Morgunblaðið - 29.03.2008, Síða 45

Morgunblaðið - 29.03.2008, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 45 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur á sunnudagskvöld kl. 21. Ath. breyttan tíma. Klassík leikur fyrir dansi Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú-ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar vinnustofur og spilasalur, dans, kór- starf o.m.fl. Postulínsnámskeið hefst þriðjud. 8. apríl kl. 13, kennari Sig- urbjörg Sigurjónsd. Þriðjud. og föstud. er létt ganga um nágrennið. Mánu- daga og miðvikudaga kl. 9.50 eru vatnsleikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Hæðargarður 31 | Müllersæfingarnar kl. 9.15, Bör Börsson kl. 11 í Baðstof- unni á þriðjudögum. Bókmenntafólk er minnt á Akureyraferð 14.-16. maí, kíkið við í morgunkaffi í Betri stofunni og kynnið ykkur dagskrána. Lista- smiðjan er alltaf opin, uppl. í Ráða- gerði í s. 568 3132. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ- landsskóla, Víðigrund, kl. 9.30-10.30, uppl. í síma 564 1490. Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfundur verður 1. apríl í Garðaholti kl. 20. Kaffinefnd kvöldsins skipa hverfi 2, 4, 13 og 20, kaffinefnd mætir kl. 19. Stjórnin.www.kvengb.is. Kirkjustarf Hvammstangakirkja | Gospelmessa sunnudaginn 30. mars kl. 11, gospelkór Akureyrar og Gospelkórinn KICK ann- ast tónlistina. Kolaportið | Helgihald er í Kolaport- inu kl. 14. Fyrirbænum er safnað frá kl. 13.30, á meðan Þorvaldur Hall- dórsson leikur sálma og ýmis lög, eig- in og annarra. Sr. Bjarni Karlsson pre- dikar. Prestar, djáknar og sjálfboðaliðar leiða stundina. Mið- borgarstarfið. 90ára afmæli. Sunnudaginn30. mars verður níræður Ragnar Björnsson, fæddur í Vet- urhúsum á Jökuldalsheiði frosta- veturinn mikla 1918, Breiðvangi 28 Hafnarfirði, fyrrverandi mat- sveinn. Ragnar tekur á móti gest- um á afmælisdaginn í sal Flens- borgarskóla milli kl. 16 og 18. Gjafir og blóm afþökkuð en söfn- unarbaukur Karlakórs Þrasta mun verða á staðnum. Brúðkaup | Gefin voru saman í hjónaband 15. mars síðastliðinn Kristrún Guðmunds- dóttir og Ævar Freyr Ævarsson. Þau eyða hveitibrauðsdögunum á Kanaríeyjum. dagbók Í dag er laugardagur 29. mars, 89. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Því getum við öruggir sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér? (Hebr. 13, 6.) Endurmenntun HÍ býðurupp á stutt námskeiðnæstkomandi mánudagum fósturskaða vegna áfengisneyslu á meðgöngu, áhrif hans á einstaklinga og hvað starfs- menn heilbrigðiskerfis og hegning- arkerfis þurfa að vita. Þar flytur erindi Kathryn Kelly sem unnið hefur við rannsóknir og ráðgjöf á þessu sviði í samstarfi við háskólann í Washington. Eitt barn af hundrað „Um eitt af hverjum hundrað börnum fæðist skaðað vegna áfeng- isneyslu móður. Áfengisneyslan skaðar heilaþroskann og getur skað- inn verið skeður áður en móðirin ger- ir sér grein fyrir að hún er ólétt enda geta hjá flestum konum liðið 30 dag- ar frá getnaði þar til vart verður frá- vika í tíðahring og í sumum tilvikum geta liðið tveir mánuðir til viðbótar þar til ólétta er staðfest. Á þessum tíma getur hversdagsdrykkja valdið fóstrinu skaða,“ útskýrir Kathryn. Áhrifin birtast einkum í skertri dómgreind og námshæfileikum en Kathryn segir einstaklinga með skaða af þessu tagi einnig vera í meiri hættu á að ánetjast fíkniefnum: „Nýleg sænsk rannsókn sýndi fram á tengsl áfengisneyslu móður á með- göngu og slakari námsárangurs og starfsframa á fullorðinsaldri. Rann- sókn var jafnframt gerð á ungum af- brotamönnum í Bresku Kólumbíu í Kanada og kom í ljós að um 23% þeirra sýndu einkenni þess að hafa orðið fyrir skaða á fósturstigi vegna áfengis,“ útskýrir Kathryn. „Önnur rannsókn sýndi fram á að af þeim einstaklingum sem orðið hafa fyrir skaða af þessu tagi hafa um 60% komist í kast við lögin og um 50% verið vistaðir í fangelsi, á geðdeild eða verið lagðir inn á fíknarmeðferð- arstofnun.