Morgunblaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 25
veitingastað til að borða á en það var
ekki auðvelt því þarna er mikil fá-
tækt. Við fundum einn veitingastað í
litlum bæ og ég hef aldrei séð annað
eins. Einn úr hópnum kíkti inn í eld-
húsið og mælti ekki með að við gerð-
um það. En við létum okkur hafa það
og litum á þetta sem lífsreynslu og
höfðum auðvitað rosalega gott af
þessu. Við kunnum svo miklu betur
að meta hvað við höfum það gott hér
heima þegar við höfum farið á svona
slóðir. En þrátt fyrir fátækt var fólk-
ið sem varð á vegi okkar svo ótrúlega
lífsglatt og alltaf brosandi. Við getum
líka lært af því.“
Þau voru átta Íslendingar sem
lögðu upp í þessa ævintýrferð og þar
með talinn íslenski fararstjórinn
Viktor, en hann býr í Taílandi. Þrír í
hópnum voru félagar Arnar en hina
þekkti hann ekki fyrir. „Þetta var frá-
bært fólk og hópurinn náði vel sam-
an. Við vorum líka með kambódískan
fararstjóra sem fræddi okkur um allt
sem á vegi okkar varð.“
Ferðin hófst í Taílandi þar sem þau
voru í þrjá daga og fyrstu nóttina
gistu þau í Bangkok, í Sílomhverfinu
sem sefur aldrei. Daginn eftir var far-
ið í skoðunarferðir um Bangkok og
gamla konungshöllin meðal annars
heimsótt og Po-musterið. Á fjórða
degi hófst hin eiginlega hjólaferð
þegar þau hjóluðu að landamærum
Taílands og Kambódíu.
Hauskúpur og mannabein
„Við hvíldum hjólin daginn sem við
sigldum eftir Stung Sangker inn á
Tonle Sap-vatnið sem er fljótandi
þorp fiskimanna sem flytja þorpið
eftir veðri, vatnsmagni og aflabrögð-
um. Okkur leist nú ekkert á bátinn
eða stýrimanninn sem var ungur
strákur sem var alltaf að sofna við
stýrið. En allt fór vel og daginn eftir
skoðuðum við rústir Angkor Wat,
þess fræga musteris miðalda, sem
var ótrúleg upplifun. Við hvíldum líka
hjólin þegar við ókum frá Siem Reap
til Phnom Penh. Þaðan hjóluðum við
til Vígavalla eða Killing Fields, fanga-
búðanna þar sem Rauðu khmerarnir
drápu um milljón manns á áttunda
áratugnum. Það var virkilega átak-
anlegt að skoða þetta svæði og haus-
kúpur og mannabein um allt.“
Sumir dagar voru frjálsir og þá var
gaman að leigja sér mótorhjól eða
fara í rannsóknarleiðangur. „Á kvöld-
in þvældumst við um göturnar sem
sjaldnast voru upplýstar og sumar
dálítið skuggalegar, en við fundum
aldrei fyrir óöryggi og við vorum
aldrei svikin á nokkurn hátt. Í þessari
ferð sáum við rosalega margt á stutt-
um tíma og stundum fannst mér ég
eiga fullt í fangi með að meðtaka
svona mikið. Ég er í raun enn að
vinna úr þessu öllu og finnst varla
raunverulegt að ég hafi verið þarna.
Þessi ferð gaf mér mikið og núna
langar mig til Víetnam.“
Lífsgleði Brosmildur og glaður
strákur og áhyggjulaus.
g ningu
www.oriental.is
khk@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 25
Fyrirsögn birtist í 24 stundumum 50 geita brúðkaup í Afr-
íku. Hreiðari Karlssyni varð hugs-
að til nýgifts pars á Íslandi:
Lífið er snúið ef lækkar á bréfunum
gengið,
lánstraustið rýrnar og örðugt að bæta
haginn.
Vonandi hafa þau Ásgeir og Imba fengið
um það bil 50 geitur á brúðkaups-
daginn.
Kunn er vísa Ólafs Sigfússonar í
Forsæludal:
Enginn breytir grjóti í gull.
Greindan þreytir slaður.
Kom til geita að biðja um ull
kvæðaleitarmaður.
Emil Petersen bóndi átti sér
draum á sínum tíma:
Ef ég væri uppi’ í sveit
á ofurlitlum skika.
Ætti kindur, kú og geit
og kerlingu til vika.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía
á Sandi, heyrði hagyrðinga Kveð-
anda takast á við yrkisefni. Konur
áttu að yrkja um karla í fötum eða
án og karlar um konur á sama veg.
„Nú, karlarnir ortu auðvitað um
naktar konur, en konurnar vildu
allar umfram allt hafa herrana
klædda, sem mér fannst móðgun
við hið fríða kyn.“ Og hún yrkir:
Fegurð hrífur hug minn enn
sem hún mun ætíð gera.
Nú vil ég yrkja um unga menn
einkanlega bera.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af geitum og fegurð Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Við ökum
inn í vistvænni
framtíð
Enn eitt skrefið í átt að vistvænni framtíð hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Eitt af markmiðum
Orkuveitunnar er að taka tillit til umhverfismála í allri starfsemi sinni og stuðla þannig að
betra umhverfi. Til marks um það þá mun Orkuveita Reykjavíkur stuðla að aukinni notkun
vistvænna ökutækja og vinnuvéla í daglegu starfi sínu. Á þessu ári eru 15% bílaflota OR
vistvæn og árið 2013 verður hlutfallið komið upp í 55%.
• Í allri starfsemi OR er gengið út frá umhverfismálum — Orkuvinnsla í sátt við umhverfið
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
01
39
1
1/
07
or.is
2007
10
0
20
30
40
50
60
70
80
90
%
2008 2009 2010 2011 2012 2013 ár
Vist
væn
ir bí
lar O
R
Hefðbundnir bílar OR
Í lok árs 2007 mun Orkuveitan eiga:
• 21 metanbíl • 1 rafmagnsbíl • 4 tvinn-vetnis bíla • 1 vetnisbíl – F-cell