Morgunblaðið - 29.11.2007, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FÁKEPPNI og
samkeppnis-
hindranir á ís-
lenskum lyfja-
markaði verða til
umræðu á morg-
unverðarfundi
Rannsóknastofn-
unar um lyfjamál
við HÍ í dag,
fimmtudag, kl. 8.15-10. Fundurinn
fer fram í Námunni, Endur-
menntun HÍ við Dunhaga. Björgvin
G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
flytur inngangsorð, en meðal frum-
mælenda eru Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins, og
fulltrúar smásala og heildsala. Í
pallborði verða allir flytjendur er-
inda.
Fákeppni á
lyfjamarkaði
VELFERÐARSVIÐ Reykjavíkur-
borgar hefur ráðið Jónu Rut Guð-
mundsdóttur, sálfræðing og fé-
lagsráðgjafa, sem verkefnastjóra
til að vinna að færslu verkefna á
sviði málefna fatlaðra frá ríki til
borgar. Jóna Rut hefur undanfarið
stýrt uppbyggingu á sviði búsetu-
endurhæfingar geðfatlaðra hjá
borginni. Auk reynslu á sviði mál-
efna fatlaðra hefur Jóna Rut
margra ára reynslu á sviði fjöl-
skyldumeðferðar og kennslu hjá HÍ
og HR.
Verkefnastjóri
ALÞJÓÐA Rauði krossinn hefur nú
lagt fram nýja neyðarbeiðni fyrir
Bangladess að upphæð tæplega 1,4
milljarðar íslenskra króna
(24.500.000 CHF). Það fé sem safn-
ast verður notað til að hjálpa 1,2
milljónum manna sem orðið hafa
fórnarlömb fellibylsins Sidr. Rauði
kross Íslands sendi þriggja milljóna
króna framlag til neyðaraðstoðar-
innar hinn 19. nóvember.
Nýjustu tölur benda til þess að
fellibylurinn Sidr hafi orðið hér um
bil 3.000 manns að bana og að tæp-
lega 35.000 manns hafi slasast.
Rauði kross Íslands bendir á
söfnunarsímann, 907 2020, fyrir þá
sem vilja leggja fram framlög
vegna hamfaranna í Bangladess.
Við hvert símtal dragast frá 1.200
kr. sem greiðast með næsta sím-
reikningi.
Reuters
Neyðarbeiðni
vegna hamfara
TÝR, félag ungra sjálfstæðismanna í
Kópavogi, fagnar áformum bæjar-
yfirvalda í Kópavogi um að „stíga
framfaraskref í þjónustu bæjarins
við bæjarbúa og samþykkja tilrauna-
verkefni sem [felur] í sér þjónustu-
samning einkaaðila og Kópavogs-
bæjar um rekstur Sundlaugar
Kópavogs.“
Nýjar leiðir sem stuðla að betri og
fjölbreyttari þjónustu við Kópavogs-
búa eru öllum til góðs. Úthýsing
verkefna hjá sveitarfélögunum hefur
skilað íbúum þeirra betri og hag-
kvæmari þjónustu. Er það hlutverk
Kópavogsbæjar að viðhalda forystu
sinni á þessu sviði sem og öðrum,
segir í ályktun Týs.
Þjónustusamn-
ingur í Kópavogi
VETNISSTÖÐIN við Vesturlands-
veg var í gær opnuð almenningi í
fyrsta sinn en fram að þessu hefur
stöðin eingöngu verið notuð fyrir
vetnisstrætisvagna. Um leið voru tíu
nýir vetnisfólksbílar af gerðinni
Toyota Prius afhentir þremur fyrir-
tækjum; Landsvirkjun keypti tvo
bíla, Orkuveita Reykjavíkur keypti
fjóra bíla og bílaleigan Hertz þrjá.
Bílarnir eru smíðaðir af Toyota en
breytt í vetnistvinnbíla af fyrirtækinu
Quantum í Kaliforníu í Bandaríkjun-
um. Þátttaka Hertz eru sérstök ný-
mæli því þetta er í fyrsta skipti sem
almenningi gefst kostur á að leigja og
nota vetnisbíl, að því er segir í til-
kynningu frá Vistorku og Íslenskri
nýorku. Opnun vetnisstöðvarinnar
var fyrsta skrefið sem tekið er í nýju
vistverkefni (Smart H2) á vegum
Vistorku og Nýorku en markmið
verkefnisins er að koma 25-40 vetn-
isbílum í umferð hér á landi fyrir árs-
lok 2009.
Tæplega tvöfalt dýrari
Enginn vetnisbíll er í almennings-
eigu hér á landi, en Þorleifur Finns-
son, varaformaður stjórnar Vistorku,
telur góðan möguleika á að almenn-
ingur vilji eignast slíkan bíl innan
skamms. Vetnisbílar eru mun dýrari
en hefðbundnir bílar. Hver vetnis-
fólksbíll sem var afhentur í gær kost-
ar 4,5-4,8 milljónir en venjulegur
Toyota Prius kostar um 2,5 milljónir.
Þorleifur væntir þess að verðið lækki
en erfitt sé að spá um hversu mikið.
