Morgunblaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR nokkrum vikum kynnti skipulagsráð fyrrverandi meirihluta í Reykjavíkurborg tillögur um eyð- ingu skóga á Hólmsheiði. Þetta skipulag segir að fara megi hamför- um gegn þeirri vinnu sem lögð hefur verið í að græða þessar hrjóstrugu heiðar fallegum gróðri. Þar vex nú fallegur vísir að skógi, lágvaxinn enn sem komið er, en á góðri leið með að verða að yndisskógi. Hann myndi þar með bætast við þá skógarkraga sem þegar prýða ná- grenni höfuðborg- arinnar, okkur öllum til ánægju og ynd- isauka. Hér er um að ræða 170 hektara af skógi sem plantað var af æskulýð Reykjavíkur á vegum Skógræktarfélags Reykja- víkur og í nánu samstarfi við borg- aryfirvöld á hverjum tíma. Þeir sem gerðu tillögu um þetta skipulag telja nú vera kominn tíma til að ryðja þessum hvimleiðu plöntum burtu og steypa upp og malbika svæðið. Það gefur víst betri lífsfyllingu en græn skjólgóð náttúr- an, því ekki trúi ég að upplýst fólk á 21. öld skipuleggi vísvitandi um- hverfi með verri lífsskilyrðum. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur mótmælt þessum fyrirætl- unum og lagt til að aðalskipulag borgarinnar verði tekið upp og end- urskoðað. Flugvöllurinn á Hólmsheiði? Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni veldur því m.a. að leita þarf að byggingarlandi fyrir höfuðborgina upp um holt og heiðar. Hann þarf því að víkja. Nú heyrast ályktanir um að byggja beri nýjan flugvöll uppi á Hólmsheiði, þar sé nægilegt rými. Í stað grænna lunda komi malbikaðar flugbrautir, bílastæði og flugskýli, með tilheyrandi hávaða og mengun. Þetta er lagt til jafnvel þótt að- eins séu liðlega 40 km til Keflavík- urflugvallar. Það væri fáheyrð sóun á miklum fjármunum og dýrmætu landi að fara að setja niður nýjan stóran flugvöll fyrir innanlandsflug í liðlega 40 km fjarlægð frá stærsta flugvelli landsins. Er réttlæt- ingin sú að farþegar utan af landi skuli ekki þurfa að aka nema um 20 km inn í miðborg Reykjavíkur í stað 40 km? Er einhver heil brú í þessari afstöðu? Er skipulagshugsun okkar í slíkri úlfa- kreppu misskilinnar dreifbýlishyggju að svona rugl sé tekið gott og gilt? Rauðavatnsstöðin Við upphaf síðustu aldar hófust hugsjónamenn handa um að græða landið skógi. Það sem fyrst var plantað út í nágrenni höfuðborg- arinnar var skógarreiturinn við Rauðavatn. Þau mistök sem þar voru gerð reyndust lærdómsrík síð- ar þegar meiri þungi og alvara var sett í skógrækt í landinu. Þessi manngerði reitur er orðinn yfir 100 ára gamall og hlýtur því, ekkert síð- ur en byggingar, að falla undir verndun í samræmi við lög um forn- minjar. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að byggja Norðlingaholtið, sem er sunnanvert gegnt Rauðavatns- reitnum. Við því var ekkert að segja, nema hvað nýja byggingarsvæðið var skipulagt svo nálægt Rauða- vatnsreitnum að eftir að búið var að klessa bensínstöð á milli bygging- anna og reitsins var lítið pláss leng- ur fyrir breikkun Suðurlandsveg- arins, sem allir vissu þó fyrir löngu að þyrfti að framkvæma innan fárra ára. Nú er komið að því. Hugmyndir eru uppi um að höggva 15 metra breitt belti af þessum elsta skógi Reykvíkinga til að rýma fyrir breikkun vegarins. Síðan á að byggja stóra vegslaufu við hring- torg sem búið er að leggja við næstu gatnamót. Ef þessar hugmyndir ná fram að ganga verður eyðilegging gamla skógarins umtalsverð. Rangsnúið gildismat Þessi skipulagshugsun er aðeins nokkurra ára gömul. Þess konar til- lögur eru því miður ekkert eins- dæmi. Það vaknar sú gagnslausa spurning, hvort þessir lærðu skipu- lagsfræðingar hugsi aldrei lengra en sem