Morgunblaðið - 29.11.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 31
MINNINGAR
Andrea fæddist með mikið mús-
grátt hár og hanakamb sem stóð
beint upp í loftið, var í miðið af börn-
unum fimm. Hæfileikarík stelpa,
hafði allt til brunns að bera, glettin,
stríðin og svolítill prakkari í sér.
„Strákastelpa“ og var stundum köll-
uð Andrés af systkinunum. Þrátt fyr-
ir glettni og oft á tíðum svolítinn
prakkarahátt var hún afar blíðlynt og
rólegt barn. Í bernskuminningunum
sem nú leita á er Andrea alltaf glöð.
Hún átti marga góða vini í Eyjum.
Og það var leikið í fjörunni og í fjöll-
unum, rétt komið heim í mat og þegar
ekki var hægt að vera úti þá iðaði
heimilið af lífi og fjöri. Andrea var
listræn, sískrifandi og kom hæfileiki
hennar með ritað orð snemma fram
og fékkst hún við skriftir, aðallega
ljóðagerð, frá unga aldri. Það er bjart
yfir minningum úr bernsku Andreu.
Það fór að draga fyrir birtu
bernskuáranna á unglingsárunum.
Fyrst vín, fljótlega önnur vímuefni og
að lokum voru það aðallega lyfseð-
ilsskyld örvandi efni. Og þó að alltaf
glitti í persónu Andreu þá var hún
önnur undir áhrifum vímuefna.
Stærsta stundin í lífi hennar var
þegar hún eignaðist hann Eyjólf
Inga. Þegar Andrea var ljóssins meg-
in þá gaf hún af sér ást og birtu. Áttu
þau mæðgin margar góðar stundir
saman, dönsuðu og léku sér. Þá kom
blíðan og gleðin í ljós. Andrea átti
auðvelt með á slíkum stundum að
hleypa barninu í sér út. Hún vildi
vera sú móðir sem Eyjólfur Ingi
þurfti og reyndi svo sannarlega.
Síðastliðna þrjá mánuði var sam-
bandið ágætt við Andreu. Og það er
svo merkilegt að fyrir rúmum tveim-
ur vikum hringdi ég í hana og þegar
hún svaraði þá sagðist hún vera að
horfa á mig. Vitandi hversu stríðin
Andrea gat verið þá trúði ég henni
ekki, en hún var þá í strætisvagni við
hliðina á mér og horfði á mig. Við
horfðum hvor á aðra. Andrea endaði
símtalið á að segja: „Ég elska þig
mamma mín,“ kom út á næstu stoppi-
stöð og við áttum gott samtal. Hún
sagðist vera á leiðinni í meðferð.
Andrea átti sterka trú, trú á Jesú
Krist. „Liljan“ er sálmur sem Andrea
Andrea Ey
✝ Andrea Eyfæddist í Vest-
mannaeyjum 1.
október 1972. Hún
lést 15. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Ingveldur Gísla-
dóttir og Eyjólfur
Pétursson. Systkini
Andreu eru Guðrún
Dröfn, Gísli Ingi,
Ragna Björk, Bárð-
ur, Pétur og Ingi
Páll.
Sonur Andreu er
Eyjólfur Ingi, f. í Reykjavík 20.
júní 1995.
Andrea Ey verður jarðsungin
frá Laugarneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
hélt mikið upp á og er
lýsandi fyrir trúna og
vonina sem Andrea
hafði og okkar sem bið-
um alltaf eftir því að
hún kæmi til baka.
Liljan táknar ekki ein-
ungis trúna á Guð
heldur er hún einnig í
okkar huga táknmynd
fyrir Andreu, Andreu
eins og við minnumst
hennar: „Svo blíð og
svo björt og svo auð-
mjúk, en blettinn sinn
prýddi hún vel.“ Þann-
ig mun Andrea lifa áfram í huga okk-
ar.
Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel,
svo blíð og svo björt og svo auðmjúk,
en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti ekki um litinn né ljómann,
en liljan í holtinu er mín.
Þessi lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mitt og yndi.
Þessi lilja er mín lifandi trú.
