Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 80. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
ÍSLENDINGAR hafa upp til hópa ekki sérstakar
óskir varðandi takmörkun meðferðar þegar nær
dregur lífslokum. Þess í stað hafa þeir tilhneig-
ingu til að treysta dómgreind lækna sinna og
sætta sig við ákvarðanir þeirra. Þetta er reynsla
Valgerðar Sigurðardóttur, yfirlæknis á líknar-
deild Landspítala. Hún segir einn og einn sjúkling
afþakka meðferð af sjálfsdáðum á lokastigi sjúk-
dóms en það sé mikill minnihluti. Þau Sigurður
skuld á því að þeir hafi andlega burði til að taka
ákvarðanir. Sigurður segir stærstu skilaboðin þau
að sjúklingar ræði þessi mál við sína nánustu og
hafi þá upplýsta um vilja sinn áður en veikindi
ágerast. „Þetta er ekki aðeins í þágu hins sjúka
heldur tryggir líka að aðstandendur séu sáttir því
það er hreint ekki auðvelt fyrir þá að vera settir í
þá aðstöðu að taka afstöðu til þess þegar á hólminn
er komið hvort hætta eigi meðferð vegna alvarlegs
sjúkdóms eða halda henni áfram.“
Treysta dómgreind lækna
Íslendingar hafa upp til hópa ekki sérstakar óskir varðandi takmörkun meðferðar við lífslok Mik-
ilvægt að ræða vilja sjúklinga í tíma Brýnt að sjúklingar hafi sína nánustu upplýsta um vilja sinn
Þegar þjáningin ein er eftir | 10
Guðmundsson landlæknir eru sammála um mik-
ilvægi þess að ræða vilja sjúklinga um takmörkun
meðferðar í tíma enda sé það réttur hvers og eins,
samkvæmt landslögum, að andlát fari fram á eins
virðulegan hátt og við verður komið.
Að gera síðustu metrana bærilega
„Þetta helst í hendur við líknandi meðferð sem
felst ekki endilega í því að lengja lífið heldur hefur
það að markmiði að gera síðustu metrana í lífinu
eins bærilega og hægt er,“ segir landlæknir.
Sjálfsákvörðunarréttur sjúklinga veltur vita-
Sjúkrahús Líknandi meðferð felst
ekki endilega í því að lengja lífið.
Aðgerðir Ísraela til að stöðva
sprengjuárásir frá Gaza bera lítinn
árangur. Þær fæla ekki frá, en
vekja hins vegar reiði almennings
og palestínskum skæruliðum eykst
kraftur.
Aðgerðir Ísraela
auka ólgu á Gaza
Bette Davis var fyrirmynd Joan
Collins um tæfur á hvíta tjaldinu.
100 ár eru nú frá fæðingu Davis og
af því tilefni minnist hin 75 ára
gamla Collins hennar.
Minnist fyrir-
myndar um tæfur
Vorið 1989 kom Elba Nunes Altuna
til Íslands, ófrísk með íslenskum
eiginmanni sínum. Hún var áður
kennari við menntaskóla í Lima í
Perú og kenndi sálfræði og heim-
speki. Á Íslandi hefur hún stundað
margvísleg störf en nú er hún fyrir
margt löngu orðin kennari á ný.
„Þótt ég fæddist tíu sinnum vildi
ég alltaf verða kennari,“ segir hún
með sinni fáguðu en ástríðu-
þrungnu rödd.
Hún kynntist manni sínu á kaffi-
húsi í Mira Florens, einu fínasta
hverfinu í Lima. Hann kom svo aft-
ur til að hitta hana og örlögin urðu
ekki umflúin, hún fylgdi honum til
Íslands, sem henni fannst í upphafi
bæði kalt og snautt af gróðri.
Nafn hennar er dregið af eyjunni
Elbu sem Napóleon Bonaparte
dvaldi á þegar hann hafði verið
sviptur völdum, en Elba er algengt
nafn í Perú. Elbu fannst mikil um-
skipti að flytja til Íslands.
„Magnús keyrði mig um alla
borgina og sýndi mér allt sem hann
gat. En ég sagði: „Magnús, ég vil
búa í höfuðborginni, ekki í svona
bæ, ég er borgarstúlka.“ Þá sagði
hann mér að þetta væri höf-
uðborgin. Ég varð alveg hissa,
þetta var fyrir tuttugu árum og það
var ekkert „metró“, engin almenni-
leg kaffihús – engar stórar bygg-
ingar. Varla var hægt að fá hér mat
fyrir venjulegt fólk,“ segir Elba.
Hún er hálfur Spánverji og einn-
ig rennur í æðum hennar ind-
íánablóð. Elba hefur ásamt manni
sínum keypt hús í Perú þar sem hún
er á sumrin ásamt fjölskyldu sinni
en hún á tvær dætur og einn son,
tvö stjúpbörn og barnabörn. Hún
elskar dans og söng enda er það ein
forsenda þess að komast í sérnám í
kennslu fyrir einhverfa en hún er
sérhæfð í slíkri kennslu frá Perú.
„Satt að segja hef ég heimþrá í
báðum löndunum. Þegar ég er hér
langar mig til Perú en þegar ég er
þar sakna ég margs frá Íslandi,“
segir hún. Elba er kaþólsk. „Ég bið
bænir og hef kennt börnunum bæn-
ir. En ég læt þau sjálf um það að
finna hvort Guð er til“. | 20
Kom frá Lima til Reykjavíkur fyrir réttum 20 árum
Ástríðublóm á
landi elds og ísa
Hér á Íslandi ríkir friður og öryggi
Heimþráin fylgir heimsálfa á milli
Rómantísk Elba Nunes Altuna er um margt ólík Íslendingum en hún unir
sér vel hér. „Satt að segja hef ég heimþrá í báðum löndunum,“ segir hún.
Árvakur/Golli
VIKUSPEGILL
Leikhúsin í landinu
Fló á skinni >> 56
Öll leikhúsin á einum stað
Nýttu þér þetta
TILBOÐ
og stofnaðu rei
kning á spron.is16%
vaxtaauki!
A
RG
U
S
/
08
-0
10
0
SUNNUDAGUR
FÉ, VÖLD
OG ÁSTIR
RÆTT VIÐ DONALD
SUTHERLAND
FÓLK >> 54
TÖFRANDI
TÓNLIST
SAMHLJÓMURINN Í
ANDA CARLS ORFFS
SKÓLASTARF >> 22