Morgunblaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 21
Þ ví miður hef ég sjálf aldrei séð huldufólk og ég tek ekki afstöðu til þess hvort huldufólk er til eða ekki. En eftir að hafa hitt allt þetta góða fólk sem segir mér frá sinni eigin reynslu af huldufólki og samskiptum sínum við það, þá trúi ég svo sannarlega á fólk sem trúir á huldufólk,“ segir Unnur Jökulsdóttir sem er höfund- ur bókarinnar Hefurðu séð huldu- fólk? sem er nýkomin út. Í þeirri bók segir Unnur ferða- sögu sína þar sem hún fer um Ís- land ásamt dóttur sinni og sambýl- ismanni og heimsækir fólk sem hefur persónulega reynslu af huldufólki eða þekkir slík mál vel. „Ég hef bara svo mikinn áhuga á mannlífi, þess vegna skrifaði ég þessa bók. Hún er fyrst og fremst um sprelllifandi mannlíf í landinu. Þótt ég líti á mig sem ferðarithöf- und þá finnst mér full ástæða til að skrá allskonar reynslu og upplif- anir fólks. Við megum ekki loka augunum fyrir því að til eru nú- tímaþjóðsögur sem ganga á milli fólks,“ segir Unnur sem lagðist í mikla heimildavinnu fyrir bókar- skrifin. „Ég las mér til um hvernig þessi trú og sögurnar birtast í kringum landið. En ég lærði ekki síður á því að tala við allt þetta fólk. Til dæmis vissi ég ekki hvort mun- ur væri á álfum og huldufólki, en Helgi Hallgrímsson, náttúrufræð- ingur og einn af viðmælendum mín- um í bókinni, hefur þá skilgrein- ingu að huldufólk sé ein tegund ósýnilegra vera sem kallaðar eru álfar. Helgi trúir staðfastlega á huldufólk og þegar hann safnar náttúrufræðilegum heimildum um landið, þá skráir hann alltaf líka heimildir um álagabletti, völvuleiði og goðaborgir.“ Getur ekkert að þessu gert Unnur hafði svolitlar áhyggjur af því að huldufólkinu væri illa við að hún væri að forvitnast um þeirra mál, hætti þess og búsetu. „Ég spurði því fólkið, sem ég hitti og var í góðum tengslum við huldu- fólk, hvort það héldi að svo væri, en allir sögðu huldufólkið vera ánægt með þetta, því það vildi láta vita af sér. Sárast væri ef enginn hefði áhuga á því. Ég var fyrst svolítið feimin við að tala um þessa hluti og það kom mér á óvart hversu tilbúið fólk var til að segja mér frá. Ég er ánægð með hvað fólk treysti mér vel fyrir sögunum sínum, en fyrir því er þetta mjög hversdagslegt. Þórunn á Giljum, sem er einn við- mælandi minn í bókinni, hún er til dæmis mjög jarðbundin og skyn- söm kona, en hún sér huldufólks- bíla keyra inn í kletta, rétt eins og hún sér aðra jarðneska bíla keyra heim í hlað til sín. Hún segist ekk- ert geta gert að þessu, hún bara sér þetta og verður að tala um það eins og annað sem ber fyrir í lífinu.“ Sérstök augu og augnaráð Í bók sinni talar Unnur líka við þjóðfræðinga í hverju byggðarlagi fyrir sig, af því að þeir hafa yfirsýn á þessa hluti. „Sumir segja að þjóð- sögur verði til vegna þess að fólk hafi þörf fyrir annan raunveruleika en þann sem hægt er að sjá og snerta. Eins hafa sumar þjóðsögur orðið til vegna þess að fólk var að forða slysum. Þetta er ótrúlega breiður heimur og mismunandi. Sumir sjá, aðrir heyra og enn aðrir hafa samskipti við og tala við huldufólk. Margt af því fólki sem ég hitti í þessi ferðalagi hefur mjög sérstakt augnaráð og augu. Það er tvímælalaust skyggnt og getur lýst mikilli dulrænni reynslu. Ég hitti til dæmis konu sem tók á móti huldubarni en hún taldi sig fara sálförum þegar hún komst inn í hulduheima.