Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 74

Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 74
74 SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ - Kauptu bíómiðann á netinu - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Balls of Fury kl. 1:30 - 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Balls of Fury kl. 1:30 - 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Dark is Rising kl. 1:30 - 3:45 - 5:50 - 8 B.i. 7 ára Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 Good Luck Chuck kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára Resident Evil kl. 10:10 B.i. 16 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:50 Balls of Fury kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Dark is Rising kl. 4 - 8 B.i. 7 ára Eastern Promises kl. 10 B.i. 16 ára Heartbreak Kid kl. 6 B.i. 12 ára Sími 564 0000Sími 462 3500 This is England kl. 3 - 6 - 8 - 10 Rouge Assassin kl. 3 - 5:50 - 8 - 10:10 Superbad kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 3 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Brjálæðislega fyndin mynd!! ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST FRÁ LEIKSTJÓRANUM DAVID CRONEBERG Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon. HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR TOPPMYN DIN Á ÍSLANDI Í DAG Ver ð aðeins 600 kr. Í undirheimum ólöglegs borðtennis er einn maður tilbúinn að leggja allt í sölurnar til að verða ódauðleg hetja! Gríðarstór gamanmynd með litlum kúlum! BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ HÖRKU HASARMYND MEÐ TVEIMUR HEITUSTU TÖFFURUNUM Í DAG SVAKALEG SPENNA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA FRUMSÝNING SVONA ER ENGLAND „Þetta er einfaldlega besta kvikmynd síðustu ára. Hrá, mikilvæg og stórskemmtileg!“ - Glamour Ve rð a ðeins 600 kr . HVER SAGÐI AÐ RISAEÐLUR VÆRU ÚTDAUÐAR Með íslensku tali * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KR. Í BÍÓ* Fáir tónlistarmenn hafa átteins glæsilega byrjun ásínum ferli og Zach Cond-on. Þegar fyrsta breið- skífa hans, Gulag Orkestar, sló í gegn vorið 2006 var hann þegar bú- inn að hljóðrita þrjár skífur og átti mikið lagasafn. Ekki er það bara að hann sé afkastamikill, heldur er hann og fjölhæfur; tók fyrst upp raf- tónlistarskífu, þá dúvoppplötu og rokkskífu. Gulag Orkestar var svo bræðingur af nýbylgjurokki og Balkanskagastuði, en ný plata Cond- ons, The Flying Cup Club, berg- málar franska sönglagahefð. Zach Condon, sem fæddist í Albu- querque í Nýju-Mexíkó, tók fyrst upp undir nafninu The Real People, þá fimmtán ára gamall, síðan sem 1971, en hann tók svo upp nafnið Beirut. Þá var hann nýkominn úr Evrópuferð þar sem hann komst í tæri við sígaunatónlist frá Balk- anskaga. Sú upplifun hafði svo mikil áhrif á hann að hann tók að semja tónlist með Balkanskagablæ. Condon spilar á allt Í Albuquerque bjó á þeim tíma, og býr kannski enn, tónlistarmaðurinn Jeremy Barnes, sem starfar undir listamannsnafninu A Hawk and a Hacksaw, en er þó mörgum helst í minni fyrir það að hafa verið meðal liðsmanna Neutral Milk Hotel og komið þannig að meistaraverkinu In the Aeroplane Over the Sea. Condon fékk Barnes í lið með sér við að taka upp hluta af lagasafni sínu, en hann átti þá 150 lög tilbúin til upptöku, og Barnes kallaði til félaga sinn úr A Hawk and a Hacksaw, Heather Trost. Condon vann svo megnið af lög- unum heima í svefnherberginu sínu, spilaði á hljómborð, harmonikku, saxófón, klarínett, mandólín, uku- lele, skógarhorn, klukkuspil og ann- að slagverk, en Barnes sá um trommuleik og Trost spilaði á selló og fiðlu. Átta manna hljómsveit Með þessari óvenjulegu hljóð- færaskipan varð svo til breiðskífan Gulag Orkestar sem fékk frábæra dóma víða um heim og var enda með bestu skífum ársins 2006. Tónlistin fannst mönnum frábær og iðulega heyrðist sú samlíking að Condon sameinaði það besta frá Jeff Mang- um (Neutral Milk Hotel), Conor Oberst (Bright Eyes) og Sufjan Ste- vens. Viðtökur plötunnar urðu til þess að Condon fluttist til New York og smalaði saman í hljómsveit, því tón- leikatilboðum rigndi yfir sveitina. Mannaskipan er víst losaraleg og sí- breytileg, en dugði þó til að leika á fjölda tónleika á heimslóð vestan hafs, um þvera Evrópu og eins í Rússlandi, Tyrklandi og víðar. Með tímanum varð svo til þéttari kjarni og nú er sveitin nokkuð fastmótaður átta manna félagsskapur. Menn í loftbelg Þegar mesta tónleikastússið var að baki fór Condon síðan með sveit- ina í hljóðver og tók upp stuttskífu, Lon Gisland, svona rétt til að prufu- keyra mannskapinn, en í kjölfarið hófst vinna við nýja breiðskífu fyrir alvöru. Þær upptökur stóðu í hálft ár og afraksturinn, The Flying Club Cup, kom út fyrir skemmstu. Heiti plötunnar vísar í forna ljós- mynd sem Condon hafði uppi á vegg hjá sér á meðan hann samdi lög á skífuna, ljósmynd af mönnum að fara upp í loftbelg árið 1910, en þema plötunnar var Frakkland og er hverju lagi ætlað að draga upp mynd af franskri borg. Það kemur kannski ekki á óvart að Condon býr í París sem stendur og hefur greinilega kynnt sér vel franskan vísnasöng og listamenn á við Francois Hardy, Charles Aznavour og Jacques Brel. Myndlýsing Frakklands Bráðger Zach Condon, hinn bráðungi forsprakki Beirut. Víst er að unglingurinn sem rekur hljómsveit- ina Beirut, Zach Cond- on, er með efnilegustu tónlistarmönnum Bandaríkjanna nú um stundir. Hann sendi ný- verið frá sér skífuna The Flying Club Cup. arnim@mbl.is Árni Matthíasson TÓNLIST Á SUNNUDEGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.