Og þó að í vindinum visni,
á völlum og engjum hvert blóm,
og haustvindar blási um heiðar,
með hörðum og deyðandi róm,
og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó,
hún lifir í hug mér sú lilja,
og líf hennar veitir mér fró.
(Þ.G.)
Mamma og pabbi.
Í dag kveð ég æskuvinkonu. Við
höfum þó ekki verið í sambandi eftir
unglingsárin og þar er sennilega um
að kenna mismun á áhugamálum og
framtíðarsýn á það líf sem við áttum í
vændum. Þegar við vorum að alast
upp á Bröttugötunni vorum við nán-
ast óaðskiljanlegar. Við áttum okkar
eigið táknmál sem við notuðum okk-
ar á milli og þá stóð ég í stofuglugg-
anum heima og hún í herberginu sínu
og við sendum hvor annarri merki
um hvort ég ætti að koma til hennar
eða hún til mín. Oftast var það nú
þannig að ég fór til hennar, og var ég
hálfgerður heimagangur á heimilinu.
Við fengum oft að sofa saman heima
hjá Andreu og vildum báðar hafa
heimilishundinn, hana Kolfinnu, uppi
í hjá okkur svo það varð nú oftast
þannig að ég og Kolfinna enduðum
uppi í hjá Andreu eða ég fór heim í
fýlu. Jú, við áttum það svo sem til að
fara í fýlu út í hvor aðra út af smá-
vægilegum hlutum og gat sú fýla enst
í tvo til þrjá daga, en svo þegar rann
af okkur fýlan vorum við aldrei betri
vinkonur og tókum yfirleitt upp á
einhverju skemmtilegu að gera.
Um fermingaraldur fór samband
okkar aðeins að trosna. Andrea var
árinu eldri en ég, og við enduðum
hvor í sínum félagsskapnum. Þó var
mikið traust okkar á milli og trúðum
við hvor annarri fyrir okkar leynd-
armálum í hvert sinn sem við hitt-
umst.
Eftir að fjölskylda Andreu flutti
frá Eyjum þegar hún var 17 eða 18
ára misstum við allt samband. Ég
fékk þó alltaf fréttir af æskuvinkonu
minni af og til í gegnum sameiginleg-
an fjölskylduvin okkar beggja, og
voru þær fréttir misgóðar.
Andrea varð 35 ára hinn 1. október
sl. Ég hugsaði mikið til hennar eins
og alltaf á afmælisdegi hennar, og nú
bara einum og hálfum mánuði síðar
er hún farin.
Hvíl í friði vinkona.
Fjölskyldu Andreu vil ég votta
mína dýpstu samúð.
Bryndís Gísladóttir.
Lífið er enginn dans á rósum. Lífið
er táradalur. Lífið er dásamlegt. Það
er umhugsunarefni að við virðumst
eiga meira af neikvæðum orðatil-
tækjum um lífið og tilveruna en já-
kvæðum. Eða kannski er þetta ég.
Mér kemur í huga falleg stúlka sem
var svo fljót að brosa – og hlæja – og
þægilegt að finna nærveru hennar.
Þessa hæglátu djúpu íhygli. Það er
sitthvað gæfa eða gjörvuleiki. Lífið
útdeilir okkur spilum – sumir vilja
ekki spila. Aðrir vilja halda því fram
að það sé vitlaust gefið.
Sofið er ástaraugað þitt,
sem aldrei brást að mætti mínu.
Mest hef ég dáðst að brosi þínu.
Andi þinn sást þar allt með sitt.
Slokknaði fagurt lista ljós.
Snjókólgudaga hríðir harðar
til heljar draga blómann jarðar.
Fyrst deyr í haga rauðust rós.
(Jónas Hallgrímsson.)
Miklar samúðarkveður til sonarins
Eyjólfs, til foreldra Ingu og Eyfa, til
bræðra Gísla Inga og Inga Páls og til
annarra aðstandenda. Megi góðir
andar geyma ykkur.
Ægir Rafn Ingólfsson
og fjölskylda.
