Morgunblaðið - 14.11.2007, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista kaup-
hallar OMX á Íslandi hækkaði um
0,44% í gær og var lokagildi hennar
7.357,41 stig. Mest hækkun varð á
bréfum Icelandair, 1,28%, en bréf
Atlantic Petroleum lækkuðu um
6,91%.
Heildarvelta dagsins nam 17 millj-
örðum króna, þar af var velta með
hlutabréf 7,3 milljarðar. Mest velta
var með bréf Kaupþings, eða 3,5
milljarðar króna.
Hækkun í kauphöll
● BANK of Am-
erica, næst
stærsti banki
heims, gerir ráð
fyrir að þurfa að
afskrifa afkomu
sína á fjórða
fjórðungi um þrjá
milljarða Banda-
ríkjadala, jafngildi
um 180 milljarða króna. Ástæðan er
fjárfestingar bankans í ótryggum
veðlánum á fasteignamarkaði
vestra. FRÁ þessu greinir Bloom-
berg- fréttaveitan og vísar til orða Joe
Price, fjármálastjóra Bank of Am-
erica, sem hann lét falla á markaðs-
degi bankans í New York í gær.
Enn frekari afskriftir
● HEILDARÚTLÁN Íbúðalánasjóðs
námu 6,6 milljörðum króna í októ-
bermánuði, þar af voru 1,3 milljarðar
vegna leiguíbúðalána og 5,3 millj-
arðar í almenn útlán. Í mán-
aðarskýrslu ÍLS kemur fram að heild-
arútlán á árinu nema samtals 55,9
milljörðum króna, borið saman við
39,9 milljarða á fyrstu tíu mánuðum
ársins 2006. Er þetta útlánaaukning
um 40% milli ára. Í skýrslunni segir
að aukningin sé í takt við þróunina á
fasteignamarkaðnum, velta með
fasteignir á höfuðborgarsvæðinu
hafi aukist um 55% og fjöldi kaup-
samninga aukist um 39%. Einnig
kemur fram að ávöxtunarkrafa allra
flokka íbúðabréfa hafi hækkað í
október og aldrei verið hærri. Er bent
á að ávöxtunarkrafan síðustu tvo
mánuði hafi hækkað um 53-155
punkta. Tímasetning á nýju útboði
sjóðsins hefur ekki verið boðuð.
Útlán Íbúðalánasjóðs
hafa aukist um 40%
GENGI japanska jensins gagnvart
íslensku krónunni hefur verið að
hækka að undanförnu. Fram kemur í
Morgunkorni Glitnis í gær að jenið
hafi hækkað um 6% í síðustu viku, á
sama tíma og jenið hafi hækkað um
3,6% gagnvart dollar og 2,5% gagn-
vart evru. Þetta hafi gerst samfara
aukinni áhættufælni á alþjóðamörk-
uðum. Áhyggjur af afleiðingum lána-
kreppunnar í Bandaríkjunum á fjár-
málafyrirtæki hafi aukist á ný. Í
kjölfarið hafi margir fjárfestar
minnkað áhættusamar fjárfestingar
sem fjármagnaðar hafa verið með
lántöku í jenum.
Í Morgunkorni er bent á að gengi
jensins gagnvart krónu sé enn 8%
lægra en um síðustu áramót. Fram
kemur að jenið hafi lækkað á ný í
gærmorgun í kjölfar orða japanska
forsætisráðherrans um að styrking
jensins hefði verið of hröð og inngrip
væru möguleg.
Ekki liggja fyrir tölur um hve jen-
ið er stór hluti af erlendri lántöku Ís-
lendinga en Jón Bjarki Bentsson,
sérfræðingur á greiningardeild
Glitnis, sagði við Morgunblaðið að
sveiflur á jeninu hefðu talsverð áhrif
á íslenska lántakendur þar sem hlut-
ur þess í erlendri lántöku heimila og
fyrirtækja væri talsvert meiri en t.d.
vægi þess í gengisvísitölunni.
Jenið hækkaði um
6% á einni viku
örðum í 3,9 milljarða króna, miðað
við sama tíma í fyrra.
„Það er ljóst að við náum ekki
markmiði okkar um betri afkomu en
á síðasta ári, sem var besta ár í sögu
félagsins frá upphafi,“ segir Jón Karl
Ólafsson, forstjóri Icelandair Group,
í tilkynningu. Hann segir helstu
ástæðurnar vera að farþegatekjur af
auknu framboði í áætlunarflugi dótt-
urfélagsins Icelandair séu undir
áætlun, m.a. vegna sterkrar stöðu ís-
lensku krónunnar. Krónan hafi einn-
ig áhrif á fraktflutninga frá landinu
og verkefnastaða í fraktleiguflugi
hafi um tíma verið lakari en gert var
ráð fyrir.
