Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Einar Lík-afrónsson fædd- ist á Hrafnsfjarð- areyri í Jökulfjörðum 22. desember 1914. Hann lést í Hafn- arfirði 20. mars síð- astliðinn, 93 ára að aldri. Foreldrar hans voru Líkafrón Sigurgarðsson, f. 12. júlí 1882, d. 4. maí 1968, og Bjarn- ey Solveig Guð- mundsdóttir, f. 25. mars 1893, d. 12. maí 1974. Einar var þriðji elsti í röð fjórtán syst- kina, þau eru eftirtalin: Þorbjörg Þýskalandi, 14. mars 1926. Þau eignuðust einn son, Bjarna S. Einarsson, f. 3. apríl 1964, kvænt- ur Ingibjörgu Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn, Ester, Einar Sigga og Birki Inga. Einar ólst upp á Hrafnsfjarð- areyri og hóf ungur að vinna við sjómennsku, bæði á bátum og togurum. Hann fluttist til Ísa- fjarðar 1943 og þaðan til Reykja- víkur. Einar og Ingigerður flutt- ust til Hafnarfjarðar árið 1971 og hafa búið þar síðan, fyrst á Suð- urvangi 6 og síðan á Hrafnistu í Hafnarfirði. Einar starfaði lengst af sem sjómaður en frá árinu 1971 starfaði hann sem verka- maður hjá Berki hf. og síðar við uppskipun og sem vaktmaður hjá Eimskipafélagi Íslands. Útför Einars hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. samfeðra (látin), Sigurður (látinn), Sigurlaug (látin), Friðrika Betúelína, Guðbjörg (látin), Sigurrós, Að- alheiður (látin), Sig- urgeir (látinn), Jó- hanna, Kristín, Hrefna, Katrín (lát- in) og Gunnar (lát- inn). Hinn 11. apríl 1964 kvæntist Einar Ingigerði Karls- dóttur (fædd Irmg- ard Meyer). Ingigerður sem einn- ig er sú þriðja elsta í röð fjórtán systkina er fædd í Rechterfeld, Mig langar í nokkrum orðum að minnast föður míns, Einars Líka- frónssonar. Margar góðar minningar hafa runnið í gegnum hug minn síð- ustu daga og ekki er hægt að gera því skil að fullu í minningargrein þessari. Pabbi ólst upp á Hrafnsfjarðareyri í Jökulfjörðum. Hann sótti sjóinn ungur og starfaði sem sjómaður á bátum, togurum og skipum. Hann var einkar hæglátur og traustur maður, fámáll og flíkaði lítt tilfinn- ingum sínum. Hann var góður vinur og einkar þægilegur í allri umgengni. Einnig var hann mjög trúaður og sótti kirkju og tók þátt í safnaðar- starfi. Pabbi var duglegur að ganga og fór gjarnan í heimsóknir til systkina sinna, sem hann lagði mikla rækt við, í leiðinni notaði hann tækifærið til að fylgjast með lífinu við höfnina og í Kolaportinu, en þar hitti hann gjarn- an gamla vinnufélaga. Eitt sinn þeg- ar hann var á gangi í Hafnarfjarð- arhöfn var hann beðinn um að aðstoða við uppskipun. Hann var reiðubúinn að taka að sér þau störf sem honum voru falin og sá ekki ástæðu til að hafa fataskipti og sinnti kallinu þá þegar í sparifötum sínum. Hann var sæmdur heiðursmerki fyr- ir mjög vel unnin störf á sjómanna- daginn árið 1992. Þegar foreldrar mínir fluttu á Hrafnistu árið 2000 var pabbi ánægð- ur að vera kominn á framtíðarheimili sitt. Áhugamálum fjölgaði, hann byrjaði að pútta og stunda pílukast og boccia. Hann gekk fljótlega til liðs við Hrafnistukórinn, þótt hann hafi aldrei sungið áður, og við tóku fjöl- mörg ferðalög og ógleymanlegar skemmtanir með kórnum undir