Morgunblaðið - 29.03.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 17
Amsterdam. AFP. | Leiðtogar múslíma
í Hollandi hvöttu í gær trúbræður
sína í öðrum löndum til að ráðast
ekki á Hollendinga eða hollensk
sendiráð til að mótmæla stuttmynd
sem hollenski þingmaðurinn og
hægrimaðurinn Geert Wilders hefur
birt á netinu. Í stuttmyndinni, sem
nefnist „Fitna“, gagnrýnir Wilders
íslam, birtir myndir af hryðjuverk-
um íslamskra öfgamanna og tengir
þau við vers í Kóraninum.
Stjórnvöld í löndum múslíma for-
dæmdu myndina. Jórdanskir fjöl-
miðlar sögðust ætla að höfða mál
gegn Wilders og skoruðu á alla Jórd-
ana að kaupa ekki hollenskar vörur í
mótmælaskyni. Þeir hvöttu einnig
stjórn Jórdaníu til að íhuga þann
möguleika að slíta stjórnmálasam-
bandi við Holland.
Um 5% íbúa Hollands, eða um
850.000 manns, eru múslímar. Um
38% þeirra eru af tyrkneskum ætt-
um en 31% marokkóskum. Mohamed
Rabbae, leiðtogi samtaka hollenskra
Marokkómanna, hvatti múslíma í
öðrum löndum til að ráðast ekki á
hollensk sendiráð eða Hollendinga.
„Árás á Holland er árás á okkur,“
sagði Rabbae.
Jan Peter Balkenende, forsætis-
ráðherra Hollands, fordæmdi stutt-
myndina og hrósaði hollenskum
múslímum fyrir að bregðast við
henni „með mikilli reisn“.
Múslímar hvattir til að
ráðast ekki á Hollendinga
Reuters
Umdeild mynd Stuttmynd Geerts Wilders mótmælt í Amsterdam.
BANDARÍSK-
AR herþotur
gerðu í gær
sprengjuárásir á
liðsmenn Mahdi-
hersins í borginni
Basra í Suður-
Írak þar sem
íraskar öryggis-
sveitir hafa barist
við vopnaða
stuðningsmenn sjíaklerksins Moq-
tada al-Sadr. Nær 170 manns liggja í
valnum eftir átök öryggissveitanna
og liðsmanna Mahdi-hersins í Basra,
hverfum sjíta í Bagdad, Hilla, Kut og
Nasiriyah.
Alþjóðlegar hjálparstofnanir
sögðust hafa miklar áhyggjur af
ástandinu í Basra og hvöttu örygg-
issveitirnar og Mahdi-herinn til að
hætta átökunum til að greiða fyrir
flutningi á hjálpargögnum til borg-
arinnar.
Nuri al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, hét því að halda áfram hern-
aðinum gegn liðsmönnum Mahdi-
hersins þrátt fyrir harða mótspyrnu
þeirra, mótmæli stuðningsmanna
þeirra og mikið mannfall.
Forsætisráðherrann veitti íbúum
Basra frest til 8. apríl til að afhenda
vopn sín gegn greiðslu. Þriggja daga
frestur, sem liðsmenn Mahdi-hers-
ins í Basra höfðu fengið til að afvopn-
ast, rann út í gær.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti fagnaði aðgerðum írösku örygg-
issveitanna og sagði þær sanna að
stjórnin í Bagdad gæti varið sig.
Býður
greiðslu
fyrir vopn
Nuri al-Maliki
SVARTA svaninum Petru og hjóla-
bátnum hennar hefur verið sleppt á
ný út á vatn í námunda við dýragarð-
inn í Münster í Þýskalandi. Fyrir
nokkrum árum varð Petra svo hrifin
af bátnum, sem er í svanslíki, að hún
fékkst ekki til að yfirgefa hann þegar
átti að færa hana yfir í dýragarðinn
til vetrardvalar. Hjólabáturinn var
því færður með henni.
Petra felldi hug til raunverulegs
svans fyrir nokkru, en er sá svanur
brást henni ákvað hún að taka upp
samband sitt við hjólabátinn að nýju.
Forstjóri dýragarðsins segir full-
snemmt að segja til um hvort Petra
muni halda tryggð við bátinn til
framtíðar.
Svanur elsk-
ar hjólabát
Par Petra sæl með bátnum sínum.
MPA
meistaranám í opinberri stjórnsýslu
Stjórnmálafræðideild
www.mpa.hi.is
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ
HÁSKÓLI ÍSLANDS
2008 – 2009
Umsóknarfrestir 15. apríl og 5. júní
Möguleg sérhæfing
á ellefu fagsviðum
Háskóla Íslands
• Umhverfisstjórnun
• Lýðheilsuvísindum
• Stjórnun menntastofnana
• Stjórnsýslurétti
• Alþjóðasamskiptum
• Hagnýtum jafnréttisfræðum
• Evrópurétti
• Umhverfis- og auðlindarétti
• Upplýsingastjórnun og
rafrænum samskiptum
• Þjóðarétti
• Viðskipta- og skattarétti
Nýttu þér faglegan styrk
og fjölbreytni Háskóla Íslands
Einnig er boðið upp á diplómanám
í opinberri stjórnsýslu sem svarar
misserisnámi, og fjarnám
Ítarlegur kynningarbæklingur
fáanlegur og nánari
upplýsingar á:
www.mpa.hi.is
Ei
nn
, t
ve
ir
og
fl
rír
3
67
.0
13