Morgunblaðið - 04.11.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 53
... í öruggum höndum
Fjarðargötu 19 • Fax 565 5572 Opið: mán-fim 9-18 og fös 9-17
Traust og góð þjónusta + Örugg skjalagerð = Vel heppnuð fasteignaviðskipti
Gunnar Sv. Friðriksson hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
www.fasteignastofan.is • Allar eignir á mbl.is 565 5522
Opið hús í dag milli kl. 16 - 17
Krosseyrarvegur 6 – V. Hafnarfj.
Í einkasölu mjög falleg
neðri hæð og kjallari í
tvíbýli á þessum frá-
bæra stað. Íbúðin er
alls 95 fm og er nýbúið
að endurnýja allt bað-
herbergið. Húsið sjálft
var málað í sumar og
lítur afar vel út. Stutt í
skóla og miðbærinn í
göngufæri. Áhvílandi
lán frá Landsbankanum
ca 14 millj. getur fylgt.
Verð 24,9 millj.
Sýnum í dag snyrtilega og töluvert endurnýjaða 92 fm íbúð á tveimur
hæðum ásamt þvottahúsi og geymslu í kjallara. Íbúð er: Forstofa, baðher-
bergi, 2 stofur, eldhús, gangur, 4 svefnherbergi, í kjallara er þvottahús og
geymsla. Ástand og útlit húss að utan mjög gott. Fjöldi fermetra er talsvert
meiri heldur en er gefið upp þar sem að efri hæð er undir súð. V. 27,9 m.
Ásgerður s: 691 4161 & Margrét s: 696 3683
sölumenn frá Fasteign.is verða á staðnum.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 16-16:30
Suðurgata 21 – HAFNARFIRÐI
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
M
b
l 9
31
69
3
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Ný uppgert ca 176 fm íbúðarhús úr timbri sem stendur á 751 fm lóð með mikilli trá-
rækt. Aftan við lóðina er opið svæði en hinu megin við veginn er stutt í Elliðaárnar.
Sölumenn Borga sýna. V. 57,0 m. 8042
DIMMUHVARF - KÓPAVOGUR
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Opið hús í dag á milli kl. kl. 16-17
Þorláksgeisla 1
Í einkasölu glæsileg ný, fullbúin,
rúmgóð 101,8 fm, 3ja herbergja
íbúð á 2. hæð (0202) í nýju lyftu-
húsi á rólegum stað í Grafar-
holti. Stæði í upphituðu, loft-
ræstu bílskýli fylgir íbúðinni, inn-
angengt í stigagang úr bílskýl-
inu. Tvennar svalir fylgja íbúðinni. ÍB: Forstofa (flísal.) þvottaher-
bergi (flísal.) innaf með skolvask. Hol (eikarparket). Eldhús með
borðkrók (eikarparket). Falleg eikarinnrétting. Rúmgóð stofa (eik-
arparket). Útgengt á rúmgóðar flísalagðar suðvestursvalir. Svefn-
álma (eikarparket). 2 góð svefnherbergi (eikarparket á báðum).
skápar í báðum herb. Útgengt úr hjónaherbergi á sér suðvestur
flísal. svalir. Baðherbergi flísalagt með baðkari, sturtu, innréttingu,
handklæðaofni og innfeldu wc. Sérgeymsla í kjallara. Verð 26,9
millj.
ÍBÚÐIN ER LAUS FLJÓTLEGA.
Kristján tekur á móti gestum í dag á milli kl. 16:00-17:00
Sími 588 4477
Opið hús í dag á milli kl. kl. 15-16
Andrésbrunnur 14 íb 0301
Í einkasölu glæsileg fullbúin 3ja
herb. ca 96 fm íb. á efstu hæð
(3ju) í fallegu vel staðsettu húsi á
útsýnisstað. Ljósar viðarinnrétt.
Glæsilegt útsýni. Parket og flís-
ar. Stórar svalir. Stæði í 3ja bíla
bílskýli, innangengt úr sameign.
Verð 25,4 millj.
Bjarnheiður og Friðgeir taka á móti áhugasömum
í dag sunnudag frá kl. 15-16.
Skipholt 29B - ný glæsileg íbúð
Bókið skoðun í dag hjá Heiðari í 693-3356
Í einkasölu glæsileg ca 105 fm
íbúð á 2. hæð í nýju mjög vönd-
uðu vel staðs. lyftuhúsi. Vand-
aðar innrétt. Þvottah. í íbúð.
Stórar suðursvalir. Á efstu hæð
er sameiginl. garðskáli og ca 70
fm svalir. Til afh. við kaupsamn-
ing Verð 33,9 millj.
Heiðar sölumaður á Valhöll er með lykil og hægt er að bóka
skoðun í dag í síma 693-3356.
Opið hús í dag á milli kl. kl. 14-16
Sólheimar 25 – laus
Vel skipulögð 4ra herb. íbúð á 3.
hæð í eftirsóttu lyftuhúsi á frá-
bærum stað í austurbænum.
Íbúðin skiptist í 3 svefnherb.,
stofu, eldhús og flísalagt bað-
herbergi. Íbúðin er mikið upp-
runaleg. Sameign er mjög góð.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla og
sameiginlegt þvottahús á 12.
hæð. Verð 23,8 millj.
Örn sýnir íbúðina í dag milli kl.14-16, íbúð 301.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Nýkomið í einkasölu
sérlega gott, nýlegt
(2002) 217 fm hesthús.
