Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 51
KRABBAMEINSFÉLAG Íslands gekk nýlega frá samningi við EJS um kaup á hugbúnaði og vél- búnaði frá EMC, DELL, APC, Cisco og Raritan. Búnaðurinn sem félagið kaupir er hluti af nýrri lausn vegna breytinga sem fela í sér að tekin verður upp stafræn tækni á leitarsviði Krabba- meinsfélagsins. Starfsemi leitarsviðs Krabbameinsfélags Ís- lands felst í því að boða konur til krabbameins- leitar í forvarnaskyni í Skógarhlíð 8 í Reykjavík og á heilsugæslustöðvar um allt land. Árlega koma tugþúsundir kvenna til skoðunar og félag- ið á gögn sem ná allt aftur til ársins 1964. Búnaðurinn sem varð fyrir valinu var gagna- geymslur og afritunarhugbúnaður frá EMC, PowerEdge Blade-netþjónar frá DELL, Dell Op- tiPlex-borðtölvur, Dell Precision-vinnustöðvar og Dell-skjáir og netþjónaskápar. Innifalinn í samningnum er einnig Cisco-netbúnaður og APC-rafbakhjarlar. Leitarsvið Krabba- meinsfélagsins verður stafrænt Ægir Ármannsson,sölustjóri miðlægra lausna EJS,og Guð- rún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 51 • Sérverslun með sportvörur. Ársvelta 120 mkr. • Lítil heildverslun með hársnyrtivörur. Hentugt til sameiningar. • Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli) sem selur í verslanir um allt land. Ársvelta 160 mkr. EBITDA 15 mkr. • Rótgróið Þjónustufyrirtæki í ferðamannaiðnaði. Ársvelta 120 mkr. EBITDA 25 mkr. • Einstakt veitingahús í nágrenni Reykjavíkur. EBITDA 20 mkr. • Meðeigandi óskast að þekktri ráðningarþjónustu. • Framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 300 mkr. Góður rekstur í stöðugum vexti. • Bílaumboð. Miklir möguleikar. • Innflutningsfyrirtæki, að hluta með eigin framleiðslu erlendis. Ársvelta 450 mkr. • Réttingaverkstæði-sprautun í nágrenni Reykjavíkur. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Ársvelta 50 mkr. Góð afkoma. • Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir í veflægum lausnum. Ársvelta 180 mkr. EBITDA 35 mkr. • Lítil verslun í Kringlunni. Ársvelta 50 mkr. • Innflutningsfyrirtæki með byggingavörur. Ársvelta 150 mkr. EBITDA 22 mkr. Pera vikunnar: Í 8. T eru 7 drengir með sítt hár. Það eru alls 16 drengir í bekknum. 8 nem- endur eru með sítt hár. 3 nemendur eru hvorki drengir né með sítt hár. Hve margir nemendur eru í bekknum? Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12.00 mánudaginn 7. apríl 2008. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavog- ur.is Stærðfræðiþraut Digranes- skóla og Morgunblaðsins FRÉTTIR DARFÚRSÖFNUN Hjálparstarfs kirkjunnar er hafin og verður gíró- seðlum dreift á öll heimili næstu daga og er söfnunarsími 907-2002. Upphæðin á heimsendum gíróseðli er 2.400 kr. sem dugar t.d. fyrir neyðarpakka fyrir 5 manna fjöl- skyldu eða plóg og mataráhöld fyrir eina fjölskyldu. Vegna versnandi ástands í Darfúr er enn mikil þörf fyrir neyðaraðstoð en Darfúr er hérað í Vestur-Súdan þar sem um 6 milljónir manna búa. Um 250.000 manns hafa látist síðan 2003 þegar ófriðurinn sem nú geisar byrjaði. 2,5 milljónir manna hafa neyðst til að flýja heimili sín og setj- ast að í flóttamannabúðum. Æ fleiri hópar uppreisnarmanna og ribbalda ráða ríkjum og hrekja fólk frá heim- kynnum sínum. Hjálparstarfið er að- ili að Alþjóða neyðarhjálp kirkna, ACT, sem í samstarfi við fleiri sam- tök stendur að einu stærsta neyð- arverkefni sem framkvæmt er í Darfúr. 350.000 einstaklingar fá dag- lega hjálp í gegnum neyðarverkefn- ið. Reynt er að gera lífið í flótta- mannabúðunum bærilegra, fjölskyldur fá húsaskjól og neyðar- pakka með ýmsu af því allra nauð- synlegasta, skólastarf er í gangi fyrir börnin og reynt að tryggja aðgang að hreinu vatni. Heilsuþjónustu er komið á fót og reynt að veita áfalla- hjálp og sálrænan stuðning vegna hinnar erfiðu lífsreynslu sem nánast allir hafa þurft að ganga í gegnum. „Einnig er unnið að sáttum og reynt að koma á viðræðum á milli hinna ýmsu samfélagshópa og flokka,“ seg- ir í fréttatilkynningu. Söfnun fyrir Darfúr RAGNHEIÐUR Eiríksdóttir og Huginn Freyr Þorsteinsson hafa ver- ið ráðin til aðstoðar þingmönnunum Atla Gíslasyni og Þuríði Backman. Huginn er aðstoðarmaður Þuríðar með aðsetur á Akureyri en Ragnheið- ur er aðstoðarkona Atla og verður með aðsetur í Reykjanesbæ. Ragnheiður Eiríksdóttir er betur þekkt sem Heiða en undir því nafni hefur hún komið fram í ýmsum hljóm- sveitum, þar á meðal Unun. Hún býr nú á Suðurnesjum með fjölskyldu sinni en hún lærði heimspeki við Há- skóla Íslands og tók eitt ár í Mast- ernámi í Technische Universität í Berlín. Ragnheiður hefur unnið ýmis störf um ævina, sem blaðamaður, tónlistar- gagnrýnandi og fleira, en þekktust er hún að sjálfsögðu fyrir tónlist sína. Maki Ragnheiðar er Elvar Geir Sævarsson tónlistarmaður og saman eiga þau soninn Óliver. Huginn Freyr Þorsteinsson er 29 ára og heimspekingur að mennt, út- skrifaðist með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands 2003, MA-próf í vísindaheimspeki frá Bristol-háskóla árið 2005 og stundar nú doktorsnám við sama skóla. Huginn hefur starfað fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð frá árinu 2001 með hléum en í síðustu kosningum var hann kosn- ingastjóri á landsvísu. Hann er auk þess formaður vinstri grænna á Ak- ureyri. Samhliða því að vera aðstoðarmað- ur Þuríðar hefur Huginn verið ráðinn til starfa fyrir svæðisfélag vinstri grænna á Akureyri og kjördæmisráð Norðausturkjördæmis. Huginn Freyr Þorsteinsson Ragnheiður Eiríksdóttir Heiða og Huginn til aðstoðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.