Morgunblaðið - 14.11.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Einar Falur Ingólfsson. Kjartan Þorbjörnsson.
Í dag kemur út bókin Í fyrsta kasti
eftir ljósmyndarana og stangveiðimennina
Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson.
Frábært tilboð til áskrifenda Morgunblaðsins
Jólagjöf stangveiðimannsins
Í þessari glæsilegu bók er að finna fjölda
skemmtilegra veiðisagna frá tugum viðmælenda
þeirra félaga ásamt óviðjafnanlegum ljósmyndum
frá mörgum helstu veiðisvæðunum hringinn í
kringum Ísland.
Nú býðst áskrifendum Morgunblaðsins að fá þessa
stórglæsilegu bók á sérstöku verði með 25% afslætti.
Fullt verð er 4.990 krónur en verð til áskrifenda er
3.750 krónur.
Bókina geta áskrifendur fengið í afgreiðslu
Morgunblaðsins að Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
M
bl
9
35
98
9
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
NÝ KÆRA vegna skipulagsbreyt-
inga við parhúsið Heiðaþing 2-4 í
Kópavogi hefur borist úrskurðar-
nefnd skipulags- og byggingamála –
rétt áður en kærufrestur rann út.
Framkvæmdir hafa legið niðri við
húsið síðan í september en þar sem
breytingarnar hafa verið auglýstar í
B-deild Stjórnartíðinda er ekkert því
til fyrirstöðu að gefa út byggingaleyfi
að nýju.
Málið hófst í júní á síðasta ári þegar
eigendur að Heiðaþingi 2-4 sendu
skipulagsnefnd Kópavogs erindi þar
sem óskað var eftir að nýta kjallara-
rými sem íbúðarherbergi. Í gildandi
deiliskipulagi var hins vegar gert ráð
fyrir að húsin skyldu vera einnar
hæðar parhús, en heimilt væri að hafa
kjallara fyrir geymslur undir húsun-
um að hluta. Skipulagsnefnd sam-
þykkti tillöguna og síðar bæjarráð, á
fundi í september á sl. ári.
Ekki kynntur kæruréttur
Lóðarhafar í grennd við Heiðaþing
2-4 voru ekki ánægðir með þessar
lyktir málsins og skutu ákvörðuninni
til Skipulagsstofnunar í maí sl. sem
aftur sendi erindið til úrskurðar-
nefndarinnar. Byggingaleyfi voru
gefin út í mánuði áður.
Kærendur vísuðu til þess að ekki
hefði verið tekið tillit til athugasemda
þeirra auk þess sem þeim hefði ekki
verið kynntur kæruréttur – en kæran
kom langt á eftir kærufresti.
Úrskurðarnefndin vísaði málinu
frá í september sl. þar sem breytingin
hafði ekki verið auglýst í B-deild
Stjórnartíðinda. Samdægurs felldi
nefndin einnig úr gildi byggingaleyfi
fyrir húsum að Heiðaþingi 2-4 með
sömu rökum.
Breytingarnar voru birtar í Stjórn-
artíðindum 12. október sl. og því rann
kærufrestur út 12. nóvember. Að
sögn Hjalta Steinþórssonar, forstöðu-
manns úrskurðarnefndarinnar, barst
ný kæra fyrir liðna helgi og verður
málið tekið til efnislegrar meðferðar.
Hann segist ekki geta sagt til um hve-
nær úrskurður liggi fyrir enda mikið
álag á nefndinni.
Geir Marelsson, lögmaður hjá
Kópavogsbæ, gat litlu svarað um
lagalega stöðu eigenda Heiðaþings
2-4 og vildi bíða niðurstöðu úrskurð-
arnefndarinnar. „Það hefur ekki verið
úrskurðað um það hvort þessi breyt-
ing hafi talist ólögmæt og hvort hún
hafi veruleg grenndaráhrif.“ Spurður
út í hverjar niðurstöðurnar geti orðið,
s.s. hvort rífa þurfi húsið, segir Geir
að of snemmt sé til að segja um slíkt.
„En húsið er ekki komið það langt í
byggingu að ég telji þess gerast þörf.
