Morgunblaðið - 29.11.2007, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Má ekki bjóða herra forseta að hringja í vin áður en hann svarar neitandi í annað sinn?
VEÐUR
Fram hefur komið í fréttum aðÓlafur F. Magnússon borgar-
fulltrúi muni taka sæti í borgar-
stjórn á ný öðru hvorum megin við
áramót en hann hefur verið í veik-
indaleyfi um skeið. Ólafur tekur þá
við embætti forseta borgarstjórnar.
Ólafur F. Magnússon var á sínumtíma einn af borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokks
og á þar tölu-
verða sögu.
Leiðir skildu ámilli hans og
Sjálfstæðisflokks-
ins vegna ágrein-
ings um umhverf-
ismál.
Síðan hefur
mikið vatn til
sjávar runnið.
Innan Sjálfstæðisflokksins er nú öfl-ugur stuðningur við áþekk sjón-
armið í umhverfismálum og Ólafur
F. Magnússon hefur barizt fyrir.
Eftir borgarstjórnarkosningarnarvorið 2006 var ljóst að Ólafur F.
Magnússon hafði mestan áhuga á
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í
borgarstjórn.
Honum þótti bersýnilega að fram-koma Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn við sig á þeim tíma
væri ekki við hæfi.
Í ljósi þessarar sögu verður fróðlegtað fylgjast með samstarfi Ólafs F.
Magnússonar og annarra fulltrúa í
hinum nýja meirihluta í borgar-
stjórn.
Það er ekki endilega víst að hon-um muni líka sú vist.
Ekki er ólíklegt að pólitíkin í borg-arstjórn verði fjörug eftir ára-
mót. Og að þar geti allt gerzt.
STAKSTEINAR
Ólafur F.
Magnússon
Í pólitíkina á ný
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
$# # %
%$
%
#$$
#
# #
#$
# #$
# $#$
$# $# $# # %
%
%
%
%
%$
%
%
%
%
%
%
*$BC
!
"# !
$
!
%&
$ !
! "'!
(% )! "
*+
(%
,
"
*!
$$B *!
& '(
)
(
*+ , *
<2
<! <2
<! <2
& ) -". / *0
CD! -
*
- ! .
!
/%!
$ ! 0!
+
"
/
1 !
2
! 3
3!
"
4& !"
<7
'
!
$ !
.%! "
*5
$
"
12 ' *33 * + ' 4
* +* -"
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Ágúst H. Bjarnason | 28. nóvember
Halastjarnan Holmes
sem sést hefur …
Líklega hafa ekki
margir Íslendingar
komið auga á hala-
stjörnuna Holmes sem
enn má sjá á himin-
hvolfinu. Veðrið hefur
verið með eindæmum
leiðinlegt og hentað illa fyrir
stjörnuskoðun, ljósmengun truflar,
og svo er halastjarnan Holmes hala-
laus séð frá jörðinni. Bloggarinn sá
hana þó 18. nóvember þar sem hún
var í stjörnumerkinu Perseus …
Meira: agbjarn.blog.is
Eygló Harðardóttir | 28. nóvember
Þar vaxa peningar
á trjánum …
Enn á ný hefur her
embættismanna
menntamálaráðuneyt-
isins undir stjórn
menntamálaráðherra
lagt fram ný frumvörp
um leik-, grunn- og
framhaldsskóla. Nýjasta nýtt er að
lengja á nám kennara í meistaranám
eða úr 3-4 árum í 5 að jafnaði. Þetta
sér menntamálaráðherra fyrir sér
að muni að sjálfsögðu hækka laun
stéttanna …
Meira: eyglohardar.blog.is
Gestur Guðjónsson | 28. nóvember
Andsamfélagslegur
áróður VG
Enn á ný sýna þing-
menn VG að þeir hafa
fullan hug á að grafa
undan þeirri sam-
félagsgerð sem ís-
lenska samfélagið
byggist á. Nýjasti vitn-
isburðurinn er fyrirspurn Auðar
Lilju Erlingsdóttur um kristilegt
siðgæði í starfsháttum grunnskóla.
Spyr hún um hvað átt sé við með
því þegar starfshættir grunnskólans
skuli því mótast af umburðarlyndi …
Meira: gesturgudjonsson.blog.is
Kolbrún Baldursdóttir | 28. nóvember
Meistaraprófs krafist
af kennurum á öllum
menntastigum
Fjögur ný mennta-
frumvörp hafa verið
kynnt sem marka nýja
menntastefnu á Ís-
landi.
Mín vitneskja á inni-
haldi þessara frum-
varpa er fengin úr fjölmiðlum.
Ég tel mig strax sjá í hendi mér að
í þessum frumvörpum felast margar
góðar breytingar og löngu tímabær-
ar. Má þar nefna sérstaka áherslu á
að iðn- og verknám verði metið til
jafns við bóknám og einnig sú sam-
fella sem verður í skólastarfinu þar
sem eitt skólastig tekur við af öðru.