nemur þeim metrum, sem þeir eru að fást við rétt í svipinn? Eða skyldi það vera landlægt álit skipulagsfólks að skógur og gróð- ursælt land sé verðlaust og því út- gjaldalaust að ganga á það og spilla því. Það kosti ekkert. Bygging- arlandið sé hins vegar rándýrt. Þetta er buddusjónarmið augna- bliksins. Því miður er niðurstaða mín sú, að hjá þeim sem þarna hafa staðið að verki sé ósjálfráð viðmiðun við verðmæti byggingarlóða svo ríkjandi að allt annað sé hjóm og hismi, þar með talinn elsti mann- gerði skógur í Reykjavík. Skipulögð skógeyðing Þröstur Ólafsson fjallar um skipulagsmál í nágrenni Rauðavatns » Sú hugsun að mal-bika land sem nú er skógi vaxið leiðir til verri lífsskilyrða þegar til lengdar lætur og er rangsnúin. Þröstur Ólafsson Höfundur er formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur. BARÁTTAN gegn kynbundu of- beldi er brýn og þurfa bæði yf- irvöld og allur almenningur að taka höndum saman til að stöðva slíkt ofbeldi og tryggja þolendum réttlæti. Ár hvert eru þúsundir einstaklinga, konur, karlar og börn, fórnarlömb mansals, bæði í eigin heima- landi og erlendis. Mannréttindi fólks sem sætir mansali eru vanvirt með öllu. Mörgum er rænt og haldið nauðugum við ömurlegar aðstæður, fólk er barið og nið- urlægt, beitt kynferð- islegu ofbeldi og neytt til að starfa við að- stæður sem minna mest á þrælahald. Engar nákvæmar upplýsingar liggja fyr- ir um fjölda þeirra sem eru fastir í hinu alþjóðlega mansalsglæpaneti. Sú leynd sem hvílir á þessari umfangs- miklu glæpastarfsemi gerir það að verkum að mjög erfitt er að finna og aðstoða þolendur. Alþjóða vinnu- málastofnunin áætlar að tæpar þrettán milljónir um heim allan séu í mansalsánauð. Í þeim tilfellum þegar yfirvöld komast á snoðir um mansal er þol- endum sjaldnast veitt nauðsynleg vernd heldur er fólkið meðhöndlað sem glæpamenn eða ólöglegir inn- flytjendur. Algengt er að aðstoð sé einungis veitt ef fólkið samþykkir að vinna með yfirvöldum við að hafa hendur í hári þeirra sem bera ábyrgð á mansalinu. Slík samvinna við yfirvöld getur leitt til aukinnar hættu bæði fyrir þá sem sætt hafa mansali svo og fjöl- skyldur þeirra. Sjald- gæft er að þolendum mansals séu boðnar bætur eða endurhæf- ing. Fólk sem ekki hefur löglegt dval- arleyfi í því landi sem það hefur verið flutt til er í mörgum tilfellum sent aftur til heima- lands síns án þess að tillit sé tekið til þeirra aðstæðna sem bíða þess heima og hætt- unnar á að fólkið sé aftur selt mansali eða sæti annars konar of- beldi. Nauðsyn á fullgildinu Samningur Evr- ópuráðsins um aðgerð- ir gegn mansali var samþykktur árið 2005, aðildarríki skuldbinda sig til þess að takast sameiginlega á við vandamálið með réttindi og vernd þolenda að leið- arljósi. Markmið samningsins er að koma í veg fyrir og berjast gegn mansali, verja mannréttindi þol- enda mansals, veita þolendum og vitnum aðstoð og tryggja að mál séu rannsökuð og ákært í þeim. Í samningnum er lögð áhersla á al- þjóðlega samvinnu í aðgerðum gegn mansali. Samningurinn gerir ráð fyrir að aðildarríki grípi til ráðstaf- ana og veiti þolendum aðstoð. Nú hafa 10 Evrópuríki fullgilt samninginn og öðlast hann því gildi í febrúar á næsta ári. Íslandsdeild Amnesty International hefur ítrek- að hvatt íslensk yfirvöld til að full- gilda samninginn og vonir standa nú til að hann verði fullgildur á yf- irstandandi þingi. Árið 1990 gerðu Sameinuðu þjóð- irnar mikilvægan samning sem lýt- ur að réttindum farandverkafólks, en einungis örfá ríki hafa gerst að- ilar að honum fram til þessa og er Ísland ekki þeirra á meðal. Stað- reyndin er sú að fólk sem starfar sem farandverkafólk