Morgunblaðið - 29.03.2008, Page 48

Morgunblaðið - 29.03.2008, Page 48
Hafði aldrei fyrirhitt jafn mikið af svölum mönnum á einum og sama staðnum … 52 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is UPPSETNING Vesturports á Kommúnunni eftir Lukas Mood- ysson sem sýnd er í Borgarleikhús- inu um þessar mundir verður sýnd í Mexíkó dagana 9. til 18. apríl. Fyrst verða þrjár sýningar í höf- uðborginni Mexíkó en svo verða þrjár sýningar í Guadalajara, heimabæ Gaels García Bernal sem leikur eitt af aðalhlutverkunum í sýningunni. Bernal er stórstjarna í Mexíkó og þarf því engum að koma á óvart að nú þegar er uppselt á allar sýningarnar sex í heimalandi hans, en alls voru um 12.000 miðar í boði. Sami leikhópur setur verkið upp í Mexíkó og í Reykjavík en á sýningunum í Guadalajara mun Ilmur Kristjánsdóttir taka við hlut- verki Elenu Anaya sem þarf frá að hverfa vegna hlutverks í bíómynd. Síðustu sýningar á Kommúnunni í Borgarleikhúsinu verða í kvöld og svo 3. og 4. apríl. Aðsókn að sýn- ingunni hefur verið mjög góð og var því gripið til þess ráðs að flytja hana af Nýja sviðinu yfir á Stóra sviðið síðustu sýningardagana. Sýn- ingin í kvöld verður að vísu á Nýja sviðinu þar sem Jesus Christ Su- perstar verður sett upp á því stóra. Leikstjóri Kommúnunnar er Gísli Örn Garðarsson. Seldu 12.000 miða í Mexíkó Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Kommúnan Nokkrir af leikurunum í sýningunni sem eru á leið til Mexíkó.  Óvænt starfs- reynsla bættist við ferilskrá starfsmanna Hellisheiðarvirkj- unar um páska- helgina þegar starfsmennirnir tóku að sér auka- hlutverk í stuttmynd Gaels Garcia Bernal sem hann vinnur nú að fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Bernal nýtur hjálpar kvikmyndafyrirtækisins True North við gerð myndarinnar en hún segir frá einum af átta lang- tímamarkmiðum Sameinuðu þjóð- anna sem samþykkt voru af 189 ríkjum árið 1990 og lúta að heilsu- fari, fæðuöflun, menntun og meng- un svo eitthvað sé nefnt. Stefnt er að því að þessum markmiðum verði náð fyrir árið 2015. Með aðalhlut- verk í stuttmyndinni fara þeir Ingv- ar E. Sigurðsson og Atli Rafn Sig- urðsson. Ingvar E og Atli Rafn í góðum félagsskap  Það á ekki af hljómsveitinni Dal- ton að ganga, en eins og fram kom á dögunum skarst söngvari sveit- arinnar á hálsi í líkamsárás sem hann varð fyrir á Höfn í Hornafirði um síðustu helgi. Var hann þá flutt- ur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem gert var að sárum hans. Hlaut hann 50 spor á hálsi en hafði áður en yfir lauk misst um tvo lítra af blóði. Nú í gær henti það svo hljómsveitina á meðan hún lék á há- degistónleikum í Versló að eldur kviknaði í rútu hennar sem stóð fyrir utan skólann. Ef hægt er að finna jákvæðan flöt á þessum skakkaföllum þá er hann sá að æ fleiri spyrja nú: Hvaða hljómsveit er þetta eiginlega? Hrakfallabálkar Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ELÍN Hansdóttir myndlistarkona var önnum kaf- in við að sparsla upp í rifur á um 60 metra löngum gangvegi, sem hún var að byggja í Berlín, þegar hringt var í hana. Seinni partinn í gær opnaði hún síðan sýningu á þessari stóru innsetningu í Maribel Lopez Gallery; inn- setningu sem fyllir upp í öll þrjú rými gallerísins. Á listahá- tíð 2005 vakti