Morgunblaðið - 12.11.2007, Side 23

Morgunblaðið - 12.11.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 23 UMRÆÐAN Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16 föstudaginn 23. nóvember. Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is • Uppáhalds jólauppskriftirnar • Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á aðventu og jólum. • Jólasiðir og jólamatur í útlöndum • Villibráð á aðventunni Meðal efnis er: • Smákökur og jólakonfekt. • Eftirréttir • Jólaföndur • Jólabækur og jólatónlist Og margt, margt fleira. Jólablaðið 2007 Hið árlega jólablað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 30. nóvember. EFST á lista yfir meginverkefni meirihluta framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs á sviði menningar og lista á kjörtímabilinu er bygging óperuhúss. Undirbún- ingi miðar vel. Þrem- ur arkitektastofum hefur verið boðin þátttaka í hönn- unarsamkeppni um húsið. Miðað er við að það rísi á Borgarholt- inu. Snjallar tillögur markmiðið Markmið sam- keppninnar er að fá snjallar og raunhæfar tillögur að óperuhúsi, sem fellur vel að umhverfinu og nærliggjandi húsum. Óperuhúsið þarf að taka tillit til viðkvæmrar myndar hæðarinnar, þar sem Kópavogskirkja er í öndvegi. Hús- ið þarf einnig að vera hagkvæmt í byggingu og rekstri. Gert er ráð fyrir um það bil 800 sæta bogadregnum sal með tvenn- um svölum. Gengið verður út frá því, að margvísleg önnur starfsemi fari fram í óperuhúsinu, þótt óp- eruflutningur sé höfuðmarkmiðið og njóti forgangs. Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum í lok mars árið 2008 og tilkynni úrslit eigi síðar en 1. apríl 2008. Í framhaldi af því verða tillögurnar í sam- keppninni sýndar í Salnum. Óperan þarf heimili Að mörgu þarf að hyggja áður en ráðist er í byggingu óperuhúss. Hönnunin er liður í vönduðum undirbúningi, reksturinn þarf að vera tryggður og sömuleiðis fjár- mögnunin. Enginn efast um þörf- ina. Óperustarfi á Íslandi er nauð- synlegt að eiga sér samastað ef óperulist á að komast á svipað stig og í þeim löndum, sem við miðum helst við í menningarlegu tilliti. Húsnæði Ís- lensku óperunnar í Gamla bíói setur starfseminni því mið- ur þröngar listrænar og fjárhagslegar skorður og þótt gert sé ráð fyrir flutningi óperusýninga í Tón- listarhúsinu, sem ver- ið er að byggja í Reykjavík, getur það ekki orðið heimili óperulistar á Íslandi. Líta ber á þetta verk- efni hér í Kópavogi sem samverk- andi en ekki samkeppni við Tón- listarhúsið. Fjármögnun gengur vel Fjárfestar úr einkageiranum hafa sýnt áformum meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs uppörvandi áhuga. Ummæli Stefáns Bald- urssonar óperustjóra og Þorgerð- ar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í blaða- viðtölum hvetja líka til dáða. Stef- án segir að óperuhúsið myndi breyta forsendum óperurekstrar á Íslandi og Þorgerður Katrín telur sjálfsagt að skoða aðkomu ríkisins að byggingu þess. Ýmis skilyrði þarf að uppfylla til þess að áform- in um óperuhúsið verði að veru- leika og er unnið hörðum höndum að því að mæta þeim. Raunar hef ég bara heyrt eina úrtölurödd í allri þessari umræðu. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir að yfirlýsingar um byggingu hússins séu marklausar og bæj- arfulltrúar hafi ekki tekið afstöðu í málinu. Ég bendi henni á að lesa málefnasamning Framsókn- arflokksins og Sjálfstæðisflokks- ins, sem allir bæjarfulltrúar meiri- hlutans undirrituðu. Okkur er full alvara með þeim samningi og stefnan er alveg skýr. Auk þess kemur mér á óvart að Guðríður undrist að hönnunarsamkeppni sé hafin. Hún sat sjálf í undirbún- ingsnefnd að byggingu óperuhúss þar til nýlega, þegar hún skipti við Hafstein Karlsson, samflokks- mann sinn í bæjarstjórn. Guðríður hefur ekki verið áber- andi í klappliði meirihlutans í Kópavogi til þessa. Það gerir ekki til. Hún getur sparað lófatakið fyrir söngvarana sem eiga eftir að hrífa áhorfendur í nýju óperuhúsi í Kópavogi, sem hefur heldur bet- ur fengið byr undir báða vængi. Samastaður óperunnar í Kópavogi Gunnar I. Birgisson fjallar um nýtt óperuhús í Kópavogi » Ýmis skilyrði þarf aðuppfylla til þess að áformin um óperuhúsið verði að veruleika og er unnið hörðum höndum að því að mæta þeim. Gunnar Birgisson Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. EINHVERN tíma hefði ég talið það óhugsandi að Birgir Dýrfjörð réðist óvart á álverin sem slæman orkukaup- anda og að Lands- virkjun myndi koma mér til aðstoðar í rit- deilu við hann. En nú hefur þetta gerst. Í Morgunblaðsgrein á dögunum vildi Birgir fá hjá mér rökstuðn- ing fyrir þeirri full- yrðingu minni í grein hér í blaðinu að net- þjónabú sköpuðu fleiri störf á orkueiningu en álver. Nú hefur Landsvirkjun svarað fyrir mig og kann ég henni þakkir fyrir það. Niðurstaða LV er að auk fleiri starfa á orkueiningu séu líkur á að netþjónabúin borgi hærra orkuverð. Þess utan skapa net- þjónabú enga meng- un. Upphaflega byggði ég fullyrðingar mínar á upplýsingum sem ég fékk á fundi með forráðamönnum eins slíks fyrirtækis í fyrravetur en efaðist um að Birgir tæki mark á því svo að ég ákvað að bíða aðeins. Mér reiknaðist þá til að álver skap- aði ca helmingi færri störf á orku- einingu en netþjónabú. Það borgar sig stundum að bíða því nú hefur Landsvirkjun óvart staðfest það sem ég sagði í grein minni að með því að ráðast á netþjónabú fyrir orkueyðslu væri Birgir í raun að ráðast á álverin. Stefnubreyting Landsvirkjunar í orkusölumálum breytir þó engu um ásóknina í mestu verðmæti Ís- lands, einstæðar nátt- úrugersemar. Aukinn þrýstingur verður sett- ur á álver við Húsavík með tilheyrandi virkj- unum sem teygja sig allt til Leirhnjúks og Gjástykkis og jafnvel norðlenskra fljóta, og enda þótt netþjónabúin séu minni einingar en álver mun verða sótt áfram í Neðri-Þjórsá, Þjórsárver, Ölkeldu- háls, Krýsuvík, Trölla- dyngju og fleiri nátt- úruverðmæti. Hin „hreina og endurnýj- anlega orka“ á Hellis- heiðarsvæðinu er hvor- ugt – varmaorka svæðisins verður upp- urin eftir 40 ár og lykt- armengun í Reykjavík fer nú þegar 40 daga á ári yfir hæstu leyfilegu mörk í Kaliforníu. Þótt aðeins sé byrjað að vinda ofan af stór- iðjufárinu er því miður langt í land að snúa hjólinu við þótt aðeins hafi hægt á því. Þar er mikið verk að vinna fyr- ir náttúruverndarfólk. Bendi á ályktun fundar hjá Íslandshreyfing- unni í því efni. Landsvirkjun svarar Birgi Dýrfjörð fyrir mig Ómar Ragnarsson skrifar um stefnubreytingu Landsvirkj- unar í orkusölumálum Ómar Ragnarsson » Stefnubreyt-ing Lands- virkjunar í orkusölumálum á Suðvest- urlandi breytir engu um ásókn- ina í mestu verðmæti Ís- lands, einstæðar náttúrugersem- ar. Höfundur er formaður Íslandshreyf- ingarinnar – lifandi lands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.