Eldsneytiskostnaður á hvern kíló-
metra er þó svipaður, að sögn Þor-
leifs, enda hafi olía og bensín hækkað
mikið undanfarið. Það verður þó að
hafa í huga að vetni er undanþegið öll-
um þeim gjöldum og sköttum sem
leggjast ofan á dísilolíu og bensín.
Næsti hluti vetnisverkefnisins
(Smart H2) er að setja vetnisljósavél
um borð í hvalaskoðunarbátinn Eld-
inguna. Gert er ráð fyrir að ljósavélin
verði vígð sumardaginn fyrsta 2008.
Vetni fyrir almenning
Hertz, Landsvirkjun og Orkuveitan fá vetnisfólksbíla
Hægt er að leigja vetnisbíl hjá bílaleigunni Hertz
Morgunblaðið/Ómar
Dældi Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra opnaði endurbætta vetnis-
stöðina. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Vistorku, fylgist með.
NIÐURSTÖÐU er beðið í rannsókn
setts ríkislögreglustjóra, Rúnars
Guðjónssonar, sýslumanns í Reykja-
vík, á meintum skattalagabrotum
nokkurra aðila tengdra Baugi
Group. Rannsóknin fer fram hjá sak-
sóknara efnahagsbrota og að sögn
Björns Þorvaldssonar fulltrúa vona
menn að hilla fari undir lok rann-
sóknarinnar. Ekki er þó ljóst hvort
það muni gerast fyrir áramót. Þetta
þýðir að ekki er hægt að segja til um
það hvort ákvörðun um útgáfu
ákæru verður tekin fyrir áramót.
Reynt er þó að hraða málinu eins og
kostur er. Líklegt er að afla þurfi
einhverra gagna til viðbótar þeim
sem þegar eru komin.
Að minnsta kosti fimm manns
hafa réttarstöðu sakborninga í rann-
sókninni og á annan tug vitna hefur
verið yfirheyrður.
Niðurstöðu
skattrann-
sóknar beðið
MAÐUR var í gær dæmdur til að
greiða 200.000 kr. fyrir að slá ann-
an mann í andlitið á Selfossi í apríl
sl. Auk þess fóru 140.000 krónur í
skaðabætur auk málsvarnarlauna
og sakarkostnaður, alls 550.000 kr.
Dýrt högg
♦♦♦
FRÉTTASKÝRING
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ER EÐLILEGT að veita vín í safnaðarheim-
ilum? Samræmist það vímuvarnarstefnu kirkj-
unnar? Þessar spurningar hafa eðlilega vaknað
í tengslum við vínkynningu sem fram fór í hléi
á tónleikum í Neskirkju í gær.
Hjá Biskupsstofu fengust þær upplýsingar að
samkvæmt 10. gr. starfsreglna um kirkjur og
safnaðarheimili nr. 822/2000 væru safnaðar-
heimili ætluð til almenns safnaðarstarfs, en
hins vegar væri umráðanda heimilt að ráðstafa
húsnæði safnaðarheimilisins með öðrum hætti.
Þess skyldi þó jafnan gætt að ekkert færi þar
fram sem ekki samrýmdist starfi safnaðarins.
Í vímuvarnarstefnu þjóðkirkjunnar, sem
samþykkt var á kirkjuþingi 1998, kemur fram
að þjóðkirkjan heimili ekki að haldnar séu í
húsakynnum hennar samkomur þar sem sterks
áfengis sé neytt og hafi hóf á þeim vínveit-
ingum sem heimilaðar eru. Jafnframt segir að
kirkjan þurfi að huga að þeim skilaboðum sem
hún gefi með húsreglum sínum og athæfi og
setja mörk sem eru eðlileg og skynsamleg.
„Sums staðar er leyft að veita borðvín í safn-
aðarheimilum eða skála í kampavíni, en hvergi
borin fram sterk vín og væri það frágangssök.“
Vandlifað í þessum efnum þá og nú
Í samtali við séra Örn Bárð Jónsson, sókn-
arprest í Neskirkju, segist hann ekki sjá að
léttvínskynning brjóti í bága við samþykktir
um safnaðarheimili. Bendir hann á að sókn-
arnefndum sé í sjálfsvald sett hvort þær leyfi
neyslu léttvíns við útleigu safnaðarheimila und-
ir t.d. veislur, brúðkaup og erfidrykkjur. Örn
minnir á að flestar kirkjur noti vín í athöfnum
sínum, þ.e. messuvín í altarisgöngunni, þótt
reyndar sé notað óáfengt messuvín í Nes-
kirkju.
„Kirkjan boðar í sjálfu sér hvorki algjört
bindindi né algjört frjálsræði. Hún talar hins
vegar fyrir hófsemi,“ segir Örn og bendir á að
til séu ófáar sögur í Biblíunni af Kristi í mann-
fagnaði með fólki. Nefnir hann máli sínu til
stuðnings að í Matteus 11.18-19 standi: „Jó-
hannes kom, át hvorki né drakk, og menn
segja: Hann hefur illan anda. Mannssonurinn
kom, át og drakk, og menn segja: Hann er
mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtu-
manna og bersyndugra! En spekin sannast af
verkum sínum.“
„Af þessu má sjá að það var vandlifað í þess-
um efnum þá eins og nú. En hver og einn verð-
ur að bera ábyrgð á sjálfum sér,“ segir Örn.
Vínkynning í safnaðarheimili eðlileg?