Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 30
bók
30 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
É
g uppgötvaði hjá mér
hegðunarmynstur,
sem endurtók sig aft-
ur og aftur, árum sam-
an, jafnvel áratugum.
Sérgrein mín voru vondar ákvarð-
anir. Ef góð og heiðarleg manneskja
varð á vegi mínum, sniðgekk ég
hana eða hljóp í hina áttina.“
Svo mælir einn dáðasti rokkblús-
ari heims, Eric Clapton, á einum
stað í ævisögu sinni, Clapton – The
Autobiography, sem nýlega kom út,
samhliða rjómanum af tónlist hans á
tveimur diskum, Complete Clapton.
Í bókinni hlífir hann sér hvergi og er
ótrúlega opinskár og einlægur. Á
köflum dregur hann upp svo
óvægna mynd af sjálfum sér að
dyggustu aðdáendur geta varla ann-
að en viðurkennt að átrúnaðargoð
þeirra var lengi – afsakið orða-
bragðið – algjör drullusokkur í
einkalífinu. Eða allt þar til hann var
kominn vel á miðjan aldur – og orð-
inn edrú.
Hann laug og sveik á báða bóga
og urðu ástkonur hans, sem voru
býsna margar og flestar íðilfagrar,
einkum fyrir barðinu á óheilind-
unum. Sjálfur var hann yfirleitt ann-
að hvort útúrdópaður af heróíni eða
dauðadrukkinn árum saman eins og
hann dregur enga dul á. Rauði þráð-
ur bókarinnar er fíknin með tilheyr-
andi rugli og dómgreindarbresti og
baráttan við hana. Uppruni, æska,
ástir, öfundsýki, afbrýði og framhjá-
höld koma líka mikið við sögu sem
og rokk og ról út um allan heim.
Clapton varð fljótt goðsögn í tón-
listarheiminum, enda feikilega hæf-
ur gítarleikari, söngvari, lagasmiður
og tónskáld. Frægt varð þegar
aðdáandi í hrifningarvímu úðaði
slagorðunum Clapton is God á vegg
í neðanjarðarlestarstöð í Islington í
London eftir tónleika Claptons og
John Mayall’s Bluesbreakers á
miðjum sjöunda áratugnum. Síðan
léku margir gjörninginn eftir og
gera enn.
Systirin var mamman
Drengurinn, sem af mörgum er
talinn mesti gítarsnillingur síðustu
aldar og það sem af er þessari, ólst
upp í fremur fátækri en músíkalskri
verkamannafjölskyldu í Ripley í
Surrey á Englandi. Þótt amma hans
og afi, Rose og Jack Clapp, hafi ekki
ættleitt hann, ólu þau hann upp sem
sinn eigin son. Framan af vissi Clap-
ton ekki betur en að sú væri raunin
og að börn þeirra væru systkini
hans, þ.á m. Patricia Molly, móðir
hans, sem Rose hafði eignast með
fyrri manni sínum, Reginald Cecil
Clapton.
Patricia var aðeins sextán ára
þegar hún varð þunguð. Barnsfað-
irinn var Edward Walter Fryer, 24
ára hermaður frá Montréal, sem
einnig spilaði á píanó með ýmsum
danshljómsveitum í Surrey og ná-
grenni. Hann reyndist kvæntur og
fór til Kanada áður en sonurinn leit
dagsins ljós. Sjálf fluttist blóðmóðir
Claptons þangað nokkrum árum síð-
ar, giftist Kanadamanni og eignaðist
með honum þrjú börn.
Þegar Clapton var sex eða sjö ára
og heyrði frænku sína spyrja Rose
hvort hún hefði heyrt frá mömmu
hans rann upp fyrir honum ljós.
Litli bastarðurinn, eins og Harry
frændi kallaði hann stundum góðlát-
lega, var réttnefni. Honum hafði líka
alltaf þótt skrýtið að þau hétu Clapp
en hann Clapton. Þótt honum þætti
mjög vænt um fjölskyldu sína,
kveðst hann hafa skynjað að í litlum
bæ eins og Ripley skammaðist fólk
sín fyrir lausaleiksbörn.
Allt þetta ruglaði sveininn unga í
ríminu. Hann dró sig inn í skel, varð
feiminn, einmana og hræddur, en
fann hugarró í tónlist, sem hann
hlustaði á lon og don. Tilfinningar
hans voru því blendnar þegar hann
var níu ára og móðir hans kom í
heimsókn frá Kanada ásamt tveim-
ur börnum sínum.
Ógleymanleg höfnun
Hann var uppnuminn af glæsileik
hennar og persónutöfrum og þegar
leið á dvöl hennar gat hann ekki
stillt sig og gusaði út úr sér: „Má ég
núna kalla þig mömmu?“ Loftið í
litla húsinu var rafmagnað og hann
skammaðist sín hræðilega. Þegar
hún loks svaraði: „Ég held að það sé
best, eftir allt sem þau hafa gert fyr-
ir þig, að þú kallir ömmu þína og afa
áfram mömmu og pabba.“ Höfn-
uninni og niðurlægingunni gleymdi
hann aldrei. Ekki bætti úr skák að
komið var fram við hálfsystkini hans
með sinn kanadíska hreim eins og
hálfgerðar stjörnur í þorpinu og
sjálfur féll hann í skuggann, að því
er honum fannst.