dyggri stjórn Böðvars Magnússonar, forstöðumanns félagsstarfsins. Pabbi blómstraði í góðum félagsskap vist- manna og starfsmanna á Hrafnistu. Barnabörnin þrjú, Ester, Einar Siggi og Birkir Ingi voru ljósgeisl- arnir í lífi afa síns. Hann hafði alla tíð gaman af að fylgjast með uppvexti þeirra og mikil gæfa að hann skyldi hafa náð þessum aldri og átt þess kost að eiga góðar stundir með þeim. Pabbi var alla tíð hraustur og minnist ég þess ekki að hann hafi ver- ið rúmliggjandi að undanskildum síð- ustu mánuðum lífs síns. Hann tók veikindum sínum af miklu æðruleysi. Við, sem fylgdumst með hvernig heilsu hans hrakaði stöðugt, vissum að hverju stefndi, en dauðinn er samt eitthvað sem ávallt kemur manni í opna skjöldu. Minningarnar eru ótal- margar og þær verða ekki frá okkur teknar. Elsku pabbi minn, ég og fjöl- skyldan söknum þín sárt en vitum jafnframt að þú ert frelsinu feginn, horfinn í annan heim á vit nýrra verk- efna og ævintýra. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Móðir mín á mikla aðdáun skilið fyrir mikla umhyggju hennar og forsjá í veikindum eiginmanns síns til 44 ára. Einnig þakka ég starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun og mjög góða þjónustulund á undanförnum árum. Hvíl í friði elsku pabbi. Bjarni S. Einarsson. Hann Einar afi er látinn. Hann var hljóðlátur og kvartaði aldrei undan neinu og þegar honum leið illa þá sýndi hann það ekki, hann sagði alltaf að sér liði ágætlega. Á sínum yngri árum var hann sjó- maður, en þegar hann fór á Hrafnistu las hann mjög mikið. Við systkinin fór alltaf saman í jólagjafaleiðangur, það kom aldrei neitt annað til greina en að gefa honum góða bók. Hann var mjög hrifinn af bókum um sjómenn, skip og ævisögum um merka menn. Þegar við vorum yngri fannst okkur alltaf jafn fyndið og skrítið að hann notaði gamlan fimmþúsundkrónaseð- il fyrir bókamerki. Þegar við bjuggum í Stykkishólmi var tekin fjölskyldumynd af okkur með ömmu og afa. Þau fengu mynd- ina og afi horfði mikið á myndina úr græna stólnum sínum af því að það minnti hann fjölskylduna og hvað hann var heppinn að eiga okkur öll að. Alltaf þegar við komum í heim- sókn til ömmu og afa sat hann í stóln- um sínum og hlustaði á Rás 1. Þegar hann sá okkur dró hann oft upp þrjá þúsundkalla úr veskinu sínu og gaf okkur systkinunum. Afi fór einu sinni með okkur í draugasafnið á Stokks- eyri og það var skemmtilegasta ferðalagið sem við fórum með hon- um. Á Hrafnistu var púttvöllur og afi fór oft út að pútta eða í góðan göngu- túr um hverfið. Afi var mjög dugleg- ur í félagsstarfinu á Hrafnistu. Hann var í kór og fór í boccia. Afi lifði í 93 ár og átti góða ævi. Þegar við komum til hans hinn 20. mars höfðum við á tilfinningunni að hann myndi deyja þetta kvöld. Við sátum hjá honum, héldum í höndina á honum og töluðum við hann, en hann gat ekki talað þann dag. Þegar mað- ur horfði í augun á honum var eins og hann væri að horfa yfir lífið sitt, aug- un hreyfðust hratt til beggja hliða. Við erum ekki enn búin að átta okkur á að afi sé farinn, en þegar við komum heim til ömmu og sjáum rúm- ið hans afa