Morgunblaðið - 29.11.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 29
ÞAÐ er gleðiefni að sjá í nýlegri
blaðafrétt að nýr heilbrigð-
isráðherra talar um sjálfstæði not-
enda innan heilbrigð-
iskerfisins.
Sjúklingar séu m.ö.o.
sjálfstæðir þegnar
sem velja sér lækn-
ishjálp, séu ekki bón-
bjargarmenn í forsjá
embættismanna. Eft-
ir tveggja áratuga
hrollvekju miðstýr-
ingarflokka með af-
leitum ákvörðunum
hefur vissulega birt
til í ráðuneyti heil-
brigðismála. Þá er
einnig von um betri
læknisþjónustu eftir
að hafin er hreinsun
óværu sem þar hafði
búið um sig.
Tiltektin mun þó
taka nokkurn tíma
því „ráðsmennskan“ olli ekki bara
sjúklingum fyrirhöfn heldur trufl-
aði lækningaferlið. Það tekur
hjartasjúklinga, sumt eldra og far-
lama fólk, tvo daga að hitta hjarta-
lækninn sinn (leyfi heimilislæknis,
endurgreiðsla Tryggingastofn-
unar). Viðtal við heimilislækninn
fæst eftir 1-3 vikur og heim-
ilislæknar ráða ekki hvernig þeir
vinna né hvar þeir biðja um rann-
sóknir. Það er „kvóti“ á vinnu sér-
fræðinga. En sjúklingurinn er
grunlaus. Hvað kemur það sjúk-
lingi við þótt sykursýki hans
greinist ekki fyrr en sjónin er far-
in að gefa sig?
Miklar framfarir,
lítil viðbrögð
Snemmgreining illkynja sjúk-
dóma skiptir sköpum. Nýjar rann-
sóknir flýta greiningu. Afgerandi
framfarir hafa átt sér stað í lækn-
ingum sjúkdóma síðustu árin.
Nefnum örfá dæmi. Magasár
læknast með lyfjakúr, krans-
æðaþrengsli með stoðneti og lyfj-
um, og liðaskemmdir í ganglimum
með liðaskiptum. Fólk sem fékk
þessa sjúkdóma var illa haldið, oft
algerir öryrkjar, sem komust ekki
leiðar sinnar. Eftir lækningu
gengur þetta fólk til flestra verka.
Lækningar eru misdýrar, en hvað
hefur áunnist? Skýrslur um ávinn-
ing hafa ekki birst hérlendis, enda
embættin upptekin við „stjórnun“.
Eiðrof lækna?
Á sjúkrahúsunum hefur lækn-
um, ráðnum með faglegum hætti,
verið rutt frá stýrinu
og svokölluðum for-
stjórum og sviðs-
stjórum, jafnvel
„mannauðsstjórum“,
ófaglega ráðnum, ver-
ið falin æðsta yf-
irstjórn. Merk laga-
smíð fyrra ráðuneytis
(lög 40/2007; sbr. t.d.
„almenn sjúkra-
húsþjónusta tilheyrir
almennri heilbrigð-
isþjónustu“) kom í
kjölfarið. En er lækn-
um, eiðsvörnum sjúk-
lingum sínum, heimilt
að láta öðrum eftir
mótun læknisþjónustu
sem þeir hafa sérhæft
sig í? Aðeins eitt stórt
sjúkrahús er á
Reykjavíkursvæðinu og því lítið
aðhald og sér þess þegar merki.
Stjórnkerfið þar kallar á spillingu.
Fleðuháttur og kunningsskapur
eru þegar mikilvægari þar á bæ
heldur en þau verðmæti sem búa í
þekkingu og dugnaði.
Brenglað verðmætaskyn
Vegna tregðu kerfisins og til-
hneigingar valdsins til að þenjast
út (fleiri undirtyllur), hafa læknar
löngum gripið til einkareksturs í
starfsemi sinni með góðum ár-
angri. Þessu hafa kerfiskarlar illa
unað sem vonlegt er og barist
gegn sjálfstæðri starfsemi innan
kerfis og utan. Nýlega undirbauð
Landspítalinn (Lsp.) t.d. rann-
sóknarvinnu fyrir Heilsugæslu
Reykjavíkur (Hgr.) um 40% undir
frjálsu samningsverði og taldi að
læknisþjónusta heyrði ekki undir
samkeppnislög. Ekki lagaðist fjár-
hagur Lsp. við þetta svo hann
hækkaði verðið upp aftur. En Hgr.
mun hafa mislíkað það og hætti að
borga þjónustuna og nú takast
skattfrjáls opinber fyrirtækin á
um nokkur hundruð milljóna
króna „skuld“.
