Morgunblaðið - 29.11.2007, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SJALDGÆFT Fabergé-gullegg var
slegið hæstbjóðanda í uppboðshús-
inu Christie’s í Lundúnum í gær fyr-
ir tæpar níu milljónir sterlings-
punda. Samkvæmt gengi gær
dagsins jafngildir það um 1.167
milljónum
króna. Ónefnd-
ur rússneskur
auðmaður
keypti eggið.
Eggið er
bleikt að lit með
demants-
skreyttum
hana ofan á og
eggjarauðu úr
gulli. Aldrei
hefur jafnhátt
verð verið
greitt fyrir
Fabergé-egg.
Eggið var í
eigu hinnar vellauðugu Rothchild-
fjölskyldu.
Alexander III. Rússlandskeisari
lét búa til fyrsta Fabergé-eggið árið
1885, en eggin heita í höfuðið á skap-
ara sínum, handverksmanninum
Peter Carl Fabergé. Eggið gaf keis-
arinn konu sinni í páskagjöf og varð
hún svo ánægð að nýtt egg var búið
til um hverja páska eftir það. Sonur
Alexanders, Nicholas, hélt siðnum
við fram að Rússnesku byltingunni.
12 egg eru nú í einkaeigu.
Metverð
fyrir egg
Fabergé-gullegg selt
á 1,167 milljarða
Fabergé-eggið
ÞRIÐJA táknið,
skáldsaga Yrsu
Sigurðardóttur,
fær góðar við-
tökur vestanhafs,
ef marka má um-
fjöllun í banda-
rískum fjölmiðl-
um. Boston Globe
segir lesandann
leggja upp í
„heillandi leið-
angur“ fyrir „hugaða glæpasagna-
lesendur“ og Philadelphia Inquirer
segir réttan takt í framvindu sög-
unnar, frásögnin sé hrein og bein.
Gagnrýnandi Mystery Scene segir
að auki að bókin sé ekki eins drunga-
leg og norðurevrópskar glæpasögur.
Áður hefur verið fjallað um já-
kvæða umfjöllun um bók Yrsu í New
York Times og Wall Street Journal,
m.a. að sagan haldi jafnvel athygli
allra þreyttustu lesenda.
Þegar Þriðja táknið kom út haust-
ið 2005 hafði þegar verið gengið frá
samningum um útgáfu á henni á ell-
efu tungumálum. Tungumálin eru
nú orðin 30 og bókin gefin út í 100
löndum, að því er fram kemur á vef-
síðu útgefandans, Veraldar.
„Heillandi
leiðangur“
Yrsa
Sigurðardóttir
FIMMTA Súfistakvöld vetr-
arins verður haldið að Lauga-
vegi 18 kl. 20 í kvöld, en yfir-
skriftin er Reykurinn af
réttunum. Fimm höfundar
lesa úr nýútkomnum bókum
sínum, en þeir eru Valur
Gunnarsson sem les upp úr
Konungi norðursins, Eyvindur
Karlsson sem les upp úr
Ósagt, Aron Pálmi og Jón
Trausti Reynisson með Eng-
inn má sjá mig gráta og Sif Sigmarsdóttir sem
ætlar að lesa upp úr Einu sinni var drama-
drottning í ríki sínu. Bækurnar verða á sérstöku
tilboði í tilefni af lestrinum.
Bókmenntir
Reykurinn af rétt-
unum á Súfistanum
Eyvindur
Karlsson
ÞJÓÐLAGASVEIT Akraness,
Milli tveggja heima, gaf nýver-
ið frá sér sína fyrstu plötu, en
sveitina skipa 16 efnilegar
stúlkur á aldrinum 12 til 20 ára
sem allar leika á fiðlu. Stjórn-
andi sveitarinnar er S. Ragnar
Skúlason, en á nýju plötunni er
að finna 25 þjóðlög sem hafa
verið valin úr sýningum sveit-
arinnar, Nótt, dagur, nótt, Síð-
asta blómið, Í takt við lífið –
vertu þú sjálfur og Húsið – Milli tveggja heima.
Útgáfutónleikar verða haldnir í Tónbergi, sal
Tónlistarskóla Akraness, kl. 20 í kvöld. Miðasala
fer fram í verslun Eymundsson á Akranesi.
