Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 45
MIRALE
Síðumúla 33
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
mán.–föstud. 11–18
laugardag 11–16
sunnudag 13–16
www.mirale.is
Jólin
komin
í Mirale
15% afsláttur
af öllu jólaskrauti
opið í dag
frá kl. 13–16
kona. Þær eru dæmi um fólk sem
mér þykir mjög vænt um og hefur
haft áhrif á mig bæði með list sinni
og persónu.“ Tónlist skipar stóran
sess, bæði í verkum Ernu og ann-
arra á hátíðinni. Þjóðlagaskotið
popp, sinfónía, raftónlist, pönk og
þungarokk eru dæmi um rétti á
hlaðborðinu.
Flest verkanna eru tilraunir með
mörkin milli ólíkra listgreina og í
flestum þeirra verður til einskonar
listrænn bræðingur. „Það er verið
að blanda saman, sulla og hræra,“
segir Erna. Frá því hún útskrifaðist
frá samtímadansskólanum PARTS
(Performing Arts, Research and
Training Studios) í Brussel árið
1998 hefur hún gert einmitt þetta.
„Kannski er samtímadansinn það
form sem er hvað opnast fyrir því að
blanda saman ólíkum listgreinum.
Þörf mannsins til að skilgreina
hvaða -ismi sé í gangi, hvort verk sé
dans eða skúlptúr, tónverk eða leik-
verk er ríkjandi alls staðar. Fyrir
sjálfa mig virkar ekki að hugsa
þannig, mér finnst það loka fyrir
sköpunarflæðið. Fólk fer stundum í
kleinu þegar því finnst það ekki
fatta um hvað verk eru í stað þess að
njóta þess að skilja bara með öðrum
skynfærum en heilanum.“
Metal-öskrið eins og
piroettar í ballettsýningum
„Ég hef verið svo heppin að vinna
með listafólki úr ýmsum áttum sem
veitir mér innblástur og hvatningu
til að prófa aðra hluti.“ Einn af þess-
um hlutum er röddin. „Röddin er
eins konar framlenging á lík-
amanum, af hreyfingu. Hún fer út
úr líkamanum og stækkar hreyfingu
eða gefur henni annan blæ. Núna
get ég varla aðskilið þetta tvennt,“
segir Erna og bætir við: „Ég held
samt að ég byrji allt með dansi, ég
nota hann sem grunn. Svo stundum
kalla ég þetta allt dans þar sem ég
dansa ýmist með röddina eða orð.“
Mysteries of Love, eftir Ernu og
Jóhann Jóhannsson, er eitt af verk-
unum sem verða sýnd á Les Gran-
des Traversees. Þar nota Erna og
Margrét Sara Guðjónsdóttir rödd-
ina til að bræða saman tónlist og
hreyfingu. Verkið er líka gott dæmi
um andstæðurnar sem er að finna í
flestum, ef ekki öllum verkum Ernu.
„Sjáðu til, Erna er lágvaxin, að
mörgu leyti feimin, fíngerð, með
frekar bjarta rödd. Svona mús, eins
og einhver myndi orða það. Á stóra
sviðinu í Þjóðleikhúsinu nú í vor
urðu leikhúsgestir vitni að því þegar
hún breyttist úr saklausri skóla-
stúlku í harðsvíraðan þungarokkara
sem átti salinn skuldlaust.“ Hvaðan
kemur þessi dimma, sterka rödd?
„Ég held hún sé sprottin úr ein-
hverri frumorku. Ég fæ mikið út úr
því að taka metal-öskrið góða. Ég
verð rosalega róleg á eftir og oft
þreyttari eftir sönginn heldur en
eftir dans. Metal-öskrið er nú orðið
hluti af mínum sýningum eins og
piroettar í ballettsýningum. Það fer
svo eftir aðstæðum og áferð öskurs-
ins hvaða tilfinningu það gefur. Sem
útskýrir kannski yfirskrift hátíð-
innar: „Blóð, sviti, metal og tár“.“
Lífið er miklu öfgafyllra
en verkin mín
Hátíðin hefst á Talandi Tré (e.
Talking Tree), samtímadansverki
eftir Ernu, sem fjallar um 3.000 ára
gamalt tré lífs og frjósemi. Verkið
er reyndar ennþá í vinnslu og hefur
verið sýnt víða sem slíkt en verður
frumsýnt á næsta ári í Frakklandi.
