Morgunblaðið - 29.11.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 29.11.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DREIFING nýrrar gerðar debet- korta sem innihalda örgjörva með rafrænum skilríkjum hefst fljót- lega á næsta ári. Reiknað er með að ári síðar verði allir handhafar debetkorta komnir með nýju gerð- ina í hendur. Um er að ræða sam- starfsverkefni fjármálaráðuneyt- isins, fyrir hönd ríkisins, og Auðkennis, fyrir hönd banka og sparisjóða. Bergsveinn Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri innleiðingar nýju kortanna, sagði þau gegna tví- þættu hlutverki. Annars vegar sem debetkort til notkunar í við- skiptum og hins vegar sem raf- rænt skilríki til auðkenningar og undirritunar. Skilríkin verður hægt að nota til undirritunar samninga í gegnum netið, til að auðkenna sig inn á lokuð vefsvæði eins og heimabanka, þjónustusíður fyrirtækja og sveitarfélaga, menntastofnana o.fl. Þá er kortinu stungið í kortalesara sem tengdur er tölvunni og verður dreift með kortunum. Nýrri gerðir tölva eru margar með slíka lesara sem stað- albúnað. Rafrænu skilríkin á nýju debet- kortunum munu með tíð og tíma leysa auðkennislykla banka og sparisjóða af hólmi. Bergsveinn sagði að fjármálastofnanirnar væru að hefja útgáfu nýrra debet- korta með fjármálavirkni sem kennd er við EMV. Slíkar örflögur eru m.a. komnar á kreditkortin. Örflagan á debetkortunum er öfl- ugri og getur því bæði geymt skil- ríkin sem og greiðsluvirkni debet- kortsins. Hún er einnig öruggari en eldri gerðir og er mun örðugra að afrita upplýsingar af örgjörvum en segulröndum korta. Bergsveinn sagði að neytendur ættu ekki að bera neinn beinan kostnað af inn- leiðingu kortanna. Samstarf rík- isins við banka og sparisjóði trygg- ir að kortin nái mjög almennri dreifingu. Á kynningarfundi í gær um nýju kortin kom m.a. fram að útgáfa rafrænna skilríkja hófst í Eistlandi árið 2002. Þau voru fyrst notuð þar í sveitarstjórnarkosningum 2005 og fyrstu rafrænu þingkosning- arnar í heiminum fóru fram í Eist- landi fyrr á þessu ári. Ný debetkort eru rafræn skilríki Nota má kortin við undirritun samninga á netinu Rafræn skilríki Nýju debetkortunum fylgja sérstakir kortalesarar. Einnig eru margar tölvugerðir með innbyggða kortalesara. ÚTSENDINGAR hófust formlega á kínversku sjónvarpsstöðinni CCTV 9 hérlendis í gær. Af því tilefni tók Zhang Keyuan, sendiherra Kína, á móti gestum og kveikti á útsend- ingu stöðvarinnar. CCTV 9 er send út á ensku og fæst fyrst og fremst við fréttaflutning, en einnig er fjallað um menningu og samfélag Kína. Kínverska sendiráðið, sem hafði frumkvæði að útsendingunum, von- ast til að með þeim öðlist Íslend- ingar dýpri skilning á kínversku samfélagi og menningu. Ólafur Egilsson, formaður Kín- versk-íslenska menningarfélagsins og fyrrv. sendiherra í Kína, segir mikilvægt að þessar útsendingar séu hafnar. Menningar- og stjórn- málasamband landanna hafi aldrei verið betra og vonast hann jafn- framt til að útsendingarnar stuðli að enn betri skilningi milli þjóðanna. CCTV 9 er hægt að nálgast í áskrift á Digital-Ísland útsendingarkerfi Vodafone í Reykjavík og nágrenni. Innsýn í kínverskt samfélag Kínversk sjónvarpsstöð komin í loftið á Íslandi Morgunblaðið/Sverrir Eftirvænting Zhang Keyuan kveikti á sjónvarpinu í kínverska sendiráðinu í gær að viðstöddum gestum. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „ÞAÐ voru allir undrandi,“ segir Sigurbjörg Ármannsdóttir, for- maður MS-félagsins, um viðbrögð fulltrúa nor- rænna MS-fé- laga á aðal- fundi í Stokkhólmi fyrr í mánuðin- um, við þeirri staðreynd að enn sé ekki far- ið að bjóða fólki með MS hér á landi að nota nýja lyfið Tysabri. Lyfið var fyrst notað fyrir nokkrum árum en tekið úr notkun eftir að hættuleg aukaverkun kom í ljós. Frá því í fyrra hefur Tysabri verið notað með góðum árangri í Evrópu. Sigurbjörg segir að á fundinum hafi MS-félögin borið saman bæk- ur sínar. „Við erum sorglega langt á eftir,“ segir Sigurbjörg. Á öllum hinum Norðurlöndunum sé farið að nota Tysabri með góðum árangri. T.d. sé um eitt og hálft ár síðan far- ið var að nota það í Svíþjóð. Baráttan fyrir aðgengi að lyfinu hefur þó ekki verið þrautalaus á Norðurlöndunum. Í áskorun sem samþykkt var á fundi MS-félag- anna í Stokkhólmi segir að alls staðar hafi þurft að berjast hart fyrir því að koma meðferð með Tysabri á gott ról. Staða mála sé enn víða óviðunandi. Á Íslandi hafi enginn fengið lyfið enn sem komið er og í Finnlandi sé fólki aðeins boðið upp á hálfs árs meðferð. Sigurbjörg segir að áskorunin hafi verið send Norrænu ráðherra- nefndinni, en Halldór Ásgrímsson er framkvæmdastjóri hennar. „Það var beðið um fund með honum sem tveir eða þrír fulltrúar frá Íslandi og Noregi munu fara á,“ segir hún. Þar verði gerð grein fyrir málinu og óskað eftir því að farið verði að lögum um réttindi sjúklinga. Um 330 manns með MS Um 330 manns á Íslandi eru með MS. Sigurbjörg segir að talið sé að um 15-20% sem prófa muni Tysabri muni ekki þola það og aðr- ir kunni að nota önnur lyf. Því megi ætla að um 50-60 manns muni not- að Tysabri að jafnaði. Það sé erfitt fyrir fólk að vita af meðferð sem gagnist en ekki er í boði hérna. „Við höfum ekki tíma [til að bíða],“ segir Sigurbjörg. Margir hafi beðið lengi án vonar. Góður árangur af Tysabri á hinum Norðurlöndunum Á FUNDI valnefndar Grafarvogssóknar 27. nóvember sl. var séra Guðrún Karlsdóttir, sóknarprestur í Svíþjóð, valin til að gegna emb- ætti prests í Grafar- vogsprestakalli. Guðrún lauk guð- fræðiprófi frá HÍ árið 2000. Hún hefur verið búsett í Svíþjóð síðast- liðin átta ár og var vígð til prests 11. jan- úar 2004 í dómkirkjunni í Gautaborg. Guð- rún hefur starfað sem prestur á Gautaborgarsvæðinu frá vígslu. Séra Guðrún hefur víðtæka og áralanga reynslu á sviði barna- og æskulýðsstarfs í Þjóðkirkjunni áður en hún hélt utan sem og í sænsku kirkjunni. Guðrún hefur jafn- framt góða reynslu af starfi með eldri borgurum. Eiginmaður Guðrúnar er Ein- ar Sveinbjörnsson, prófessor í rafmagns- verkfræði, og eiga þau tvö börn. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir, sem gegnt hefur starfi prests í Grafarvogs- söfnuði síðastliðin tíu ár, var valin prestur í Dómkirkjuprestakalli nú í haust. Valin prestur í Grafarvogi Séra Guðrún Karlsdóttir GRÍMSEYINGAR hafa valið nafn á nýju ferjuna. Hreppstjórinn Bjarni Magnússon gekk ásamt sveitarstjórnarmanninum Al- freð Garðarssyni með kosningakassa milli húsa. Mjótt var á munum milli nafnanna tveggja sem kosið var um. Drangur fékk 16 atkvæði en Sæfari bar sigur úr býtum með 19 atkvæðum. Skip sem gekk til Grímseyjar til margra ára hét einmitt Drangur og eiga margir minningar frá því skipi. Núverandi ferja heitir Sæfari og það nafn mun prýða nýju ferjuna. Sæfari skal nýja ferjan heita GEIR H. Haarde for- sætisráðherra flytur fyrirlestur á jólafundi sænska viðskiptaráðs- ins í Stokkhólmi í dag. Fjallar Geir þar um hvernig hægt sé að búa til hagkerfi í fremstu röð í heiminum. Í frétt frá viðskiptaráðinu er vísað til þess að Ísland sé eitt ríkasta land heims ef miðað sé við verga þjóðarframleiðslu á mann og efna- hagskerfinu hafi verið umbylt á 15 árum. Í gær fjallaði forsætisráðherra um þró- un efnahagsmála á Íslandi í ávarpi á fundi í Oxford Union, málfundafélagi stúdenta við Oxford-háskóla. Geir ræðir við Svía um Ísland Geir H. Haarde TILBOÐ hafa verið opnuð hjá Vegagerð- inni í nýbyggingu hringvegarins um Hrútafjarðarbotn. Töluverðar breytingar verða á legu vegarins og jafnframt verður aflögð eina einbreiða brúin, sem nú er að finna á hringveginum milli Reykjavíkur og Akureyrar. Skagfirskir verktakar hf. á Sauðárkróki áttu lægsta tilboðið, rúmar 163 milljónir króna, 74,7% af kostnaðar- áætlun. Næstlægsta tilboðið átti Sigurjón Hjartarson á Brjánsstöðum, tæpar 167 milljónir. Háfell ehf. í Reykjavík átti hæsta tilboðið, tæpar 320 milljónir. Skagfirðingar buðu lægst SKIPULAG Urriðaholts í Garðabæ hlaut 2. sætið í lokaúrslitum alþjóðlegu lífsgæða- verðlaunanna, LivCom, sem afhent voru í London í vikunni, en þau eru veitt með stuðningi Umhverfisstofnunar SÞ. Skipu- lag Urriðaholts komst í lokaúrslit ásamt 18 öðrum verkefnum á sviði uppbyggingar sem hafa sjálfbærni og umhverfisvitund að leiðarljósi. Á vefsíðu LivCom er skipulag Urriðaholts sagt vera hlið á milli borgar- umhverfis og íslenskrar náttúru þar sem Urriðavatn er í aðalhlutverki. Urriðaholt verðlaunað SUMIR þeirra MS-sjúklinga sem munu fá Tysabri við sjúkdómi sínum eru ekki á þeirri fyrirbyggjandi meðferð sem nú er fyrir hendi, að sögn Hauks Hjaltasonar, taugalæknis á taugadeild Landspítala. Haukur seg- ir ástæður þessa ýmsar, meðal annars að þau lyf hafi ekki dugað nægi- lega eða sjúklingur ekki þolað lyfið. Haukur segir að í dag séu til fjögur mismunandi lyf sem gefin eru fólki með MS-sjúkdóminn í fyrirbyggjandi tilgangi. Þeir sjúklingar sem eru á fyrirbyggjandi meðferð við MS eru nú um 140 talsins. Kostnaður við þessi lyf sé á bilinu 1,3-1,7 milljónir króna á ári á hvern einstakling. Á Tysabri af öðrum lyfjum Sigurbjörg Ármannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.