Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjármálaráðherra hefur fyrirhönd íslenska ríkisins gertkröfur í þjóðlendur á vest-anverðu Norðurlandi sunnanverðu. tekur svæðið yfir hluta Suður-Þingeyjarsýslu, þ.e. sunnan og vestan Fnjóskár, hluta Eyjafjarð- arsýslu, þ.e. sunnan Hörgár að Öxnadalsá, en síðan sunnan Öxna- dalsár og Öxnadalsheiðar. Í Skaga- firði nær kröfusvæðið yfir svæði sem áður töldust til hreppanna Akra- hrepps, Lýtingsstaðahrepps og Seyluhrepps og hluta Austur-Húna- vatnssýslu, þ.e. Bólstaðarhlíðar- hrepp hinn forna vestur að Blöndu. Óbyggðanefndin hefur fengið kröfugerðina í hendur og kallar nú eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og hafa þeir þrjá mánuði til að koma kröfum sínum á framfæri. Nánar er þjóðlendukrafa ríkisins þannig að því er fram lemur í til- kynningu Óbyggðanefndar að í Suð- ur-Þingeyjarsýslu er gerð krafa til hluta Bleiksmýrardals vestan Fnjóskár og sunnan Skarðsár, vest- ur að sýslumörkum Eyjafjarðar- sýslu, og suður til öræfa. Í Eyjafjarðarsýslu er m.a. gerð krafa til svokallaðs Almennings sunnan Gönguskarðs, Tungnafjalla, afréttarsvæða Fram-Eyfirðinga fram af Sölvadal, til Núpufells- og Þormóðsstaðadals og Æsustaðat- ungna, hálendisins sunnan Klaufár í botni Eyjafjarðar, afréttarsvæðanna Sneisar, Strúgstungu og Hvassa- fellsdals, til hálendisins milli Eyja- fjarðardals og Öxnadals, þ.m.t. við Glerárdalshnjúk, Súlur, Vindheima- jökul, Tröllafjall, Bægisárjökul, til afréttar á Þverárdal, Almennings á Öxnadal, Seldalsfjalls og hluta Nýja- bæjarafréttar allt suður til öræfa að mörkun kröfulýsingarsvæða á miðhálendinu. Krefst Eyvindastaðarheiðar Í Skagafjarðarsýslu nær þjóð- lendukrafa til hluta svokallaðrar Silfrastaðaafréttar í Norðurárdal, sunnan Krókárgerðis og í Kinna- fjalli, Nýjabæjarafréttar, Hofsaf- réttar og Eyvindarstaðaheiðar, allt suður til öræfa suður um Hofsjökul, að mörkum kröfulýsingarsvæða á miðhálendinu. Að loknum kröfulýsingarfresti eft- ir þrjá mánuði fer fram heildarkynn- ing á kröfum sem standa mun í einn mánuð. Þjóðlendukröfum lýst á sunnanverðu Norðurlandi               !" #  $ !    %   &!"      #              '(   )(   Fjármálaráðherra gerir fyrir hönd íslenska rík- isins meðal annars kröfu til að Eyvindarstaðaheiði og Nýjabæjarafrétt allt suður um Hofsjökul verði lýst þjóðlenda og mörg fleiri svæði. STURLA Böðvarsson, forseti Al- þingis, segist í yfirlýsingu bera fullt traust til umboðsmanns Alþingis. „Vegna spurninga frá fjölmiðlum um þau ummæli, sem fjár- málaráðherra lét nýlega falla í bréfi til umboðsmanns Alþingis um störf hans, vil ég taka það fram að ég ber fullt traust til umboðsmanns Alþingis í hans mikilvægu störfum. Ég minni jafnframt á að núverandi umboðsmaður var endurkjörinn til næstu fjögurra ára í des. sl. og hlaut þá einróma stuðning Alþingis. Aðalatriði þessa máls er að mínu mati að umboðsmaður Alþingis fái starfsfrið til að ljúka athugun sinni á því máli, sem til hans hefur verið vísað, og geti gefið álit sitt á því eins og lög segja til um. Ég vonast einnig til að við frek- ari meðferð málsins hjá umboðs- manni leysist sá ágreiningur sem nú er uppi og fullt traust geti ríkt milli þingmanna og ráðherra ann- ars vegar og umboðsmanns Alþing- is hins vegar enda er það forsenda þess að embætti umboðsmanns geti sinnt hlutverki sínu og álit hans geti verið stjórnsýslunni til halds og trausts,“ segir í yfirlýsingu Sturlu. Fullt traust til umboðs- manns SIGURÐUR Þórðarson ríkis- endurskoðandi hefur með bréfi til forseta Alþingis óskað eftir því að láta af störfum frá og með 1. júlí nk. að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá Alþingi. Sigurður var fyrst ráðinn ríkisendurskoðandi um mitt ár 1992 og hefur því gegnt emb- ættinu í 16 ár þegar hann lætur af störfum. Sigurður var áður vararík- isendurskoðandi eða allt frá 1987 er Ríkisendurskoðun var færð undir Alþingi. Skv. lögum um Ríkisendur- skoðun mun forsætisnefnd Alþingis ráða nýjan ríkisendurskoðanda til sex ára. Ríkisendur- skoðandi hættir Sigurður Þórðarson „ÉG er mjög ánægður með fram- takið, mér finnst það alveg frá- bært,“ segir Stefnir Helgason, 78 ára íbúi við Hlíðarveg í Kópavogi. Stefnir er meðal þeirra eldri borg- ara sem fengu heimsókn frá mats- manni sem tók út öryggisaðstæður heima við. Stefnir er ekkjumaður og býr í einbýlishúsi. „Hann kom hér og athugaði lang- an lista af atriðum. Reykskynjara, handrið, gólfteppi, gólfmottur og margt fleira. Einnig grandskoðaði hann eldhúsið með tilliti til stað- setningar á eldavél og örbylgjuofni, eldvarnarteppi og fleiri hlutum. Það er eðlilegt að þetta sé allt sam- an