Morgunblaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 20
fjármál fjölskyldunnar 20 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ M eð því að færa heimilisbókhald fáum við betri yf- irsýn yfir fjármálin og það auðveldar okkur að bregðast við ógnunum og tækifærum. Fólk, sem tileinkar sér færslu heimilisbókhalds, getur tekið meðvitaðri og ábyrgari ákvarðanir með sín fjármál og náð ótrúlegum árangri á skömmum tíma ef vel er að verki staðið og á málum haldið,“ segir Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir, framhalds- skólakennari og varaformaður Neytendasamtakanna. Líkt og í hverjum öðrum fyrir- tækjarekstri er ekki síður mik- ilvægt að færa bókhald fyrir heim- ilisreksturinn, kjósi menn að halda vel utan um fjármálin sín. „Bókhald er nefnilega tiltækt tæki til að gera áætlanir, hafa yf- irsýn og stýra fjármálum með skynsömum hætti til að tilætlaður árangur náist. Heimilisbókhald gerir fólk meðvitaðra. Við gerum okkur betur grein fyrir í hvaða liðum má hagræða svo við náum betur fjárhagslegum markmiðum okkar.“ Ætla má að fólk almennt hafi einhverja yfirsýn yfir fjármálin þó það færi ekki formlegt heim- ilisbókhald. „Margir fara þá leið að nýta sér greiðsluþjónustu bankanna sem er hið besta mál, en það fyrirkomulag eitt og sér er ekki nægjanlegt, ef ná á árangri. Það þarf að vinna með fjármálin og þá geta yfirlit greiðsluþjónust- unnar verið ágæt vinnuplögg fyrir heimilisbókhaldið. Sífellt fleiri eru að átta sig á gagnsemi heimilisbókhalds. Til marks um það má benda á að eft- irspurn eftir rafrænu heim- ilisbókhaldi hjá Neytendasamtök- unum hefur aldrei verið meiri en einmitt nú. Í lífsleiknikennslu í framhaldsskólunum er gert ráð fyrir fjármálafræðslu og þar er brýnt fyrir nemendum nauðsyn þess að halda vel utan um eigin fjármál. Rannsóknir á fjármálum ungs fólks benda til þess að því yngri sem þau eru þegar þau fara að vinna með og íhuga sín eigin fjármál, þeim mun líklegri eru þau til að standa sig vel fjárhagslega til framtíðar,“ segir Ragnhildur. Föst og breytileg útgjöld En hvernig er best að koma sér upp heimilisbókhaldi og hvar byrja menn, sem vilja gerast ábyrgir og vel upplýstir um eigin fjármál? „Til að byrja með þarf fólk að gera það upp við sig hvernig það vill halda utan um fjármálin. Ýms- ar leiðir eru færar í þeim efnum enda eru til margvísleg bókhalds- form. Neytendasamtökin hafa til að mynda gefið út bókhaldsform, sem er mjög hentugt og auðvelt í notkun. Þegar svo kemur að því að takast á við bókhaldið er und- irbúningurinn mikilvægur enda má segja að hann sé tímafrek- astur. Rétt er þó að hafa í huga að tímanum, sem í þetta fer, er einkar vel varið. Það þarf að byrja á því að tína allt til sem tilheyrir heim- ilisrekstrinum, bæði tekjur og út- gjöld, og síðan þarf að flokka út- gjöldin í föst og breytileg útgjöld. Mikilvægt er að gera áætlun fyrir hvern mánuð og árið í heild og setja sér fjárhagsleg markmið. Nauðsynlegt er að fylgjast reglu- lega með áætluninni, t.d. í lok hverrar viku, svo hægt sé að bregðast við strax með hagræð- ingu ef ljóst þykir að menn séu að fara fram úr áætlun á einhverju sviði. Gott er að skoða reglulega einstaka neysluliði til að sjá hversu mikið er í þá eytt á árs- grundvelli og hversu hátt hlutfall Færslu heimilisbókhalds fylgja bara Morgunblaðið/Ómar Verðvitundin Bókhald er tæki til að gera áætlanir, hafa yfirsýn og stýra fjármálum með skynsömum hætti svo til- ætlaður árangur náist, segir Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir. Betri yfirsýn samfara meðvitaðri og ábyrgari ákvörðunum fæst með færslu heimilisbók- halds. Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir sagði Jóhönnu Ingv- arsdóttur kostina við slíkt vinnulag ótvíræða, en mikilvægt væri að setja sér fjárhagsleg markmið. Aðalleikarinn í kvikmynd-inni Magnús frá árinu1989 er allur. Hann varheygður undir húsvegg á Varmalæk í Skagafirði í haust, 32 vetra. Gæðingurinn Hrímnir frá Hrafnagili var a.m.k. aðalhestaleik- arinn í Magnúsi en í margra augum var hann ávallt aðalnúmerið – haf- inn yfir dýrategundir – enda má segja að í myndinni hafi hann verið tákn fegurðarinnar í lífi persón- unnar á Heimsenda sem Jón Sig- urbjörnsson túlkaði og um leið týndu fegurðarinnar hjá sjúklingn- um í túlkun Egils Ólafssonar. Eigandi „leikarans“ var Björn Sveinsson á Varmalæk. „Hrímnir veiktist skyndilega og var með miklar innvortis kvalir, dýralæknir gat ekki staðfest hvað olli veik- indum hans og ekkert hægt að gera. Þá var ekki eftir neinu að bíða með það að hann fengi að sofna því hugmyndin var aldrei önnur en að lofa honum að lifa á meðan honum liði vel,“ segir Björn. „Hann var á járnum og ég var búinn fara á bak á hann í sumar, hann var mjög frísk- ur og ótrúlegt hvað hann hélt sínum eiginleikum, bæði vilja og fóta- burði.“ Allir sammála um Hrímni „Ímynd hins fegursta.“ Svo lýsti Valdimar Kristinsson Hrímni á þessum vettvangi árið 2001. Hvers vegna liggja víða þess háttar ein- kunnir um hestinn? „Mér finnst mjög sérstakt með þennan hest að hann er einn af fáum sem ég hef ekki séð neikvæða umræðu um. Í raun og veru er líka sérstakt að sama hvenær kosið er um bestu hestana kemur hann upp efstur eða með þeim efstu. Ég tek undir það því hann á skilið hrós. Hann hefur staðið sig alla tíð mjög vel og er sérstakur karakter.“ Hrímnir er fæddur Hjalta Jósepssyni í Hrafna- gili í Eyjafirði en Björn eignaðist hann árið 1980. Að sögn hans fór Hrímnir fjórum sinnum í keppni, fyrsta skiptið varð hann annar í firmakeppni hestamannafélagsins Stíganda í Skagafirði árið 1980, í annað skiptið efstur á félagsmóti Stíganda, ári síðar urðu þeir félagar Íslandsmeistarar í tölti og loks efst- ir í B-flokki gæðinga á landsmóti á Vindheimamelum 1982. Spurður um hvers vegna hann hafi látið þar staðar numið í keppni með klárinn segir hann: „Ég var kannski ekkert sérstaklega hrifinn af því að sömu hestarnir kæmu fram í mörg ár í keppni, það var mín skoðun, svo fannst mér þessi hestur líka eiga það skilið að hlífa honum við því, því keppni er alltaf miklu erfiðari og gengur nær hestum heldur en sýningar.“ Hrímnir hefur oft komið fram á sýningum og síðast 27 vetra á landsmótinu á Vindheimamelum 2002, þar sem hann var heiðraður 20 árum eftir landsmótstignina. Geldingur kennir ungviðinu En hvað var það sem var svo hrífandi við Hrímni? Sumir segja gráa hesta alltaf hafa eitthvað auka- lega til að bera, aðrir nefna tígu- legar hreyfingar og enn aðrir benda kannski á að ómögulegt sé að lýsa því sem okkur þykir fagurt. Lumar Björn á einhverri sögu sem bregður nýju ljósi á hestinn? „Ég er af- skaplega lítill sögumaður,“ segir hann skellihlæjandi. „Hann hefur bara lýst sér best sjálfur – hann er náttúrlega einstakur höfðingi, þessi skepna. Ég á aldrei eftir að kynnast svona hesti aftur en ég hef verið að grínast með það að hann hafi síð- ustu árin verið að ala upp fyrir mig því hann gekk úti með folöldunum og veturgömlu trippunum, og ég ætlaði helst að fá sama fótaburðinn og höfuðburðinn á þau,“ upplýsir Skagfirðingurinn grínfullur. „Hryssan Kengála frá Varmalæk finnst mér hafa verið líkust Hrímni í glæsileik, skapgerð og hæfileikum. Kengálu missti ég fyrir þremur ár- um á besta aldri, hún var fyrstu- verðlauna klárhryssa, svona svíf- andi létt hryssa, undan Mekki frá Varmalæk og skilar afburðahross- um. Ég á sem betur fer eina hryssu undan henni, og Illingi frá Tóftum, sem var frumtamin í haust og hún lofar góðu, svo fór 4 vetra stóðhest- ur undan henni og Hróð frá Refs- stöðum í fyrstu verðlaun í vor.“ Björn játar því að hann veðji á hryssuna sem landsmótskandídat. „Svo er ég með 3 vetra fola, Kristal frá Varmalæk, undan syni hennar og Kolbrúnar gömlu frá Sauð- árkróki sem er í minni eigu en hún Í minningu Hrímnis hins fagra Ljósmynd/Birna Dröfn Pálsdóttir Heima í garðinum Hlutverk Hrímnis frá Hrafnagili síðustu árin var að ala upp trippin á Varmalæk. Hrímnir frá Hrafnagili hvílir nú gömul bein undir húsvegg í Skagafirði. Þessi óumdeildi gæðingur hreif alla tíð fjöldann með sér, lærða sem leika, og er mörgum eftirminnilegur sem hvíta hestagullið í kvikmyndinni Magnús. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir fékk nýja sýn á Hrímni sem uppal- anda í stóði eigandans, Björns Sveinssonar á Varmalæk. hestamennska

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.