Kennsla og vísindi
Kennarar læknadeildar Háskóla
Íslands starfa flestir á Lsp. og þar
fer fram þjálfun flestra heilbrigð-
isstétta. Kennararnir eru á laun-
um frá læknadeild og Lsp. Nú
hefði mátt búast við öflugri starf-
semi læknadeildar á Lsp. Svo er
þó ekki, heldur hefur forstjóri og
skrifstofulið spítalans komið sér
upp einingu sem kallast Skrifstofa
kennslu, vísinda og þróunar
(SKVÞ). Utan ágætis bókasafns
er hlutverk SKVÞ óljóst. Aðstoð
við vísindarannsóknir og kennslu
er ekki hlutverk SKVÞ, því eitt af
fyrstu verkum þess var að leggja
niður stöðu tölfræðings sem hafði
dyggilega stutt og kennt fólki sem
stundaði rannsóknir á spítalanum.
SKVÞ býður hins vegar upp á
léttar veitingar fyrir fundi.
Hugað að framtíð
Ein helstu vandræði Lsp eru
auðvitað skortur legurúma eftir
að þremur spítölum í Reykjavík
var, í valdabrölti kerfisins, fyr-
irvaralítið þrýst saman í einn og
leguplássi fórnað. Stjórn hins
samanþvingaða spítala virðist
telja það sitt hlutverk að annast
byggingu framtíðarspítala fyrir ís-
lensku þjóðina. Hefur hún mælt
með fyrirferðarmikilli „há-
tæknibyggingu“ í Vatnsmýrinni
með tveggja herbergja einbýlis-
stofum fyrir sjúklinga. Meiri hluti
eldri spítalabygginga skal brotinn
niður.
Þeir sem hugsa meir um inni-
hald en umbúðir halda því hins
vegar fram að réttir hlutir (t.d.
blóðflaska, lyf) á réttum stöðum (í
sjúkrabíl) fyrir rétta aðila (lækna,
hjúkrunarfræðinga) bjargi fleiri
mannslífum en kastalar. Stórar
byggingar eyða ekki biðlistum.
Það gera sérþjálfaðir læknar í
húsnæði þar sem þeir fá að sinna
vinnu sinni í friði með þeim hætti
sem þeir þekkja bestan. Þeir velja
raunhæfari og ódýrari lausnir
sem virka fljótt (PT Önundarson,
Mbl., 06), lausnir sem taka mið af
framtíðarþróun fræðanna, tækni
og vísindum, lausnir sem sérfræð-
ingarnir á vinnugólfinu vita að eru
bestar fyrir sjúklingana sem þeir
greina og annast.
Sjúklingavæn
heilbrigðisþjónusta
Matthías Kjeld skrifar um
yfirstjórn sjúkrahúsanna
og heilbrigðismál
Matthías Kjeld
»Hlýrri vindar í
heilbrigðis-
þjónustunni?
Höfundur er læknir.
hefur undanfarin ár verið hagvöxtur
og ríkisstjórn Malaví hefur unnið að
umbótum á hagstjórn sinni og unnið
inn rétt á niðurfellingu skulda. Það á
eftir að koma í ljós hvernig tekst að
láta þessar framfarir skila sér til fá-
tækustu þegna landsins.
