Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 14
milljónir á genginu 1,278. Gangi OR
gegn því samkomulagi sem gert var
við Bjarna eða ef ágreiningur verður
um samþykktir eða nýja fjárfesta
hefur Bjarni sölurétt á OR á upp-
runalegu kaupverði auk veðbóta.
Engin slík trygging er þó fyrir þeim
milljarði sem Bjarni skuldbatt sig
síðar til að leggja fram við samruna
REI og GGE.
„Ég veit það ekki,“ segir Bjarni
hreinskilnislega, aðspurður hvort fé-
lagið hafi í raun verið tækt til að fá
fjárfesta á þessum tíma. „En ég er
fjárfestir og það var alltaf grunn-
forsenda fyrir aðkomu minni. Og
skilyrði að OR fengi einkafjármagn
að fyrirtækinu og færi í minnihluta.“
Einnig er tilkynnt þennan dag að
Guðmundur Þóroddsson taki sér sjö
mánaða leyfi sem forstjóri OR og
verði forstjóri REI til bráðabirgða.
Birni Ársæli hafði verið boðin stað-
an, en hafnað því.
Straumhvörf í málinu
Björn Ingi lýsti undrun og vel-
þóknun þegar Haukur skýrði honum
frá því að Bjarna hefði verið boðið
starfið og segir viðbótarhlutafé
Bjarna „innan heimilda“, ekkert hafi
verið óeðlilegt við þau að sínu mati.
Enda hafi þetta verið kynnt op-
inberlega og engin mótmæli komið
fram. „Ekki eitt einasta orð.“
Einhverjar óánægjuraddir hafa þó
borist til OR, því Hjörleifur B. Kvar-
an hafði orð á því að sér hefði komið
á óvart eftir ráðninguna hvað Bjarni
væri umdeildur. Og ekki var ánægja
með ráðninguna sums staðar í röðum
sjálfstæðismanna, sem töldu farið of
geyst í sakirnar. En vart er um það
blöðum að fletta að Bjarni hafði bæði
reynslu og þekkingu til að takast á
við þetta starf.
„Ég held að þarna hafi orðið
ákveðin straumhvörf í þessu máli,“
segir Hjörleifur B. Kvaran. „Þegar
við vorum komnir með öflugan
stjórnarformann og framkvæmda-
stjóra í félagið sáu aðrir að Orkuveit-
an færi út í þetta af miklum þunga,
forskotið á aðra væri þegar mikið og
yrði hugsanlega meira. Ég held að
eigendur GGE hafi gert sér grein
fyrir að risinn hefði vaknað og væri
kominn af stað.“
Það sem vakti athygli meðal borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins var
hinsvegar að í fréttatilkynningunni
sagði að stefnt væri að því að OR
yrði „kjölfestufjárfestir með um 40%
hlutafjár“ í REI og að REI hygðist
„búa yfir um 50 milljarða hlutafé til
að hefja fjármögnun alþjóðlegra
jarðhitaverkefna.“
Þegar borgarfulltrúarnir lesa töl-
una 50 milljarðar í blöðunum fara
þeir fram á fund um málefni OR og
hvað standi til þar. „Við biðjum um
þetta fund eftir fund, en aldrei gerist
neitt,“ segir Gísli Marteinn Bald-
ursson. „En við upplifðum þetta ekki
þannig að það lægi neitt á. Nú vitum
við að níu dögum seinna hefjast
samningaviðræður og þá virðist ekki
hafa mátt segja neitt.“
Fjárfestar í London
Með ráðningu Bjarna fer „allt á
fleygiferð“ og á tveim vikum er búið
að „handsala“ samruna við GGE. Þó
er staðan sú þegar Bjarni er ráðinn
að „engar þreifingar um sameiningu
eru komnar af stað [við GGE], að því
er ég best veit,“ segir Hjörleifur B.
Kvaran. Atburðarásin var hröð.
Stuttu eftir ráðninguna, 17. til 18.
september, fer Bjarni með stjórn
REI, Birni Inga og Hauki, og heldur
kynningarfundi í London með fjár-
festum, s.s. Barclays, JP Morgan,
Morgan Stanley, Merryl Lynch og
Novator. Auk þess höfðu þreifingar
haldið áfram við Landsbankann,
Kaupþing og Century Aluminium.