Hann varð ekki aðeins öfund-
sjúkur og skapvondur heldur hröp-
uðu einkunnir hans svo að fyrri
áform um skólagöngu í Ripley
runnu út í sandinn og á endanum fór
hann í skóla í næsta þorpi. Þar gerði
hann merka uppgötvun, því árið var
1956 og Elvis nokkur Presley kom-
inn til sögunnar. Óhamingjusami
drengurinn frá Ripley tók gleði sína
á ný og áhugi hans á tónlist jókst til
muna.
Með rjómanum í rokkinu
Eftir hefðbundna skólagöngu og
ársönn í listum í Kingston College
starfaði hann um skeið sem bréfberi
og aðstoðarmaður afa síns, sem var
múrari. Þeim starfa gegndi hann
jafnframt þegar hann var að feta sig
áfram á tónlistarbrautinni.
Þrettán ára hafði hann fengið sinn
fyrsta gítar í afmælisgjöf, en 1962
tókst honum með aðstoð ömmu
sinnar og afa að öngla saman fyrir
rafmagnsgítar. Innblásinn af áhuga
á blús æfði hann sig tímunum saman
og náði svo góðum árangri að hon-
um þótti sér ekkert að vanbúnaði að
fara til London og freista þar gæf-
unnar, enda borgin miðpunktur
nýrrar gerðar tónlistar á þessum
tíma, sannkölluð paradís, ungra,
skapandi listamanna.
Clapton gekk til liðs við rokk- og
blúshljómsveitina The Roosters árið
1963, síðan hljómsveitir eins og The
Yardbirds, John Mayall & The Blu-
esbreakers og Cream, sem vakti
mikla athygli á hljómleikaferðalagi
um Bandaríkin og varð heimsfræg
fyrir plöturnar Fresh Cream, Dis-
raeli Gears, og Wheels of Fire. Þótt
Cream væri aðeins starfandi í tvö
ár, er hljómsveitin talin ein af
áhrifamestu rokkhljómsveitum
heims til þessa dags. Ósætti og
fleira varð til þess að sveitin leystist
upp eftir tvenna tónleika í Royal Al-
bert Hall í London síðla árs 1968.
Clapton stofnaði þá hljómsveitina,
Blind Faith, sem stundum er nefnd
fyrsta rokk-„súpergrúppan“, en hún
lagði upp laupana eftir útgáfu einn-
ar plötu. Þá hafði Clapton fengið
nóg af frægðinni og faldi sig hálf-
partinn á tónleikaferðalagi með Del-
aney & Bonnie & Friends. Hann hóf
í auknum mæli að semja lög og Del-
aney hvatti hann til að syngja meira
sjálfur. Upptökur frá tónleikum
sveitarinnar komu út á plötu 1970
og sama ár frumraun Claptons, sem
nefndist einfaldlega Clapton.
Reuters
Lífsblúsinn Frá því Eric Clapton hóf fyrst að spila með hljómsveitum árið 1963 hefur hann verið heillaður af
blús. Platan From The Cradle, sem hann sendi frá sér 1994, er óður til blúsins.
Ævisaga Erics Claptons
er nýkomin út og er hún
opinská í meira lagi. Val-
gerður Þ. Jónsdóttir las
um heróínneyslu, drykkju-
skap, tilfinningaflækjur og
kvennafar eins dáðasta
blúsrokkara heims.
Syndajátning rokkara
WWW.EBK.DK
Á þessum fundi þar sem hægt er að fá einkaviðtöl getum við skýrt þér frá þeim byggingarmöguleikum
sem í boði eru fyrir þig miðað við húsin okkar, byggingaraðferðir og afgreiðsluskilyrði við að reisa hús á
Íslandi. Gerum tilboð samkvæmt ykkar hugmyndum og óskum.
Skráning í einkaviðtal á www.ebk.dk eða beint hjá söluráðgjafa:
Trine Lundgaard Olsen - farsími nr. +45 61 62 05 25 – netfang: tlo@ebk.dk
Anders Ingemann Jensen - farsími nr.+45 40 20 32 38 – netfang: aj@ebk.dk
Söluráðgjafar eru dönsku- og enskutalandi.
Vinsamlegast virðið tímaskráningu.
EBK Huse A/S hefur meira en 30 ára reynslu af því að byggja og reisa sumarbústaði úr tré.
Þekkt dönsk gæðahönnun. EBK Huse er meðal leiðandi fyrirtækja á markaðinum, með
4 útibú í Danmörku og 4 útibú í Þýskalandi. Höfum einnig margra ára reynslu af
sumarhúsbyggingum á Íslandi, Þýskalandi og Færeyjum.
EBK Huse A/S býður hér með til byggingarfundar
13. – 15. nóvember 2007 í Reykjavík.
V/ BELLA CENTER: +45-32 52 46 54, C.F. Møllers Allé, Ørestaden, København
Mán.- mið. og lau. 13-17, Sun. og helgidaga 11-17
7
5
6
3
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
DANSKIR GÆÐASUMARBÚSTAÐIR (HEILSÁRSBÚSTAÐIR)