Markmið um betri
afkomu nást ekki í ár
Hagnaður Icelandair á þriðja ársfjórðungi undir væntingum
Morgunblaðið/ÞÖK
Undir áætlun Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, segir farþegatekjur
af auknu framboði í áætlunarflugi dótturfélagsins Icelandair undir áætlun.
HAGNAÐUR Icelandair Group á
þriðja ársfjórðungi var 2,1 milljarður
króna samanborið við 2,5 milljarða
hagnað á sama tímabili í fyrra. Jón
Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair
Group, segir þá niðurstöðu vera und-
ir væntingum félagsins.
Tekjur Icelandair Group á þriðja
ársfjórðungi námu 20 milljörðum
króna og jukust um 3% á milli ára.
Mikil aukning var af tekjum af leigu
flugvéla en aðrar tekjur drógust
saman. Þá jókst kostnaður félagsins
um rösk 8% á fjórðungnum, þar af
nær tvöfaldaðist kostnaður við leigu-
töku flugvéla og áhafna og viðhalds-
kostnaður hækkaði um nær helming.
Hagnaður fyrir skatta, fjármagns-
liði og afskriftir, EBITDA, var 3,7
milljarðar króna og lækkaði úr 4,4
milljörðum frá sama fjórðungi í
fyrra.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var
hagnaðurinn alls 1 milljarður króna
samanborið við 3,2 milljarða króna
hagnað á sama tíma í fyrra. Tekjur á
sama tímabili námu 48,1 milljarði
króna og jukust um 11% frá fyrra ári.
EBITDA-hagnaður á fyrstu 9
mánuðum ársins var 5 milljarðar
króna og lækkaði úr 5,7 milljörðum á
milli ára.
Í lok þriðja ársfjórðungs var eigin-
fjárhlutfallið 37%. Handbært fé frá
rekstri dróst saman á úr 6,4 millj-
Í HNOTSKURN
» Tekjur á þriðja ársfjórð-ungi aukast um 3% en
kostnaður eykst að sama skapi
um 8%.
» Sterk króna hefur afger-andi áhrif á tekjur af far-
þega- og fraktflutningum.
Uppgjör
Icelandair Group
soffia@mbl.is
SPÁÐ er 9,4% aukningu í jólaversl-
uninni þetta árið og að áætluð velta
umfram meðaltal verði um 14 millj-
arðar króna, eða 45 þúsund krónur á
hvert mannsbarn. Reiknað er með að
heildarveltan í smásölu um jólin
verði 55,5 milljarðar króna, án virð-
isaukaskatts, eða meiri en nokkru
sinni. Með virðisaukaskatti er reikn-
að með að veltan verði að meðaltali
um 206 þúsund krónur á hvert
mannsbarn.
Þetta er meðal niðurstaðna Rann-
sóknaseturs verslunarinnar sem
kynnti í gær árlega könnun sína um
jólaverslunina. Jafnframt var til-
kynnt val sérstakrar dómnefndar á
jólagjöfinni í ár, sem ku vera GPS-
staðsetningartæki. Hafði nefndin úr
60 hugmyndum að velja sem bárust
aðallega frá nemendum Háskólans á
Bifröst, en þar er Rannsóknasetur
verslunarinnar til húsa. Hefur sala á
GPS-tækjum stóraukist síðustu
misseri, bæði hér á landi og erlendis.
Á kynningarfundi í gær kom fram
í máli Emils B. Karlssonar, forstöðu-
manns rannsóknasetursins, að
spárnar hefðu verið nokkuð nærri
lagi. Í fyrra hefði einnig verið spáð
um 9% aukningu en raunin hefði ver-
ið um 10%. Benti Emil á að jólaversl-
unin væri um fimmtungur af allri
heildarveltu smásölunnar yfir árið,
en um 12 þúsund manns starfa við
smásölu í landinu. Emil sagði spána í
ár vera í hóflegri kantinum og ýmsir
þættir hefðu haft áhrif til lækkunar,
m.a. nýlegar vaxtahækkanir og spár
um minnkandi einkaneyslu.
Könnun á jólainnkaupum, sem
Miðlun framkvæmdi, leiðir m.a. í ljós
að Íslendingar byrja jólaverslunina
fyrr en áður, flestir reikna með að
eyða 26-50 þúsund krónum í jólagjaf-
ir og fleiri en áður segjast kaupa
gjafirnar erlendis.
Í samanburði við önnur Norður-
lönd eyða Íslendingar hlutfallslega
mestu í jólagjafir, en Norðmenn
koma þar rétt á eftir. Mestum vexti
er spáð á Íslandi, 9,4%, en minnstum
í Danmörku, eða 5%. Í hinum lönd-
unum er þetta 7,5%.
