Morgunblaðið - 04.11.2007, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 59
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
tengdadóttir og amma,
KRISTÍN S. KVARAN
kaupmaður,
Skipholti 15,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 28. október, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju þriðjudaginn
6. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Einar B. Kvaran,
Bertha G. Kvaran, Jón Þ. Ólafsson,
Ragna E. Kvaran, Egill Erlendsson,
Thelma Kristín Kvaran, Ingvar B. Jónsson,
Guðrún V. Kvaran
og barnabörn.
✝
Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
INGÓLFUR ARNARSON
tannlæknir,
Húsalind 24,
Kópavogi,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn
25. október verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
mánudaginn 5. nóvember kl. 13.00.
Hrönn Ingólfsdóttir, Ragnar B. Pálsson,
Ingimar Ingólfsson,
Ingólfur R. Ingólfsson,
Guðrún Ingólfsdóttir,
Örn H. Ingólfsson,
Ína H. Ísdal
og barnabörn.
✝
Okkar elskulegi faðir og tengdafaðir,
HEKTOR SIGURÐSSON,
Sunnuhlíð,
Kópavogsbraut 1c,
Kópavogi,
lést að morgni mánudagsins 22. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn
5. nóvember kl. 13.00.
Fyrir hönd barnabarna, barnabarnabarna og annarra
aðstandenda,
Hrefna Hektorsdóttir,
Sigurður Örn Hektorsson, Björg Rúnarsdóttir,
Jóhann Már Hektorsson, Hafdís Sverrisdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRUNN GUNNARSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
þriðjudaginn 6. nóvember kl. 15.00.
Hallfríður Anna Matthíasdóttir, Sverrir Víglundsson,
Vilborg Matthíasdóttir, Ásmundur Jónsson,
Þjóðhildur Birna Matthíasdóttir, Jóhann Sæmundsson,
Steingerður Matthíasdóttir,
Kolfinna Matthíasdóttir, Pétur Svavarsson,
Soffía Jakobína Matthíasdóttir, Guðjón Haukur Hauksson,
Ragna Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar og tengdamóðir,
GRÓA ÓLAFSDÓTTIR,
Akraseli 9,
áður Eskihlíð 26,
er látin.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 7. nóvember kl. 15:00.
Þorbjörg Guðmundsdóttir, Sigtryggur Rósmar Eyþórsson,
Margrét Guðmundsdóttir, Ólafur Ágúst Þorsteinsson,
Sigríður Björg Guðmundsdóttir, Baldvin Már Guðmundsson.
Með fáeinum orðum
langar mig að kveðja góða og kæra
vinkonu mína sem lést langt um ald-
ur fram eftir hetjulega baráttu við
illvígan sjúkdóm. Því má með sanni
segja að „engin ráði sínum næt-
urstað“.
Ég kynntist fyrst Hólmfríði, eða
Hoffý eins og hún var alltaf kölluð,
árið 1965 sem ungri og kröftugri
konu er hún hóf sambúð með eft-
irlifandi eiginmanni sínum og æsku-
vini mínum Braga Guðmundssyni.
Hoffý var þá nýkomin frá Rauf-
arhöfn full af orku og tilbúin að tak-
ast á við það sem framundan var
bæði í blíðu og stríðu. Á þeim tíma
var Raufarhöfn í mínum huga jafn
framandi og langt í burtu og Kína
er í dag. Þetta framandi fólk frá
fjarlægum landshluta var fyrir mér
ákaflega forvitnilegt og gætti því
ákveðinnar lotningar fyrir því enda
hafði það heilmikið og merkilegt að
segja um menn og málefni.
Fyrir mér var Hoffý ákaflega
tryggur vinur, ósérhlífin, réttsýn og
stutt var í húmorinn. Hoffý lá ekki á
skoðun sinni og átti það ekki síst við
þegar henni misbauð framferði ein-
hvers á þeim sem minna mátti sín.
Það var ekki erfitt að leita til Hoffý-
ar, hún var afar bóngóð og því
ávallt boðin og búin að gera það
sem hún gat fyrir þann sem til
hennar leitaði.
Á kveðjustundu sem þessari kem-
ur margt upp í hugann frá liðnum
tíma sem gaman væri að skýra frá.
Mér er sérstaklega minnisstætt eitt
atriði sem átti sér stað árið 1969 og
er mér afar kært því þennan dag
var mér sýndur sá mesti heiður sem
mér hefur verið sýndur á minni ævi.
