Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 60
60 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Samúel Jónssonfæddist í Hvera-
gerði hinn 29. sept-
ember 1967. Hann
lést af slysförum í
Danmörku 9. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jón Hallgeir Hraun-
dal, f. á Stokkseyri
6. júlí 1941, d. 26.
júlí 1990, og Guð-
ríður Karólína Ey-
þórsdóttir, f. í
Hveragerði 7. febr-
úar 1942, d. 25. des-
ember 1980. Systkini hans eru
Fríða Bjarney Jónsdóttir, f. 6. júlí
1966, og Þórir Jónsson Hraundal,
f. 1. júní 1974.
Með og eftir grunnskóla vann
Samúel fjölbreytt störf til sjávar
og sveita. Hann var duglegur há-
seti og eftirsóttur
netamaður til
margra ára. Um
1993 hóf hann störf
hjá Skógrækt rík-
isins í Gunnarsholti
við sáningu og um-
sjón dýra. Einnig
stundaði hann skot-
fimi á vegum Skot-
veiðifélags Íslands
og hlaut þar mörg
verðlaun fyrir.
Samúel fluttist til
Danmerkur árið
1996 og vann þar
ýmis störf, meðal annars á
svínabúi við ræktun og aðra um-
sjón. Síðastliðin átta ár bjó hann í
Bastrup á Suður-Jótlandi.
Útför Samúels fór fram frá
Fossvogskapellu 23. október, í
kyrrþey.
Elsku Sammi bróðir, fréttirnar
sem við höfum svo oft kviðið bárust
okkur mánudagsmorguninn 10. sept-
ember síðastliðinn. Þú hafðir dáið í
bílslysi kvöldið áður, einn á ferð ná-
lægt heimili þínu í Bastrup í Dan-
mörku. Í mörg ár hafði vímuefnakr-
umlan haft fast tak á þér, svo fast að
við hræddumst alltaf að þú gætir
orðið undir í þeirri baráttu. Eitthvert
enn máttugra afl greip inn í þá bar-
áttu á þann hátt að lífi þínu lauk 20
dögum áður en þú varðst fertugur.
Á þeim tíma sem liðinn er höfum
við gengið í gegnum öldudali tilfinn-
inga og óskað þess að líf þitt hefði
mátt vera öðruvísi og hamingjurík-
ara en það var. Að við hefðum getað
átt meiri hlutdeild í þínu lífi og þú í
okkar lífi. Raunin var því miður sú að
við hvorki skildum né gátum tekið
þátt í þínu lífi eða þú í okkar.
Við höfum aftur og aftur á þessum
tæpu tveimur mánuðum sem liðnir
eru talað mikið saman og reynt að
rifja upp góðu minningarnar því
þannig viljum við minnast þín og
þannig viljum við að börnin okkar
minnist þín, því betri og ljúfari sál en
þína er erfitt að finna. Þú varst ljúf-
lingur alla tíð með viðkvæma, hlé-
dræga lund, barngóður og snillingur
í að umgangast dýr eins og árin þín
góðu í Gunnarsholti báru vitni um.
Þar varstu önnum kafinn við hesta-
tamningar og náðir miklum árangri.
Ef menn geta talað dýramál þá vit-
um við að þú kunnir það. Þegar þú
fluttir til Danmerkur 1996 í leit að
betra lífi fórstu að vinna á svínabúi.
Ekki leið á löngu þar til þú varst orð-
inn yfirmaður þar, sem kom okkur
ekki á óvart, í ljósi þess hve þú varst
alla tíð laghentur, vinnusamur og
duglegur.
Þegar þú komst heim sumarið
2000 og bjóst hjá okkur fjölskyldunni
á Kambsveginum, áttum við saman
eina yndislega viku. Við máluðum
húsið, fórum í Nauthólsvík í góðu
veðri, settum blóm á leiðið hjá
mömmu og pabba og heimsóttum
ömmu á Skúló. Við höfum ekki átt
eins góða daga saman frá því við vor-
um lítil. Við höfum oft síðan hugsað
með okkur að þessa viku skyldum við
geyma í minningunni og vefja birtu
þrátt fyrir alla skuggana.