,,Ég þarf að segja þér hræðilegar
fréttir, hún Andrea dó í nótt.“ Mér
fannst slokkna á sólinni. Elsku Inga
mín, þitt áskæra barn Andrea Ey
rænd lífinu og voninni af Bakkusi að-
eins 35 ára. Ég var búin að þekkja
Andreu og elska hana lengi áður en
ég kynntist henni persónulega. Ég
lærði að elska hana af frásögnum
Ingu móður hennar sem barðist við
að hrifsa hana frá Bakkusi. Inga
hafði sagt mér hvernig hún vafði
mömmu sinni, pabba og systkinum
um fingur sér með blíðu sinni og
sindrandi útgeislun. Hún fæddist
trúuð og talaði alltaf um Guð sem
sinn besta vin. Svo hitti ég Andreu,
sem var svo fullviss vonar um nýtt líf.
Hún sagði mér að Guð hefði snemma
gefið henni trúna á hið fagra, góða og
fullkomna. Strax og hún kom labb-
andi á móti mér gekk hún inn í hjarta
mitt. Ég þekkti líf hennar. Ég hafði
sjálf verið í sömu sporum að eignast
son ung. Að elska barnið mitt af allri
sálu minni en vera of vanmáttug
vegna fíknar, til að verða sú mamma
sem ég vildi vera, að tapa aftur og
aftur fyrir Bakkusi. Mér hafði verið
gefið lífið aftur og ég trúði því að
Andrea myndi ná sér á ný.
Fyrst þegar ég kynntist henni
tjáði hún sig aðallega í ljóðum, þar
sem hún orti um ást sína á Eyjólfi
syni sínum. Enga ósk átti hún heitari
en að fá að verða honum sú móðir
sem hana langaði. Hún var ritsnill-
ingur og skrifaði ljóð, sögur og hug-
renningar sem unun var að lesa. Ég
vona að ef einhver á ljóð eða sögur
eftir hana þá leyfi þau Eyjólfi að
eignast af þeim afrit, því í ljóðum sín-
um tjáði hún sig úr dýpi hjartans af
krafti og þakklæti yfir að hafa verið
útvalin af Guði til að verða móðir
Eyjólfs. Nú grætur hjarta mitt vegna
Eyjólfs og ég bið almáttugan Guð að
blessa hann og gæta. Andrea var
mjög stríðin og á síðasta ári varð ég
vitni að því að Eyjólfur hefur erft
stríðnisgenið frá henni móður sinni.
Bakkus er voldugur andstæðingur
og felldi Andreu aftur og aftur og
fylgdi því mikil sorg fyrir Ingu, Eyfa
og Eyjólf sem og aðra ástvini. En
alltaf fór sólin aftur að skína og
Andrea fór aftur að feta bataleiðina
og alltaf var það hennar fyrsta verk í
hverri edrúmennsku að ná tengslum
við mömmu, pabba og Eyjólf og svo
alla aðra sem hún elskaði. Hún elsk-
aði af öllu hjarta, hún þurfti lítið ann-
að en segja ,,hæ“ og allir umvöfðu
hana.
Hún elskaði systkini sín og talaði
af svo mikilli blíðu um þau öll og veit
ég að þau eiga nú um sárt að binda.
Enn á ný kom Bakkus og nú heimtaði
hann líf hennar eftir að vera búin að
ræna hana öllum hlutverkum henn-
ar. En eitt skal ég segja þér, Bakkus,
að þó að þú hafir rænt hana lífinu þá
hefur þú ekki tekið af okkur ástina
sem við berum til hennar. Við mun-
um alltaf sjá Andreu með ástaraug-
um eins og hún var á bak við fíknina,
þá Andreu sem Guð skapaði hana til
að vera, elskandi móðir, dóttir og
systir. Til þín, sem ert þarna úti og
elskar hana, gerðu bara eins og við,
elskaðu hana áfram. Elsku Andrea
mín, ég elska þig meira en mest.
Hvíldu nú í faðmi Guðs.
Anna Jóna Ármannsdóttir.
Mig langar að minnast með nokk-
urm orðum hennar Andreu vinkonu
minnar. Við kynntumst fyrir um það
bil 7 árum og náðum strax mjög vel
saman. Á þessum árum hefur margt
gerst, bæði gott og slæmt. Leiðir
okkar lágu í sundur fyrir nokkru síð-
an því ég var svo lánsöm að fá að fara
af þeirri braut sem við báðar höfðum
villst á svo alltof lengi.