Það segir sögur af fólki og furðuver-
um sem það hefur rekist á í gegnum
tíðina. Erna leikur tréð og semur
ennfremur sögurnar sem nú teljast í
tugum.
Líkt og í mörgum verkum Ernu
byrjar Talandi Tré á kómískum,
léttum og fallegum nótum en endar
á frekar dimman og örvæntinga-
fullan hátt. Stundum hefur Erna
verið gagnrýnd fyrir einmitt þetta:
að þurfa að enda í ljótleika eða öfg-
um, að ganga alltof langt. „Er það,
segir fólk það?“ Erna hugsar sig
um. „Ég geng ekki of langt fyrir
sjálfa mig og ég er alls ekki að reyna
að ganga fram af fólki. Ég er stöð-
ugt að vinna með öfgar í verkum
mínum; kontrasta og skitsófreníuna
í okkur öllum. Ég hoppa á milli
ólíkra tilfinninga á þessum skala. Ég
get ekki gert hlutina öðruvísi.
Stundum er allt fallegt og yndislegt
og stundum er allt á hinn veginn. Og
stundum meira að segja bæði í einu.
Lífið er miklu öfgafyllra en verkin
mín.“
Byrja verkin þín einhvern tímann
á vondu og enda í góðu? „Já, til
dæmis Ófætt (verk eftir Ernu og
Damien Jalet, í samvinnu við Gabrí-
elu) endar mjög fallega. Við köllum
það uppfinningu tilfinninga. Það
byrjar á dýrslegri hegðun sem
gengur út á frumhluti eins og að
fæðast, borða, sofa og ríða. Svo end-
ar það á upphafi tilfinninga, eins og
ástarinnar. IBM endar líka fallega.“
IBM 1401: notendahandbók eftir
Ernu og Jóhann Jóhannsson hefur
verið sýnt víðs vegar um heim síð-
astliðin ár, m.a. á Íslandi. Það verð-
ur í fyrsta skipti flutt í Bordeaux
undir leik sinfóníuhljómsveitar.
Verkið fjallar um stórtölvu sem var
tekin úr sambandi við hátíðlega at-
höfn hjá IBM árið 1971. „Tölvan var
persónugerð og þegar hún var tekin
úr sambandi þá var haldin hálfgerð
jarðarför.“ Erna veit þetta af því að
feður hennar og Jóhanns unnu hjá
IBM á þeim tíma. „Tölvan endar á
því að kveðja, sem sumum finnst
sorglegt. Fyrir mér felur það líka í
sér von, líf að kveðja og annað kem-
ur í staðinn.“ Finnst þér dauðinn
ekki sorglegur? „Jú, en ekki minn
eigin dauði. En ég er hrædd við að
missa fólkið mitt, sérstaklega eftir
að ég flutti til útlanda. Stundum
vakna ég á nóttunni við tilhugs-
unina. Kannski er það ástæðan fyrir
því að ég geri hlutina eins og ég
geri? Dauðinn, eins og lífið, er stór
hluti í öllum verkum mínum.“
hrundgu@simnet.is
DR. GEIR Sigurðsson verður með
leiðsögn um sýninguna Ævafornir
og ómetanlegir listmunir frá Kína í
Gerðarsafni í dag kl. 15. Sýningin í
Gerðarsafni kemur frá borg-
arlistasafninu í Wuhan í Hubei-
héraði. Alls eru sýndir 107 gripir,
sumir ævafornir og aðrir nýrri, en
sýningin bregður ljósi á helstu tíma-
bilin í sögu Kína allt frá 19. öld og
aftur til 31. aldar fyrir Krist.
Leiðsögn
BEBOPFÉLAG
Reykjavíkur
stendur fyrir tón-
leikum kl. 21 ann-
að kvöld á Kaffi
Culturé við
Hverfisgötu.
Saxófónleik-
ararnir Óskar
Guðjónsson, Ólaf-
ur Jónsson og
Haukur Gröndal hefja leikinn með
klassískum bebopflugum. Meðreið-
arsveinar þeirra á tónleikunum eru
Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Þor-
grímur Jónsson á kontrabassa og
Erik Qvick á trommur. Aðgangs-
eyrir er 500 kr.
Bebop á
Kaffi Culturé
Ólafur Jónsson