Sigríður og Sigurður segja að það
sé eins og að fara 100 ár aftur í tím-
ann að fara til Malaví. Nú veit ég
ekki hvað þau meina með því. En
vara ber við hugmyndum um að
þjóðir sem eru frábrugðnar okkur
séu „á eftir“. Ég ætla samt ekki að
draga dul á það að vandamálin í
malavísku samfélagi eru mörg og
flókin. Hins vegar vil ég mótmæla
því að sjálfsbjargarviðleitnin sé lítil
og að fólk virðist bara sitja og bíða
eftir að lífið renni hjá. Er umrædd
spilling, eins og að lyf hverfi á öllum
þrepum sendingar, ekki vottur um
sjálfsbjargarviðleitni? Fólk reynir
að verða sér úti um peninga eftir öll-
um mögulegum og ómögulegum
leiðum. Þess má líka geta að Mala-
var hafa lengi leitað til nágranna-
ríkjanna eftir launavinnu og hafa
þar svo gott orð á sér fyrir afköst að
aðrir hafa tekið upp á því að þykjast
vera Malavar. Þetta segi ég til að Ís-
lendingar haldi ekki að hér liggi heil
þjóð eins og Lati Geiri á lækj-
arbakka sem lá þar til hann dó.
Almennt séð er hæpið að alhæfa
um menningu heilla þjóða. Mörgum
Íslendingum hefur sviðið þegar fyrr-
um gestir okkar segja sögur af þjóð
fagurra en vergjarnra kvenna. Ýkt-
ar sögur af villimannslegum háttum
í Afríku hafa verið sagðar frá því að
Evrópubúar hófu ferðir sínar þang-
að. Enn eimir eftir af þeirri tísku og
óþarfi er að bæta á það staðhæf-
ingum Sigríðar og Sigurðar um
hrottalegar hefðir Malava. Hefðir
sem samkvæmt mínum heimildum
hafa ekki verið iðkaðar í Malaví í
áratugi.
Umræða um Afríku og þróun-
arhjálp er af hinu góða. Það er
margt sem miður fer og um að gera
að benda á það. En Malaví er enginn
greiði gerður með því að fá á sig
ímynd villimannslegs samfélags þar
sem peningum er ausið í hverja vit-
leysuna á fætur annarri. Í Malaví er
margt hæft fólk sem vill og getur
komið á jákvæðum breytingum hafi
það fjárstuðning. Þess vegna er mik-
ilvægt að íslenskir skattgreiðendur
viti að peningum þeirra er ekki sóað
í ölmusu meðan Malavar sitja að-
gerðarlausir hjá. Íslenska rík-
isstjórnin hefur ákveðið að auka
framlög sín til þróunarhjálpar á
næstu árum sem eru góðar fréttir og
tímabærar. Mikilvægt er að ræða
um þessi mál en það verður einnig
að benda á hið jákvæða sem áunnist
hefur svo að Íslendingar geti staðið
upplýstir og heilshugar bak við fyr-
irhugaðar breytingar.
Höfundur starfar fyrir Þróunarhjálp
Sameinuðu þjóðanna.
Beosound 3
Með BeoSound 3 getur þú spilað tónlist frá innbyggðu
útvarpinu eða hlaðið hana inn stafrænt, hvar sem er í
Bang & Olufsen hljómgæðum. Hlaðanleg rafhlaðan sem
endist í allt að tíu tíma spilun gerir svo allar snúrur óþarfar.
BeoSound 3 kostar 59.500 kr.
Beovision 8
Við hönnun BeoVision 8 var tekið sérstakt tillit til
hljómgæða enda var tækið hannað utan um öflugt
hljómkerfið. Háskerpuskjár með speglunarvörn
tryggir síðan bestu mögulegu gæði myndarinnar.
BeoVision 8 fæst í 26” og 32”.
Verð frá 279.000 kr.
BeoCom 6000
BeoCom 6000 er þráðlaust símtæki sem einfaldar
samskiptin á heimilinu. Síminn er einfaldur í notkun og
hægt er að tengja allt að átta símtæki einni stjórnstöð.
Stjórnstöðin sem hleður símann er glæsilega hönnuð
úr burstuðu áli og fáanleg í tveimur útfærslum, til að
hafa á borði eða festa á vegg.
BeoCom 6000 kostar 37.500 kr.
Síðumúla 21, Reykjavík.
Sími 581 1100. reykjavik@beostores.com
www.bang-olufsen.com
Gefðu nútímaklassík
frá Bang & Olufsen
í jólagjöf
Síðasta þorskastríðið
Átti breski flotinn einhver
svör við togvíraklippum
Landhelgisgæslunnar?
Mögnuð og spennandi
bók um hatrömm átök,
bæði á hafi úti og í landi.
holar@simnet.is