autt finnum við fyrir sorg og söknuði. Amma var mjög góð eig- inkona og þegar hann veiktist hugs- aði hún um hann dag og nótt. Við munum alltaf minnast Einars afa og sakna hans, því hann var mjög góður og við elskuðum hann af öllu hjarta. En þó að hann sé farinn frá okkur finnst okkur eins og hann sé ennþá með okkur. Ester, Einar Siggi og Birkir Ingi. Mig langar að minnast Einars Líkafrónssonar, sem kvæntur var Irmgard (Ingigerði Karlsdóttur) móðursystur minni, en hún er þýsk að uppruna. Einar hefur nú haldið í sína hinstu för. Frá fyrstu tíð hefur verið mikill samgangur milli fjöl- skyldnanna og hef ég því orðið þeirr- ar gæfu aðnjótandi að kynnast Einari nokkuð vel. Einar var rólegur að eðlisfari en þrátt fyrir það mjög vinnusamur alla tíð, mjög vel lesinn og unni góðum bókmenntum. Einar var smekkmað- ur mikill og vandaði klæðnað sinn, ávallt klæddur í jakkaföt með bindi. Hann var traustur og góður vinur, orðheldinn með afbrigðum og við höf- um átt margar skemmtilegar sam- ræður frá fyrstu tíð. Hann var vel að sér á ýmsum sviðum, skemmtilegast var að ræða við Einar um pólitík og dægurmál. Einar var dæmi um hinn sanna Hafnarfjarðarkrata og hafði ákveðnar skoðanir sem stundum stönguðust á við mínar. Við komumst yfirleitt að sameiginlegri niðurstöðu, en þegar svo var ekki vorum við sam- mála um að vera ósammála. Hann var mjög duglegur að ganga alla tíð og hélt sér þannig í góðu formi meðan heilsa entist. Í veikindum sín- um var hann æðrulaus og kvartaði ekki yfir hlutskipti sínu. Ég þakka Einari fyrir samfylgdina og sendi Irmgard, Bjarna, Ingi- björgu og börnum þeirra mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guðjón Karl Guðmundsson. Genginn er góður maður, maður sem lagði sig fram við að ganga lífs- veginn í sátt við menn, náttúruna og þau lífsskilyrði sem búin voru kyn- slóð þeirri sem ólst upp í byrjun tutt- ugustu aldar við erfiðar aðstæður vestur á Jökulfjörðum. Uppvöxt hans í faðmi vestfirska fjalla mátti svo sannarlega greina í öllu hátterni hans. Eins og bjarg stóð hann, ekkert haggaði honum, hann hélt ótrauður áfram, knúinn sjálfsbjargarhvöt, að draga björg í bú og að hlúa að sínu fólki – gaf ekkert eftir. Kynni okkar Einars og fjölskyldu hófust er við urðum nágrannar fyrir margt löngu. Þá gerðist það sem maður upplifir ekki oft á lífsleiðinni, það var eins og við hefðum þekkst alla ævi. Kærleikurinn, skilningur- inn, hjálpsemin urðu sameiginlegar heilladísir sem viku aldrei hársbreidd frá okkur. Margir litlir fætur trítluðu yfir til Einars og Ingu og fengu þar gott yfirlæti meðan foreldrar voru útivinnandi. Inga tók á móti ungun- um og var óþreytandi að upplýsa og fræða um venjur og hefðir frá heima- landi sínu, Þýskalandi, ásamt því að föndra þessi óhemju býsn af fallegum hlutum. Einar sem þá hafði lokið far- sælum störfum til sjós sat rólegur í stól sínum og brosti góðlátlega yfir öllu bröltinu. Aldrei voru blöð né bækur langt undan því Einar var bókaormur mikill. Hann las reiðinnar býsn af þjóðlegum fróðleik, sérstak- lega tengdum sjómennsku og útgerð. Halldór Laxness var og hans maður og