Morgunblaðið - 04.11.2007, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þórunn JónaSigfúsdóttir
fæddist í Reykjavík
6. maí 1941. Hún
lést þar 18. október
síðastliðinn. Hún
var dóttir hjónanna
Sigfúsar Ólafs Sig-
urðssonar húsa-
smíðameistara, f.
7.4. 1907, d. 24.12.
1995, og Jóhönnu
Björnsdóttur, f.
27.7. 1918, d. 29.10.
1999. Foreldrar Sig-
fúsar voru Sigurður
Tómasson, bóndi í Árkvörn í
Fljótshlíð, f. 16.2. 1845, d. 4.3.
1934, og kona hans Þórunn Jóns-
dóttir, f. 7.10. 1862, d. 17.1. 1936,
og foreldrar Jóhönnu voru þau
Björn Jónsson bakari, f. 29.3.1881,
d. 4.8. 1972, og kona hans Jónína
Elíasdóttir, f.
14.7.1897, d. 24.12.
1966, en þau voru
búsett í Reykjavík.
Systkini Þórunnar í
aldursröð eru þau
Sigfríð Elín, Jó-
hanna Edda, d.
1999, og Sigurður
Gylfi.
Þórunn starfaði
lengst af starfsævi
sinnar sem ritari hjá
sakadómaraemb-
ættinu í Reykjavík
og síðar sem einka-
ritari hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins í Kópavogi til ársins 1997,
er það embætti var lagt niður og
sameinað öðru, en þá lét hún af
störfum af heilsufarsástæðum.
Þórunn var jarðsungin í kyrr-
þey 30. október.
Ég finn, hve sárt ég sakna,
hve sorgin hjartað sker.
Af sætum svefni að vakna,
en sjá þig ekki hér;
því svipur þinn á sveimi
í svefni birtist mér.
Í drauma dularheimi
ég dvaldi í nótt hjá þér
(K.N.)
Elsku besta mágkona mín og
besta vinkona. Nú ertu horfin okkur
frá. Alltaf man ég hvað þið Edda
tókuð vel á móti mér þegar ég kom í
foreldrahús ykkar. Þið voruð eins og
englar og ég feimin, sem lítið barn.
Þið voruð ætíð góðar við mig og urð-
um við allar góðar vinkonur með
tímanum. Þurftum við að tala saman
alla daga. En svo misstum við Eddu
okkar og þá kom tómarúm hjá okk-
ur, en við studdum hvor aðra. Elsku
hjartans Dídí mín, mikið hef ég
misst að hafa þig ekki lengur, við
sem vorum svo miklar vinkonur.
Ósköp er aumt í húsi hér, engin Dídí
lengur hér. Þakka þér allt sem þú
gerðir fyrir mín börn og barnabörn.
Elsku Dídí mín, ég finn hve sárt
ég sakna þín og harmurinn svo mik-
ill. Kveð þig, elsku mágkona mín.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
(Har. S. Mag.)
Elsku hjartans Dídí mín.
Þín mágkona
Björg Gunnarsdóttir.
Látin er í Reykjavík frænka mín,
Þórunn J. Sigfúsdóttir, en hún lést
18. október og var jarðsungin 30.
október sl.
Við fráfall Þórunnar rifjast upp
ljúfar endurminningar frá æskudög-
um, en við vorum jafnaldra og lágu
leiðir okkar oft saman. Þórunn var
glaðvær telpa og síðar þroskuð kona
sem vegna ljúfrar lyndiseinkunnar
laðaði fólk að sér. Sem börn hittumst
við oft, þegar fjölskylda hennar bjó í
Stórholti 43 í Reykjavík, en þar áttu
þau heima til ársins 1955, er þau
fluttust í Selvogsgrunn 12, glæsilegt
hús sem faðir hennar byggði. Í Sel-
vogsgrunni 12 átti Þórunn síðan
heimili til dauðadags.
Mér eru minnisstæðar heimsóknir
mínar og foreldra minna í Stórholt
43 og Selvogsgrunn 12 þar sem glað-
vær systkinahópur tók á móti
manni. Það var gaman að heimsækja
þau og ekki dró það úr ánægjunni að
Hanna og Fúsi voru frábærir gest-
gjafar. Um árabil sóttu fjölskyldur
okkar Þórunnar – sem jafnan var
nefnd Dídí – hvor aðra heim og voru
jól og áramót fastir liðir í því efni.
Var þá ævinlega sest að spilum og
spilað fram á kvöld eins og þá var
siður.
Þórunn varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að eignast góða foreldra og
kærleiksrík systkini. Þó að Þórunn
giftist aldrei né eignaðist börn var
hún fjölskyldumanneskja, barngóð
og frændrækin. Foreldrum sínum
reyndist Þórunn styrk stoð á efri ár-
um, enda bjó hún löngum í sambýli
við þau eftir að hin systkinin fluttust
að heiman.
Enn er ótalinn sá þáttur í skap-
gerð Þórunnar er sneri að átthögum
föður hennar, Fljótshlíðinni, sem
hún sýndi óvenjulega tryggð þegar í
æsku. Vart leið svo sumar að hún
legði ekki leið sína þangað og heim-
sækti ættingja og vini. Hún dvaldist
langdvölum hjá föðurbróður sínum,
Páli í Árkvörn og Höllu konu hans,
og tók ástfóstri við Hlíðina. Í þessum
ferðum kom hún jafnan við á Neðri-
Þverá hjá föðursystur sinni, Sigríði,
ömmu undirritaðs.
