Morgunblaðið - 09.03.2008, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 59
KVIKMYNDIN Fiðrildið og köf-
unarbjallan er byggð á sjálfs-
ævisögu Jean-Dominiques Baubys,
fyrrverandi ritstjóra franska
tískutímaritsins Elle, en hún lýsir
reynslu hans eftir að hann fékk
heilablóðfall og lamaðist frá toppi
til táar. Bauby gat einungis hreyft
annað augað, og tjáði sig með því
að blikka augnlokinu. Áður en
Bauby fékk heilablóðfallið hafði
hann gert útgáfusamning við
bókaforlag í París um að gefa út
skáldsögu sem átti að vera til-
brigði við Greifann af Monte
Cristo eftir Alexandre Dumas.
Eftir að áfallið dundi yfir ákvað
Bauby að halda sig við þá ákvörð-
un að skrifa bók, sem varð að allt
annars konar fangasögu – sögu
manns sem lýsir því hvernig það
er að vera læstur inni í eigin lík-
ama.
Í kvikmyndaaðlögun sinni á
sögu Baubys beitir Julian Schna-
bel kvikmyndalegum sjón-
arhornum á meistaralegan hátt til
þess að tjá reynslu sögumannsins.
Þar rennur auga myndavélarinnar
á löngum köflum saman við auga
sjúklingsins, sem sér heiminn og
umhverfi sitt frá takmörkuðu
sjónarhorni. Þegar hann tárast
óskýrist myndin og þegar hann
blikkar til þess að segja já eða nei
lokast fyrir skjáinn í augnablik.
Inn í frásögnina er jafnframt
spunnið endurlit Baubys, þar sem
hann rifjar upp sitt fyrra líf, sam-
skipti við sína nánustu og aðdrag-
anda áfallsins. Þar er sögð saga
manns sem neyðist til að endur-
skoða samband sitt við umheiminn
á augabragði og reyna að finna
leið til að sætta sig við aðstæður
sínar og leita frelsis í eigin hug-
arheimi og lífsviðhorfum. Því ferli
er lýst á átakanlegan hátt í
heillandi frásögn Baubys og hug-
vitssamlegri og oft heillandi
myndrænni túlkun Schnabels.
Fiðrildið og köfunarbjallan er ein-
stök kvikmynd sem enginn ætti að
láta fram hjá sér fara.
Einstök „Fiðrildið og köfunarbjallan er einstök kvikmynd sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara.“ Sögumaðurinn er læstur í eigin líkama.
Fanginn í turninum
Heiða Jóhannsdóttir
KVIKMYNDIR
Regnboginn (Græna ljósið)
Leikstjórn: Julian Schnabel.
Mathieu Amalric, Emmanuelle Seigner,
Marie-Josée Croze o.fl.
Frakkland/BNA, 112 mín.
Fiðrildið og köfunarbjallan (Le Scaphandre
et le papillon) bbbbb
LISA Marie Presley, einkabarn
rokkkóngsins, á von á sínu þriðja
barni, með fjórða eiginmanninum,
Michael Lockwood. Eldri börnin,
sem eru 18 og 15 ára, eignaðist hún
með fyrsta eiginmanninum. Þau
skildu árið 1994 og sama ár gengu
hún og Michael Jackson í hnappheld-
una. Hjónabandið endaði með skiln-
aði 18 mánuðum síðar og var óleys-
anlegum ágreiningsefnum kennt um.
Þriðji eiginmaðurinn var leikarinn
Nicholas Cage, þau skildu eftir þrjá
mánuði. Lisa Marie Presley, sem er
fertug, vinnur, um þessar mundir að
sinni þriðju hljómplötu.
Reuters
Prinsessan Lisa Marie Presley er
hún kom heim til Graceland í fyrra.
Presley
á von á sér
SVIKAHRAPPAR munu hafa notað
kennitölu Kurt Cobains, fyrrverandi
söngvara og lagahöfundar hljóm-
sveitarinnar
Nirvana, og
stofnað 188
greiðslukorta-
reikninga í nafni
ekkju hans, Co-
urtney Love.
Meðal annars
keyptu þeir hús í
New Jersey fyrir
meira en 200
milljónir króna, bíla og ýmislegt ann-
að góss.
Love, sem áður söng með hljóm-
sveitinni Hole, mun hafa hitt fulltrúa
lögreglunnar fyrr í vikunni eftir að
rannsóknarmenn á hennar vegum
komust að því að hundruð milljóna
hafa horfið af reikningum hennar á
síðustu fimm árum.
Eftir sjálfsvíg Cobains árið 1994,
erfði Love höfundarréttinn af 98
hundraðshlutum tónlistar Nirvana.
Meira en 62 milljónir eintaka hafa
selst af plötum hljómsveitarinnar og
mun dánarbú Cobains hagnast um
nokkra milljarða árlega. Meginþorri
fjárins rennur í sjóð fyrir dóttur
Cobains og Love, Frances Bean,
sem er nú 14 ára gömul.
Sviku stórfé af
Courtney Love
Love og dóttirin.