las hann ritverk hans oftar en einu sinni. Á milli stórra ritverka var alltaf gluggað í Öldina okkar, bækur sem gáfu honum byr undir báða vængi - þar var hann á heimavelli. Á þessum árum tókst einnig mikil vinátta milli foreldra minna og þeirra hjóna. Þar hittust Vestfirðingar sem höfðu ótæmandi umræðuefni úr að moða, fiskigengd fyrr og nú, veður- far, fuglalíf og fiskverkun. Öllu þessu gerðu þeir skil. Fyrir þessi góðu kynni skal nú þakkað. Fyrir allmörgum árum fluttust hjónin að Hrafnistu Hafnarfirði og má þá segja að nýr kapítuli hæfist í ævi Einars. Nú var öllu striti lokið, hann gat tekið áhyggjulaus á móti hverjum degi og það gerði hann svo sannarlega. Ný viðfangsefni og áhugamál áttu nú hug hans allan. Starfsfólk Hrafnistu lagði sig líka allt fram við að hlúa að þeim hjónum og víst er að það átti stóran þátt í velferð og ánægju Einars með gæsku sinni og hjálpfýsi. Segja má að síðustu ævi- ár Einars hafi verið á þá lund sem flestir myndu kjósa sér að upplifa. Farsælu starfi var lokið. Alltaf vel til hafður og flottur á velli náði hann 93ja ára aldri. Hann var virtur og elskaður af öllum sem kynntust hon- um og umvafinn elsku og umhyggju konu sinnar Ingu og sonar Bjarna og tengdadóttur Ingibjargar og barna- barnanna til hinstu stundar. Síðasti spölurinn var tákrænn fyrir líf hans allt, rólegur, yfirvegaður með fullri reisn náði hann að kveðja þetta líf, þakklátur fyrir lífið allt og stórkost- lega landið sem hafði fóstrað hann. Um leið og við vottum fjölskyldu Einars innilega samúð, biðjum við góðan Guð að blessa minningu hans. Auður Kristinsdóttir og fjölskylda. Einar Líkafrónsson Lífið rennur sem lækur með lygnu og djúpan hyl grefur sér farveg og fellur um flúðir og klettagil. Við bakkana beggja megin blandast hin tæra lind uns lækurinn orðinn er allur annarra spegilmynd. Lækurinn minnir á lífið lindin er tær og hrein í fljótið ber hann öll fræin sem falla af næstu grein. En fljótið er lífsins ferja er flytur með þungum straum ljóðið um lindina tæru lækjarins óskadraum. (Sigurður Hansen.) Peter Jones ✝ Peter Jonesfæddist í Middl- esborough á Eng- landi, 26. janúar 1953. Hann lést á Sjúkrahúsi Ak- ureyrar 11. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrarkirkju 18. mars. Það er með miklum trega og mörgum tár- um sem ég skrifa þess- ar örfáu línur sem hinstu kveðju til mágs míns til margra ára, hans Peters eða Pét- urs eins og hann var oft kallaður. Ég man svo vel þeg- ar ég hitti Peter fyrst fyrir margt löngu. Þá var ég stödd í Gríms- ey, líklega á einhverri skemmtun en þar mætti ég Peter í hvít- um, ökklaháum og óreimuðum skóm. Peter kunni þá ekki mikla íslensku og ég var ekki sérlega sleip í ensku en reyndi mitt besta til að benda honum á að hann gæti hreinlega slasað sig ef hann ekki reimaði skóna sína. Það fór svo að lokum að ég reimaði skóna hans, því miður gleymdi ég að rifja þetta upp með honum síðar. Stuttu eftir að ég hitti Peter fyrst hóf hann sambúð með Ingu Möggu systur og eignuðust þau Helga ekki löngu síðar. Mér er minnisstætt að fyrir 10-11 árum, þegar ég bjó á Stokkseyri, þá bankaði Peter upp á ásamt Helga og líklega einhverjum fleirum. Ég spurði auðvitað hvort Inga Magga væri ekki með en Peter var fljótur til og sagði: „Hún bara vera heima, ég ekki nenna að hanga alltaf, hún alltaf vera svo bílhrædd- ur.