Morgunblaðið - 29.11.2007, Page 19

Morgunblaðið - 29.11.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 19 AKUREYRI Keflavíkurflugvöllur | Kaffitár hef- ur opnað nýtt kaffihús í innritunar- sal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Annað kaffihús var opnað um sama leyti í Lágmúla 9 í Reykjavík. Nýju kaffihúsin eru sjöunda og áttunda kaffihús keðjunnar. Fylgir sögunni um opnun tveggja kaffi- húsa í sömu vikunni að nú sé Kaffi- tár kannski farið að líkjast kaffiris- anum Starbucks sem opnar nokkur kaffihús í viku hverri allan ársins hring. Kaffitár við Lágmúla er í sama húsnæði og símafyrirtækið Nova. Kaffihúsið selur eingöngu kaffi í götumál sem er hentugt fyrir þá sem vilja koma við og grípa með sér kaffi á leið til vinnu – sem og samloku eða annað meðlæti. Kaffi- húsið í Lágmúla er opið frá 8 til 18 alla virka daga. Í innritunarsal á fyrstu hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var opnað stórt og mikið kaffihús sem þjónar öllum sem koma í flugstöð- ina. Það hentar vel þeim sem eru að bíða eftir farþegum eða vilja hitta aðra farþega áður en haldið er út í heim. Á þessu kaffihúsi er boðið upp á áfengi, bjór og vín, sem er nýjung hjá Kaffitári. Aðaláherslan er samt eins og áður á kaffidrykki og gott meðlæti, brauð og kökur. Afgreiðslutíminn er frá klukkan 5.30 á morgnana til 17.30. Kaffitár opnar kaffihús í innritunarsal flugstöðvar Kaffi Nýtt kaffihús Kaffitárs í innritunarsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar er í rúmgóðu húsnæði í nýjum norðurskála stöðvarinnar. SUÐURNES Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Garður | „Maður hefur verið að rifja upp gamla takta þótt oft hafi verið tekin villtari gítarsóló en nú. Þetta er spakari tónlist sem hæfir betur sögunum,“ segir Vignir Bergmann sem ásamt Bjartmari Hannessyni hefur gefið út plötuna „Sögur af Suðurnesjum“. Vignir samdi lögin við texta Bjartmars, lék sjálfur á flest hljóðfærin og tók upp megnið af efninu. Bjartmar og Vignir hafa þekkst lengi. Þeir voru saman í bekk í barna- og gagnfræðaskóla í Keflavík og saman á rúntinum. Báðir hafa verið í tónlist. Bjartmar hefur búið lengi í Borgarfirði þar sem hann semur texta og syngur fyrir sveit- unga sína. Hann hefur einnig gefið út disk. Vignir var áberandi í rokk- tónlistinni á sínum tíma, með Júdas og Roof Tops og fleiri hljómsveitum. Eftir að hann fór að kenna dró hann sig út úr mesta rokkinu en hefur haldið sér við með smærri sveitum og svo segist hann nota gítarinn töluvert við kennsluna. Vignir býr í Garði og kennir við Gerðaskóla. Hvert lag fékk þrjá daga Vignir semur lögin við texta Bjartmars. Hann segist hafa gefið hverju lagi þrjá daga og snúið sér þá að næsta. Hann segist hafa notað stemninguna sem poppaði upp þeg- ar hann las textana. Eins og heiti plötunnar bendir til er sagt frá ýms- um atburðum á Suðurnesjum og samborgurum þeirra, bæði á upp- vaxtarárum þeirra í Bítlabænum og síðar í tíma. Sagt er frá hugmynd- unum að baki textunum í textabók sem fylgir. En ekki er nóg að semja lag og texta, það þarf að koma efninu frá sér. Vignir réðst í það að kaupa sér tæki til að geta tekið upp heima. Notaði páskana til að læra nóg til að geta byrjað og tók megnið af efninu upp heima hjá sér. Söng flest lögin sjálfur og lék en fékk líka fleiri tón- listarmenn til liðs við sig. Meðal ann- ars syngur Rúnar Júlíusson eitt lag. Vignir fór með efnið til félaga síns úr hljómsveitinni Júdas, Magnúsar Kjartanssonar, sem hljóðblandaði. Geimsteinn í Keflavík gefur plötuna út ásamt höfundunum. Vignir segist hafa haft gaman af þessari vinnu og er sáttur við útkom- una. Hann var langt kominn með að gera sólóplötu með eigin efni á árinu 1976 en hún kom aldrei út. „Ég var ekki ánægður með sönginn í einu laginu. Ég var kröfuharður á margt og er kannski enn. Ég ákvað að láta það ekki stoppa mig nú og vona að fólki líki það sem það heyrir.