Siðasta skiptið sem ég hitti hana
tók ég utan um hana og við stóðum
lengi í þögninni en náðum samt að
segja svo mikið. Stundum þarf ekki
orð til. Sársaukinn í hjarta hennar
var mér svo greinilegur og þrátt fyrir
að tárin kæmu ekki veit ég að hún
grét. Hún sá ekkert ljós, var alveg
vegalaus í myrkri neyslunnar. Það er
stutt síðan ég rataði úr þessu svart-
nætti og kannski þess vegna var það
mér svo skýrt hvað hana sveið.
Svo kom að því að líkaminn þoldi
ekki meira. Partur af henni var löngu
farinn, þessi hlýja, brosmilda kona
sem ég kynntist var varla meira en
spegilmynd af sjálfri sér.
Ég trúi því að Guð hafi tekið á móti
henni og nú sé hann búinn að taka ut-
an um hana og hugga. Ég trúi því að
núna líði henni vel. Að núna fylgist
hún með syni sínum sem hún elskaði
af öllu hjarta og biðji þess að fram-
tíðin verði honum björt.
Ég sendi mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur til allra sem henni stóðu
nálægt. Ég bið Guð að veita móður
hennar styrk í þeim veikindum sem
hún er að berjast við. Ég veit að
yngri bróðir hennar Andreu er að
berjast fyrir lífi sínu, ég vona af öllu
hjarta að hann komist á góðan stað í
lífinu. Elsku besti Eyjólfur, þegar ég
hugsa til þín verð ég orðlaus. Ég veit
hversu heitt mamma þín elskaði þig,
þú varst það dýrmætasta í hennar
lífi. Ég vona að þú efist aldrei um það.
Megi allar góðar vættir vaka yfir þér
minn kæri. Ég veit að hér eftir mun
verndarvængur móður þinnar hvíla
yfir þér hvert sem þú ferð.
Að lokum vil ég segja að hún Andr-
ea var veik, veik af sjúkdómi sem
endar því miður alltof oft svona. Það
velur enginn sér þennan farveg í líf-
inu. Þegar trúin á sjálfið er farin fer
krafturinn sem þarf til að berjast
gegn þessu. Henni óska ég hvíldar og
blessunnar. Henni er ég þakklát fyrir
svo margt, fyrir að hafa fengið að
kynnast alvöru Andreu. Jafnvel þótt
ég kveðji hana með söknuði.
Hennar vinkona, ávallt,
Karen, Bjarki og börn.
Mig langar til að minnast frænku
minnar, hennar Andreu. Alltaf þegar
ég hugsa um hana þá fæ ég mynd af
henni hlæjandi, þá skiptir ekki máli
hvort ég hugsa um hana sem barn
eða fullorðna, hló hún kannski svona
mikið? Ég held það.
Ég og Andrea ólumst bæði upp í
Eyjum og fórum að mörgu leyti svip-
aða braut lengi vel. Við ólumst bæði
upp í góðum fjölskyldum með traust-
an og góðan bakgrunn og enduðum
bæði alkóhólistar. Ég kynntist And-
reu líklegast best þegar ég fékk að
búa hjá henni í 2 eða 3 mánuði. Þá var
Eyjólfur pínu púki og Andrea að
reyna að halda fjölskyldulífi í neyslu.
Þetta var skemmtilegur tími og
margt brallað en alltaf var passað
upp á að allt væri 100% gagnvart
Eyjólfi. Seinna þá hittumst við inni á
Vogi, skrítið hvernig líf fléttast oft
saman. Hvers vegna gat ég meðtekið
lækningu en hún ekki, hver velur?
Ég þakka guði fyrir að ég hafi ver-
ið svo heppinn að meðtaka það sem
ég hef fengið, en skil á sama tíma
ekki, hvers vegna Andrea var ekki
svona heppin. Hún var stórgáfuð,
þrældugleg, hjartahlý og Eyjólf elsk-
aði hún meira en nokkuð annað þrátt
fyrir að geta ekki sinnt honum vegna
sinna veikinda. Andrea var veik kona
sem fékk ekki bót meina sinna. Ég
ætla að muna eftir þér hlæjandi.
Þinn frændi,
Sturla.