Um er að ræða 30
hesta hús í Fjárborgum,
Hólmsheiði 18 B í Rvík.
Húsið er nær fullbúið,
óvenju stór lóð. Hag-
stæð lán ca 30 millj.
Verð 33,5 millj.
Upplýsingar gefur
Helgi Jón s. 893-2233.
HESTHÚS HÓLMSHEIÐI - FJÁRBORGIR
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi
Austurvegi 3 - 800 Selfossi
sími 480 2900 - www.log.is
Löggiltir fasteignasalar:
Ólafur Björnsson hrl.
Sigurður Sigurjónsson hrl. og
Christiane L. Bahner hdl.
LANDSPILDA
VIÐ SELFOSS
Um er að ræða 25 ha landspildu sem liggur alveg við
suðurbyggðarhverfið á Selfossi og er því kjörið
byggingaland.
Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi
Í LEIÐARA Morgunblaðsins 30.
október sem ber yfirskriftina
„Framkvæmdagleði og fúsk“ er vís-
að í frásagnir fjölmiðla um galla og
ófullnægjandi frágang á nýbyggðu
íbúðarhúsnæði. Þau orð, sem mælt
eru í þessum leiðara, eru í tíma töl-
uð.
Þar segir að mikill hraði sé nú í
framkvæmdum og heil hverfi rísi á
fáum árum, en framkvæmdahrað-
inn eigi sér dökkar hliðar. Galla-
málum „rigni“ yfir Húseigendafé-
lagið og forstjóri
verktakafyrirtækis segi, að menn
séu almennt sammála um að bygg-
ingarhraðinn sé orðinn óraunhæfur:
„Það er alltaf verið að ganga út á
ystu nöf með að steypa sé orðin
nógu hörð þegar hitt eða þetta er
gert.“
Í leiðara Mbl. segir ennfremur,
að ef húsnæði er reist svo hratt, að
ekki vinnist tími til að ganga al-
mennilega frá, sé komið í óefni.
Mál af þessu tagi bitni verst á
neytandanum. Eigendur húsnæðis
eigi sérlega erfitt með að sækja
rétt sinn og það geti kostað mikinn
tíma og fé að fá gert við húsnæði
eða tjón bætt þegar eitthvað fer
úrskeiðis.
Loks segir Mbl., að það sé óþol-
andi fyrir einstaklinga, sem hafi
lagt í mestu fjárfestingu ævinnar,
að uppgötva að nýja húsnæðið
heldur ekki vatni – og spyr hvernig
best sé að veita þeim, sem standa í
og bera ábyrgð á framkvæmdum,
viðunandi aðhald. Hvernig á að
tryggja að fúskararnir haldi ekki
áfram að byggja og vinnubrögð
þeirra bitni ekki á fleirum? Þeirri
spurningu svarar blaðið með því að
segja að „eftirlit með fram-
kvæmdum þarf að vera í lagi.“
Þar stendur hnífurinn í kúnni!
Í gildandi byggingarreglugerð,
sem öllum ber að hlíta, segir að
markmið hennar sé að tryggja rétt-
aröryggi í meðferð byggingarmála
þannig að réttur einstaklinga verði
ekki fyrir borð borinn.
Þar segir einnig að bygging-
arfulltrúar skuli hafa eftirlit með
að byggt sé í samræmi við gildandi
lagaákvæði og reglugerðir um
skipulags- og byggingarmál. Vott-
orð um lokaúttekt megi ekki gefa
út nema að fullnægt hafi verið öll-
um tilskildum ákvæðum um gerð
og búnað, sem krafist er fyrir íbúð-
arhúsnæði.
Er þetta ekki nóg? Jú, sam-
kvæmt orðanna hljóðan – en ekki í
verki.
Kjarni málsins er sá, að því er
ekki fylgt nógsamlega eftir, að
ákvæði byggingarreglugerðar séu
virt. Eftirlit er í höndum bygging-
arfulltrúa á hverjum stað, en það
eftirlit hefur í raun ekki náð nema
að takmörkuðu leyti yfir þá verk-
þætti, sem skera úr um, hvort hús-
bygging sé ógölluð, vel smíðuð og
frágengin. Eftirlitið er lögum sam-
kvæmt einnig á könnu bygging-
arstjóra viðkomandi húsbyggingar.
Byggingarstjóri er oftar en ekki sá,
sem byggir húsið og jafnvel selur,
á meðan væntanlegur eigandi er
víðs fjarri. Hann á því eftirlitslítið
að hafa eftirlit með sjálfum sér. Og
hvers konar eftirlit er nú það?
Trúverðugt eftirlit byggist á
gæðakerfum og gæðastöðlum, sem
eiga að fyrirbyggja galla og eru
órofa þáttur í góðum verkferlum,
hvort heldur sem um er að ræða
vöruframleiðslu, þjónustu eða verk-
framkvæmdir. Bygging íbúðar-
húsnæðis virðist undanþegin þessu
sjálfsagða aðhaldi með þeim hrap-
allegu afleiðingum, sem fólk les nú
um í fjölmiðlum og býr við í
„draumaíbúðum“ sínum.
EGGERT HAUKSSON,
viðskiptafræðingur,
Kórsölum 5, Kópavogi.
Er fúsk í
bygging-
areftirliti?
Frá Eggerti Haukssyni