Tónleikar
Þjóðlagatónleikar
á Akranesi
S. Ragnar
Skúlason
LÍTIL kvikmyndahátíð verður
haldin í upplýsingamiðstöð
Hins Hússins í kvöld og hefst
hún kl. 18. Um er að ræða
framlag Jafningjafræðslunnar
til 16 daga átaks gegn kyn-
bundnu ofbeldi sem fer nú
fram. Sýndar verða heimild-
armyndirnar Killers Paradise,
Rosita og the Price Of Life.
Killers Paradise er í boði
Amnesty International og fjallar um ástandið í
Gvatemala en þar eru að meðaltali tvær konur
myrtar á dag og morðin að mestu óupplýst.
Aðgangur er ókeypis og nánari upplýsingar um
dagskrána eru á humanrights.is.
Kvikmyndir
Heimildarmyndir
gegn ofbeldi
Hitt húsið
HÚN verður fjölbreytt listaveislan
sem Listvinafélag Hallgrímskirkju
býður upp á á 26. starfsári sínu.
Starfsárið hefst með jólatónlistar-
hátíð í kirkjunni á laugardaginn, 1.
desember, sem lýkur átta dögum síð-
ar. Listvinafélagið leggur aðal-
áherslu á myndlist og tónlist á nýju
starfsári, líkt og það hefur gert hing-
að til.
Inga Rós Ingólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir mark-
mið þess að auðga listina við Hall-
grímskirkju, fylla helgidóminn lífi og
þeirri list sem honum hæfi. Kirkjan
laði að sér mikinn fjölda fólks eins og
vel hafi sést á menningarnótt í sum-
ar, þegar 10-12.000 manns sóttu
sálmaveisluna Sálmafoss. Inga Rós
segist ánægð með hversu mikillar
hylli viðburðir félagsins njóti, aðsókn
hafi verið frábær.
Mikill fjöldi myndlistarmanna
sækir í að sýna í forkirkjunni, en sýn-
ingar eru aðeins fjórar á ári og stend-
ur hver þeirra því lengi. Arngunnur
Ýr Gylfadóttir opnar myndlistarsýn-
ingu á laugardaginn, en hún fæst í
verkum sínum við kjarnann í snert-
ingu mannsins við náttúruna. Baltas-
ar Samper sýnir fyrsta sinni í kirkj-
unni á föstunni á næsta ári, á eftir
honum Sólveig Baldursdóttir og loks
Páll á Húsafelli. Steinhljóðfæri Páls
verða notuð við frumflutning óratórí-
unnar Cecilíu, eftir Áskel Másson.
Höfðað til unga fólksins
Þá má ekki gleyma mikilli Messia-
en-hátíð, í tilefni af því að 100 ár eru
liðin frá fæðingu tónskáldsins Oliv-
iers Messiaens. Listvinafélagið vill
líka laða að unga áheyrendur, hefur
m.a. flutt Pétur og úlfinn, og ætlar á
næsta ári að kynna Klais-orgelið fyr-
ir ungviðinu með skemmtilegum
hætti. En skyldi félagið þá taka vel í
umsókn strangkristinnar rokk-
hljómsveitar, t.d., um að fá að halda
tónleika í kirkjunni, fyrst það vill
höfða til unga fólksins? „Við myndum
alveg örugglega kíkja á það,“ segir
Inga Rós og hlær. Kjartan Sveinsson
úr Sigur Rós hafi t.d. óskað eftir að fá
að vera með í Kirkjulistahátíð næsta
sumar. Áheyrendur og áhorfendur
séu nú þegar á öllum aldri en gjarnan
mætti fjölga þeim yngri.
Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur 26. starfsár sitt á laugardaginn
Listarinnar helgidómur
Morgunblaðið/Kristinn
Á æfingu Mótettukórinn með strengjasveit. Gissur Guðbjörnsson tenór-
söngvari og Hörður Áskelsson, stjórnandi kórsins, standa fremstir.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ í Hall-
grímskirkju er efnismikil og verð-
ur því aðeins stiklað á stóru hér.
Nákvæma dagskrá má finna á vef-
síðu Listvinafélags Hallgríms-
kirkju, www.listvinafelag.is.
Dagskráin hefst á hádegi 1. des-
ember með Orgelandakt við upphaf
aðventu. Jafnframt hefst þá 26.
starfsár Listvinafélags Hallgríms-
kirkju. Þar leikur Björn Steinar
Sólbergsson orgelverk eftir J.S.
Bach, D. Buxtehude og Andrew
Carter. Kl. 14 opnar svo Arngunn-
ur Ýr Gylfadóttir sýningu sína,
...land ég sá..., í forkirkjunni.
