Morgunblaðið - 09.03.2008, Síða 58

Morgunblaðið - 09.03.2008, Síða 58
Það er alltaf óþægi- legt þegar plata er komin út á netið áður en hún kemur út … 64 » reykjavíkreykjavík Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is ÞAU ERU öll komin úr leikhús- fjölskyldum, krakkarnir sem leika í Kommúnunni í Borgarleikhúsinu. Aron Brink Sigurjónsson, Rafn Kumar Bonifacius, Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir og Urður Bergs- dóttir hafa líka öll talsverða reynslu af leikstörfum þrátt fyrir að vera aðeins tólf og þrettán ára. Rafn Kumar lék í Kalla á þakinu í Borg- arleikhúsinu og Ingibjörg Sóllilja byrjaði mjög snemma. „Já ég lék í Frostrósamyndbandi og svo þegar ég var bara þriggja mánaða þá lék ég lítinn strák sem var verið að skíra í Djöflaeyjunni.“ Urður hefur unnið við talsetningu, hún lék Lúsíu í Töfralandinu Narníu og Gloríu í Happy Feet og Aron lék í leikritinu Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu. „Það var samt ekkert stórt hlutverk, ég leik miklu stærra hlutverk í Kommúnunni,“ segir hann. Þau eru öll í sínu stærsta hlut- verki hingað til í Kommúnunni. Þar skiptast strákarnir tveir á að leika villinginn Tet og stelpurnar bregða sér til skiptis í hlutverk hinnar hlé- drægu Evu. Tet og Eva búa í komm- únunni þar sem foreldrar þeirra reyna að lifa í samræmi við hug- sjónir hippatímans. Ljót föt og leiðinleg músík Líferni hippanna í verkinu kemur þeim undarlega fyrir sjónir. Urður er á báðum áttum um það hvað henni finnst um kommúnulífið. „Mér finnst það bara mjög spennandi, maður er eitthvað svo frjáls og þannig. En samt er þetta líka óhugn- anlegt, kynlíf út í eitt og eiturlyf,“ segir hún og hryllir sig. Strákarnir þurfa ekkert að hugsa sig um og segjast alls ekki spenntir fyrir þessum tilraunum kynslóðar afa sinnar og ömmu. En af hverju ætli fólk hafi viljað búa svona sam- an? „Til þess að hafa einhvern fé- lagsskap og til þess að standa sam- an,“ segir Rafn Kumar. „Ljót föt og geðveikt leiðinleg músík,“ er álit Ingibjargar Sóllilju á málinu. Hún er heldur ekki hrifin af mataræðinu á heimilinu, en Eva borðar þrjár máltíðir í leikritinu. „Ég reyni að borða eins lítið og ég get af þessum bjúgum þarna,“ segir Ingibjörg, en Urður lætur sig hafa það. „Ég gleypi þau í mig því ég er svo svöng alltaf.“ Gaman að gleðja fólk Strákarnir eru ekki búnir að ákveða hvort þeir leggi leiklistina fyrir sig, en Urði hefur langað til þess að verða leikkona síðan hún var lítil. „Mér finnst það svo sérstakt að vera leikkona og eitthvað svo gaman að geta glatt fólk,“ segir hún og Ingibjörg tekur í sama streng. Þær eru dætur leikaranna Bergs Þórs Ingólfssonar og Baltasars Kor- máks og hafa alltaf verið heillaðar af starfinu í leikhúsinu. „Ég hef allt- af verið svo öfundsjúk út í krakka sem fá að leika í leikritum og var alltaf að biðja pabba um að finna leiksýningu fyrir mig til að leika í. Svo fréttum við af þessari og ég fór í prufu og náði,“ segir Urður. „Já það var einmitt þannig,“ segir Ingi- björg, sem viðurkennir líka að hafa suðað í pabba sínum að fá að vera með í leikritum án árangurs. „Hann segir bara að maður sé ekkert að búa til leiksýningu fyrir börnin sín, það er bara þannig.“ En finna þau fyrir öfund félag- anna nú þegar þau eru sjálf að leika í leikriti? „Stundum þegar maður þarf að fara úr tímum til þess að fara á æfingu þá öfunda þau mann svolítið,“ segir Aron og Ingibjörg hefur aðeins fundið fyrir henni líka. „Þær horfa bara á eftir mér með ill- um augum, stelpurnar í Austurbæj- arskóla sem fóru í prufu.