55 milljarða velta í jólaverslun
GPS-staðsetningartæki rjúka út og eru jólagjöfin í ár, að mati dómnefndar
Morgunblaðið/RAX
Gjöfin GPS-staðsetningartæki hafa
rokið út í verslunum á þessu ári.
SKULDATRYGGINGARÁLAG á
íslenskum ríkisskuldabréfum hefur
hækkað frá því að vera á bilinu 15
upp í 25 punktar í október og fram
í nóvember, upp í 40 punkta. Að
sögn Björgvins Sighvatssonar hjá
Seðlabanka Íslands, hefur álagið
líka verið að hækka á öðrum ríkj-
um og nefnir hann sem dæmi Hol-
land og Belgíu. Hækkunin tengist
þess vegna ekki einungis Íslandi
heldur hafi tilhneiging verið til
hækkunar að undanförnu.
Hvað varðar ummæli Guðna
Níels Aðalsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra fjárstýringar hjá
Kaupþingi, í Morgunblaðinu í gær,
um að hærra tryggingarálag á
bréf íslenska ríkisins hafi áhrif til
hækkunar á tryggingarálag ís-
lensku bankanna, segir Björgvin
einfaldlega: „Það er spurning
hvort kemur á undan, hænan eða
eggið. Það gæti allt eins verið öf-
ugt.“
Hænan
eða eggið?
!"#$%$ )
*+
&
'
(
) &
*'+
,##-. ,#,/
,# .-/ -,.
,-.. ###
...
//.- -/# %
.#. %
,,-, #. - .- %
%
%
-,,/#..
%
%
,#- %
%
0.
.0-
0,
.0/
/0#.
0-
0#
-0 #0,
0.
#0 #,,0 0.
.0.,
#0 %
%
,.0 %
%
0#.
# 0#.
.0 0/.
, -0 #0.,
#0 #.0 #,/0 .0#
-0-
0-
,-0 %
-.0 #0-.
123
&
'
-
,#
..
,
#
#/
-
%
%
%
/
/
%
%
%
%
%
.
%
%
4
&
# / / (,
5&'
6&&3'
78
19'
)&
7
&
' : !
;<
'
*'=
)&
9)&
!
+%6>12> )
(
?
- ,%&.
#.
5 <
5
<@ @A1
7
&6&
1 '
1B6&
;<
<'
C
DE
2
+@FGD
(
3
3
(
!$&/
H 5
H
6
'
2
GCI0
GCI1
J
J
GCI2
6I
J
J
4K" DL
J
J
1(+7
45I
J
J
GCI3 GCI!,
J
J
SALTFÉLAGIÐ, verslun í meiri-
hlutaeigu Pennans, hefur keypt GH
heildverslun, 30 ára gamalt fjöl-
skyldufyrirtæki sem hefur sérhæft
sig í ljósum og lýsingabúnaði. Í til-
kynningu um kaupin kemur fram að
heildverslunin verði rekin áfram
undir eigin nafni og með lítt breyttu
sniði. Holger Gíslason heldur áfram
starfi sínu sem framkvæmdastjóri
félagsins, en hann tók þátt í kaup-
unum ásamt Saltfélaginu.
Meðal verkefna sem GH heild-
verslun hefur komið að er friðarsúla
Yoko Ono í Viðey, lýsingin í Bláa lón-
inu, Kaupþingi, Landsbanka Ís-
lands, Grand Hótel og Hellisheiðar-
virkjun. Ár er liðið síðan Saltfélagið
opnaði verslun sína í gamla Elling-
sen-húsinu við höfnina í Reykjavík.
Nýr eigandi að
GH heildverslun
HEILDARHAGNAÐUR tíu verð-
mætustu banka Norðurlandanna á
þriðja ársfjórðungi dróst saman um
5,6% á milli ára. Af einstökum bönk-
um jókst hagnaður Landsbankans
mest á milli ára, eða um 61%, og
hagnaður DnB Nor jókst um nærri
36%. Landsbankinn var einnig með
hæstu arðsemi eigin fjár, 33% á árs-
grundvelli en íslensku bankarnir
voru í sérflokki í þessum efnum því
þeir voru allir með yfir 20% arðsemi
eiginfjár, að því er segir í Hálffimm-
fréttum Kaupþings.
Arðsemin
mest hjá LÍ
● UMTALSVERÐAR hækkanir urðu á
hlutabréfamörkuðum vestanhafs í
gær, en Nasdaq vísitalan hækkaði
um 3,46%, Dow Jones um 2,46% og
S&P 500 vísitalan um 2,91%.
Eftir fjögurra daga niðursveiflu
virðist sem fjárfestar hafi séð mörg
álitleg kauptækifæri og stokkið á
þau, þrátt fyrir áframhaldandi áhyggj-
ur af ástandi á lánamörkuðum vegna
svokallaðra undirmálslána.
Hækkanir vestra