rík áhersla er lögð á góðan mat og glæsilega
heilsurækt.
Ítalía og Austurríki hafa verið vinsælustu
áfangastaðir skíðaunnenda undanfarin
ár og ekki að ástæðulausu.
Madonna di Campiglio, fallegt
fjallaþorp á Ítalíu, er með þægilegustu
brekkurnar og frábæra aðstöðu fyrir
snjóbrettafólk. Selva del Gardena
er einn þekktasti skíðabær Ítalíu
og er jafnframt eitt besta
skíðasvæði í heimi. Salzburger
Sportwelt og Kitzbühel/
Kirchberg eru með bestu
skíðasvæðum Austurríkis.
Skelltu þér á skíði í vetur!
Madonna - Hótel All' Imperatore Kitzbuhel - Hótel Schweitzerhof
Skíðaveisla
Austurríki og Ítalía
Með hálfu fæði.
Á mann í tvíbýli m.v. brottför 12. janúar 2008
Með hálfu fæði.
Á mann í tvíbýli m.v. brottför 23. febrúar 2008
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn. Verð miðast
við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald
2.500 kr. fyrir hvern farþega.