Í Lundúnaferðinni sýndu margir
áhuga á að koma að félaginu, að sögn
Hjörleifs, og var spurningin fyrst og
fremst sú hversu margir fjárfestarnir
ættu að vera og hversu stórir. „Flest-
ir sóttust eftir því að vera stórir.“
Heima á Íslandi er Lex lögmanns-
stofu falið 17. september að vinna
samning byggðan á stofnsamningi
REI og skjali þar sem gert er ráð fyr-
ir einkaréttarsamningi til tíu ára,
m.a. „á öllum ferlum, aðferðafræði og
uppfinningum OR utan Íslands.“
Sama dag er stjórnarformanni
heimilað að semja við Jón Diðrik
Jónsson um að gerast ráðgjafi til ára-
móta við stefnumótun, en hann hafði
áður unnið að því með Bjarna að
koma upp orkuteymi Glitnis og hafði
reynslu af viðskiptum í Suðaustur-
Asíu. Jón Diðrik kemur með viðbót-
arhlutafé upp á 30 milljónir á genginu
1,278.
Viðræður við Geysi
GGE óskaði eftir því við Hauk
Leósson að taka upp viðræður um
hugsanlegan samruna við REI. Að
sögn Bjarna Ármannssonar kom
þrennt til greina, samruni, krosseign-
arhald eða samstarf. Og skilaboðin
voru skýr frá GGE – stefnt yrði að
formlegu eða óformlegu samstarfi og
ef ekki, þá yrði samkeppni af fullri
hörku.
„Ég held að spilað hafi inn í, sem
menn áttu ekki von á, að það skap-
aðist fljótlega núningur á milli félag-
anna. Menn héldu að heimurinn væri
svo stór leikvöllur að menn myndu
ekki rekast á, en reyndin varð önn-
ur,“ segir Hjörleifur B. Kvaran.
Einnig höfðu verið hörð átök um
Hitaveitu Suðurnesja á milli OR og
GGE. Þeim lauk með hluthafa-
samkomulagi í júlí sem fól í sér að
sveitarfélögin héldu meirihluta sínum
í félaginu. „Nú var komin upp ný
staða, sem kom á óvart miðað við
hvað þeir höfðu verið kokhraustir í
sinni nálgun,“ segir Björn Ingi.
Fyrstu viðræður fóru fram í stöðv-
arstjórahúsinu 20. september. Sá
vettvangur átti eftir að komast í
sögubækurnar. Fyrir hönd REI voru
á fundinum Bjarni Ármannsson,
Haukur Leósson, Björn Ingi Hrafns-
son og Guðmundur Þóroddsson, en
Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes
Smárason fyrir GGE. Á meðal þess
sem var til umræðu voru forsendur
verðmats á REI og GGE.
Björn Ingi Hrafnsson segir að sér
sé minnisstætt frá þeim fundi að „það
sé alveg á hreinu að þær hugmyndir
sem hann hafi sett fram um verðmat
á REI hafi þeim fundist „vera brand-
ari, bísnessmönnunum.“
Enda hafi ekki mikið af því verið
fast í hendi hjá REI á meðan GGE
státaði af nokkrum fyrirtækjum í
heilbrigðum rekstri.
Bjarni Ármannsson kannast við
lýsinguna á viðbrögðum „bísness-
mannanna“. „Hannes hló hæðnislega
að okkur þegar verðið var nefnt. En
það er allt partur af geiminu,“ segir
hann sallarólegur. „Þetta er bara eins
og í pólitíkinni; maður verður að
hlusta á hvað fólk vill en ekki hvað
það segir.“
Þetta var ekki langur fundur. Nið-
urstaðan var sú að Bjarni og Hannes
héldu umleitunum áfram „ásamt sín-
um mönnum“. Tveim dögum síðar, á
laugardegi, funduðu þeir á heimili
Hannesar og sömdu um meg-
inatriðin. Umrædda helgi var Hjör-
leifur B. Kvaran erlendis. „Þar náum
við saman um eitthvað sem ég get
treyst mér til að mæla með við REI
og Haukur sín megin við OR. Ég
sagði skýrt að sá sem hefði ákvörð-
unarvald um það hvort málið héldi
áfram héti Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son,“ segir Bjarni.
Margfrægt minnisblað
Upp úr því skrifar Bjarni marg-
frægt minnisblað sem hann segist
hafa farið með ásamt Hauki til Vil-
hjálms á sunnudeginum, en Vil-
hjálmur kannast ekki við að hafa
fengið. Þar er farið yfir samrunaferl-
ið og segir Bjarni að hann og Haukur
hafi „labbað í gegnum það“ með Vil-
hjálmi á þriggja tíma fundi.
