Morgunblaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 18
flokknum sem er fyrir fimmtán til sautján ára,“ segir
Dominiqua og bætir við að danshöfundurinn hennar
hafi verið Ungverjinn Béla Király.“
Stelpurnar æfðu stíft fyrir keppnina hjá Hreyfilandi
en þar starfar Krisztina G. Agueda sem er fulltrúi IFF
(International Fitness Federation) og hún segist alltaf
vera að leita að nýjum keppendum til að taka þátt í
þessari skemmtilegu keppni og eins leitar hún að dans-
höfundum fyrir slíka keppni. Áhugasamir snúi sér því
til Hreyfilands í Stangarhyl 7.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Okkur finnst ekkert mál að æfa marga daga íviku, þrjá tíma í senn, við erum svo vanarþví. Það væri bara leiðinlegt að hafa ekkertað gera,“ segja hinar orkumiklu vinkonur,
þær Norma Dögg, Tinna, Aníta, Fanney, Daniella
Perla og Dominiqua Alma, en tvær þær síðastnefndu
eru systur.
Þær æfa allar fimleika fimm daga vikunnar þegar
engin keppni er framundan, en ef svo er æfa þær á
hverjum degi. Flestar þeirra hafa æft fimleika frá því
þær voru tveggja og þriggja ára og þótt þær æfi ekki
allar hjá sama félagi fóru þær saman sem einn hópur í
sumar til Malasíu og kepptu þar í alþjóðlegu stórmóti
Fit-Kid World Championship, eða Heimsmeistaramóti
í hreysti barna. Þar náðu þær þeim frábæra árangri að
vera í þriðja sæti. „Þetta var rosalega gaman og það
voru átján lönd sem kepptu og við kynntumst fullt af
krökkum, til dæmis frá Indlandi, Spáni, Kanada og
Hollandi. Við fórum líka í fullt af skoðunarferðum og
Malasía er mjög skemmtilegt land, til dæmis hittum
við nokkra apa á ferð okkar og einn þeirra stal af okk-
ur myndavél. Í keppninni þurftum við að sýna átta at-
riði sem voru byggð upp á ólíkan hátt, eiginlega var
þetta dans þar sem fléttað er inn í alls konar erfiðum
fimleikaatriðum.“
Gleðin skiptir öllu máli
Gabríela sem er móðir Daníellu og Dominiqua, þjálf-
aði hópinn fyrir keppnina og Björk Óðinsdóttir samdi
dansana fyrir þær en þó í samráði við þær.
„Dómararnir úti voru mjög ánægðir með þennan
stelpnahóp frá Íslandi og þeir tóku sérstaklega fram
hvað tæknin hjá þeim var góð, enda held ég að þeim
hafi gengið svona vel vegna þess að þær hafa mjög
góðan grunn í fimleikum,“ segir Gabríela og bætir við
að í hreystikeppni barna og unglinga sé ekki verið að
horfa á vöðva heldur á fegurð og samhæfingu í hreyf-
ingum, tæknilega færni og síðast en ekki síst skiptir
öllu máli að gleðin sé við völd í hverju spori, hoppi eða
snúningi.
Núna í nóvember fór svo Dominiqua til Belgrad til
að keppa í einstaklingskeppni á Evrópumeistaramóti
unglinga í barnahreysti og varð í þriðja sæti.
„Það var rosalega gaman að hitta þessa krakka aft-
ur og mér fannst ekkert mál að keppa ein. Andrúms-
loftið var mjög notalegt og allir voru vinir. Þar sem ég
er fimmtán ára þurfti ég að keppa í elsta aldurs-
Liðugar og
sigursælar
Morgunblaðið/Kristinn
Kattliðugar Norma er fremst, fyrir aftan hana eru í splitti þær Fanney (t.v.) og Daniella Perla (t.h.). Þar fyrir aftan standa þær Aníta (t.v.) og Dominiqua Alma og halda á Tinnu.
Á verðlaunapalli Dominiqua Alma Belányi tekur
við verðlaunabikar í Belgrad þar sem hún lenti í
þriðja sæti í einstaklingskeppni í Evrópumeist-
aramóti unglinga í barnahreysti.
|mánudagur|12. 11. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Hrímnir frá Hrafnagili hreif alltaf
fjöldann með sér og er mörgum
eftirminnilegur sem hesturinn í
kvikmyndinni Magnús. »20
hestar
Betri yfirsýn og ábyrgari
ákvarðanir fást með færslu
heimilisbókhalds segir Ragn-
hildur Björg Guðjónsdóttir. »20
fjármál
ÞÚ gætirauðveld-lega heill-að hitt
kynið upp úr skón-
um með því að
senda frá þér af-
dráttarlaust og
seiðandi augnaráð
með fallegu bros-
ívafi, að því er ný
rannsókn bendir
til. Rannsóknin,
sem náði til hundr-
aða sjálfboðaliða
við Stirling- og
Aberdeen-háskóla,
leiddi í ljós að með
því að beina
augnaráðinu aðeins
brotabrot í burtu frá viðkomandi gerir þú þig ekki eins aðlaðandi í aug-
um hans eða hennar og ef augnaráðið væri hiklaust og afdráttarlaust.
Með öðrum orðum væri stefna augnaráðsins mikilvæg, samfara andlits-
dráttum og heilnæmri húð. Þessir þættir gætu, að sögn sérfræðinga,
sparað tíma með því að aftra fólki frá því að eyða orku í tilgangslaust
tilhugalíf.
Í rannsókninni voru notaðar ljósmyndir af konum og körlum til að
meta aðdráttarafl fólks. Myndirnar voru sýndar 460 sjálfboðaliðum af
báðum kynjum sem voru beðnir um að meta aðdráttarafl viðkomandi
persóna á myndunum. Þeir, sem höfðu horft beint í myndavélina, þóttu
margfalt meira aðlaðandi en þeir, sem litu út undan. Það þarf því eng-
um blöðum um það að fletta lengur að augnaráðið virkar svo sannarlega
á hitt kynið.
Reuters
Brostu Fallegt augnaráð er málið.
Augnaráðið
virkar á hitt kynið
www.hreyfiland.is/fitness/
www.fitnesssport.org
www.myeventsinternational.com
hreyfiland@hreyfiland.is