Í lok september fórum við til Dan-
merkur þar sem minningarathöfn
um þig var haldin í Óðinsvéum. Við
kvöddum heimili þitt og hittum
Helge, besta vin þinn í Danmörku.
Það var afar verðmætt fyrir okkur að
hitta hann og heyra um vináttu ykk-
ar tveggja en hann og fjölskylda
hans, sonur hans Jesper og móðir
hans, voru þér eins og þín eigin fjöl-
skylda. Þú varst með þeim á jólum og
afmælum og í orðum Helge var nær-
vera þín svo góð og traust að meðal
hans og fjölskyldu hans verður þín
sárt saknað.
Við vitum að nú líður þér vel, í það
minnsta miklu betur en áður. Þú ert
kominn til mömmu og pabba og
kannski núna í fyrsta skipti er það
orðið heilt sem brotnaði þegar
mamma dó. Þegar hún dó fór stór
hluti af þér með henni, líklega stærri
hluti en svo að þú gætir nokkurn
tíma orðið alveg heill aftur. Fyrr en
nú.
Við hittumst í næsta lífi, elsku
Sammi, og njótum saman alls þess
sem við hefðum viljað njóta saman
hér.
Þín systkini,
Fríða og Þórir.
Kveðja frá ömmu.
Elsku Sammi minn.
Nú veit ég að þér líður loksins vel.
Megi guð blessa þig og varðveita og
takk fyrir allt saman.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Þín
amma á Skúló.
Elsku Sammi.
Þú varst alltaf jafn góður og ljúfur
og gaman að fá þig í heimsókn. Alveg
sama hvað maður bað þig um alltaf
gerðir þú það strax. Ekki hafði ég
búist við því þegar við skildum síðast
að það yrði í síðasta skipti sem ég sæi
þig. Guð blessi þig.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þín frænka
Þórunn Ásgeirsdóttir (Núra).
Elsku Sammi frændi.
Nú hugsum við hlýtt til þín og ósk-
um þess að við hefðum getað kynnst
þér betur. Við báðum alltaf fyrir þér í
bænunum okkar og við spurðum
mömmu oft frétta af þér. Við vissum
alltaf að þú hugsaðir til okkar; allar
fínu jólagjafirnar sem þú sendir til
okkur voru mikið gleðiefni, sérstak-
lega af því að þær komu yfirleitt viku
seinna en aðrar gjafir og lengdu jólin
fyrir okkur. Það má segja að þú hafir
verið síðasti jólasveinninn okkar.
Þegar þú komst og varst hjá okkur
rétt áður en Valgerður fæddist vor-
um við í skýjunum yfir því að fá loks-
ins að hitta þig almennilega og Katr-
ínu þótti sérstaklega fyndið hversu
tannlaus þú varst. Marteinn man eft-
ir sólskinsdeginum þegar við Þórir
sóttum þig á hótelið og þú spilaðir
með okkur körfubolta, næstu dagar
fóru svo í æfingar á planinu heima á
Kambsvegi. Þú varst mjög góður í
körfubolta, en þú varst sérstaklega
góður við okkur og það erum við svo
þakklát fyrir.
Við minnumst góðu stundanna
sem við áttum með þér og vitum að
núna ertu hamingjusamur hjá ömmu
og afa. Þú verður að skila rosa góðri
kveðju til þeirra frá okkur.
Við viljum senda þetta ljóð til þín
að lokum, við vitum að þú hugsaðir
svona til allra smávina.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt.
Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt!
(Úr Hulduljóðum Jónasar)
Katrín og Marteinn.
„Ísalands óhamingju verður allt að
vopni“ orti Bjarni Thorarensen er
Baldvin Einarsson vinur hans lést.