Það var mikið áfall
þegar ég frétti það á
mánudaginn þann 5.
nóv. að þú, elsku Eddi
minn, værir dáinn,
„farinn“ og við sæj-
umst aldrei aftur, vinur minn.
Ég var að koma til þín til að við
gætum farið að versla eins og við vor-
um vön að gera á mánudögum, ég
kem inn en íbúðin er tóm, enginn
Eddi heima og engin Fríða.
Þú hringdir í mig á föstudaginn og
spurðir mig hvort ég gæti lagað
Eðvald Gunnlaugsson
✝ Eðvald Gunn-laugsson fæddist
á Siglufirði 31. ágúst
1923. Hann lést í
Reykjavík 5. nóv-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fossvogs-
kirkju 12. nóvember.
kommóðuna þína, því
spjaldið væri laust, en
það lægi ekkert á, ég
gæti gert það þegar við
værum búin að versla.
Svo þegar ég kom þá
sé ég að þú varst búinn
að taka úr skúffunni, svo
allt væri tilbúið. Alltaf
allt tilbúið eins og þín
var von og vísa.
Þegar ég kom svo og
þið eruð ekki inni dreif
ég mig í að líma spjaldið
í kommóðuna svo það
væri búið, dreif mig svo
niður til að gá hvar þið væruð, for-
stöðukonan hún Anna segir mér þá að
þú sért dáinn, hafir dáið um morg-
uninn og Fríða sé hjá þér uppi á spít-
ala, þetta var stórt högg, ég gekk
grátandi upp í íbúð aftur, kveikti á
kerti, grét og hugsaði: Þetta getur
ekki verið satt. Elsku vinur, við höfð-
um þekkst í 10 ár, ég kynntist ykkur
Fríðu árið 1997 þegar ég fór að vinna
hjá ykkur í heimaþjónustu, þá var ég
búin að vera frá vinnu vegna þess að
ég var með móður mína heima, en hún
lést 1997, ég átti mjög erfitt, en Fríða
þín elskuleg hjálpaði mér mjög mikið,
ég veit ekki hvað það var, en eitthvað
gaf hún til mín sem huggaði og styrkti
mig.
Í ykkur eignaðist ég annan pabba
og aðra mömmu.
Tvö síðustu ár eða síðan þið fluttuð
af Miklubrautinni og upp í þjónustuí-
búð við Lönguhlíð, vegna þess hvað þú
varst orðinn slæmur í fótum og kom-
inn með göngugrind gátuð þið ekki
verið lengur á Miklubrautinni, fórum
við alltaf einu sinni í viku í Kringluna
til að versla, ég keyrði bílinn þinn. (Þú
varst hættur að keyra.) En núna er
enginn Eddi til að tala við þegar ég
kem til Fríðu, sem býður mér stólinn
sinn til að sitja á, Morgunblaðið til að
lesa og kaffi.
Við gátum talað um allt, studdum
meira að segja sama flokkinn og vor-
um yfirleitt sammála um það sem var
að gerast í þjóðfélaginu, og minnið
sem þú hafðir var með ólíkindum ég
undraðist hvað þú mundir allt, nöfn á
öllum mönnum og konum sem við töl-
uðum um, þú hafðir ótrúlegt minni.
Elsku Eddi minn, mikið á ég eftir að
sakna þín, mér þótti mjög vænt um þig
og ég veit þér þótti eins vænt um mig.
Kæri vinur, ég skal líta til með
Fríðu þinni, sem þú vildir allt gera
fyrir og á núna svakalega erfitt, enda
voruð þið búinn að vera saman um í 60
ár, ekki bara sem hjón heldur líka sem
bestu vinir.
Elsku Fríða mín, ég bið Guð að
hugga þig og styrkja, þetta var mikið
áfall, þú misstir ekki bara elskulegan
eiginmann, heldur líka þinn besta vin.
Elsku Edda mín, Þór, Eðvald,
Brynjar og Þórdís, ég sendi ykkur
mína dýpstu samúð.
Ég kveð þig núna, vinur minn, en
við hittumst síðar.
Vertu sæll, minn góði vinur. Virð-
ing mín mun fylgja þér með þökk fyrir
allt og allt.
Þín
Guðrún (Gunna).
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Minningargreinar