“ Í bókinni hennar Unnar má lesa margar og ólíkar sögur af álfum og huldufólki og þar eru líka sögur af dýrum sem eru ekki þessa heims. „Huldufólk virðist oftast vera besta fólk og stundum hjálpar það mann- fólkinu og öfugt. En það eru líka sögur af hefndum og huldufólk virðist hafa tök á að láta vélar bila og spilla verkum, eins og mörg dæmi eru um hjá Vegagerð ríkis- ins.“ Unnur segist með bók sinni vilja koma þessum hluta af íslensku þjóðarsálinni til útlendinga. Hún vill túlka þjóðmenninguna fyrir þá sem heimsækja landið okkar. „Út- lendingar vilja nefnilega svo gjarn- an heyra um álfa og huldufólk á ferð sinni um landið. Mér finnst sjálfri gaman að komast í þjóðsög- ur þeirra landa sem ég heimsæki.“ khk@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Annars heims? Hann Karri gæti alveg verið hundur úr öðrum heimi, næstum ójarðneskur í sínum hvíta feldi úti í myrkrinu með Unni. Fjöldi fólks úti um allt land hefur persónulega reynslu af huldufólki. Kristín Heiða Kristins- dóttir hitti konu sem á ferðalagi sínu heyrði meðal annars af huldufólksbílum, hrútum úr öðrum heimum og söng í steinum. Huldufólk vill að við vitum af því daglegtlíf Allt að 76% munur mældist á verði lausasölulyfja í verðkönn- un sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í vikunni. »22 verðkönnun Hvað fær fólk til að fara til Asíu, setjast á hjólafák og ferðast á honum í viku? Arnar Barðdal stjórnast af ævintýraþrá. »24 ferðalög |fimmtudagur|29. 11. 2007| mbl.is vitað ættu allir að vernda lungun sín, bæði hinir viðkvæmu og hinir hraustari. Þegar allt kemur til alls, þá eru lungu fólks viðkvæm líffæri og Víkverja er sjálfum meinilla við að anda ótt og títt í borginni nema þegar loftgæði eru sem allra mest. x x x Víkverji gekk ummiðbæinn á þriðjudagskvöld, nánar tiltekið að kvöldi versta hálkuslysadags- ins það sem af er vetri. Fjöldi manns datt í hálku þennan dag og varð að leita aðhlynningar á slysa- deild, sagði í fréttum Morgunblaðs- ins. Víkverji telur að varfærni geti fyrirbyggt einhver slys, en það þarf engu að síður að sandbera gang- stéttirnar. Í miðbænum þetta kvöld var hin lúmskasta hálka sem eldra fólk hefði átt í miklum vandræðum með. Stéttirnar á Bergþórugötunni voru beinlínis hættulegar, jafnvel þeim sprækustu líka. Hinsvegar voru göturnar sjálfar eins og á sumardegi og þar voru velflestir bílar á nöglum að naga blessað mal- bikið. x x x Á þessum vettvangi hefur Vík-verji lýst kaffifíkn sinni og ís- fíkn. Hefur hann reynt að losa sig við hina síðarnefndu með góðum ár- angri og lækkuðum blóðþrýstingi. Hér var einkum um að ræða fíkn í Ben and Jerry’s-súkkulaðiís. Vík- verji hefur nú verið laus undan fíkninni í fjóra mánuði og líkar all- vel. Ef hann nær að halda sig frá ísnum fram á nýársdag þá er sögu- legum áfanga náð. Víkverja hefurgengið ágætlega að aka á ónegldum dekkjum það sem af er vetri, takk fyrir. Hluta síðasta vetrar var hann reyndar á nöglum og fannst það ótækt. Nöglunum var kippt út með töng á nokkrum kvöldum. Svifryksmengunin er ekkert grín, og í raun er illskiljanlegt hversu margir nota nagla- dekkin á höfuðborg- arsvæðinu. Þótt Vík- verji sé með ágætislungu, síðast þegar hann gáði, dettur honum ekki í hug að fara út að skokka á römm- um mengunardögum. Hann las í blaði um daginn spjall við konu með viðkvæm lungu og sagðist hún forð- ast útiveru á verstu dögunum. Auð-          víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.