Morgunblaðið - 29.03.2008, Page 2

Morgunblaðið - 29.03.2008, Page 2
2 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ALÞÝÐUSAMBAND Íslands, Öryrkjabandalag- ið og Landssamband eldri borgara mótmæla harð- lega í sameiginlegri ályktun þeirri ákvörðun stjórnvalda að hækka elli- og örorkulífeyri ein- ungis um fjögur til fimm þúsund krónur og „krefj- ast þess að ríkisstjórnin standi við fyrri yfirlýs- ingar sínar og hækki bætur almannatrygginga til jafns við kjarasamninga“ en það þýði 18 þús. kr. hækkun fyrir þá sem séu á lægstu bótunum. Í ályktuninni kemur fram að meginmarkmið verkalýðshreyfingarinnar í nýgerðum kjarasamn- ingum hafi verið að bæta kjör þeirra verst settu í þjóðfélaginu og í samræmi við það hafi náðst sátt um hækkun lægstu launa um 18 þús. kr. á mánuði og hafi verið mikil ánægja með þá niðurstöðu og ríkisstjórnin lýst yfir ánægju sinni með þessar áherslur. „Það þarf enginn að fara í grafgötur um að fjöldi fólks í hópi öryrkja og aldraðra er meðal þeirra sem lægstar hafa tekjurnar í okkar þjóðfélagi. Það skýtur því algerlega skökku við að bætur lífeyr- isþega eigi í kjölfar nýgerðra kjarasamninga að- eins að hækka um 4%, sem jafngildir 4.000-5.000 kr. hækkun á lægstu bótum. Hvernig ríkisstjórnin getur komist að þeirri niðurstöðu að 18.000 króna hækkun lægstu launa á vinnumarkaði samsvari hækkun bóta almannatrygginga um 4.000-5.000 kr. á mánuði er óskiljanlegt. Sú upphæð er eins og við blasir aðeins lítill hluti þess sem samið var um í kjarasamningunum. Það er því ljóst að ríkisstjórn- in er með þessari ákvörðun sinni að ganga þvert gegn grundvallaráherslu og markmiðum kjara- samninganna – markmiðum sem hún áður hafði tekið undir og samþykkt,“ segir síðan. Krefjast 18 þús. kr. hækk- unar á tryggingabótum 7,4% hækkun lífeyris frá áramótum – Tillögur um lágmarksframfærsluviðmið mótaðar MEÐALTALSHÆKKUN lægstu launa sam- kvæmt nýgerðum kjarasamningum ASÍ og SA nemur um 7% samkvæmt útreikningi fjár- málaráðuneytisins og hefur ríkisstjórnin ákveð- ið að hækka lífeyri almannatrygginga um 4% frá 1. febrúar. Hækkunin kemur til viðbótar 3,3% hækkun um áramót eða sem nemur 9.400 kr. miðað við óskertar bætur, að því er fram kemur í tilkynningu stjórnvalda. Þá hefur ríkisstjórnin ákveðið að láta móta tillögur að sérstöku lág- marksframfærsluviðmiði fyrir lífeyrisþega og á það að taka m.a. tillit til hækkunar lægstu launa í nýgerðum kjarasamningum og liggja fyrir eigi síðar en 1. júlí 2008 Framfærsluviðmið BÆNDASAMTÖKIN hafa orðið við ósk Samkeppniseftirlitsins um af- hendingu afrita af öllum fundargerð- um og þingskjölum Búnaðarþings 2008 og afrita af öllum fundargerð- um, samþykktum, ályktunum, sátt- um, minnisblöðum og tölvubréfum sem rituð hafa verið eftir 1. septem- ber á sl. ári. Samkeppniseftirlitið óskaði eftir gögnunum í kjölfar Búnaðarþings, sem haldið var 2.-6. mars sl., og segir í bréfi til Bændasamtakanna að stofnunin telji sig hafa séð vísbend- ingar þess í fjölmiðlum að Bænda- samtökin og einstök búnaðar- og bú- greinasamtök hafi seilst of langt í hagsmunagæslu fyrir félagsmenn sína. Er sérstaklega vitnað í frétt Morgunblaðsins 7. mars sl. undir fyrirsögninni „Sátt um hækkanir nauðsynleg.