Morgunblaðið - 04.11.2007, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Kirkjubæjarstofa - Fræðasetur á sviði
náttúru, sögu og menningar
Tíu ára afmælisráðstefna, 9.- 10. nóv. 2007
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Klaustri,
Kirkjubæjarklaustriog er öllum opin.
Föstudagur 9. nóv. 15:00 - 18:00
15:00 – 15:30 Skráning og kaffi
Setning: Bjarni Daníelsson,formaður stjórnar Kirkjubæjarstofu
Ávarp: Jón Helgason, fv. formaður stjórnar Kirkjubæjarstofu
Frá hugmynd til veruleika, tíu ára saga Kirkjubæjarstofu: Jóna Sigurbjartsdóttir oddviti
Skaftárhrepps og Ólafía Jakobsdóttir verkefnisstjóri.
Fyrstu skrefin: Helga Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur og fv. forstöðumaður
Kirkjubæjarstofu.
Gagnagrunnurinn Arfur: Elín Erlingsdóttir landfræðingur og fv. verkefnisstjóri Kirkjubæjarstofu
Verndun fornminja: Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins
Brúðir Krists í Kirkjubæ: Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur
17:25 – 18:00 Fyrirspurnir og umræður
19:30 Fordrykkur- hátíðarkvöldverður
Laugardagur 10. nóv. 09:15 – 12:00
Athuganir á eldvirkni í Vestur Skaftafellssýslu: Þorvaldur Þórðarson jarðfræðingur.
Landnám og útbreiðsla gróðurs í Eldhrauni: Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur og
Jóna Björk Jónsdóttir líffræðingur
Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs- ný tækifæri: Þórður H. Ólafssonstarfsmaður stjórnar
Vatnajökulsþjóðgarðs
10:30 – 10 40 Kaffihlé
Náttúruperlan Laki- viðhorf ferðamanna og ferðaþjónustu: Anna Dóra Sæþórsdóttir
landfræðingur
Umhverfisáhrif ferðamennsku- getumvið stýrt þeim?: Rannveig Ólafsdóttir jarð- og
landfræðingur
11:30 – 12:00 Fyrirspurnir og umræður
12:00 – 13:00 Matarhlé
13:00 – 14:30 Kirkjubæjarstofa: Fræðasetur á 21. öld - Framtíðarsýn
Bjarni Daníelsson sveitarstjóri Skaftárhrepps og stjórnarform. Kirkjubæjarstofu og
Þorvarður Árnason forstöðum. Háskólasetursins á Höfn og í stjórn Kirkjubæjarstofu, stýra
opnum umræðum um framtíðarhlutverk og framtíðarverkefni Kirkjubæjarstofu.
Þeim til halds og trausts verða eftirtaldir sérfræðingar:
Rögnvaldur Ólafsson, forstöðum. Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands
Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins
Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands
Björn B. Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga
Sveinn Aðalsteinsson, ráðgjafi Háskólafélagi Suðurlands
Kári Kristjánsson, sérfræðingur og landvörður Skaftafellsþjóðgarði/Lakagígum
Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður Skaftafellsþjóðgarði
14:30 Ráðstefnuslit: Bjarni Daníelsson.
Ráðstefnustjórar: Elín Heiða Valsdóttir og Jóna Sigurbjartsdóttir
Hótel Klaustur býður ráðstefnugestum gistinguá hóflegu verði og hádegisverð á laugardeginum.
Nánari upplýsingar og skráning á afmælisráðstefnuna og í gistingu á Hótel Klaustri eru
í síma Kirkjubæjarstofu: 487 4645 / 892 9650 og á netfanginu: kbstofa@simnet.is.
Vefsíður:www.kbkl.is / www.klaustur.is
Ránargata 12a - kjallari
Opið hús í dag kl. 15 -16
Í dag sunnudag frá kl 15 – 16 mun Björn taka á móti ykkur að Ránargötu
12a. Þetta er falleg og mikið endurnýjuð 2ja – 3ja
herbergja ósamþykkt íbúð alls 63,9 fm. Tvær sam-
liggjandi stofur, eldhús, svefnherbergi og baðher-
bergi. Nýtt steinteppi á gólfum og flísar á baðher-
bergi. Húsið hefur nýlega verið tekið í gegn að ut-
an. Hægt að kaupa með nýjum húsgögnum.
LAUS VIÐ KAUPSAMNING.
Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | www.holl.is | holl@holl.is
M
b
l 9
22
76
2
Hotel Narsaq Aps (ltd. ) for sale
In connection with the owners wishes for
a generational change "Hotel Narsaq" is
offered for sale.
During the recent years the hotel has ext-
ended its capacity of own rooms and
beds. Additionally, the owners have a le-
asehold of a hostel property. "Niviarsiaq",
and have leasehold arrangements for
some guest appartments and rooms in
Narsaq.
Due to extensive investments in upgra-
des and maintenance over the last years, the hotel is now a well-mainten-
ed and modern hotel, with facilities such as satelite-TV, a la carte rest-
aurant etc. The hotel is situated in the picturesque natural beauty of Nar-
saq ,which has good travel connections to the South-greenland airport in
Narsarsuaq and the surrounding towns in South Greenland, an area that
is recently experiencing growth in tourism and business .