“ Flestir jafnaldranna eru þó ánægðir fyrir þeirra hönd. Krakkarnir segjast ekki finna fyr- ir sviðsskrekk, nema kannski á allra fyrstu sýningunum. Þeim finnst öll- um gaman að standa á sviðinu, enda sé leikritið skemmtilegt og mikið hlegið. „Það fer reyndar eftir því hver er að horfa. Salurinn er mjög mismunandi,“ segir Rafn hugsi eins og þaulreyndur leikari. „Það er líka alltaf skemmtilegt á æfingum og svona, því við förum alltaf í fótbolta áður en við sýnum, allur leikhóp- urinn.“ Tvær Evur og tvöfaldur Tet Morgunblaðið/Valdís Thor Á sviði Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir, Rafn Kumar Bonifacius, Aron Brink Sigurjónsson og Urður Bergsdóttir Upprennandi leik- hússtjörnur skipta með sér verkum í Kommúnunni » „Mér finnst það svo sérstakt að vera leikkona og eitt- hvað svo gaman að geta glatt fólk.“ RÚMLEGA þrjátíu tónlistaratriði hafa verið staðfest á Aldrei fór ég suður – rokkhátíð alþýðunnar sem verður haldin á Ísafirði dagana 21. og 22. mars. Hátíðin verður haldin í gömlu Eimskipa- og Ríkisskipa- skemmunni við Ásgeirsbakka Ísa- fjarðarhafnar og fer hver að verða síðastur að útvega sér svefnpláss þessa páskahelgi ef eitthvað er að marka Hálfdán Bjarka Hálfdáns- son, verkefnisstjóra hátíðarinnar. „Já, heldur betur, ég held að það sé allt að verða upppantað á Ísa- firði en það eru margir góðir gisti- staðir í bæjunum í kring. Það er vert að benda fólki á það að hægt er að nálgast allar upplýsingar um gististaði á heimasíðu okkar, aldr- ei.is.“ Hvernig leggst hátíðin svo í ykk- ur? „Mjög vel. Við fengum nátt- úrlega myndarlegan aukastyrk frá Eyrarrósinni auk þess sem Flug- félag Íslands, Glitnir og Síminn styðja vel við bakið á okkar. Skemman gafst mjög vel í fyrra og hún er skemmtilega hrá eins og tónleikastaðir eiga að vera.“ SSSól og Sprengjuhöllin Eru Ísfirðingar almennt ánægðir með hátíðina? „Fólki er alls ekki sama. Það er mikið um … ja, ég veit nú ekki hvort maður á að kalla þetta af- skiptasemi eða ábendingar en það er gaman að fólki sé ekki sama. En það er líka mikið meira um að vera, svo sem Skíðavikan og annað. Páskar hafa alltaf verið málið á Ísafirði,“ segir Hálfdán Bjarki að lokum. Á meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni í ár eru: Bob Justman, Hjaltalín, Retro Stefson, Sprengju- höllin, XXX Rottweilerhundar, Sign, SSSól, Mysterious Marta, Megas og Senuþjófarnir, Dísa, Hraun, Morðingjarnir, Skakkam- anage, Karlakórinn Ernir með Ótt- ari Proppé, Múgsefjun, Ben Frost, Sudden weather change, Vax, Vil- helm, Hellvar, Hjálmar, Biogen, Skátar, Ultra mega teknóbandið Stefán, Steintryggur, Lára Rúnars- dóttir, Benny Crespos gang, Flat- eyrar-rapp o.fl. Meira en 30 sveitir staðfestar Tæpar tvær vikur í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður Morgunblaðið/Jim Smart SSSól Langt er síðan sveitin lék síð- ast á Ísafirði og þar er menn farnir að lengja í gott, „je“ frá Helga. Do you want to study Computer Science or IT? Grundtvigs Allé 88 Sønderborg Tlf. 45 7412 4141 www.sdes.dk ● Do you want to study in Denmark? ● Do you want to study in Denmark in an international environment? ● Are you looking for education which give good job possibility after graduation? ● Are you interested in computers and IT? ● Are you looking for a short education at university level? Do as Hrund Brynjólfsdóttir and other brave young students. Every year The Academy for Business and Technical studies in Sønderborg Denmark welcomes students from Iceland. Come and join us! Sønderborg has an active "Íslendingafélag". Visit our website www.sdes.dk to read more of your future in Denmark.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.