Morgunblaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Gunnlaug Árnason
garnason@simnet.is
ATHYGLI hefur vakið hversu góðum árangri
lið Snæfells í Stykkishólmi hefur náð í körfu-
bolta gegnum árin. Liðið hefur verið í hópi
þeirra bestu þrátt fyrir að íbúarnir séu tæplega
1.200. Stykkishólmur er orðinn þekktur íþrótta-
bær og hefur fengið umfjöllun í fjölmiðlum út á
það. Velgengni eykur samheldni bæjarbúa. Það
myndast stemning á heimaleikjum og útileikir
eru eins og góð ættarmót þar sem brottfluttir
Hólmarar flykkjast til að hvetja lið sitt og eins
til að hittast.
Það er löng hefð fyrir iðkun körfuboltans í
Stykkishólmi og má segja að jarðvegurinn sé
frjósamur. Börn og unglingar fylgjast vel með
liðinu og það kveikir áhuga þeirra að feta í fót-
sporin.
Liðið komið á fulla ferð
Árangurinn lifir ekki eingöngu á hefðinni.
Það eru margir sem leggja sitt af mörkum til að
lið Snæfells geti verið áfram í hópi þeirra bestu.
Daði Sigurþórsson er einn þeirra. Hann hef-
ur verið formaður körfuboltadeildarinnar í tæp
2 ár.
„Það var gott að landa þessum sigri. Nú höf-
um við sigrað þrisvar í röð og liðið er komið á
fulla ferð,“ segir Daði með bros á vör er Morg-
unblaðið náði tali af honum eftir sigur Snæfells
á Tindastóli sl. fimmtudagskvöld.
Það hefur vakið athygli hversu áhugasamur
Daði er í sínu starfi. Hann var spurður hvernig
stæði á því. „Ég er Hólmari og var alinn upp í
íþróttafjölskyldu þar sem okkur var uppálagt að
stunda sem flestar íþróttir. Ég æfði m.a. körfu-
bolta og spilaði með Snæfelli í úrvalsdeild og
eins var ég í unglingalandsliðinu. Þá hef ég
brennandi áhuga á íþróttum og aðkoma mín
núna er vegna þess að ég vil vera hluti af félag-
inu og gefa til baka það sem fyrir mig var gert í
æsku,“ segir Daði
Að hella sér út í svona félagsstarf er meira en
að segja það. „Þetta er miklu meiri vinna en mig
óraði fyrir. En hún er skemmtileg og ég fæ
mikla ánægju út úr því. Ég hef gaman af að um-
gangast fólk. Mitt hlutverk er að halda utan um
deildina. Það þarf að rækta sambandið við leik-
menn, stuðningsmenn og svo styrktaraðila og
Körfuknattleikssamband Íslands. Alla þessa að-
ila þarf að leiða saman í sömu átt. Í það fer mik-
ill tími hjá mér allan ársins hring, meira segja á
sumrin, en þá þarf að ganga frá samningum við
leikmenn, þjálfara og stuðningsaðila,“ segir
Daði og bætir við: „En konan mín hvetur mig
áfram og fyrir það er ég þakklátur, annars gæti
ég ekki staðið í þessu.“
Góð liðsheild
Að sögn Daða skiptir liðsheildin miklu máli í
árangri liðsins. „Við reynum að skapa góða liðs-
heild. Persónuleika leikmanna metum við mikils
og að þeir séu vinir, innan vallar sem utan. Það
hefur tekist og við höfum samhentan hóp.
Stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellsness skiptir
okkur miklu máli. Nú höldum við unglingum
okkar lengur heima og missum þá ekki 16 ára
eins og þegar ég var að alast upp. Núna erum
við með sjö unga Hólmara á skólaaldri í liðinu.
Velgengi liðsins skiptir þarna máli. Ef við vær-
um ekki með lið í efstu deild væru ekki allir
þessir drengir í Hólminum. Búseta og gott
íþróttalíf styrkir hvað annað,“ segir Daði.
Það kostar mikla fjármuni að gera út öflugt
körfuboltastarf og var Daði spurður út í það.
„Reksturinn er mjög erfiður. Við höfum verið
svo lánsöm í Stykkishólmi að njóta velvildar fyr-
irtækja á borð við Kaupþing sem og að hafa
skilning bæjaryfirvalda á samfélagslegu mik-
ilvægi þess að eiga lið í efstu deild. Við erum
ákaflega þakklát þeim einstaklingum og fyr-
irtækjum sem leggja okkur lið á einn eða annan
hátt og það er þeim að þakka að við erum ekki
með skuldahala á eftir okkur.“
– Það leit ekki vel út í byrjun hjá Snæfellslið-
inu í haust, hvað kom til?