Það sem hins vegar slær mig er að
meistaraprófs skuli vera krafist af
kennurum á öllum menntastigum.
Hér er verið að tala um skilyrði sem
ég gæti trúað að erfitt yrði að full-
nægja.
Ég velti því jafnframt fyrir mér
hvort hér sé ekki full langt gengið og
hvort það sé raunverulega nauðsyn-
legt að setja þau skilyrði að enginn
geti kennt t.d. við leik- og grunnskóla
öðruvísi en að vera sérfræðingur, þ.e.
með meistarapróf.
Sú upplifun mín hingað til af kenn-
urum, hvort heldur kennurum barna
minna eða kennurum sem ég hef
starfað með, er ekki sú að þeir hafi
verið illa menntaðir nema síður sé.
Vissulega eru kennarar mishæfir
eins og gengur og gerist í fag-
stéttum. En hvort hæfni þeirra til
starfsins hafi verið ábótavant vegna
þess að þeir hafi ekki haft meist-
arapróf í greininni efast ég stórlega
um.
Ég veit ekki hvað kennurum sjálf-
um finnst um þetta menntunarskil-
yrði. Eins og staðan er í dag þá vitum
við hins vegar að kennarar upp til
hópa telja sig fá allt of lág laun miðað
við núverandi menntunarstig þeirra
og kröfur sem kennarastarfið gerir.
Flótti er úr stéttinni núna í aðdrag-
anda nýrra kjarasamningsviðræðna
og stefnir í neyðarástand í sumum
skólum.
Verði krafan sú að þeir einir fá
kennsluréttindi sem hafi að lágmarki
meistarapróf segir það sig sjálft að
launin þurfa að hækka verulega. Við
kennaranámið eins og það er í dag
bætist allt að tvö ár og eykst…
Meira: kolbrunb.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
FYRRVERANDI ritstjórar DV, þeir
Björgvin Guðmundsson og Páll Bald-
vin Baldvinsson, voru í gær sýknaðir
af miskabótakröfu manns sem nýtti
sér áfengisdauða ungrar konu til að
hafa við hana kynferðismök, önnur en
samræði. Jafnframt var kröfu hans
um að tiltekin ummæli yrði dæmd
dauð og ómerk hafnað.
Maðurinn var í mars í fyrra dæmd-
ur í 12 mánaða fangelsi fyrir misneyt-
ingu þ.e. að hafa nýtt sér ölvun og
svefndrunga ungrar konu til að hafa
við hana kynferðismök. Hann hafði
raunar verið ákærður fyrir að hafa átt
við hana samræði en þar sem DNA-
rannsókn á leggöngum konunnar,
sem var í fastasvefni þegar maðurinn
framdi brotið, staðfesti það ekki var
maðurinn sýknaður af því ákæruat-
riði.
DV sagði frá málinu á forsíðu undir
fyrirsögninni: „Nauðgaði áfengis-
dauðri nektardansmey“ og í undirfyr-
irsögn sagði: „Vann á Vegas en flúði
út á land eftir nauðgunina“. Þessi um-
mæli og fleiri í sama tölublaði DV vildi
maðurinn að dæmd yrðu dauð og
ómerk. Þá krafðist hann þess að rit-
stjórarnir yrðu dæmdir til að greiða
honum 400.000 krónur til að kosta
birtingu á dómnum í þremur dagblöð-
um.
Krafa mannsins byggðist á því að
notkun DV á hugtakinu nauðgun í
umræddum fréttum væri röng og
misvísandi og hefði valdið honum
miska. Hann hefði ekki gerst sekur
um nauðgun, eins og brotið var á þeim
tíma skilgreint í 194. grein almennra
hegningarlaga, heldur misneytingu
sem varðaði við 196. grein. Mesta
refsing fyrir nauðgun væri 16 ára
fangelsi en misneyting varðaði sex
ára fangelsi, hið mesta.
Víðtæk merking orðsins
DV hafnaði kröfum mannsins og af
hálfu blaðsins var m.a. byggt á að
hvorki orðin nauðgun né misneyting
kæmu fyrir í lögum. Svokölluð mis-
neytingarmál væru engu að síður,
bæði í almennu tali og í fjölmiðlum,
nánast alltaf nefnd nauðgunarmál. Þá
var bent á að notkun orðsins „nauðg-
un“ væri mun víðtækari í almennri
málhefð heldur en sú skilgreining
sem kemur fram í íslenskri orðabók
(2002).
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á
rök DV og taldi ennfremur að þetta
sjónarmið endurspeglaðist í þeirri
breytingu sem var gerð á lögunum á
þessu ári en samkvæmt þeirri breyt-
ingu varða misneyting og nauðgun
sömu refsingu. Því var ekki fallist á að
fyrirsagnir og frásögn DV af brotinu
hefðu gefið ranga mynd af því.
Orðið „nauðgun“
ekki notað ranglega