Morgunblaðið - 09.11.2007, Page 56
Vildi ekki
launin sín
Ólafur Egill Eg-
ilsson afþakkaði
laun fyrir að leika í
Stundinni okkar.
Segir launaupphæð-
ina móðgun. »53
LEIKLIST»
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 313. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Alvarleg staða
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segir að bankarnir
hafi skilið húsnæðismarkaðinn eftir í
algjöru uppnámi. Hún telur að lágir
vextir þeirra hafi átt að ýta Íbúða-
lánasjóði af markaði. »Forsíða og 6
Kvaddi með bréfi
Finnska lögreglan fann í gær
sjálfsmorðsbréf sem Pekka-Eric
Auvinen, átján ára pilturinn sem í
fyrradag varð átta að bana í skot-
árás í skóla í smábæ norður af Hels-
inki, skrifaði til fjölskyldu sinnar áð-
ur en hann lét til skarar skríða. »19
Tekist á um HS
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði á
fundi í Njarðvík í gærkvöldi að
Reykjanesbær hefði öll tök á mál-
efnum Hitaveitu Suðurnesja. »2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Spurningum ósvarað
Forystugreinar: Húsnæðislána-
markaðurinn | Samstillt átak um
ryklausa Reykjavík í vetur
Ljósvaki: Rauður, gulur, hvítur
UMRÆÐAN»
Menningarlegt … gildi tónlistar
Af degi íslenskrar tónlistar
Höldum áætlun um Hólmsheiði 2010
Svar til Árna Sigfússonar
Nürburgring breytt í skemmtigarð
Betra viðskiptaumhverfi …
Tækifæri til að eignast draumabílinn?
Hyggur á þátttöku í FPA-formúlunni
BÍLAR »
12
2 2
2
2 2 12
21 12 2
3 $ (4! ,
' (
5
%" $, 2 2 21
21 1 21 12 2
* 6/ ! 2 2
2
2
21 1 21 121
7899:;<
!=>;9<?5!@A?7
6:?:7:7899:;<
7B?!66;C?:
?8;!66;C?:
!D?!66;C?:
!0<!!? E;:?6<
F:@:?!6=F>?
!7;
>0;:
5>?5<!0'!<=:9:
Heitast 7°C | Kaldast -8°C
Hæg vestlæg eða
breytileg átt og slydda
eða rigning SV-lands.
Birtir til síðdegis. Bjart
norðan- og austanlands. » 10
Garðar Thór Cortes
söng í gærkvöldi
fyrir gesti í veislu
ríkustu konu Asíu.
Meðal gesta var
Tony Blair. »53
FÓLK»
Garðar með-
al stórlaxa
ÍSLENSKUR AÐALL»
Kristín Þóra er í lægri
kantinum. »51
KVIKMYNDIR»
Fjórar frumsýningar um
helgina. »52
BÓKMENNTIR»
Eiríkur Örn Norðdahl
spann langt ljóð. »46
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Leiðrétting og afsökunarbeiðni
2. Finnland: Morðinginn skildi …
3. Vildi taka sem flesta með sér …
4. Yfirbyggð skíðabrekka í …
Súkkulaðiostakaka
fyrir sanna
www.ostur.is
súkkulaðisælkera
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
-2
0
3
1
„MAÐUR kemur víða við; vinnustaðirnir geta ver-
ið frá tveimur upp í tuttugu í sama mánuðinum,“
segir Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari í frétta-
skýringu um aðstæður klassískra tónlistarmanna
á Íslandi í tilefni af degi íslenskrar tónlistar sem er
í dag. Hún byggir atvinnu sína að miklu leyti á
lausamennsku, eins og fjöldi annarra klassískt
menntaðra tónlistarmanna. Auður kennir einnig í
tveimur skólum og segir launin „skammarleg“.
Margrét Bóasdóttir, formaður Félags íslenskra
tónlistarmanna, segir atvinnuöryggið lítið í faginu.
Hinsvegar sé metnaðurinn sem knýi íslenskt tón-
listarlíf mjög sérstakur. „Við erum með toppfólk í
tónlistinni,“ segir hún.
Rætt er við fleiri tónlistarmenn í Morgun-
blaðinu í dag í tilefni dagsins.
„Ég stal þessu ekki. Ég er bara að geyma þetta
fyrir vin minn! Er ekki kominn tími til að símafyr-
irtækin fari að borga fyrir allt niðurhalið?“ spyr
Samúel Jón Samúelsson básúnuleikari þegar hann
er beðinn um að tjá sig um réttindamál tónlistar-
manna. „Það er búið að ala upp heila kynslóð sem
finnst fáránlegt að borga fyrir hluti sem hún getur
fengið frítt á netinu. Staðreyndin er sú að þetta er
ekki frítt,“ bætir Samúel við. Hann er einn af fjór-
um tónlistarmönnum sem Morgunblaðið spurði
meðal annars út í stöðu íslenska tónlistariðnaðar-
ins, styrkleika hans og veiklega. Besta íslenska
plata allra tíma var valin með kosningu á Mbl.is í
vikunni og eru úrslitin úr þeirri kosningu kynnt í
blaðinu í dag. Ein hljómplata fékk afgerandi at-
kvæðafjölda í fyrsta sætið en hún er fjölbreytt
plötuflóran sem kemur þar á eftir. | 20, 21, 48, 49
Mikill metnaður knýr
íslenskt tónlistarlíf áfram
Í HNOTSKURN
» Dagur íslenskrar tónlistar er í dag, 9.nóvember.
»Hljómplatan Ágætis byrjun með SigurRós þykir besta íslenska plata allra
tíma.
» Klassískt menntað tónlistarfólk er ekkisátt við þau laun sem það fær fyrir tón-
listarkennslu.
» 866.706 geisladiskar seldust á Íslandiárið 2006 og 66,3% þeirra voru íslensk.Morgunblaðið/EggertÍslenskt tónlist Sigur Rós þykir eiga bestuhljómplötu sem hefur komið út á Íslandi.
GLÆPASAGAN
Vetrarborg eftir
Arnald Indriða-
son hefur fengið
tilnefningu til
sænsku Martin
Beck-verð-
launanna sem
besta erlenda
glæpasagan sem
kom út í Svíþjóð í
ár. Áður hafa
Mýrin, Grafarþögn, Röddin og Kleif-
arvatn hlotið tilnefningu til þessara
verðlauna en Röddin hlaut þau árið
2005. Það er sænska glæpasagna-
akademían sem veitir Martin Beck-
verðlaunin en tilkynnt verður um úr-
slitin hinn 24. nóvember.
Arnaldur
tilnefndur
Besta erlenda
glæpasagan í Svíþjóð
Arnaldur
Indriðason
ÞAÐ kom 70 unglingum úr skóla-
kór Kársness skemmtilega á óvart
þegar þau fengu í gær pakka sem
borist hafði til Höfuðborgarstofu. Í
pakkanum var áritað bréf til allra
kórfélaganna frá Yoko Ono. Í bréf-
inu þakkaði hún frábæra frammi-
stöðu þegar börnin sungu við vígslu
friðarsúlunnar í Viðey á dögunum.
Fengu áritað bréf frá Yoko Ono
Morgunblaðið/Sverrir