Morgunblaðið - 29.03.2008, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rannsóknum
vegna ákæru á
hendur græn-
lenska stjórn-
málamanninum
Jonathan Motz-
feldt var hætt í
gær að því er
kom fram í dag-
blaðinu Berl-
ingske tidende.
Grænlensk kona er starfaði á
skrifstofu grænlenska landsþingsins
kærði Motzfeldt fyrir kynferðislega
áreitni sem að sögn konunnar átti
sér stað er hún var gestur á heimili
Motzfeldts. Rannsókn lögreglu þótti
ekki sýna fram á að umrætt afbrot
hefði átt sér stað „kæran hefur verið
felld niður meðal annars vegna þess
að ákærandi gat ekki gert grein fyr-
ir því í hverju brotið hefði falist,“
sagði Steen Silberg Thomsen, lög-
reglustjóri á Grænlandi.
Motzfeldt hætti störfum sem for-
maður grænlenska landsþingsins
fyrr á árinu og þótti sú ákvörðun
tengjast ákærunni. Hann hefur setið
áfram á grænlenska landsþinginu og
haldið öðrum stöðum sínum. Motz-
feldt, sem er 69 ára, hefur verið í
forystusveit grænlenskra stjórn-
málamanna frá því á áttunda áratug
síðustu aldar.
Ákæra á hendur Jonathan
Motzfeldt var felld niður
Jonathan Motzfeldt
Havana. AP. | YFIRVÖLD á Kúbu til-
kynntu í gær að landsmönnum yrði
heimilt að eignast farsíma, nokkuð
sem hingað til var aðeins mögulegt
lykilmönnum ríkisins eða starfs-
mönnum erlendra fyrirtækja.
Hingað til hafa Kúbumenn þurft
að beita klækjabrögðum og fengið
þjónustusamninga í gegnum þriðja
aðila.
Símarnir verða þó líklega of dýr-
ir fyrir almenna borgara, en rík-
issímafyrirtækið ETECSA hyggst
bjóða almenningi fyrirframgreidda
samninga sem jafnast á við 24-föld
laun kúbverskra launþega.
Farsímaeign heimiluð á Kúbu
Nýr forseti Vonir standa til að Raúl
Castro muni aflétta fleiri bönnum.
LÖNGUNIN í kökur, ís eða súkkulaði hefur samkvæmt nýrri bandarískri
rannsókn ekkert með skynjun bragðlaukanna að gera. Vísindamenn við
Duke-háskóla segja það heilann sem skynji að slíkur matur sé hitaein-
ingaríkur. Við neyslu vilji heilinn „verðlauna“ fólk með því að senda út
hormón er geri það hamingjusamt. Þessi vitneskja gæti hjálpað til í baráttu
við offitu ef unnt verður að skrúfa fyrir hamingjuna sem fylgir sætum mat.
Heilinn skynjar sætabrauðið
STUTT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
RÍKISFJÖLMIÐLARNIR í Sim-
babve spáðu því í gær að Robert
Mugabe yrði endurkjörinn forseti
landsins í kosningum sem fram fara
í dag. Tveir keppinautar hans sök-
uðu stjórnvöld í Harare um stórfelld
kosningasvik til að tryggja að Mu-
gabe héldi völdunum.
Dagblaðið Herald, málgagn
stjórnarinnar, sagði skoðanakann-
anir Simbabve-háskóla benda til
þess að 56-57% myndu kjósa Mug-
abe, 26-27% Morgan Tsvangirai,
leiðtoga Lýðræðishreyfingarinnar
(MDC), og aðeins 13-14% Simba
Makoni, óháðan frambjóðanda og
fyrrverandi fjármálaráðherra.
Nokkrar skoðanakannanir voru
gerðar í aðdraganda kosninganna en
erfitt er að meta trúverðugleika
þeirra vegna þess að margir kjós-
endanna vildu ekki segja frá því
hvern þeir hygðust kjósa.
Fái enginn rúm 50% atkvæðanna
þarf að kjósa á milli tveggja efstu
frambjóðendanna innan þriggja
vikna og nokkrir stjórnmálaskýr-
endur sögðu að ekki væri víst að
Mugabe fengi svo mikið fylgi. „Flest
bendir til þess að enginn pólitísku
keppinautanna þriggja fái hreinan
meirihluta atkvæða,“ sagði Eldred
Masungure, lektor í stjórnmálafræði
við Simbabve-háskóla í Harare.
„Simbabvemenn ættu að búa sig
undir aðra lotu.“
Framliðnir kjósendur
Stjórnarandstæðingar í Simbabve
segja ráðamennina beita ýmsum
brögðum til að tryggja Mugabe sig-
ur. Þeir hafi til að mynda látið
prenta alltof marga kjörseðla og á
kjörskránum séu tugir þúsunda
nafna sem ekki eigi að vera þar, svo
sem fólk sem er löngu látið eða hef-
ur aldrei verið til. Margir stuðnings-
manna Mugabe eru sagðir vera
skráðir í fleiri en einu kjördæmi,
þannig að þeir geti kosið hann oftar
en einu sinni.
Stjórnarandstaðan sakar einnig
ráðamennina um að veita aðeins
stuðningsmönnum stjórnarflokksins
matvælaaðstoð og hindra að keppi-
nautar forsetans fái sanngjarnan að-
gang að ríkisfjölmiðlunum.