Það vekur spurningar hjá viðmæl-
endum hvernig standi á því að Vil-
hjálmur hitti Bjarna og Hauk einn
heima hjá sér þegar svona stórt mál
er umræðu og af hverju hafi ekki
verið skrifuð fundargerð eða a.m-
.k.minnsta kosti eitthvað til staðfest-
ingar á því að skilningur allra á fund-
inum væri sá sami á niðurstöðunni.
Í þeim hluta minnisblaðsins sem
gerður hefur verið opinber er hlutur
OR í Hitaveitu Suðurnesja skyndi-
lega kominn inn og metinn á 9 millj-
arða, en svo hafði ekki verið í eldri
hugmyndum og samningsdrögum.
Jafnframt er kveðið á um að REI fái
kauprétt að þeim bréfum sem OR
kunni að eignast í Hitaveitunni og
OR reyni að kaupa hlutabréf Hafn-
arfjarðar „svo fljótt sem auðið er“.
Það sem vakið hefur mestar um-
ræður er klásúla um að OR og REI
„geri samning sín á milli sem tryggi
aðgang að þekkingu og starfsfólki
OR. Jafnframt heimili notkun vöru-
merkisins og að Orkuveitan beini öll-
um verkefnum utan Íslands til REI.
Samningur um slíkt sé til 20 ára.“
Vilhjálmur kannast ekki við að hafa
heyrt um 20 ára samning, sem feli í
sér einkarétt, á fundinum.
En hvað sem fram fór, þá fá Bjarni
og Haukur umboð borgarstjóra til að
semja við GGE og handsala Bjarni
og Hannes samkomulagið á mánu-
deginum. Eftir annasamar tvær vik-
ur fer Bjarni síðdegis sama dag til
Afríku að skoða hjálparstarf SPES
og Unicef.
Það hefur verið gagnrýnt að geng-
ið hafi verið til samninga við GGE
þegar margir aðrir hafi sýnt áhuga.
„Af hverju vorum við að púkka upp á
REI – komu þeir með eitthvað að
samningaborðinu?“ veltir Bjarni Ár-
mannsson upp. „Allir fjárfestar
verða að svara einni spurningu:
Hvernig ætlum við að exitera? Í
þessu tilfelli var horft til skráningar
á markað. Með samruna REI og
GGE er skráningu flýtt um 1,5 til 3
ár, að mínu mati.“
Hann segir að framleiðsla hefjist
ekki hjá REI fyrr en í fyrsta lagi árið
2011. „Maður fer ekki með félag á
markað sem ekki er með framleiðslu.
En með sameiningu við GGE er orð-
ið að veruleika fyrirtæki með fram-
leiðslu, sérþekkingu á lykilsviði,
einkaleyfi, framleiðslu- og verk-
efnalínu og starfsemi sem teygir
anga sína um allan heim.“
Lagst yfir samninga
Haukur lætur Hjörleifi í té minn-
isblaðið 25. september og segir að
!
"
# $
#% #
&
#' !
( )
*
&
!# !
+
(
#
&
,
#
+ ! )
)! )
-%
&
'
-!
#,
.+
/
0
!
/ &
#
1
! &#
&
*
&
/ /
' 2
#
/&
#
% $
#3
,
,1## ,-! )
,()%
! -! #
, )
! -! )
#
/&
!#' 24 ++)
5
)! 4
0.#!
!
#
++ #! , #
!
#
(
.
#! . !
3#!
$ &
,
,
-! )
! -! #
/& ++#
1
,.
/&,#!
#
( &
#
!#
/&
#
/
6 !##
&'7,
!#
#
&'7
(
( '
$
#
! '
&#
&
!#
1 &
#! .
)!! 8!
"
#!
#
"
!#
Það kom þrennt til greina,
samruni, krosseignarhald
eða samstarf. Og skilaboðin
voru skýr frá Geysi Green
Energy – stefnt yrði að form-
legu eða óformlegu samstarfi
og ef ekki, þá yrði samkeppni
af fullri hörku.
Efst Bjarni Ármannsson, Björn Ingi Hrafnsson og Björgólfur Guðmunds-
son í kvöldverði borgarstjóra eftir tendrun friðarljóss í Viðey. Í miðju Al-
freð Þorsteinsson, þáverandi stjórnarformaður OR, og Guðmundur Þór-
oddsson, sem er í leyfi hjá OR til að gegna stöðu forstjóra REI. Neðst
Guðlaugur Þór Þórðarson, þáv. stjórnarformaður OR, borgarstjóri Djíbút-
ís og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri skrifa undir.
»
14 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