Morgunblaðið - 12.11.2007, Síða 39

Morgunblaðið - 12.11.2007, Síða 39
Svör við spurningum gærdagsins: 1. Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir óhjákvæmilegt að gera breytingar á sjóðnum. Hver er forstjórinn? Svar: Guðmundur Bjarnason. 2. Ný ævisaga Jónasar Hallgrímssonar kemur út á 200 ára afmælisdegi hans. Hver er höfundurinn? Svar: Böðvar Guðmundsson. 3. Saga Arnalds Indriðasonar, Vetrarborg, hefur verið tilnefnd til sænskra verðlauna. Við hvern eru þau kennd? Svar: Martin Beck. 4. 70 ung- lingar fengu óvænt þakkarbréf fyrir framlag sitt til vígslu friðarsúl- unnar í Viðey. Hver var bréfritari? Svar: Yoko Ono. 1 Emil Hallfreðsson er rétt á eftir knattspyrnumanninumKaká í einkunn í efstu deild ítölsku deildarinnar. Hvar leikur Kaká? 2 Hvaða plata er besta íslenska plata allra tíma í net-kosningu mbl.is og með hvaða hljómsveit? 3 Skógræktarfélag Íslands hefur fengið öflugan sam-starfsaðila. Hvern? 4 Sveitarstjórinn í Djúpavogi fór fyrir mikilli sviðaveisluþar sl. laugardag. Hver er hann? Spurter… ritstjorn@mbl.is Morgunblaðið/RAX MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 39 Krossgáta Lárétt | 1 kafaldið, 8 gata, 9 guðum, 10 uxa, 11 bik, 13 líffærum, 15 hreinsa, 18 moð, 21 kvendýr, 22 blessa, 23 svardagi, 24 endis. Lóðrétt | 2 svertingja, 3 svikula, 4 hljóðfæri, 5 tómar, 6 brýni, 7 tunnum, 12 bein, 14 fiskur, 15 sæti, 16 hryggi, 17 óhreinkaðu, 18 áfall, 19 fim, 20 sjá eft- ir. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kúgar, 4 sekur, 7 tíðum, 8 álkan, 9 tel, 11 ræna, 13 espi, 14 numið, 15 forn, 17 alfa, 20 ára, 22 sálir, 23 nifls, 24 skaði, 25 auman. Lóðrétt: 1 kútur, 2 gæðin, 3 rúmt, 4 skál, 5 kokks, 6 rengi, 10 eimur, 12 ann, 13 eða, 15 fisks, 16 rulla, 18 lofum, 19 assan, 20 Árni, 21 anga. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Svona eða hinsegin? Vertu fljótur að ákveða þig og líttu svo ekki til baka. Þegar munurinn er mikill veistu hvað skal velja. Þegar hann er lítill skiptir valið litlu máli. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér finnst lífið í kyrrstöðu en það er bara aðferð til að túlka rólegan tíma. Þeg- ar þú gerir lítið ertu að undirbúa hug- myndaríkt tímabil sem brátt gengur í garð. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú gerir þér grein fyrir að með því að þarfnast fólks of mikið hrekurðu það á brott. Þess vegna ætlarðu að gera sjálfan þig mjög hamingjusaman núna. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Ekki eyða tíma í að sannfæra fólk um að það geri hlutina rangt. Leyfðu því frekar að gera hlutina á sinn hátt, og síð- an má dæma afleiðingarnar. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er skapandi titringur í loftinu. Og þótt þér finnist gaman að rugla og flippa muntu – þegar á reynir – gera það sem þú álítur að gera þurfi. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það reynir á skuldbindingu þína við vissa manneskju. Að halda loforð vegna smámuna er jafnerfitt og halda stór loforð. Það á við loforð gagnvart þér líka. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér finnst þú viðkvæmur gagnvart fólkinu í kringum þig. Ef umhverfið er ei- lítið óþægilegt áttu það til að bíða með að tjá þig þar til aðstæður breytast. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Vertu einbeittur. Nú er skynsamlegast að hugsa mjög vel um sjálfan sig. Þú siglir þrönga leið milli klettaveggja eigin hæfileika og metnaðar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert elskulegur. Og þar sem fólk fær eitthvað út úr því að gera þér greiða skaltu leyfa því það. Það erfitt að slaka á og láta þjóna sér, en það gerir þér gott. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Fólk er æst í að eiga við þig samskipti. Mun það skemmta þér, ögra þér eða kenna þér? Það er undir þér kom- ið. Skapaðu stemningu sem hentar óskum þínum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Eitthvað óvænt kemur upp á vinnustað sem fólki stendur ógn af. Þú tekur aðstæður í þínar hendur og reddar málunum. Hvað gerði fólk án þín? (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er erfiðast að brjótast út úr sjálfskipuðu fangelsi – samt tekst þér það! Og þar með muntu njóta frelsis á svæði sem þú tengdir áður við þjáningar. stjörnuspá Holiday Mathis 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 O–O 5. Bg2 d6 6. O–O Rc6 7. Rc3 a6 8. Bd2 Bg4 9. b3 e5 10. d5 Re7 11. e4 Rd7 12. h3 Bxf3 13. Dxf3 f5 14. h4 Kh8 15. Bh3 Rc5 16. b4 Rxe4 17. Rxe4 fxe4 18. Dxe4 Rf5 19. Bc3 Rxh4 20. gxh4 Hf4 21. Dg2 Dxh4 22. Bd2 Hxc4 23. Hac1 b5 24. Hxc4 Dxc4 25. Hc1 Dxa2 26. Be3 a5 27. Hxc7 axb4 28. Dg4 Hf8 29. Dd7 Da1+ 30. Kg2 e4 Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu í Tyrk- landi. Stórmeistarinn Milan Drasko (2557) frá Svartfjallalandi hafði hvítt gegn Hellismanninum Sigurði Daða Sigfússyni (2320). 