Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 49

Morgunblaðið - 04.11.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 49 LÆKJASMÁRI 74 - 201 REYKJAVÍK Sölusýning í dag milli kl. 17–17:30 Mjög góð snyrtileg 4ja herbergja 121,4 fm íbúð auk stæðis í bíl- skýli. Sér inngangur. Suður svalir. Stutt í alla þjónustu, verslanir, skóla og íþróttasvæði. Frábær eign fyrir fjölskyldufólk. Bílastæði í lokuðu bílskýli. Verð 32 millj. NJÁLSGATA 80 - 101 REYKJAVÍK Opið hús í dag 16 – 16:30, bjalla "Aðalheiður" Falleg 82 fm 4ra herb íbúð við Njálsgötu. Tvær stofur endurnýjað eldhús, parket á gólfum í stofu og holi, flísar á baðherbergi. Sameign tekin í gegn og hús nýmálað. Mjög sjarmerandi íbúð með mikin karakter, sjón er sögu ríkari. Sólríkar suður svalir. Verð 25 millj. Ágúst R. Pétursson Sölufulltrúi agust@domus.is s. 664 6025/440 6025 Ágúst R. Pétursson Sölufulltrúi agust@domus.is s. 664 6025/440 6025 www.domus.is Laugavegi 97 | 101 Reykjavík | sími 440 6000 Birkiás 20, Garðabæ Raðhús á útsýnisstað Opið hús í dag frá kl. 14-16 Vandað 215 fm raðhús á tveimur hæðum með 31 fm, innbyggðum bíl- skúr á frábærum stað með útsýni til sjávar og að Snæfellsjökli. Rúmgóð- ar stofur, sjónvarpshol, stórt eldhús með sérsmíðuðum innréttingum, 4 herbergi auk fataherbergis og 2 flísalögð baðherbergi. Mikil lofthæð er á efri hæð. Auðvelt er að útbúa sér íbúð á neðri hæð. Hús klætt marmara- salla að utan. Verð 63,0 millj. Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Jón Hólm Stefánsson Lögg. fasteigna-, fyr- irtækja- og skipasali www.gljufurfasteign.is Litla-Hraun 136072 í Borgarbyggð Eyðijörðin Litla-Hraun í Kolbeinsstaðahreppi, nú Borgarbyggð, er til sölu að lang stærstum hluta til, en jörðin er í óskiptri sameign. Litla-Hraun er landmikil jörð og nær land jarðarinnar frá hinni þekktu gömlu eldstöð Eldborg og til sjávar við svonefndar Löngufjörur. Stærstur hluti lands jarðarinnar er talsvert mikið gróið hraun m.a. kjarr- og skóglendi á um 14 hekturum. Ströndin er vogskorin og er veiði með ströndinni og mikið fuglalíf. Jörðin á um 2,8 km af ósasvæði Haffjarðarár. Telja má jörðina til eftirsóknarverðra útivistarjarða. Allt umhverfi jarðarinnar er ósnortið og getur talist til náttúruperlna. Óskað er tilboða í jörðina. Nánari upplýsingar gefur fasteignasali í síma 896-4761. Ókeypis kynningar- fyrirlestur                                      Um er að ræða einstaka 136 fm glæsilega íbúð í hinu nýja Skugga- hverfi, ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er staðsett á 2. hæð og með svalir til vesturs. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og öll gólfefni eru sérvalin. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og snyrtingu. Verð 55,0 millj. 6355 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Vatnsstígur – 101 Skuggahverfi M bl 9 31 86 6 KIRKJAN er mannvirki Guðs, stofnuð af heilögum anda hans á hvíta- sunnudag forðum. Hún er byggð upp á stein- um, lifandi steinum, hriplekum steinum með ólíka lögun. Mann- eskjum sem bregðast, sofna á verðinum og af- neita jafnvel hyrning- arsteininum. Hún byggist upp á eld- hugum sem gera mis- tök, fólki með flein í holdinu. Kirkjan sam- anstendur af lifandi steinum sem efast um hlutverk sitt en þrá fyr- irgefningu og sátt, viðurkenningu og frið. Manneskjum sem innst inni þrá að fá að vera með og að með þeim sé reiknað. Steinum þessum er jafnframt falið mikilvægt hlutverk og þeir geta treyst því að þeim verður ekki skipt út þrátt fyrir breyskleika, leka eða mistök. Skilaboð höfundarins til efnisins eru þessi:  Elskið hvert annað.  Ég mun vera með ykkur alla daga, allt til enda veraldar.  Ég lifi og þið munuð lifa! Kirkjan er vitnisburður um traust Guðs á manninum og trú mannsins á Guði. Það er ekki spurning um mikið eða lítið, heldur allt eða ekkert. Skip á siglingu Kirkjan er eins og skip á siglingu sem okkur er boðið far með. Það er meira og stærra en við mennirnir ráðum við að skilgreina. Skipasmiðurinn fórnaði öllu til að þú kæmist um borð. Hann greiddi meira að segja sjálfur fargjaldið fyr- ir þig og einnig fyrir alla hina far- þegana. Þér er því boðið frítt um borð, þótt fargjaldið hafi að vísu og svo sannarlega verið dýru verði keypt af honum, því hann elskar þig út af lífinu. Kirkjan er félag fólks sem velur að ferðast saman á vit ævintýra fram- tíðarinnar í gegnum ævina og inn til lífsins bjarta. Hún er skip sem flytur farm sinn í faðm frelsara síns. Farþegarnir eru ólíkir með mis- munandi skoðanir, eru í mismunandi stöðum, á misjöfnum aldri, með mis- munandi þarfir, áhugamál, drauma og þrár. Í höfn á friðarins strönd Skipið mun ná ströndu því að skipasmiðurinn sjálfur hefur heitið að svo muni verða. Og það sem meira er, þá hefur hann heitið því að yf- irgefa farþegana aldrei. Hann býðst til að fylla þá af anda sínum og senda engla sína þeim til verndar og til að vaka yfir þeim og vera allt um kring. Hann mun fylgja skipinu í höfn. Já, þér og hverjum og einum farþega. Í höfn á friðarins strönd, í faðm frelsarans Jesú Krists. Þangað sem þú færð bót meina þinna, verð- ur heill og færð lifað með reisn. Það skip sem kirkjan er mun flytja þig í faðm hans sem einum er af Guði falið að brúa bilið á milli dauðans og lífs- ins þegar ævinnar klukka hættir að tifa. Hlutverk okkar far- þeganna er að bjóða fólki far með þessu skipi svo það geti sest til borðs með lífgjafa sínum og notið þannig ástar hans, friðar og gjafa. Kirkjan er veiðifélag og þú ert kallaður til að gerast mannaveiðari. Kallaður til að draga fólk upp úr hyl- dýpi hafsins. Fólk sem svamlar í sjónum í eigin mætti og er að því komið að örmagnast. Hlutverk þitt er forða fólki frá værukærð og doða, drukknun og dauða. Leita það uppi og laða það um borð í skipið. Taka vel á móti því og bjóða það velkomið. Það mun finna sálu sinni frið og eignast líf. Eilíft líf, utan tíma og rúms. Líf í fullri gnægð. Mannvirki Guðs Sigurbjörn Þorkelsson skrifar hugleiðingu » Skipasmiðurinnfórnaði öllu til að þú kæmist um borð. Hann hefur greitt fargjaldið fyrir þig og alla hina... Sigurbjörn Þorkelsson . Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.