Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 34
forfeður
34 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
J
ákvæði og bjartsýni eru ein-
kenni fyrir fyrirsögnina frá
málþingi ungra innflytj-
enda sem haldið var 24.
september síðastliðinn og
bar yfirskriftina Framtíð í nýju landi.
Umræðan um innflytjendur, nýja Ís-
lendinga, siði þeirra og trú hefur ver-
ið mjög áberandi á undanförnum
misserum. Um langan aldur hafa er-
lendir einstaklingar sest hér að og
haft misjafnlega mikil áhrif á sögu
okkar Íslendinga. Hið sama á við um
okkur sjálf, sem fædd erum í landinu.
Að gefnu tilefni og til heiðurs sögu,
fortíð okkar og framtíð verður hér
minnst komu Tönnies Daniels Bern-
höfts bakara til Reykjavíkur á vor-
dögum 1834 og áhrifa komu hans en
hinn 10. júlí sl. voru 210 ár frá fæð-
ingu bakarameistarans.
Umheimurinn
Í kjölfar júlíbyltingarinnar í París
árið 1830 breyttist margt í Evrópu.
Þjóðernisstefnan, sem skapaði bæði
sameiningu og sundrung, olli upp-
reisnum víða. Stjórnarhættir breytt-
ust. Urðum við Íslendingar ekkert út
undan í þeim efnum. Til Danmerkur
fór Jón Sigurðsson nefndur forseti
árið 1833 til náms, og einbeitti sér síð-
an að sjálfstæðisbaráttu okkar litlu
þjóðar. Þegar Jón fór til Kaup-
mannahafnar var þar fyrir ungur
bakarameistari Tönnies Daníel Bern-
höft ásamt konu sinni Maríu Elíza-
bethu og börnum þeirra tveimur að
undirbúa för þeirra til Íslands til að
taka þátt í uppbyggingu þjóðlífsins
þar. Þá þegar voru glæður komnar í
efnahagslífið á Íslandi en til þess að
láta þær loga urðu Íslendingar að fá
nýtt og ferskt afl hugmynda og getu
inn í þjóðfélagið.
Komið til Reykjavíkur
Þegar þau merku heiðurshjón
stigu á land í Reykjavík á vordögum
árið 1834 bjuggu innan við 500 manns
í kaupstaðnum. Það stóðu yfir miklar
framkvæmdir í Reykjavík, sem þá
hafði fengið kaupstaðarréttindi 58 ár-
um áður. Þá var verið að undirbúa
lagningu Skólavörðustígs, þar var
líka verið að gróðursetja fyrstu trén í
Reykjavík, en þau voru gróðursett
sunnan við Stjórnarráðshúsið. Á
sama tíma var verið að flytja lyfja-
verslun í bæinn utan af Nesi á Sel-
tjörn.
Bakarameistaranum og konu hans
hefur að öllum líkindum verið brugðið
við komuna til Reykjavíkur eftir árin
sín í Kaupmannahöfn. En jákvætt
lífsviðhorf, góð skaphöfn, kraftur og
þor hefur verið þeirra styrkur til að
takast á við breytt umhverfi.
Þjóðverji og Dani
Tönnies Daníel Bernhöft var fædd-
ur 10. júlí 1797 í Neustadt á Holtseta-
landi, sama ár og John Adams var
kjörinn Bandaríkjaforseti. Faðir Tön-
nies var Jóachim Michael Bernhöft.
Hann var fæddur í Krempe Slésvík
Holstein árið 1776. Hann rak brauð-
gerð í Neustadt. Móðir Tönnies (fyrri
kona Jóachims) hét María Dóróthea
(fædd Stampen) hún fæddist árið
1780 einnig í Krempe Slésvík Hol-
stein eins og faðir Tönnies.
Tönnies Daníel var Þjóðverji. Kona
hans María Elizabeth (fædd Abel)
fæddist 2. mars árið 1799, sama ár og
Napóleon tók völdin í Frakklandi.
Hún var ættuð frá Helsingjaeyri á
Sjálandi í Danmörku.
Þau gengu í hjónaband haustið
1827.
Á þeim árum sem Tönnies var að
nema bakaraiðn var meira en helm-
ingur bakara í Kaupmannahöfn Þjóð-
verjar.