31. Bh6! Hxf2+ 32. Kxf2 Db2+ svartur hefði einnig orðið óverjandi mát eftir 32… Bd4+ 33. Ke2. 33. Kg1 og svartur gafst upp enda fátt um fína drætti í stöðu hans eftir t.d. 33… Bd4+ 34. Kh1 Db1+ 35. Bc1. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Einfalt spil? Norður ♠654 ♥972 ♦G1093 ♣654 Vestur Austur ♠G32 ♠10987 ♥D10853 ♥G4 ♦2 ♦K65 ♣ÁDG3 ♣10987 Suður ♠ÁKD ♥ÁK6 ♦ÁD874 ♣K2 Suður spilar 3G. „Þetta er einfalt spil,“ segir James S. Kauder í bók sinni The Bridge Philosopher. „Samt þekki ég engan sem hefur spilað það rétt.“ Það má deila um einfaldleikann úr því að enginn ratar á réttu lausnina, en kannski er aðalþrautin sú að sjá hver vandinn er. Vestur kemur út með hjarta og sagnhafi tekur gosa austurs með kóng. Hvernig myndi lesandinn spila? Það virðist eðlilegt að spila ás og meiri tígli, enda engin leið að komast inn á blindan til að svína. „Sá hængur er á þessari spilamennsku,“ segir Kau- der, „að vestur getur hent litlu hjarta og þá er auðvelt fyrir austur að skipta yfir í lauf.“ Kauder er til í að fórna þeim möguleika að tígulkóngur sé blankur til að fyrirbyggja samskipti í vörninni – hann vill spila litlum tígli strax. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig BRAUTSKRÁNING 10 kandídata með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Kennaraháskóla Ís- lands fór fram 27. október sl. Fimm kandídatar luku meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði í vor og hafa þá alls 152 kandídatar lokið M.Ed.-gráðu frá skól- anum. Helga Gísladóttir hlaut verðlaun Vísindaráðs Kenn- araháskóla Íslands fyrir besta meistaraprófsverkefnið árið 2007. Ritgerðin nefnist Nám á starfsbraut fram- haldsskóla: Undirbúningur fyrir fullorðinsár og fjallar um menntun nemenda á starfsbrautum tveggja fram- haldsskóla. Óskýr tilgangur náms á starfsbraut Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að til- gangur náms á starfsbraut sé óskýr og ekki séu nein lokamarkmið með náminu, segir í fréttatilkynningu. Nemendur útskrifast ekki með nein réttindi sem nýtast þeim á vinnumarkaði og það er alls óvíst hvort námið skil- ar þeim vinnu að skóla loknum. Ekki eru gerðar til- færsluáætlanir og samstarf skortir á milli skóla og þeirr- ar fullorðinsþjónustu sem tekur við að skóla loknum. Nemendur hafa takmarkað val í námi sínu og foreldrar eru ekki virkir þátttakendur þegar kemur að skipulagn- ingu náms barna þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til að hugmyndafræði náms án aðgreiningar hafi að takmörkuðu leyti náð inn í framhaldsskólana. Uppeldis- og menntunar- fræðingar útskrifast frá KHÍ Brautskráning Helga Gísladóttir hlaut verðlaun Vís- indaráðs KHÍ fyrir besta meistaraprófsverkefnið. UMSÓKN Mannréttindastofu varð fyrir valinu þetta árið til að hljóta ókeypis auglýsingaherferð á vegum góðgerðasjóðs auglýsingaiðnarins – AUGA. Herferðin er gegn tortryggni og ótta gagnvart útlendingum. Í tilkynningu frá stjórn AUGA segir m.a.: „Við lifum í samfélagi sem verð- ur stöðugt alþjóðlegra og sama þróun á sér stað um allan heim. Þörfin á að þessar samfélagsbreytingar gangi vel skiptir allt samfélagið máli. Jákvætt hugarfar er þar lykilatriði. Herferðin verður hvatning til að byggja upp samfélag þar sem allir eru jafnir og eiga jöfn tækifæri, óháð útliti, uppruna og kynþætti. Guðrún Guðmundsdóttir frá Mannréttindastofu segir stofuna afskaplega ánægða með valið og hlakkar mikið til samstarfsins.“ Aðilar að AUGA eru Samband ís- lenskra auglýsingastofa (SÍA), Félag íslensks markaðsfólks (ÍMARK), Samtök auglýsenda (SAU), 365 miðl- ar, Árvakur, Birtíngur, Ríkisútvarpið, Skjárinn, AFA JC Decaux, Capacent. Fær ókeypis auglýsingar FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.