lendir oft í að- stæðum sem líkja má við mansal og nauðungarvinnu og er því brýnt að Ísland gerist aðili að þeim samningi og lagi íslenska löggjöf að ákvæð- um hans. Sameiginleg ábyrgð Við berum öll ábyrgð á mann- réttindum, bæði yfirvöld og allur almenningur. Vettvangur ein- staklinga til þátttöku í baráttunni er meðal annars Amnesty Int- ernational, sem vinnur að aukinni mannréttindavernd til handa öllum og tekur ásamt fjölmörgum öðrum samtökum þátt í 16 daga átaki gegn ofbeldi á konum sem nú stendur yfir. Átaki sem í ár beinir sjónum að mansali og aðgerðum gegn því. Beitum okkur gegn man- sali og auðveldum þeim sem eru í mansalsánauð að leita til yfirvalda um hjálp. Okkur ber að vernda þolendur mansals Jóhanna K. Eyjólfsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. »Mannrétt-indi fólks sem sætir man- sali eru vanvirt með öllu. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty I nternational. ÞEGAR ástvinur okkar greinist með alvarlegan sjúkdóm verðum við hin líka að taka á öllu sem við eigum til þess að missa ekki fótanna í því ferli sem sum okkar hafa líkt við rússíbana. Við þurfum að vera sterk fyrir ástvin okkar og líka alla hina sem vilja vita hvernig gengur, hvernig líður, hvað gerist næst, hvað gæti gerst og hvern- ig þetta er nú allt saman. Við þurfum að læra á örskömmum tíma alls kyns hugtök og heilsufars- fræði sem enginn hefur búið okkur undir, átta okkur hvað við getum gert fyrir þau sem við elskum, kynna okk- ur besta mataræðið, skilja sjúkdóm- inn og læknamálið og tryggingakerfið og lífeyrissjóðakerfið, finna út hvað er best að segja við aldraða foreldra og við börnin okkar stór og smá og vinina og ættingjana og svona áfram – og flest án þess að almættið hafi nokkurn tíman spurt okkur hvort okkur langi til þess að takast á við þetta allt sam- an. Sumt bara gerir maður. Við lær- um líka að við sjálf og ástvinir okkar bregðast kannski allt öðruvísi við and- lega álaginu sem alvarlegum sjúk- dómi fylgir en við nokkru öðru sem hefur borið við á lífsleiðinni. Enda hef- ur vísast aldrei neitt þessu líkt komið fyrir áður. Við komumst að því að margir vita ekki hvað þeir eiga að segja við okkur. Sumir vilja fá öll smáatriðin, fá að vita um hárlos og ógleði og pillumagn á dag, lífslíkurnar jafnvel – en aðrir fara í hnút, fölna upp þegar þeir heyra orð- ið ,,krabbamein“ og fara skyndilega að tala um veðrið. Allir spyrja hvernig hann eða hún hafi það og við gefum skýrslu svona eins og við teljum að eigi við í hvert sinn – reynum að sjá út hverjir vilja ,,bara fínt“-svarið og hverjir spyrja af einlægni. Sjaldnast er spurt hvernig við höfum það sjálf og kannski flögrar það ekki heldur að okkur að það væri nú gott fyrir okkur að hyggja að því, mitt í öllu því sem á gengur. Því ef streitan sem óhjá- kvæmilega fylgir nær yfirhöndinni og við brotnum saman, hver á þá að styðja og styrkja þann sem tekst á við krabbameinið? Eitt af því sem við höfum lært er að við, sem elskum manneskju sem berst við krabbamein, höfum öðlast skilning sem fáum er gefinn. Við skiljum hvernig það er að sjá ástvin þjást, finna okkur vanmáttug, kvíða því hvernig allt kann að fara og óska þess heitast af öllu að geta skipt um stað við elskuna sína. Það er ólíkt öllu öðru að geta átt orðastað við aðra sem búa yfir sama skilningi, að geta talað um tilfinningar sínar og það sem dagarnir færa okkur án þess að óttast að hafa sagt eitthvað um of, orð okkar verði mistúlkuð af hlustand- anum eða orðið honum byrði. Það er svo mikil hjálp í því geta tjáð sig án þess að hafa áhyggjur af því að gripið sé fram í, vera bent á að vera nú já- kvæð