Þórunn stundaði nám í Handíða-
og myndlistarskólanum og Hús-
mæðraskólanum í Reykjavík. Það
kom glöggt í ljós hve hún var hand-
lagin þegar hún aðstoðaði föður sinn
við húsbygginguna í Selvogsgrunni
12 og hafði pabbi hennar oft orð á
því að ekki hefði verið ónýtt að njóta
hjálpar Dídíar við það. En ævistarf
Þórunnar varð á öðru sviði því
lengst af starfaði hún hjá saka-
dómara og Rannsóknarlögreglu rík-
isins uns hún lét af störfum. Ég veit
að Þórunn var vel metinn starfs-
kraftur, enda eignaðist hún fjöl-
marga vini á starfsárum sínum.
Þórunn var heilsuveil og fór heilsu
hennar smám saman hrakandi þó að
hún ræddi sjaldan um það. Þá dvald-
ist hún langdvölum á sjúkrahúsum
og gekkst undir læknisaðgerðir sem
hún lét þó ekki buga sig. Tilbreyt-
ingu sótti hún í ferðir til sólarlanda,
og skömmu áður en hún lést hafði
hún ráðgert ferð til Spánar.
Með Þórunni er horfin góð kona
sem var hvers manns hugljúfi. Það
var gæfa að eiga hana að vinkonu og
frænku.
Blessuð sé minning hennar.
Guðjón Albertsson.
Hinsta kveðja, elsku Dídí.
Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.
(B.H.)
Guð geymi þig,
Sigfús frændi og fjölskylda
í Kaliforníu.
Þórunn J. Sigfúsdóttir
Elsku sonur minn.
Loksins get ég minnst þín í fáein-
um orðum, því ég átti eftir að kveðja
þig betur.
Þú varst besti sonur sem móðir
getur átt. Alltaf heill og heiðarlegur,
en svakalegur prakkari.
Þú lifðir fyrir íþróttir, síðan fyrir
son þinn og fjölskyldu.
Í minningunni áttu skilið það allra
besta.
Þín elskandi
mamma.
Tómas
Björnsson
✝ Tómas Björnsson fæddist 4.ágúst 1969. Hann andaðist 29.
júlí síðastliðinn og var jarðsung-
inn í kyrrþey.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og systir,
RANNVEIG JÓNSDÓTTIR,
Sólheimum 23 5E,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 1. nóvember á krabbameins-
deild Landspítalans við Hringbraut.
Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
9. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsdeild Landspítalans og Leitarstöð
Krabbameinsfélags Íslands.
Alois Raschhofer,
Birgit Raschhofer, Jóhann Pétur Guðvarðarson
Róbert Jón Raschhofer, Margarete Schrems,
barnabörn,
Ásmundur Jónsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær sonur minn, faðir og afi,
BIRGIR ANDRÉSSON,
sem lést fimmtudaginn 25. október sl., verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn
6. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17, njóta þess.
Andrés Gestsson,
Arnaldur Freyr Birgisson,
Ingólfur Breki Arnaldsson.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
systir,
HULDA REYNHLÍÐ JÖRUNDSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtu-
daginn 1. nóvember.
Útförin auglýst síðar.
Björg Sigurðardóttir, Hallgrímur Valdimarsson,
Inga Jóna Sigurðardóttir, Sævar G. Proppé,
Guðlaugur Sigurðsson, Kristrún O. Stephensen,
barnabörn, systkini og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
HJÖRTUR ÞÓR GUNNARSSON,
Grófarseli 26,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 1. nóvember.
Útför hans verður gjörð frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 12. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Hinn
látni óskaði þess að þeir sem vildu minnast hans
létu Minningarsjóð Líknardeildar í Kópavogi njóta
þess. Minningarkortin fást í síma 543 1159.
Kristín V. Richardsdóttir,
Ríkharður G. Hjartarson,
Þuríður H. Hjartardóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur sambýlismaður, faðir, tengdafaðir og afi,
ÁSTRÁÐUR HELGFELL MAGNÚSSON,
Hörgsási 4,
Egilsstöðum,
sem lést mánudaginn 29. október, verður
jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju miðvikudaginn
7. nóvember kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög.
Rósa Björnsdóttir,
Elvar Ástráðsson, Guðrún Bóasdóttir,
Sigríður Júnía Ástráðsdóttir, Björn Björnsson,
Magnús Ási Ástráðsson, Hulda Rós Sigurðardóttir.
Jóhanna Birna Ástráðsdóttir, Ævar Bjarnason
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐNÝ SKEGGJADÓTTIR,
Strandvegi 11,
Garðabæ,
áður Álfhólsvegi 33,
Kópavogi,
sem lést á líknardeildinni í Kópavogi 28. október
síðastliðinn, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 6. nóvember, kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð Líknardeildar, sími 543 1159.
Fjölskyldan vill færa hjúkrunarþjónustunni Karitas og líknardeildinni í
Kópavogi sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt starf og umhyggju í garð
hinnar látnu og aðstandenda hennar. Séu til englar á jörðu hér þá eru
þeir allir saman komnir í þessu góða fagfólki.
Guðmundur K. Ingimarsson,
Skeggi Guðmundsson, Katrín J. Sigurðardóttir,
Hólmfríður E. Guðmundsdóttir, Úlfar Henningsson,
Henning Arnór Úlfarsson, Emilía Lóa Halldórsdóttir,
Salka Kristinsdóttir,
Kolka Henningsdóttir.