“ Svona var íslenskan hjá þessari elsku þá. Að lokum vil ég minnast ferðar sem við fjórar systur og þrír eigin- menn þeirra fórum til Kanada síð- astliðið haust. Þar býr yngsta systir okkar ásamt fjölskyldu sinni. Þetta var frábær og í alla staði yndisleg ferð sem gott er að minnast á stundu sem þessari. Í þessari ferð kynntist ég Peter meira en á öllum þeim u.þ.b. 25 árum sem liðin eru síðan við hittumst fyrst. Þar kynntist ég húm- oristanum Peter, kokkinum Peter, bílstjóranum Peter og góða eigin- manninum Peter. Einnig var ógleymanlegt að fylgjast með þeim svilum; Peter, Bjarna, Gunnari og Óla í billjard þar sem allir voru best- ir. Ekki var síður skemmtilegt að fá skýrslur frá þeim félögum Peter og Gunnari um kóngulærnar sem þeir sáu svo vel um og fóðruðu. Elsku Inga Magga, Þóra, Kári, Helgi og fjölskyldur, megi góður guð vaka yfir ykkur öllum og styrkja. Kæri Peter, hvíl í friði. Elín Stella (Ella Stella mágkona). Ekki var rétt farið með ljóð Davíðs á út- farardegi Ásu Guð- rúnar. Greinin birtist því hér aftur og beðist er velvirðingar á mistökunum. Hverju sem ár og ókomnir dagar að mér víkja, er ekkert betra en eiga vini sem aldrei svíkja. (Davíð Stefánsson.) Þessar ljóðlínur koma í huga mér, er ég kveð mína kæru vinu, Ásu Guðrúnu Kristjánsdóttur, sem nú hefur lagt í sína hinztu för. Það er gæfa mín og gleði að hafa átt vináttu hennar, fagra og fölskva- lausa alla mína tíð. Minningarnar eru ófáar, sam- verustundirnar svo ótal margar, stundum af litlu tilefni, stundum stóru, stundum engu. Allar eru þær umluktar heiðríkju, gleði og sannri Ása Guðrún Kristjánsdóttir ✝ Ása GuðrúnKristjánsdóttir fæddist á Innra-Ósi í Strandasýslu 17. júní 1917. Hún lést á Elliheimilinu Grund 14. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Áskirkju 28. mars. vináttu. Móttökurnar ætíð höfðinglegar, faðmlagið hlýtt og handtakið þétt. Dill- andi hlátur hennar umlykur allt, svo jafnvel blómin brosa. Öll hennar verk unn- in af einstakri vand- virkni, hógværð og alúð. Stolt af sínu og sínum og mátti svo sannarlega vera það. Fyrirmynd í svo mörgu, sem mér þótti óendanlega vænt um. Á kveðjustund er margs að minnast og margt að þakka. Ég þakka henni gjafmildi og góð- mennsku mér og mínum til handa. Ég þakka heilræðin öll, hvatn- inguna, hrósið, já hamingjudagana alla í þá góðu hálfu öld sem við átt- um samleið. Elsku Haraldi, börnum þeirra, Kristjáni, Sigurbjörgu og Þórlaugu, svo og ástvinum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Góður Guð blessi minningu elsku Ásu. Henni, sem alltaf var svo falleg, fáguð og fín óska ég góðrar heim- ferðar og góðrar heimkomu, hana á hún vísa. Hjartans, hjartans þakkir, voru ávallt orðin hennar þegar við kvöddumst. Þau vil ég gera að mín- um nú þegar ég kveð hana í hinzta sinn. Hjartans, hjartans þakkir. Ásthildur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.