Dag einn hringdi Bragi í mig og
tjáði mér það að þau Hoffý hefðu
sammælst um að óska eftir því að
ég héldi nýfæddu barni þeirra undir
skírn. Ég varð að sjálfsögðu afar
upp með mér og játaði bóninni
umyrðalaust. Næsta spurning kom
mér svo gjörsamlega í opna skjöldu
og sýndi svo ekki varð um villst að
hér voru sannir vinir á ferð. Þau
Hoffý höfðu einnig sammælst um að
kanna hvort ég hefði nokkuð á móti
því að sonurinn yrði skírður í höf-
uðið á mér en þá var ég aðeins 22ja
ára og ekki algengt að skírt væri í
höfðið á svo ungu fólki. Ég hét niðri
í mér andanum drjúga stund og
þegar ég gat ekki meir stundi ég út
úr mér: „Eruð þið vitlaus“ .
Eftir að Bragi hafði sannfært mig
um það að svo væri ekki þakkaði ég
fyrir þann mikla heiður sem mér
var sýndur og varð svo úr að barnið
var skírt Lúðvík Baldur.
Það var ákaflega ánægjulegt að
fylgjast með þeim Braga og Hoffý
síðustu árin hvað þau náðu vel sam-
an í veiðinni. Ég gat ekki betur séð
Hólmfríður
Hólmgrímsdóttir
✝ HólmfríðurHólmgríms-
dóttir fæddist í
Kirkjubóli á Rauf-
arhöfn 14. janúar
1943. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans laug-
ardaginn 27. októ-
ber síðastliðinn.
Útför Hólmfríðar
var gerð frá Nes-
kirkju 2. nóvember
sl.
en Hoffý væri síst
minni veiðimaður en
Bragi og held ég að
hún hafi notið mjög
svo þeirra stunda
þegar þau fóru saman
til veiða.
Kæra Hoffý, nú
kveð ég þig með sökn-
uði og trega og þakka
þér fyrir þau mörgu
ár sem við áttum sam-
an sem vinir. Lífið
mun þó halda áfram,
þökk sé þér þar sem
þú skilur eftir þig
þrjá kröftuga og ákaflega vel gerða
syni sem þú getur verið afar stolt
af.
Hvíl þú í friði, kæra Hoffý.
Lúðvík Baldur Ögmundsson.
Elsku Hólmfríður!
Með nokkrum fátæklegum orðum
langar okkur að þakka fyrir ánægu-
leg kynni og samverustundir á liðn-
um árum.
Kynni okkar hófust þegar hún
Sigga okkar og hann Lúlli fóru að
draga sig saman. Höfum við síðan
farið ófáar ferðirnar saman til að
heimsækja heimshornaflakkarana
okkar og upplifað hin ótrúlegustu
ævintýri ásamt ykkur hjónum.
Fyrsta ævintýraferðin okkar var
til Suður-Karólínu til að vera við út-
skrift markaðsfræðinganna og síðan
var haldið í frí til Orlando þar sem
við áttum saman frábærar stundir.
Aftur útskrift, nú frá háskóla í
Barcelona og síðan í frí með stór-
fjölskyldunni á sólarströnd, yndis-
legur tími, ljúfar minningar.
Ógleymanleg var einnig ferðin
okkar til Singapoore, Balí og æv-
intýraeyjunnar Tioman.
Tíðar ferðir til London síðustu
misserin og er skemmst að minnast
ferðar okkar í vor þar sem við ferð-
uðumst um Cornwall, þú þá orðin
helsjúk en ótrúlega dugleg og æðru-
laus, til í allt og aldrei kvartað.
Elsku Bragi, Gummi, Elli, Lúlli
og fjölskyldur, okkar innilegustu
samúðarkveðjur, megi Guð styrkja
ykkur.
Guðrún og Sigurður
Sumarliðason.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR,
Ránargötu 44,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 2. nóvember.
Róbert E. Rader, Pris Rader,
Dónald R. Jóhannesson, Helga Mattína Björnsdóttir,
Margrét Ann Rader,
Kristinn Máni Þorfinnsson
og ömmubörn.
✝
Elskulegur stjúpfaðir,
KARL ÁGÚST ADÓLFSSON
netagerðarmaður,
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 6. nóvember kl.11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Axelsdóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi)
Minningargreinar
✝
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA HATLEMARK
til heimilis að Nesbala 68,
Seltjarnarnesi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
2. nóvember.
Útförin fer fram í Neskirkju fimmtudaginn
8. nóvember kl. 15.00.
Ragnar Aðalsteinsson,
Steinn Ragnarsson, Laura Ortiz,
Geir Ragnarsson,
Ívar Ragnarsson,
Margrét Ragnarsdóttir, Sverrir Hreiðarsson,
Sólveig Ragnarsdóttir, Magnús Magnússon,
Cécile Parcillié, Guðmundur Kristjánsson,
barnabörn og langömmubörn.