Í Kaupmannahöfn fæddust börn
þeirra hjóna, Wilhelm Georg Theo-
dor 30. ágúst árið 1828 og Jóhanna
Katharína Jakobína 23. maí árið 1830.
Jóhanna giftist hér í Reykjavík árið
1855, Gottfred nokkrum Klentz og
eignuðust þau ekki afkomendur eftir
því sem næst verður komist.
Wilhelm Georg Theodor, sem var
bakari eins og faðir hans, lést ungur
að árum hinn 13. ágúst árið 1871.
Hann var kvæntur Johanne Lovise
Bernhöft (fæddri Bertelsen), barns-
móðir hans var Sigríður Sigurð-
ardóttir.
Wilhelm Georg Theodor er forfaðir
Bernhöftanna á Íslandi og er óhætt
að segja að þeir séu í dag á fjórða
hundrað manns.
Bakaraiðn er elsta iðngrein á Ís-
landi, Bernhöftsbakarí er þar með
elsta starfandi fyrirtæki á landinu,
stofnað 1834. Tönnies Daníel keypti
bakaríið á 8.000 ríkisdali árið 1845,
sama ár og Alþingi var endurreist á
Íslandi. Bakaríið hafði áður verið í
eigu P.C. Knudtzons sem upphaflega
réð Tönnies að bakaríinu og fékk
hann til að koma til landsins. P.C.
Knudtzon hafði áhrif á verslunar- og
viðskiptasögu Reykjavíkur sem og
Hafnarfjarðar. En má að gamni geta
þess að árið 1787 var heitið verðlaun-
um þeim mönnum sem byggðu hús í
Reykjavík sem námu 10% af bygg-
ingarkostnaðinum og fékk áð-
urnefndur Knudtzon verðlaunin fyrir
byggingu bakarísins.
Góður vinur fjölskyldunnar skrif-
aði eitt sinn:
„Í skólaljóðum og hetjusöngvum er
sungið um landnema og hetjur af
konungakyni. En það er fagnaðarefni
að hingað norður í myrkur og fásinni
hafi komið fólk sem kryddað hefur til-
veru heldur hnípinnar þjóðar með
suðrænni hlýju, léttri lund og já-
Bernhöftstorfan Bakaraiðn er elsta iðngrein á landinu og Bernhöftsbakarí þar með elsta fyrirtæki landsins,
stofnað árið 1834.
Bakarinn Tönnies Daníel keypti
bakaríið á átta þúsund ríkisdali ár-
ið 1845.
Skörungur María Elízabeth rak
heimilið af myndarskap og var
manni sínum mikill bakhjarl.
Valgerður Sigurðardóttir
Íslandssaga Bernhöftshjónanna
Ferskir straumar hafa
iðulega fylgt fólki, sem
flutt hefur til Íslands og
sest hér að. Gott dæmi
um það fyrr á tímum er
koma Tönnies Daniels
Bernhöfts bakara til
Reykjavíkur 1843. Val-
gerður Sigurðardóttir
segir sögu Bernhöfts-
hjónanna.
Kanntu jól
að baka?
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
ISIG barnasvunta
395,-
Opið 10-20 virka daga │ Laugardaga 10-18 │ Sunnudaga 12-18
RES Orkuskóli á Akureyri er framsækinn
alþjóðlegur skóli sem býður nú, fyrstur
íslenskra skóla, upp á eins árs M.Sc. nám
í endurnýjanlegum orkufræðum.
Fyrsta námsárið geta nemendur
valið á milli þriggja námsbrauta:
KENNSLA HEFST 11. febrúar 2008
Umsóknarfrestur er til 3. desember nk.
- Jarðhitaorku
- Vistvæns eldsneytis og lífmassaorku
- Efnarafala og vetnis
vertu orkugjafi
framtíðarinnar
RENEWABLE ENERGY SCIENCE
ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR Á WWW.RES.IS OG Í SÍMA 460 8942
RES Orkuskóli er sjálfstæð vísinda- og menntastofnun sem starfar með
Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Skólinn býður upp á spennandi
alþjóðlegt nám, kennara sem eru leiðandi á sínu sviði og frábært námsumhverfi.