og bjartsýn út í eitt, án þess að viðmælandinn leiti örvæntingarfullur að ,,réttu svari“ eða ,,lausn“ fyrir okk- ur, geta tjáð sig í vissu um skilning, hlustun og trúnað án tilætlunar. Geta sagt ,,K-orðið“ án þess að viðstaddir hrökkvi í kút. Það eitt að deila reynslu, styrk og vonum í hópi jafningja getur gert þetta ferðalag svo miklu auðveldara, hjálpað okkur að létta af okkur streit- unni svo að við getum betur stutt við þá sem við elskum. Um leið getum við orðið öðrum til hjálpar með okkar eigin skilningi og reynslu. Tækifæri til þess býðst í stuðningshópi maka krabbameinsgreindra sem fundar í Ljósinu í viku hverri. Það er nóg rúm fyrir fleiri á fundunum okkar, mæt- ingin er frjáls og félagsgjöld engin, kertaljós á borðinu og heitt á könn- unni. Vertu velkomin/n á fimmtu- dagskvöldum. ERNA MAGNÚSDÓTTIR iðjuþjálfi, forstöðumaður. Hlýjar kveðjur frá makahópi Ljóssins Frá Ernu Magnúsdóttur Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Siglir einn úr satans vör sveinn hinn gæfurýri. Fyrir lekan kjaftaknör krækir lygastýri. Þessi vísa Bólu-Hjálmars átti einkar vel við Finn Ingólfsson, þeg- ar hann lét móðan mása í dag- skrárþættinum Mannamál á Stöð 2 sunnudaginn 18. nóvember sl. All- an þáttinn lék lygastýrið í höndum hans að honum tókst að sigla fram hjá öllum skerjum sannleikans, enda ekki vanur að þurfa að steyta á slíkum. Áður en lengra er haldið er við hæfi að rifja upp kafla úr viðtali við bókaútgefandann Jóhann P. Valdi- marsson, sem birtist í Morg- unblaðinu 27. marz 2005, og hljóðar svo: „Mér stendur stuggur af þeirri terrorstjórn sem ríkir á Íslandi, bæði í stjórnmálum og viðskiptalíf- inu, og reynir að gera þá menn hlægilega og kalla ofsóknarbrjál- aða sem hafa orð á því óttaástandi sem hún hefur skapað. Þannig reynir hún að þagga niður í þeim eins og öðrum. Stofnanir eru lagð- ar niður ef þær eru ekki stjórnvöld- um þóknanlegar. Í hjarta okkar vitum við öll að á Íslandi ríkir ótt- astjórn á öllum sviðum. Og mér svíður hvernig misréttið í þjóð- félaginu hefur aukist á örskömm- um tíma: Að Íslendingar geti ekki lengur talað um eina þjóð í landinu. Mér blöskrar það frelsishjal sem þeir hafa uppi sem vilja fullkomið ófrelsi, frelsi til að einoka. Ég hef skömm á þeim forsvarsmönnum fyrirtækja sem í fjölmiðlum segj- ast fagna nýrri samkeppni en eru á sama augnabliki að reyna að finna leið til að drepa keppinautinn með góðu eða illu eða, ef það er ekki hægt, til að kaupa hann út af mark- aðnum. Hræsnin er ofboðsleg. Og réttlætiskennd minni er misboðið.“ Í þessu andrúmslofti ólst Finnur Ingólfsson upp í valdastóli sínum. Landsbankafargani rík- isstjórnar D. Oddssonar lauk vorið 1998 með því að hrl. Jón Steinar Gunnlaugsson setti saman skýrslu um málið. Hefir hún vafalaust ekki verið þóknanleg ofstjórn- armönnum, en Jón Steinar lætur ekki segja sér fyrir verkum í lög- fræðilegum álitaefnum. Í stuttu máli: Jón Steinar sýkn- aði bankastjóra Landsbankans, en fann að ýmsum þáttum, en þær að- finnslur áttu við stjórn bankans a.m.k. aldarfjórðung aftur í tím- ann. Samkvæmt niðurstöðu Jóns Steinars héldu bankastjórarnir réttindum sínum til launa á upp- sagnarfresti og eftirlauna. Þegar ofsóknin var um götur gengin lagði forsætisráðherrann, Davíð Oddsson, „terrorstjórnand- inn“, leið sína á fund ritstjóra Morgunblaðsins, Matthíasar Jo- hannessens og Styrmis Gunn- arssonar. Var honum mikið niðri fyrir og lýsti yfir: „Þetta Lands- bankamál var allt tómt fát og fum. Sverrir hafði ekkert gert af sér.“ [framh.] Sverrir Hermannsson Fát og fum Höfundur er fv. bankastjóri Landsbanka Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.