Stjórnmálaskýrendur segja að
óeining stjórnarandstöðunnar sé
vatn á myllu forsetans. „Líkurnar á
að stjórnarandstöðunni tækist að
sigra Mugabe væru miklu meiri ef
hún hefði náð samkomulagi um einn
framjóðanda,“ sagði Steven Gruzd,
fræðimaður við suður-afrísku al-
þjóðamálastofnunina í Jóhannesar-
borg.
Um 80% atvinnuleysi
Mugabe er orðinn 84 ára, er elsti
þjóðhöfðingi Afríku og hefur verið
við völd í 28 ár, eða frá því að Sim-
babve fékk sjálfstæði.
Simbabve var þá lýst sem matar-
kistu Afríku vegna mjög blómlegs
landbúnaðar en nú er svo komið að
helmingur landsmanna þjáist af van-
næringu þrátt fyrir matvælaaðstoð
hjálparstofnana Sameinuðu þjóð-
anna. Er þetta einkum rakið til
þeirrar ákvörðunar Mugabes á síð-
asta áratug að taka búgarða hvítra
bænda eignarnámi. Flestum bú-
jarðanna var úthlutað til stuðnings-
manna forsetans sem höfðu enga
þekkingu á landbúnaði, þannig að
framleiðslan snarminnkaði.
Verðbólgan í Simbabve er rúm
100.000% samkvæmt síðustu hagtöl-
um, miklu meiri en í Weimar-lýð-
veldinu þegar Þjóðverjar fylltu hjól-
börur af peningaseðlum til að geta
keypt í matinn. Um 70 milljónir Sim-
babve-dollara (ZWD) fást nú fyrir
einn Bandaríkjadollar, ekki 0,68
ZWD eins og þegar gjaldmiðillinn
var tekinn upp árið 1980.
Margir Afríkubúar líta á Mugabe
sem frelsishetju og dást að honum
fyrir að bjóða gömlu nýlenduveld-
unum birginn. Hann gat lengi stært
sig af umbótum í heilbrigðis- og
menntamálum en félagslegri þjón-
ustu ríkisins hefur hnignað síðustu
árin og heilbrigðiskerfið er hrunið.
Áætlað er að um fimmtungur allra
fullorðinna íbúa landsins hafi smit-
ast af alnæmisveirunni og lífslíkur
landsmanna eru nú aðeins 37 ár í
stað nær 60 ára á níunda áratugn-
um.
Um 80% vinnufærra landsmanna
eru án atvinnu. Áætlað er að allt að
70% Simbabvemanna á aldrinum 18-
60 ára hafi flúið land og hefur land-
flóttanum verið líkt við straum
írskra innflytjenda til Bandaríkj-
anna vegna hungursneyðarinnar á
Írlandi á árunu 1845-1852. Flestir
læknar og hjúkrunarfræðingar Sim-
babve hafa flust þaðan til landa á
borð við Bretland og skortur er á
nánast öllu í sjúkrahúsunum, jafnvel
sáraumbúðum og verkjalyfjum.
!"
#$$%&
!
"
#$ %&#'
!"#
()
$
%
* $( $+%$$* ,-+%. %$
$ .
/.*% / 0$/$ &
0$ 0 012,34$ 5..%
% 6
& % & %((((%(( '
($)*+
($%
((((%(((% ) 13367,3
*
886919
*
169,1
*
72,+:7
( :+3
((
-9+1
);<=>?$@
+
, -./*0
1 " 1 13 133 9
6A
23
3 3
:3
6A
129-,4
56
!73
8 5 .+
,9 77,4:
7
1271,;5 5<=5$
,>:
77, 7
1281,+ 5 .
?
@
A
B
CD -.AD0
128B,3 + .AD35:'>55
5 7.
?
@5
D -.D0
128-,$5
1 B: 5
5
E3 8 3
12:-,F
157< 35:'>55
133 7BB87 +
5 .D
12:8,G
53 .D
5.AD3<+
5 : 7 .D,A=
12,3,F 9 7 5 > 58 3
!73
+ 85 >
12,:,H E
5 7 E
((((3
(<CD EC
122,, 3
BB
5 :
37
57 3+
5E+
I 9 37 157
!3J+3
1222,FI8
1 3 -!*K05 77
157J+3
9333,= 7!73
3 ' 3 37
77
3+
6
87!73
5:7'>55 > 58 >557 E377 3I + 5
83E37'>
3 '7: E3
3
9331,5 :
'15
I
175
3>
3
3'+ "
5587
57
5 + 7
857>< E7
9339,!73
3 J+3 37
5 5
E771 +E 7
3+
+
+ <"
+
7
933B, ' :3
1 :7 : 37
+
+
< :7
+
33
7
+
3 3<
+
7
933:,J+3
'1
5 3
5
1 5'>55
:5
8 3E37
1 +E
E 7
L
&L
L
L
Óeining andstæðinga
vatn á myllu Mugabes
Stjórnarandstaðan sakar ráðamennina um kosningasvik
Í HNOTSKURN
» Morgan Tsvangirai hefurverið helsti leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar frá 1999 og sætt
gagnrýni í flokki sínum fyrir að
vera of ráðríkur. Sú ákvörðun
hans að sniðganga þingkosn-
ingar árið 2005 varð til þess að
hann missti stuðning helmings
þingmanna flokksins.
» Simba Makoni, annað for-setaefni, sagði af sér embætti
fjármálaráðherra árið 2002 eftir
að Mugabe forseti hafnaði tillögu
hans um gengisfellingu.
Kynning á n‡ju vorvörunum frá
Oroblu í Lyfjum og heilsu, Kringlunni
laugardaginn 29. mars kl. 13-17.
Kaupauki
fylgir vöru frá Oroblu