Eins varð óhamingju Samma frænda
míns allt að vopni. Það er erfitt að
trúa á hið góða í lífinu þegar gæfunni
er jafnmisskipt og í lífi hans.
Samt byrjaði allt svo vel í litla hús-
inu í Hveragerði. Þar skottaðist lítill,
hamingjusamur snáði um túnið
ásamt stóru systur Fríðu sem vakti
ábyrgðarfull yfir litla bróður.
Sammi var fíngerður, laglegur
drengur, með svart hár og brún,
möndlulaga augu. Hann minnti mig
svo oft á hann pabba minn, ömmu-
bróður sinn. Oft hugsaði ég að ein-
mitt svona hefði pabbi litið út sem
ungur drengur.
Upphaf ógæfunnar er jafnóljóst
og endalokin voru augljós. Sammi
var elskulegur og hlýr og bræddi alla
með fallega brosinu sínu og brúnu
augunum. En hann var mjúkur og
brotthættur. Pabbi Nolli vildi herða
hann og búa hann undir lífsbarátt-
una. Vissi sem var að oft blæs á móti.
Vildi Samma sínum svo vel. Ég elska
Samma mest af börnunum mínum,
sagði hann, þegar ég fann að því að
hann væri harður við drenginn.
Mamma Kaja mildaði og verndaði,
fann að drengurinn hennar þoldi
ekki hörðu tökin. Hann þurfti skjól
og það fékk hann hjá henni. Hún var
honum allt í senn, móðir, félagi,
verndari og huggari. En óhamingj-
unni varð allt að vopni. Eftir margra
ára erfið veikindi dó Kaja frá börn-
unum sínum þrem, Þórir litli var þá
aðeins sex ára. Sammi minn var
þrettán ára og á viðkvæmasta aldri.
Nolli hélt ótrauður áfram uppeldi
barnanna og Fríða varð bræðrum
sínum sem besta móðir. Milli Samma
Samúel Jónsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS BUHL,
Ytri-Reistará,
Arnarneshreppi.
Margrét Magnúsdóttir
Lovísa Kristjánsdóttir, Björn Einarsson,
Magnús Kristjánsson,
Hans Pétur Kristjánsson,
Ástríður Kristín Kristjánsdóttir,
Hólmfríður B. Kristjánsdóttir, Eggert Birgisson,
Margrét Ósk Buhl Björnsdóttir,
Einar Bergur Björnsson,
Kristján Breki Björnsson,
Sunneva Dögg Ragnarsdóttir
og Kristján Birgir Eggertsson.
✝
Okkar innilegustu þakkir fyrir ykkar stuðning,
vináttu, samúð og fallegu orð við fráfall okkar
ástkæra
ÞÓRIS ÞORLÁKSSONAR.
Megi guð geyma ykkur.
Fjölskyldan.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
sonar míns, bróður, dóttursonar og frænda,
SIGURÐAR JÚLÍUSAR HÁLFDÁNARSONAR,
til heimilis að Sætúni 8,
430 Suðureyri.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Ólafsdóttir Scoles.
✝
Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og stuðning við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Langabotni.
Sérstakar þakkir til þeirra fjölmörgu starfsmanna heilbrigðis- og
félagsþjónustunnar sem sýndu henni vináttu og virðingu.
Sæmundur Valdimarsson,
Valdimar Sæmundsson, Auður Björnsdóttir,
Hildur Sæmundsdóttir, Sigurjón Halldórsson,
Magnús Sæmundsson, Sigríður Þórarinsdóttir,
Gunnar Sæmundsson, Lára Björnsdóttir
og ömmubörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ESTERAR J. BJARNADÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við öllu því góða fólki sem
annaðist Ester í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Hjálmar Markússon,
Magnea Guðný Hjálmarsdóttir, Gunnlaugur Marinósson,
Jóna Björk Hjálmarsdóttir, Guðbjartur Kristjánsson,
Hildur Ýr Hjálmarsdóttir, Pétur Thors,
Hjálmar Þór,
barnabörn og barnabarnabörn.