skoðað, ekki síst í eldri húsum,“ segir Stefnir, en hann er stjórn- armaður í Félagi eldri borgara í Kópavogi. Virðingarvert framtak Ekki var talið að gera þyrfti breytingar á heimili hans, en hann segist þó feginn að hafa fengið full- vissu fyrir því að ekki séu slysa- hættur á heimilinu. „Mér finnst þetta nauðsynlegt fyrir fólk sem vill búa heima hjá sér lengi. Þetta átak er virðingarvert því fólk á ekki að þurfa að búa við hættur, hvorki duldar eða augljósar, heima hjá sér,“ segir hann. Mjög ánægður með framtakið Morgunblaðið/Valdís Thor Ánægður Stefnir segist hafa fengið fullvissu fyrir því að öryggisatriði væru í lagi á heimilinu, en hjá honum þurfti ekki að gera breytingar. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HÁTT í 900 heimili eldri borgara í Kópavogi hafa nú verið yfirfarin með hliðsjón af öryggisþáttum og aðstæður fólks á þeim heimilum metnar með tilliti til mögulegrar þarfar fyrir aðstoð félagsmálayfir- valda. Í þeim hluta verkefnisins var aðgætt hvort fólk væri einmana eða byggi við slæmar aðstæður. Niðurstaðan hvað það varðar var sú að 20 heimili þörfnuðust frekari skoðunar hjá félagsmálayfirvöld- um. Verkefnið var unnið á árinu 2007 í samstarfi við Slysavarna- félagið Landsbjörg og Securitas. Megintilgangurinn var sá að draga úr slysum aldraðra, en í til- kynningu frá Kópavogsbæ segir að fallslys í svefnherbergjum eða setustofu, flest tengd hálu gólfi, lé- legri lýsingu og lausum mottum séu algengasta tegund slysa. Heimili án slökkvitækja algeng Helstu niðurstöður könnunar- innar voru m.a. þær að aðkoma að húsum var í flestum tilfellum í góðu lagi, neðsta þrep í tröppum innanhúss var í næstum 20% til- vika ekki nógu greinilegt og gat þar af leiðandi skapað hættu á falli. Oft vantaði staman límborða fremst á þrep innandyra í sama til- gangi. Í ljós kom að einungis 16% eldri borgara í Kópavogi nota öryggis- hnapp og að brunavörnum var ábótavant. Í 30% tilfella vantaði slökkvitæki eða íbúar kunnu ekki á það. Í 7% tilvika heyrðist ekki í reykskynjurum í öllum herbergj- um, enda daprast heyrn oftar en ekki með árunum. Var bætt úr því, eins og segir í tilkynningunni, með því að fjölga skynjurum í viðkom- andi íbúðum. Þá þóttu aðstæður í svefnherbergjum langoftast í góðu lagi en gerð var athugasemd við að fleiri mættu nota næturljós. Íbúum boðnar öryggisvörur Framkvæmd verkefnisins var sem fyrr segir í höndum Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. Hjá þeim sem þáðu heimsókn var farið yfir öryggisatriði og íbúum boðnar öryggisvörur frá Securitas á kostn- aðarverði. Auk þess var skipt um rafhlöður í reykskynjurum. Íbú- arnir fengu einnig afhenta bækl- inga um starfsemi Kópavogsbæjar í þágu eldri borgara. Jafnframt var afhentur bæklingur um öryggis- hnappinn sem Securitas þjónustar. Þeir sem fengu heimsókn voru á aldursbilinu 75 ára til 96 ára gaml- ir. Bæjaryfirvöld í Kópavogi gerðu átak í öryggis- og félagsmálum eldri borgara Tæplega 900 heimili metin Í HNOTSKURN »886 af 1.300 heimilum eldriborgara í Kópavogi þáðu ör- yggisheimsókn frá matsmanni. »Ekki voru eldvarnarteppi í59% eldhúsa heimilanna, en jafnframt höfðu pottar nýlega gleymst á heitum hellum í 19% tilvika. »Ekkert handfang var viðsturtu eða baðkar á rúmlega helmingi heimilanna og ekki hitastillir á blöndunartækjum í 16% tilvika, svo eitthvað sé nefnt. ÞRETTÁN umsóknir bárust um embætti sýslumannsins í Kópavogi en umsóknarfrestur rann út 25. mars síðastliðinn. Dóms- og kirkju- málaráðherra skipar í embættið frá og með 1. júní til fimm ára í senn. Umsækjendur eru: Birna Sal- óme Björnsdóttir, aðstoðardeildar- stjóri hjá sýslumanninum í Reykja- vík, Bogi Hjálmtýsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins í Hafn- arfirði, Brynjar Kvaran, staðgeng- ill og skrifstofustjóri sýslumanns- ins í Kópavogi, Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu, Guðgeir Eyjólfs- son, sýslumaður í Keflavík, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðing- ur í dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu, Halldór Frímannsson, sér- fræðingur – lögmaður á fjármálasviði Reykjavíkurborgar, Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum, Kristín Völund- ardóttir, sýslumaður á Ísafirði, Ólafur Hallgrímsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins á Ísa- firði, Sigríður Eysteinsdóttir, lög- lærður fulltrúi í sifja- og skipta- deild sýslumannsins í Reykjavík, Úlfar Lúðvíksson, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Reykjavík, Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík. 13 umsóknir ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.