“ Þörf á vitundarvakningu Kathryn segir því ekki aðeins mik- ilvægt að væntanlegar mæður séu meðvitaðar um þau áhrif sem áfeng- isdrykkja á meðgöngu getur haft á þroska barnsins þeirra, heldur þurfi fagaðilar í löggæslu, dómskerfi og heilbrigðiskerfi að gera sér grein fyr- ir þeim möguleika að einstaklingar í þeirra umsjá kunni að hafa orðið fyr- ir slíkum skaða og geti þess vegna þurft á sérstökum úrræðum að halda. Námskeiðið er frá kl. 8.30 til 11.30 í húsnæði Endurmenntunar, Dun- haga 7. Finna má nánari upplýsingar á slóðinni www.endurmenntun.hi.is Heilsa | Fyrirlestur um víðtæk áhrif fósturskaða vegna áfengisneyslu Þurfa sérstaka meðferð  Kathryn Kelly fæddist í Wichita í Kan- sas árið 1936. Hún lauk BA- gráðu í fé- lagsfræði frá ríkisháskól- anum í Loui- siana og á að baki áratuga- langan feril sem skilorðseftirlits- fulltrúi en er nú verkefnastjóri Fe- tal Alcohol and Drug Unit við háskólann í Washington. Kathryn á tvær dætur. Tónlist Bar 11 | Númer Núll og Viðurstyggð fremja rokk og læti á Bar 11 í kvöld. Vesenið hefst kl. 22.30, fáið eyrnatappa lánaða hjá ömmum ykkar og slammið. Norræna húsið | Íslensk fagotttónlist á 15:15-tónleikum kl. 15:15 á sunnudag. Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari frumflytur einleiksverk eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Atla Heimi Sveinsson og leikur ásamt Guð- rúnu Óskarsdóttur semballeikara verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Jónas Tómasson. Myndlist Norræna húsið | „Norrænar hugrenningar frá Mexíkó“ er heiti sýningar dönsku text- íllistakonunnar Trine Ellitsgaard. Sýningin stendur til 6. apríl. Listakonan hefur verið búsett í Mexíkó sl. tuttugu ár og bera verkin á sýningunni það með sér. Nánari upplýs- ingar á www.nordice.is. Skemmtanir Reiðhöll Fáks í Víðidal | Stórsýningin Æsk- an og Hesturinn 2008 fer fram í Reiðhöll- inni í Víðidal helgina 29.-30. mars og er þetta 17. sýningarárið. Tvær sýningar verða hvorn dag, kl. 13 og 16. Fyrir hönd Æskunnar og hestsins. SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður í Von, Efstaleiti 7, í dag. Vistin hefst kl. 20, og dansað verður að henni lokinni. Hljóm- sveitin Furstarnir leikur fyrir dansi. Mannfagnaður Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirð- ingabúð sunnudaginn 30. mars kl. 14. Þriðji dagur í þriggja daga keppni. Sjá nánar á heimasíðunni www.bf.is. Kvikmyndir Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs | Al- þjóðleg kvikmynda- og vídeólistahátíð byrj- ar í dag í Sláturhúsinu – Menningarsetri á Egilsstöðum kl. 20. Um 100 myndir verða sýndar í vikunni, dagskrá má finna á heima- síðunni www.700.is. Fyrirlestrar og fundir Kvenfélagið Fjallkonurnar | Fundur verður þriðjudaginn 1. apríl kl. 20, í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Umræðuefnið er hreyf- ing og hollur matur. Tjarnarbíó | Málþing um Elías Mar. Þingið hefst með gönguferð kl. 13.30, leið- sögumaður er Hjálmar Sveinsson. Málþingið hefst kl. 14, þá verða flutt 5 erindi um skáld- sögur hans og útgefanda; um íslenskt sam- félag eins og það birtist í sögum hans. Einn- ig verður rætt um hina leyndardómsfullu frásögn Þórðar Sigtryggssonar sem Elías skráði á árunum 1960-1965. Frístundir og námskeið Mímir símenntun ehf. | Ensku- og spænsk- unámskeið hefjast hjá Mími símenntun í byrjun apríl. Skráning í síma 580 1808 og á www.mimir.is. FRÉTTIR LIÐ Cambridge-háskóla tók á hon- um stóra sínum á æfingu í gær fyrir róðrarkeppni á móti Oxford-há- skóla sem er af mörgum talin lang- lífasti íþróttaviðburður í heimi, en hún fer fram í dag í 154. skipti. Keppnin er ómissandi liður í ensku samkvæmislífi og fjöldi fólks mætir til þess að hvetja sitt lið. Reuters Halda við hefðinni Í DAG, laugardag, klukkan 13, hef- ur verið boðað til mótmæla fyrir ut- an kínverska sendiráðið við Víðimel í Reykjavík. Tilgangur mótmælana er tvíþættur samkvæmt tilkynningu frá fundarboðendum; að þrýsta á kínversk yfirvöld að virða mann- réttindi Tíbeta og hleypa alþjóðleg- um