„Við höfðum ekki miklar áhyggjur af því,“
segir Daði. „Okkar markmið er að vinna Ís-
landsmeistaratitilinn í vor. Undirbúningurinn
miðast við að auka breiddina í liði okkar. Ef ein-
staka tapleikir eru fórnarkostnaður þess verður
bara að hafa það. Við erum komnir á fulla ferð,
þrír sigrar í röð. Ég tel að við séum með gott lið
og ég treysti þjálfara og leikmönnum til þess að
fara alla leið í vor,“ segir Daði.
Með mörg járn í eldinum
Daði er heimamaður. Hann starfar sem aðal-
bókari hjá Stykkishólmsbæ. En hann lætur að
sér kveða á fleirum sviðum. „Ég á erfitt með að
segja nei. Í sumar var ég framkvæmdastjóri
bæjarhátíðarinnar Danskir dagar og var það
þriðja sumarið sem ég tók það að mér. Danskir
dagar skipta bæjarfélagið miklu máli og skila
jákvæðum straumum þangað inn. Í könnun sem
gerð var meðal landsmanna voru Danskir dagar
sá atburður á Vesturlandi sem þátttakendur
þekktu hvað best. Danskir dagar og körfubolt-
inn vekja jákvæða ímynd á samfélagi okkar.
Það er okkur mikilvægt. Þess vegna er ég tilbú-
inn að leggja fram mína vinnu. Einhvers staðar
stendur að það sé jafnsjálfsagður hlutur að gefa
og að þiggja og það er mitt mottó,“ segir Daði.
Honum finnst gott að búa í Stykkishólmi.
„Það eru forréttindi að búa í samfélagi með
þetta hátt þjónustustig og ekki er langt í höf-
uðborgina þegar þangað þarf að sækja.
Því miður eru fá tækifæri fyrir ungt fólk að fá
vinnu við sitt hæfi úti á landi. Ég tel mig lán-
saman að fá vinnu sem mér líkar vel. Það er
misskilningur hjá þeim sem líta svo á að það séu
fjötrar sem halda fólki úti á landsbyggðinni.
Vinir mínir frá námsárum mínum í Reykjavík
heimsækja mig oft. Þá heyri ég oft að þetta sé
ofboðslega fallegur bær, „en hvað ertu að gera
hér?“ Mín skoðun er sú að fólk átti sig ekki á
þeim kostum sem fylgja því að búa úti á landi,
þeir liggja kannski ekki í augum uppi. Ég hef þá
trú að það styttist í það að fólk fari að flýja
stressið og tímaleysið á höfuðborgarsvæðinu og
vilji freka njóta rólegheita sem fylgja því að búa
í minni samfélögum,“ segir Daði Sigurþórsson
að lokum.
„Við erum komnir á fulla siglingu“
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Gott að vera hjá pabba Daði með Einar Bergmann, son sinn, heima í ró.
ÞETTA HELST ...
● NÝRRA talna um vísitölu neyslu-
verðs er að vænta frá Hagstofunni í
dag. Samkvæmt spám greining-
ardeilda bankanna má reikna með
0,3-0,4% hækkun á vísitölunni frá
októbermánuði, sem þýðir að verð-
bólgan á ársgrundvelli fer í 4,8-4,9%,
en hún er nú 4,5%. Þannig ber grein-
ingardeildum Landsbankans og
Kaupþings saman um að hækkunin
verði 0,3%, og höfðu Kaupþings-
menn þá hækkað sína spá úr 0,2%.
Glitnismenn höfðu áður spáð 0,4%
hækkun og þeir halda sig við þá spá.
Eru þessar hækkanir einkum sagðar
vegna hækkandi húsnæðisverðs og
aukins fjármagnskostnaðar vegna
vaxtahækkana, að ógleymdum bens-
ínhækkunum sem dunið hafa yfir bif-
reiðaeigendur síðustu vikurnar.
Fer verðbólgan í 4,9%
● SKRIFSTOFA
Landsbankans í
Hong Kong var
formlega opnuð
um helgina að
viðstöddum um
500 veislugest-
um, þar sem
fjármálamenn úr
borginni voru
fjölmennastir.
Greint var frá
opnunni á fréttaskeytum Reuters
og þar haft eftir Sigurjóni Þ. Árna-
syni bankastjóra að starfsstöðin
væri liður í útrás bankans til Asíu.
Ekki væri útilokað að Landsbank-
inn færi í yfirtökur í Asíu en það
væri þó ekki efst á stefnuskrá
bankans. Framkvæmdastjóri skrif-
stofunnar í Hong Kong er Björn Ár-
sæll Pétursson.