The town of Narsarsuaq has direct flight connections to Denmark, Iceland
etc., Check also: www.hotel-narsaq.com
For further information about the hotel, key figures etc. please requ-
ire info highlights at:
Statsautoriseret revisor Ole Baunbæk, Deloitte, Boks 157, 3920
Qaqortoq, Greenland.
Mailto: obaunbaek@deloitte.dk
Phone: +299 645050.
Glæsileg 118 fm íbúð á frábærum
stað við Strandveg í Garðabæ. Bíla-
stæði í bílageymslu. Óhindrað
sjávarútsýni. Um er að ræða lyftu-
hús. Eignin skiptist m.a. í rúmgott
hol, stofu, borðstofu og 2-3 her-
bergi. Þvottahús í íbúð. Íbúðin er öll
hin vandaðasta með fallegum gólf-
efnum, stórum gluggum og vönduð-
um innréttingum. Íbúðin er laus nú
þegar. Verð 43,5 millj. (6784)
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG.
Hafið samband við Magneu Sverrisd. fasteignasala í síma 861 8511.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Strandvegur – laus strax – til sýnis í dag
M
bl
9
31
86
9
SJALDAN hef ég séð fallegri
bók og betur unna. Augljóst er að
útgefandinn hefur lagt metnað í að
gera hana sem best úr
garði. Það er mjög
ánægjulegt að með-
höndla hana og lesa.
Hún er viðmótshlý og
elskuleg. Allt við útlit
og smekkvísi er til
fyrirmyndar. JPV út-
gáfa á hrós og heiður
skilið fyrir fram-
úrskarandi vandvirkni.
Fyrir mér er efni
Biblíunnar orð mann-
elskandi anda. Auðvit-
að er þar af ýmsum
hugsunum að taka.
Hvernig ætti annað að vera þegar
litið er til þess fjölda ára og kyn-
slóða sem frásögur hennar
spanna? En kjarni hennar er góð-
ilmur kærleikans, smyrsl sem
græða og hughreysta menn, konur
og karla. Þeim flokksstjórum sem
harðast láta smella í svipum sínum
hefur yfirsést að elskan, kærleik-
urinn til náungans, á að vera efst-
ur og umbera allt.
„Ef þú hættir allri undirokun
þín á meðal,
hættir hæðnisbend-
ingum og rógi,
réttir hungruðum
það sem þig langar
sjálfan í
og seður þann sem
bágt á, […]
„If you let out thy
soul to the hungry…“
segir í einni enskri
þýðingu. Í annarri
segir: „If you pour
yourself out for the
hungry and satisfy
the desire of the af-
flicted…“
Elskan hefur að sjálfsögðu ýmis
híbýli – eða réttara væri kannski
að segja dýptir. Biblían fjallar um
þessar dýptir. Í flestum bókum
hennar má greina litla hópa manna
sem fengið höfðu að sjá lengra inn
í hulda leyndardóma Orðsins og
upplifðu við það reynslu, sem
breytti viðhorfum þeirra og skiln-
ingi, sem þeir helguðu líf sitt eftir
það. Í hverri kynslóð.
Margt nútímafólk telur það
merki um vitsmuni að hallmæla
Biblíunni. Oftar en ekki lætur
hæst í þeim sem minnst hafa lesið
í henni hvað þá leitað undir yf-
irborð textans. Menn segja jafnvel
að hún sé ónýt. Það mundi varla
teljast merki um mikla greind að
fullyrða að læknavísindin séu ónýt
af því að ekki hafi enn fundist að-
ferð til að lækna krabbamein í
brisi.
Það er nú einu sinni svo að þeg-
ar allt um þrýtur í huga og sál ein-
staklings, þegar ávísuð lyf og hinar
ýmsu meðferðir fagfólks ná ekki
að leysa vandann og myrkrið
hvolfir sér yfir og þúsundfaldar
þjáninguna, og allar leiðir virðast
lokaðar, þá er gott að vita til þess
að til er vegur sem liggur til lausn-
ar sem birtist eins og ljós í myrkr-
inu. Orð Guðs, Kristur, er þetta
ljós. Hann útdeilir elsku, kærleika
og umhyggju, eins og þegar hellt
er úr einu keri í annað, og umvef-
ur hvern þann sem til hans leitar.
Og hann er einmitt staðsettur í
Biblíunni. Orði Guðs. Þess vegna
er Biblían blessuð bók.
Biblían er blessuð bók
Óli Ágústsson skrifar um orð
Guðs og Biblíuna »Margt nútímafólktelur það merki um
vitsmuni að hallmæla
Biblíunni. Oftar en ekki
lætur hæst í þeim sem
minnst hafa lesið í henni
hvað þá leitað undir yf-
irborð textans.
Óli Ágústsson
Höfundur er fyrrv. forstöðumaður
Samhjálpar hvítasunnumanna.