mannréttindasamtökum inn í landið og að sýna Tíbetum stuðning í þeirra baráttu fyrir frelsi í sínu eigin landi. Mótmæli við sendiráð FASTEIGNAFÉLAGIÐ Festar ehf hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Á undanförnum dögum hefur því margsinnis verið haldið fram á opinberum vettvangi að eigendur gamalla húsa í miðborg Reykjavík- ur láti þau standa auð og drabbast niður til þess að niðurrif þeirra verði heimilað. Nú síðast mátti sjá þetta álit í yfirlýsingu frá Torfu- samtökunum, og voru áform Festa um nýbyggingar á svokölluðum Hverfisgötureit meðal annars gerð þar að umtalsefni. Í tilefni þessarar umræðu vilja Festar koma því á framfæri að fé- lagið hefur um langa hríð átt í við- ræðum við borgaryfirvöld um heildstæða uppbyggingu á reitnum og í sameiginlegri yfirlýsingu Festa og Skipulagssjóðs Reykja- víkurborgar frá febrúar 2007 kem- ur fram að gert er ráð fyrir endur- skoðun á deiliskipulagi hans. Markmið þessa samstarfs er að finna lausn sem líkleg er til að sætta ólík sjónarmið um útlit og byggingarmagn í löngu tímabærri endurreisn miðborgarinnar. Hluti þeirra húsa sem fjarlægð verða voru keypt af Skipulagssjóði til niðurrifs og áformað er að nokkur önnur hús á reitnum verði jafn- framt fjarlægð. Hagsmunir Festa af því að láta þau standa auð með tilheyrandi sjónmengun og slysa- hættu eru því engir. Því miður hafa pólitískir svipti- vindar síðustu missera í stjórn- kerfi borgarinnar valdið ófyrirséð- um töfum í viðræðum Festa og borgaryfirvalda. Af þeim ástæðum hefur skapast óþægilegt millibils- ástand sem vonandi mun ljúka hið allra fyrsta. Festar taka undir þær áhyggjur af öryggismálum í mann- lausum húsum sem komið hafa fram að undanförnu og undirstrika að af hálfu félagsins er eindreginn vilji til að fjarlægja húsin tafar- laust og ganga frá lóðum þeirra með viðunandi hætti þar til bygg- ingarframkvæmdir geta hafist. Samkvæmt gildandi verklags- reglum borgaryfirvalda fæst hins vegar ekki heimild til niðurrifs fyrr en skipulagsráð hefur sam- þykkt teikningar af því sem byggt verður í staðinn. Festar óskuðu fyrr í vikunni eft- ir fundi með slökkviliðsstjóra um öryggismál í þeim húsum sem nú bíða niðurrifs. Að tilmælum hans hafa Festar tekið ákvörðun um að loka þeim eins vel og auðið er. Á það er hins vegar bent að aldrei er hægt að útiloka innbrot í auð hús né heldur hugsanlega íkveikju eða önnur skemmdarverk í þeim. Vel lokað hús varnar fólki vissulega inngöngu en það getur líka lokað fólk inni ef neyðarástand skapast. Kirfileg lokun húsanna getur því orðið mikil slysagildra, bæði fyrir hugsanlegt hústökufólk og t.d. slökkviliðsmenn sem þar þyrftu að athafna sig. Þess vegna láta Festar í ljós von um að fá sem allra fyrst heimild til að fjarlægja þau hús sem borg- aryfirvöld hafa þegar tekið ákvörðun um að verði rifin. Ein- ungis þannig verður yfirvofandi hættu á frekari óhöppum eytt auk þess sem ásýnd svæðisins yrði við- unandi þar til nýframkvæmdir geta hafist.“ Festar loka húsum á Hverfisgötureit LEIKLISTARNÁMSKEIÐ fyrir fullorðna hefst fimmtudaginn 3. apríl og eru allir 16 ára og eldri velkomnir. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja fá útrás fyrir sköpunargleðina í spuna og leik og hefur dreymt um að leika og þá sem hafa eitthvað leikið og vilja rifja upp. Þá geta þeir sem ætla sér í frekara leiklistarnám einn- ig skráð sig og er boðið upp á auka- nám fyrir þá sem ætla að sækja um leiklistarskóla, hvort sem er hér heima eða erlendis. Á námskeiðinu verða kenndar almennar leiklist- aræfingar, framsögn og framkoma en aðaláherslan verður lögð á sköp- unargleði og tjáningu. Kennarar eru leikarar og leiklistakennarar. Leik- listartímarnir verða á fimmtudögum kl. 20-22 í Bolholti 4, 4. hæð. Nám- skeiðið kostar 18.000 kr. og verður einu sinni í viku í fimm vikur, segir í fréttatilkynningu. Frekari upplýs- ingar fást á iceolof@hotmail.com. Leiklistarnámskeið fyrir fullorðna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.