Landsbankinn kominn
af stað í Hong Kong
Landsbankinn til
Hong Kong.
eftir Jake Siewert, talsmanni Alcoa,
að þeir muni fylgjast vel með fram-
vindu mála kringum keppinautana
Rio Tinto-Alcan og BHP Billiton.
BHP með trygga
fjármögnun á Rio
Fleiri námufyrirtæki í sigtinu og verðmæti þeirra eykst
Reuters
Yfirtökur Forstjóri Rio Tinto, Tom Albanese, kynnir kaupin á Alcan en svo
gæti farið að það yrði tekið yfir af keppinautnum, BHP Billiton.
BHP Billiton hefur trygga fjár-
mögnun, m.a. frá Citigroup, upp á 70
milljarða dollara, andvirði um 4.200
milljarða króna, fyrir mögulegri yf-
irtöku á ál- og námufyrirtækinu Rio
Tinto, sem er að eignast Alcan, móð-
urfélag álversins í Straumsvík. Sem
kunnugt er hafnaði Rio Tinto tilboði
BHP Billiton í lok síðustu viku en
talið er líklegt að tilraunir til yfir-
töku haldi áfram. Tilboð BHP mun
hafa verið kringum 140 milljarðar
dollara, andvirði um 8.400 milljarða
króna. Samanlögð velta þessara fyr-
irtækja er um 380 milljarðar dollara
og sameinuð myndu þau gnæfa yfir
markaðinn í framleiðslu á áli, járni,
kopar, kolum og fleiri málmum.
Þannig yrði markaðshlutdeildin í
viðskiptum með járn á heimsvísu um
36%. Mögulegur samruni er af sum-
um sérfræðingum sagður óhugsandi
sökum samkeppnissjónarmiða.
Bréfin hækka í verði
Þessi stærstu yfirtökuáform sög-
unnar eru farin að hafa áhrif á verð-
mæti annarra fyrirtækja í ál- og
námuiðnaði, samkvæmt frásögn
Wall Street Journal um helgina. Má
þar nefna fyrirtæki eins og Alcoa,
Xstrata og Freeport-McMoRan
Copper & Gold.
Bréf Rio Tinto hafa einnig hækk-
að í verði, þar sem sérfræðingar á
markaði telja allar líkur á að annað
tilboð komi frá BHP Billiton. Mikil
eftirspurn eftir málmum, ekki síst
frá Kína, og hækkandi markaðsverð
hefur hækkað virði fyrirtækjanna og
aukið líkur á fleiri yfirtökum í þess-
um geira. Í frétt WSJ kemur fram
að Xstrata sé reiðubúið að stækka
með fleiri yfirtökum en fyrirtækið
geti einnig orðið skotmark risa á
borð við BHP Billiton ef yfirtaka á
Rio Tinto gengi ekki eftir. Hið sama
geti gerst með Alcoa, sem á Alcoa-
Fjarðaál.
Frá því að Rio Tinto hreppti Alcan
hafi verið miklar vangaveltur um
framtíð Alcoa, þ.e. hvort fyrirtækið
stækki eða verði tekið yfir. Haft er
Í HNOTSKURN
»Um það leyti sem yfirtakaRio Tinto á Alcan var að
ganga í gegn í síðustu viku bár-
ust fregnir af tilboði BHP Billi-
ton í Rio Tinto.
»Gangi þessir samrunar ígegn verður til fyrirtæki með
380 milljarða dollara veltu.
RÚSSNESKA hagkerfið er í lang-
varandi uppsveiflu. Í ár verður hag-
vöxturinn líklega um 7,5%, sem
þýðir að rússneska hagkerfið hefur
vaxið um 7,1% að meðaltali á hverju
ári í fimm ár. Hagvöxtur næsta árs
verður 6,5%. Þetta segir í Morg-
unkorni Glitnis.
Vöxturinn er rakinn til mikillar
neyslu og vaxtar í fjárfestingum
sem m.a. er til komið vegna aukins
olíuauðs og hvetjandi pen-
ingastefnu, og nú nýlega einnig
fjármálastefnu hins opinbera.
Uppsveiflan er nú farin að rekast
á takmarkanir í framleiðslugetu.
Þannig er nánast full atvinna í viss-
um starfsstéttum og erfitt er orðið
að útvega næga orku fyrir innviði
samfélagsins og atvinnulíf.
Kemur þetta fram í nýrri skýrslu
Glitnis um rússneska hagkerfið.
Rússneska
hagkerfið í
uppsveiflu
VESTURLAND