“ Hefur verið að rifja upp gamla takta Sögur af Suðurnesjum Gömlu leikfélagarnir Bjartmar Hannesson og Vignir Bergmann sungu lög sín og texta á Ljósanótt í haust. Sögur af Suður- nesjum á plötu NÝ hitaveita var tekin í notkun í Grýtubakkahreppi fyrir fáeinum dögum. Sveitarstjórinn, Guðný Sverrisdóttir, segir þetta merkileg tímamót í sveitarfélaginu – og telur hreinlega ævintýri að þetta skuli vera orðið að veruleika. Norðurorka er eigandi hitaveit- unnar og kemur vatnið frá Reykj- um í Fnjóskadal, en þaðan er yfir 50 km leið til Grenivíkur. Þessi merk- isdagur hófst með fundi hjá Norð- urorku þar sem mættir voru þing- menn kjördæmisins, stjórn og starfsmenn Norðurorku og fulltrú- ar eigenda. Eftir fundinn var haldið til Grenivíkur, í Vélsmiðjuna Vík þar sem hitaveitan var formlega tekin í notkun. Á myndinni skrúfar Guðný frá krana í vélsmiðjunni en hjá henni standa Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, Ásvaldur Þormóðsson, oddviti Þingeyj- arsveitar, og Höskuldur Þórhalls- son þingmaður. Guðný segir að þetta hafi verið stór dagur í sögu Grýtubakkahrepps því leitað hafi verið að heitu vatni í sveitarfé- laginu í yfir 20 ár. „Við erum mjög montin með þetta,“ sagði hún við Morgunblaðið. Vatnið er 65 gráða heitt þegar það kemur til Grenivíkur. Nú verð- ur hafist handa við að tengja veit- una í öll hús og það tekur nokkra mánuði. Mjög merki- legur áfangi MENNINGARRÁÐ Eyþings út- hlutaði í gær verkefnastyrkjum í fyrsta skipti, alls 12 milljónum kr. til 25 verkefna. Hæsta styrkinn, eina og hálfa milljón, hlaut verk- efnið Leikum saman sem felur í sér uppsetningu á söngleiknum Wake me up eftir Hallgrím Helgason. Það var Sigrún Björk Jak- obsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem afhenti styrkina ásamt Krist- jáni L. Möller samgönguráðherra. Aðrir sem hlutu styrk voru:  Myriam Dalstein, Skeiði í Svarf- aðardal, fyrir verkefnið Allt í þró- un: Allt um jól 2007.  Snow Magic-verkefnið í Mý- vatnssveit og Mývatnsstofa.  Fræðslu- og menningarnefnd Langanesbyggðar vegna Aðventu- hátíðar í Langanesbyggð.  Kvenfélagið Baugur í Grímsey til að fá leiksýningu til eyjarinnar.  Tónlistarskóli Húsavíkur vegna vinnubúða um Afríkutónlist með ungmennum.  Fornleifaskóli barnanna, sem er samvinnuverkefni ferðaþjónust- unnar á Narfastöðum, grunnskól- ans á Litlu-Laugum, Forleifastofn- unar Íslands og þriggja erlendra háskóla.  Kammerkór Norðurlands vegna verkefnisins „Að koma kórnum á kortið“.  Kristjana Arngrímsdóttir söng- kona vegna verkefnisins Söngvaka í húminu í Tjarnarkirkju.  Kammerkórinn Hymnodia til undirbúnings á stofnun Barrok- smiðju.  Æskulýðskór Glerárkirkju vegna verkefnisins Börn syngja fyrir börn.  Akureyrarakademían, félag sjálf- stætt starfandi fræðimanna á Ak- ureyri, vegna ráðstefnunnar Kart- aflan í 200 ár.  Tónlistarskóli Hafralækjarskóla vegna verkefnisins Afrísk tónlist í gunnskólum á Norðurlandi.  Stuttmyndafestivalið Stulli, sem er stuttmyndasamkeppni fyrir ungt fólk.  Menningar- og listasmiðja sem nýlega tók til starfa að Húsabakka í Svarfaðardal.  Safnasafnið á Svalbarðsströnd vegna verkefnisins Menningarerfðir og nýsköpun.  Aðalheiður S. Eysteinsdóttir vegna verkefnisins Réttardagur.  Kiðagil ehf. í Bárðardal vegna skólabúða.  Sinfóníuhljómsveit Norðurlands vegna skólatónleika.  Jólasveinninn Stúfur – fyrir hönd Ævintýralands jólanna í Mývatns- sveit.  Síldarminjasafnið á Siglufirði og Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteins- sonar á Siglufirði.  Rannsókna- og fræðasetrið að Svartárkoti vegna sýningarinnar Útilegumenn í Ódáðahrauni.  Gásaverkefnið, vegna gerðar barnabókar um Gásir.  Tónlistarhúsið Laugarborg.  Brúðuleikgerðarmaðurinn Bernd Ogrodnik í Skíðadal. 12 milljónir í menninguna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Menningarverðmæti Styrkþegar eftir athöfnina sem fram fór í Þorgeirskirkju í Ljósavatnsskarði síðdegis í gær. Í HNOTSKURN »Menningarráð Eyþings ersamstarfsvettvangur sveit- arfélaga á Norðurlandi eystra. »Verkefnið Leikum saman,sem fékk hæsta styrkinn, felur í sér uppsetningu söng- leiksins Wake me up eftir Hallgrím Helgason. Þátttak- endur er ungt fólk, nemendur á unglingastigi í grunnskólum og á framhaldsskólastigi. List- rænir stjórnendur eru Arnór B. Vilbergsson tónlistarstjóri og Guðjón Davíð Karlsson leikstjóri. Menningarráð Eyþings úthlutaði í gær styrkjum í fyrsta skipti, til 25 verkefna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.