Næsta dag verður hátíðamessa, á
fyrsta sunnudegi í aðventu, kl. 11.
Kl. 17 sama dag verða haldnir jóla-
tónleikar Mótettukórsins og það í
26. sinn. Á efnisskránni eru fransk-
ar jólaperlur. 6. desember verða
svo jólatónleikar Drengjakórs
Reykjavíkur. Félagar úr Karlakór
Reykjavíkur syngja með drengj-
unum ásamt Gunnari Guðbjörns-
syni tenórsöngvara og Lenka
Máteova leikur á orgelið.
Laugardaginn 8. desember kl.
12-17 verður söngur og orgeltónlist
á jólaföstu og er aðgangur ókeypis.
Margt verður þar í boði. Hörður
Áskelsson mun m.a. segja frá og
kynnir Klais-orgel kirkjunnar, sem
er 15 ára í ár, og Kvennakór við
Háskóla Íslands flytur jólalög undir
stjórn Margrétar Bóasdóttur. 9.
desember verður messa kl. 11 þar
sem Karlakór Reykjavíkur mun
syngja undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar. Hörður Áskelsson
leikur á orgelið. Kl. 17 flytja svo
Björn Steinar Sólbergsson organ-
isti og Schola cantorum jólatónlist
eftir Bach.
Hátíðleg
jóladagskrá
FJALLALANDIÐ, eða Mountain-
Land, er yfirskrift sýningar Krist-
ínar Gunnlaugsdóttur sem verður
opnuð í Gallery Turpentine á föstu-
daginn kl. 17. Þar sýnir Kristín sjö
stór olíumálverk, eitt eggtemperu-
verk og nokkrar teikningar, allt unn-
ið á undanförnum tveimur árum.
Umfjöllunarefnið, eða þemað, er
fjöll og fjalllendi sálarinnar, vegferð
mannsins um hinar grýttu innri tor-
færur vitundarinnar.
Kristín nam við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og Myndlistar-
skóla Akureyrar hér heima og hélt
svo til Ítalíu þar sem hún lærði
íkonagerð í klaustri í Róm. Þaðan
hélt hún til fimm ára náms við Ríkis-
akademíuna í Flórens. „Þessar
myndir eru að-
eins ólíkar því
sem ég hef verið
að gera,“ segir
Kristín. Þær séu
eingöngu lands-
lagsmyndir, eng-
ar manneskjur
eða dýr að sjá,
ólíkt fyrri verk-
um.
Kristín leggur
mikla áherslu á tæknivinnslu mið-
alda. Við íkonagerð er málað á tré-
plötur með gifsi og eggtemperu og
hefur Kristín lagað þá tækni að eigin
hugmyndaheimi. Hún heldur sjaldan
einkasýningar, verk hennar hafa yf-
irleitt farið jafnóðum frá henni og
því ekki gefist tækifæri til að safna
þeim saman í einkasýningu.
„Þetta er innra fjalllendið með
manni, þegar maður fer ákveðna leið
í lífinu sem er torfær, grýtt og erfið
yfirferðar. En maður sér alltaf glitta
í tæran, bláan himin og maður held-
ur í vonina,“ segir Kristín um þema
sýningarinnar. Sýningin snúist þó
ekki endilega um hennar persónu
eða reynslu, verkin hafi skipt hana
miklu máli þegar þau voru í vinnslu
og hún vilji sýna fleiri hliðar á sér
sem listamanni en þá að mála mæð-
ur með börn og íkona.
„Það eru fleiri hliðar til og þetta
er í rauninni myrkari leið og ein-
manalegri. Ég er mjög stolt af þess-
ari sýningu,“ segir Kristín.
Fjalllendi sálarinnar klifið
Kristín
Gunnlaugsdóttir
Rauð fjöll Málverk eftir Kristínu.
♦♦♦
PHIL Bredesen,
ríkisstjóri Tenn-
essee, telur Fisk-
háskóla fara illa
að ráði sínu.
Stjórn hans vill
selja hlut í safni
verka listakon-
unnar Georgiu
O’Keefe, sem er í
eigu skólans, fyr-
ir 30 milljónir dollara, en Bredesen
segir safnið a.m.k. 150 milljóna doll-
ara virði. Skólinn er verulega fjár-
sveltur. Crystal Bridges-listasafnið í
Bentonville vill kaupa hlutinn og
mun deila verkunum með háskólan-
um, verði af samningum.
Ríkisstjór-
inn ósáttur
Georgia O’Keefe
♦♦♦