“ Í tilkynningu frá Bændasamtök- unum segir að samtökin telji að með málflutningi sínum hafi þau verið að uppfylla þá skyldu sína að gæta hagsmuna bændastéttarinnar og upplýsa neytendur um þróun í verð- lagsmálum. Óskuðu eft- ir gögnum ÓLÖF Pétursdóttir dómstjóri lést 20. þessa mánaðar en hún lenti í al- varlegu slysi í september 2006 og lamaðist frá hálsi. Listmálun hafði verið eitt helsta áhugamál hennar um margra ára skeið og hún tók til við að mála með munninum nokkru eftir slysið og hélt því áfram allt til dánardags. Var sú listsköpun henni til ómældrar ánægju. Fjölskylda Ólafar hefur nú stofn- að sjóð, Listasjóð Ólafar, til að heiðra minningu hennar. Er tilgang- ur hans að auðvelda hreyfihömluðum að fást við skapandi list. Tekið er við framlögum í sjóðinn á bankareikning 1105-18-640900, kt. 670308-1540. Af þessu tilefni hefur verið sett upp í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja- víkur sýning á verkum Ólafar Pét- ursdóttur bæði frá því fyrir og eftir slysið og verður hún opin frá kl. 15.00 til 18.00 laugardaginn 29. mars og frá klukkan 12.00 til 18.00 sunnu- daginn 30. mars. Listasjóður ÓlafarANNAN daginn í röð efndu at- vinnubílstjórar í gær til mótmæla á vegum úti með tilheyrandi umferð- artöfum, helst á höfuðborgarsvæð- inu en einnig á Reykjanesbraut, á leið til Suðurnesja. Aðgerðunum er beint til ráðamanna þjóðarinnar og verður vart látið af fyrr en hlustað verður á kröfurnar. Að sögn Sturlu Jónssonar atvinnubílstjóra eru þær einfaldar; að álögur á eldsneyti verði lækkaðar og bætt verði úr skorti á hvíldaraðstöðu á lands- byggðinni. Á fimmtudag voru það eingöngu bílstjórar vöruflutningabifreiða sem lokuðu vegum en í gær barst þeim liðsauki frá sendibílstjórum og leigubílstjórum. Aðgerðum verður haldið áfram á mánudag og segjast bílstjórar enn eiga eftir að spila út nokkrum trompum. Blaðamaður fréttavefjar Morg- unblaðsins, mbl.is, ræddi við nokkra bílstjóra í Ártúnsbrekku um hádegisbil í gær og var ekki annað á þeim að merkja en þeir styddu að- gerðirnar. Morgunblaðið/Júlíus Eiga enn inni tromp ♦♦♦ FLYTJA þurfti bifhjólamann til að- hlynningar á slysadeild Landspítal- ans eftir að árekstur varð innan hóps bifreiða og bifhjóla á Kringlumýrar- braut í gærkvöldi. Maðurinn hlaut að- eins minni háttar meiðsl við fallið í götuna. Maðurinn var þátttakandi í minn- ingarathöfn um bifhjólamann, sem lést í bifhjólaslysi á Kringlumýrar- braut 21. mars sl., og var borinn til grafar í gærdag. Bifhjólum og bifreið- um var ekið í fylkingu frá Hafnarfirði inn í Reykjavík. Á leiðinni virðist sem maðurinn hafi ekið bifhjóli sínu aftan á bifreið og við það kastast af hjólinu. Að sögn lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu kom minningarathöfnin, eða -aksturinn, henni á óvart og um tíma var talið að um frekari mótmæli gegn háu eldsneytisverði væri að ræða. Lenti í árekstri inn- an fylkingar bifhjóla ÓLAFUR Ragnarsson bókaútgefandi lést sl. fimmtudag á líknardeild Landspítalans, 63 ára að aldri. Hann fæddist á Siglufirði 8. september árið 1944. Foreldrar hans voru Guðrún Reyk- dal, húsmóðir