Framkvæmdir eru ennþá stopp.“
Geir segir eins óljóst hvort eigend-
urnir eigi rétt á skaðabótum frá bæn-
um vegna þess tjóns sem orðið hefur,
s.s. vegna afleiðinga framkvæmda-
stöðvunar. „Það er úrskurðarnefndin
sem stöðvar framkvæmdirnar og það
hefur ekki verið tekið á því hvar
ábyrgðin liggur í því máli.“
Geta gefið út leyfi að nýju
Líkt og áður segir afturkallaði úr-
skurðarnefndin byggingaleyfi vegna
þess að breytingarnar voru ekki aug-
lýstar. Þar sem það hefur hins vegar
verið gert, er ekkert því til fyrirstöðu
að úthluta leyfi að nýju. „Það er raun-
ar þannig að kæra frestar ekki rétt-
aráhrifum, þannig að skipulags-
ákvörðun sem hefur verið tekin,
samþykkt og auglýst í B-deild stend-
ur þó svo að við séum að fjalla um
hana,“ segir Hjalti. „En ef þeir gefa
út leyfi, gætu þeir sem hagsmuna
eiga að gæta krafist stöðvunar og þá
verðum við að taka það fyrir.“
Enn óvíst með fram-
kvæmdir við parhús
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Allt stopp Framkvæmdir hafa verið stopp síðan í september síðastliðnum.
Eftir Jóhönnu M. Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
ÍBÚAR Foss-
vogsdals og
Smáíbúðahverf-
isins í Reykjavík
eru orðnir lang-
eygir eftir sund-
laug innan hverf-
isins. Engin
sundlaug er í ná-
grenninu og er
því um langan
veg að fara fyrir
íbúana.
Nú standa vonir til að mál breyt-
ist því borgarráð samþykkti fyrir
skömmu tillögu borgarstjóra um
byggingu sundlaugar á svæðinu.
Aðalatriðið er að fá sundlaug
Í umræðunni um sundlaugina
hefur komið fram hugmynd meðal
íbúanna um „græna sundlaug“.
Hjördís Guðmundsdóttir er í hópi
áhugafólks um sundlaug í Fossvogi
og segir aðalatriðið að fá sundlaug-
ina. Tillagan um græna sundlaug
sé bara ein af hugmyndunum sem
komið hafi upp um eðli hennar, en
sé vissulega skemmtileg.
„Í hugmyndinni felst að hafa
nánast engin bílastæði við laugina
því fólk kæmi sér þangað á hreyf-
ingu. Það myndi menga minna og
koma í veg fyrir aukna umferð,“
sagði Hjördís. Hún segir vissulega
vert að spyrja hvort svona fyr-
irkomulag myndi ganga upp og
margir hafi efast um að þetta muni
vera mögulegt í íslensku veðurfari,
en það sé eitthvað sem þurfi að
meta.
Náttúruperlan fái hlutverk
Aðspurð um hvort hugmyndin
yrði tekin lengra og sundlaugin
starfrækt vistvænt að öðru leyti
segir Hjördís það ekki hafa verið
kannað, þó vissulega yrði það
skemmtilegt. Hægt væri að athuga
hvort notað yrði salt í stað klórs og
fleira á þeim nótunum, en það færi
allt eftir vilja yfirvalda.
Enn hafa engar mótmælaraddir
heyrst úr röðum íbúa svæðisins
vegna byggingar sundlaugarinnar,
enda litlar ástæður til þess að mati
Hjördísar. Hún segir eina
áhyggjuefni sumra íbúanna vera
aukna umferð í gegnum hverfið.
Staðsetning laugarinnar er enn
óljós, en Hjördís telur ljóst að rask
vegna umferðar yrði minnst ef hún
yrði staðsett öðru hvoru megin í
dalnum en ekki í honum miðjum.
Hjördís telur löngu tímabært að
gera eitthvað fyrir „náttúruperl-
una“ eins og Fossvogsdalur sé iðu-
lega kallaður. Í dalnum sé nóg
pláss og gaman væri ef íbúarnir
fengju stað til að hittast á, auk
þess sem hún væri fín viðbót við
heilsueflinguna sem fram fari í
dalnum.
„Fossvogsdalur er frægur fyrir
veðursæld svo sundlaug byði upp á
góða daga í lauginni,“ sagði Hjör-
dís að lokum.
Hugmyndir um
græna sundlaug
í Fossvogsdal
Hjördís
Guðmundsdóttir