verk Elínar at- hygli, en þar byggði hún göng í gegnum Edinborgarhúsið á Ísafirði. „Þetta er áþekkur strúktúr en byggður öðruvísi og myrkur inni í honum, nema á nokkrum stöðum kemur birta inn um rifur,“ segir Elín. Sýningarstjórinn Ellen Blumenstein skrifar um innsetningu Elínar og segir að gestir týni áttum þar sem gangurinn hlykkjast um, verði óöruggir og fyllist óöryggiskennd. Göngin „sikksakka“ gegnum rýmin og enda í þröngum myrkum spíss. Um verkið óma hljóð eftir Úlf Hansson. Er ferða- lagið um þetta rými óþægilegt? „Örugglega, eins og margt annað,“ segir Elín. „Það fer eftir fólki. Þetta er langur gangur. Galleríið er á fallegum stað, undir lestarteinum við Spree-ána, þar sem vatnið liggur alveg að gluggunum. En ég loka fyrir útsýnið, mig langaði til að láta áhorfandann hverfa inn í myrkrið.“ Myndlist sem ferli – Í verkum þínum virkjar þú áhorfandann. „Það er mergur málsins. Ég byggi þennan strúktúr og hann er tól, ekki tilbúið listaverk. Ég hef mikinn áhuga á myndlist sem ferli en ekki ein- hverri endavöru. Ég eyði miklum tíma í að smíða þessar innsetn- ingar, þetta eru tíu tíma vinnutarnir í fimmtán daga; þetta ferli er mér kært. Ég á þannig allt öðruvísi samband við verkin en gestirnir.“ – Er ekki sárt að sjá verkin rifin sundur eftir að áhorfendur hafa upplifað þau? „Nei, ég sé ekkert eftir þeim. Verkið er ekki það sem stendur eftir í rýminu. Fyrir mig er verk- ið upplifunin við að smíða það, og svo lifir það vonandi áfram í minningu fólks.“ Þúsundir bóka – lifandi þjóðsögur Í Landsbókasafni – Háskólabókasafni hefur á 4. hæðinni verið stillt upp verki Elínar, BOOK- SPACE. Er um að ræða 1.000 bækur sem síðasta hálfa árið hafa verið lánaðar út í Borgarbóksafni og fólki boðið að skrifa á þær, teikna eða tjá sig. „Ég varð undrandi að sjá hversu margt fallegt var komið í bækurnar, mikil heimspeki. Svo eru aðrar 1.000 bækur í bókasöfnum hér í Þýskalandi. Hugmyndin er að bækurnar verði allt að 15.000 í allt, og verði lánaðar út í 10 til 15 ár í viðbót. Þá er hugmyndin að safna þeim saman; ég lít á útkom- una sem umfangsmikið skjalasafn, einhverskonar lifandi þjóðsögur,“ segir Elín. Hverfa í myrkrið Elín Hansdóttir hefur byggt 60 metra löng og myrk göng í galleríi sínu í Berlín Ljósmynd/Elín Hansdóttir Þoka Hluti af myndverki sem tengist sýningu Elínar, Path, sem var opnuð í gær. Elín Hansdóttir ■ Í dag kl. 14.00 – Örfá sæti laus Maxímús Músíkús - Tónsprotatónleikar Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljómsveitar- innar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar Hallfríðar Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má Baldursson víóluleikara. Valur Freyr Einarsson leikari segir söguna af Maxímúsi, trúðurinn Barbara lítur við og Maxímús sjálfur kemur í heimsókn. Á efnisskránni eru m.a. Bolero eftir Ravel og fyrsti kaflinn úr fimmtu sinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson ■ Fim. 3. apríl kl. 19.30 Einstakur gestur Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sína eigin kadensur. ■ Fös. 4. apríl kl. 21.00 Heyrðu mig nú! Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleikar þar sem lista- mennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL Group. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.