og Þ. Ragnar Jónasson, bæj- argjaldkeri og fræði- maður. Ólafur stofnaði ásamt eiginkonu sinni bókafor- lagið Vöku árið 1981, sem síðar varð Vaka- Helgafell. Hann var framkvæmdastjóri þess og síðar stjórnarformaður Eddu – miðlunar. Hann var annar stofnenda bókafor- lagsins Veraldar árið 2005. Ólafur var lykilmaður í auknum vinsældum verka Halldórs Laxness eftir að for- lag hans keypti Helgafell árið 1985. Hann skrifaði samtalsbók við Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra árið 1981. Hann ritstýrði og skráði skýringar með efni bókanna Frelsi að leiðarljósi, úrvali úr ræðum Gunnars Thoroddsens, 1982, og greinasafni Halldórs Laxness, Af menníngarástandi, 1986. Ólafur tók saman og ritaði, ásamt Val- gerði Benediktsdóttur, bókina Lífsmyndir skálds sem fjallar um æviferil Halldórs Lax- ness og var gefin út 1992. Þá skrifaði hann bókina Halldór Lax- ness – Líf í skáldskap, sem gefin var út 2002 og bókina Halldór Lax- ness – Til fundar við skáldið, sem kom út síðastliðið haust. Í mars á þessu ári kemur út fyrsta ljóðabók Ólafs, Agn- arsmá brot úr eilífð. Ólafur er enn- fremur höfundur fjölda viðtala og greina í blöðum og tímaritum og hafði umsjón með gerð sjónvarpsþátta um margvísleg málefni. Ólafur tók verslunarpróf frá Versl- unarskóla Íslands árið 1963 og nam gerð kvikmynda- og sjónvarpsefnis hjá sjónvarpsstöðvum í Danmörku og Svíþjóð og síðar við Syracuse-háskóla í New York-ríki í Bandaríkjunum. Hann var kennari við Barnaskóla Siglufjarðar á árunum 1964-1965 og síðan blaðamaður á Alþýðublaðinu. Ólafur var fréttamaður og dagskrár- gerðarmaður hjá Sjónvarpinu frá stofnun þess 1966 til ársins 1976. Þá var hann ritstjóri dagblaðsins Vísis á árunum 1976-1980. Ólafur sat í stjórnum ýmissa nefnda og ráða í gegnum tíðina, var m.a. í stjórn Félags kvikmyndagerð- armanna og í stjórn Félags íslenskra bókaútgefenda og síðar formaður þess. Hann var sæmdur riddarakrossi hollensku Oranje-Nassau-orðunnar árið 1994 og riddarakrossi Hinnar ís- lensku fálkaorðu árið 2006. Á síðasta ári var hann gerður að heiðursfélaga Félags íslenskra bókaútgefenda. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Elín Bergs og eiga þau tvo syni, Ragnar Helga og Kjartan Örn. Morgunblaðið færir aðstandendum Ólafs samúðarkveðjur og þakkar fyr- ir farsælt samstarf í áratugi sem aldr- ei bar skugga á. Andlát Ólafur Ragnarsson HÉRAÐSDÓMARI féllst í gær á kröfu lögreglu um að framlengja til 18. apríl gæsluvarðhald yfir karl- manni sem grunaður er um að hafa ógnað með sprautunál við þrjú rán og eina ránstilraun í Breiðholti. Líkt og áður hefur komið fram teljast málin upplýst, en sökum almanna- hagsmuna mun maðurinn sitja áfram í varðhaldi. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst þá í gær á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að Pólverji, sem gaf sig fram við lögreglu á fimmtudag, sæti varðhaldi næstu þrjár vikur. Sá er grunaður um aðild að hrottalegri líkamsárás í Keilufelli í Breiðholti fyrir viku. Enn liggur ekki fyrir hvers vegna árásin var gerð. Sprautunálaræninginn áfram í gæsluvarðhaldi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.